Morgunblaðið - 10.10.1981, Síða 12

Morgunblaðið - 10.10.1981, Síða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, LAU.GARDAGUR 10. OKTÓBER 1981 HLAÐVARPINN Fyrsta, annað og þriðja! Fylgst með störfum Antons Holt á Bókauppboði Klausturhóla Uppboðshaldarinn stendur innst í salnum. mundar ham- arinn. fyrsta. annað og — það eru boðnar 600 krónur. það er rétt fyrir handinu — býður einhver betur? — 650? — Uað eru boðnar, 650. 700 krónur eru boðnar, 700 krón- ur? Fyrsta annað og ... Fyrsta annað og þriðja! Lítill uppboðshamarinn smellur á borðinu, og virðulegum manni aftarlcga í salnum hef- ur verið slegin forláta bók, er hann lengi hafði vantað í safn sitt. Tíðindamaður Hlaðvarp- ans brá sér á bókaupphoð hjá Klausturhólum á laujíardaK- inn, ok ræddi síðan við Anton Ilolt, sagnfræðing og bóka- mann, sem um alllangt skeið hefur boðið upp bækur fyrir Guðmund Axelsson kaup- mann í Klausturhólum. „Ég hef verið í þessu meira og minna í ein þrjú ár,“ segir Anton, um leið og hann þurrkar af sér svitann eftir erfiðið — 200 númer hafa verið boðin upp, og margir hafa verið um hituna. „Já, þetta er skemmtilegt starf, annars vaeri ég ekki í þessu," heldur hann áfram. „Ég hef iengi haft áhuga fyrir bókum, og þess vegna hef ég sjálfsagt verið beðinn um að taka þetta að mér. Anton Holt með bók í ann- arri hendi og uppboðsham- arinn í hinni: Fyrsta, ann- að og þriðja! — Til vinstri má sjá niðursokkna hóka- safnara i fremstu röð, margir þeirra eru íasta- gestir á bókauppboðunum fyrsta laugardag í mánuði hverjum. Hér ríkir ákveðin stemning, kannski er þetta ekki ósvipað veiðiskap, sem sumir fá bakteríu af. Menn eru að prufa sig áfram, hvað komast þeir af með að borga, skyldu þeir detta í lukku- pottinn, annað hvort með góðu verði, eða með því að ná í lengi þráðan dýrgrip? Stundum er eins og menn bjóði í af hreinni rælni, og kaupa oft bækur af rælni. Þeir eiga bókina kannski fyrir, en geta svo ekki stillt sig og bjóða, ef verðið er lágt. Sjálfsagt er um 20% bókanna keypt af hreinni rælni. Annars eru hér alls konar menn, hreinir bókasafnarar, áhugamenn um uppboð, sem þó kannski bjóða aldrei, þeir sem eru forvitnir um hvernig þetta fer fram, og svo framvegis. Marg- ir koma á hvert uppboð, sumir til að kaupa, aðrir til að fylgjast með, og sumir sjálfsagt bara til að upplifa þá stemningu, sem oftast fylgir uppboðunum." „Valla vini okkar viðförla fannst dvölin svo heilnæm hér við Skegness, að hann ákvað að koma aftur með fjölskylduna til búsetu.“ SUNDAY EXPRESS, 4. OKTÓBER DÚFNARÆKT Smyrillinn kemur í veg fyrir frelsi dúfnanna Séð inn i dúfnakofann á Sólvöllum, spekingslegar dúfur horfa á myndavélina, og hojarinn reigir stél sitt sem mest hann má. Litið við í dúfna- kofa krakkanna á Sólvöllum á Flateyri Flestir strákar hafa einhvern tíma fengist við dúfnarækt, og þeir eru ófáir eldri mennirnir sem eiga g(')ðar minningar úr dúfnakofum er þeir áttu á ungl- ingsárum sinum. Skemmtilegar endurminningar rifjuðust að minnsta kosti upp fyrir tiðinda- manni Hlaðvarpans fyrir skömmu. er hann var á ferð um Flateyri. og rakst þar á myndar- lcgt dúfnabú i útjaðri þorpsins, nánar til tekið hjá börnum hjón- anna á Sólvöllum, þeim Gunnari Hjarka. Birni Inga, Jakob og Margréti. En þau eru börn hjón- anna Hrafns Björnssonar og Bjarkar Gunnarsdóttur. „Nei, þetta er nú ekki gamalt hjá okkur" sagði Gunnar Bjarki, elstur systkinanna og upphafs- maðurinn í dúfnaræktinni. „Ég fékk fyrstu dúfurnar hinn 5. mars í vor, og síðan hefur þetta komið smám saman. Allar dúfurnar hef ég fengið úr Reykjavík, frá frænda mínum, Hjálmari Gunnarssyni. Fyrstu dúfurnar voru bréfdúfur og tveir hojarar, og þeim komum við fyrir hér í gömlum hjalli fyrir ofan húsið. Þar var áður hengdur upp fiskur, og ágætt loft er þar Björn Ingi með eina dúfuna, en þær cru spakar eins og sjá má. Ekki er þó þorandi að sleppa þeim lausum vcgna hættu á loft- árásum smyrla, eða launmorðum minks og refs. yfir. Síðan hinn 17. mars fékk ég sex dúfur til viðbótar, seldi þrjár þeirra til krakka niðri á Eyri. Þær sem ég seldi voru tveir ísarar og einn toppari, en ég hélt tveimur elbingum og einum hojara. Síðan hefur þetta komið hvað af öðru, og nú eru talsvert margar dúfur hér í þorpinu, sem ég hef útvegað öðr- um, en áður voru aðeins til hálf villtár dúfur við einn bæ í sveit- inni hérna.“ Gunnar sagðist gefa dúfunum hænsnafóður, maís og fleira sem til félli. Á veturna gerist full kalt fyrir dúfurnar, og úr því var í fyrravor bætt með rafmagnsofni þegar kaldast var. „Dúfurnar þola í sjálfu sér meiri kulda," sagði Gunnar, „en ef maður kyndir á veturna verpa þær einnig á þeim tíma, ef ekki er of kalt til að liggja á.“ Dúfurnar sagði hann verða að vera mest inni í kofanum, þar sem mikið væri af smyrli' í grendinni, sem auðveldlega gæti banað dúf- um á flugi. „Við höfum séð smyril- inn drepa skógarþresti," sagði Gunnar, „svo hann gæti alveg eins tekið dúfurnar. Þá vitum við einn- ig af mink og ref hér t nágrenninu, svo best er að taka enga áhættu."

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.