Morgunblaðið - 10.10.1981, Side 23

Morgunblaðið - 10.10.1981, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 1981 23 19% í verði frá því í fyrra, þá rýrðu hinar nýju reglur um fersk- fiskmat á síld kjör sjómanna enn meir, eða sem næmi 45% og því væri raunveruleg hækkun á síld- inni frá í fyrra ekki nema 12-13%. Haraldur Grétarsson skoraði á menn að sigla skipunum til Reykjavíkur, loka höfninni þar og setjast að á Alþingi íslendinga. Nokkrar umræður urðu um þessa tillögu og fékk hún þó nokkurn hljómgrunn en hins vegar var ákveðið síðar á fundinum að senda sérstaka nefnd til viðræðna við ráðamenn. Ingólfur Ingólfsson sagði að hann væri hjartanlega sammála sjómönnum um það til hversu miklar óþurftar nýjar matsreglur á ferskri síld væru. Sjávarút- vegsráðherra hefði hins vegar ekki viljað fella þessa reglugerð úr gildi þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir. „I reynd er búið að breyta smáat- riðum í reglugerðinni en það segir ekki neitt," sagði Ingólfur. hljómgrunn. „Við eigum enga samleið með loðnusjómönnum," sagði Arni Vikarsson skipstjóri á Hvalsnesi. „Málið er að Stein- grímur Hermannsson getur breytt þessu eins og öllu öðru, hann gerir hvort eð er ekkert annað en að breyta." Rætt var um að ef aðgerðir sjó- manna vöruðu lengi, þá myndu einhverjir útgerðarmenn láta af- skrá sínar áhafnir. örn Þor- björnsson skipstjóri og útgerðar- maður tók þá til máls og sagði að á sínu skipi yrði enginn afskráður og skoraði hann á aðra útgerðar- menn að fylgja sínu fordæmi. „í þessu máli stöndum við saman, sjómenn og útgerðarmenn," sagði hann. Vildu bíða Eftir þetta tóku tveir skipstjór- ar nótabáta til máls og vildu bíða með aðgerðir. Bæði Halldór Brynjólfsson og Jón Eiríksson Myndabrengl Myndabrengl urðu á blaðsiðu 2 í Mbl. í gær. 1 texta undir mynd var talað um vatnadreka á leið austur i sveitir, en myndin, sem birtist, var af 28 feta Flugfiskbáti úr Vogunum. Myndin hér er af vatnadrekan- um. Frá sviðinu. Ingólfur Ingólfsson i ræðustól. 1300 tunnur þarf til að fiska fyrir kauptryggingu Það kom fram hjá ræðu- mönnum að á þessari vertíð þyrfti að fiska á milli 1300 og 1400 tunn- ur til að fiska upp í kauptrygg- ingu. Fyrir þremur árum hefði að- eins þurft að veiða 700 tunnur til að fiska upp í kauptryggingu og í raun væri þetta um 50-60% kjara- rýrnun. „Ég hefði gaman af að sjá fólk í landi sætta sig við slíka rýrnun," sagði einn ræðumanna. Á fundinum var rætt um að skyn- samlegt væri að bíða til 16. októ- ber nk. og hefja aðgerðir sama dag og loðnuskipin, en það fékk ekki sögðu að betra væri að bíða eitt- hvað og hefja aðgerðir þá. Ágúst Einarsson frá LIÚ sagði m.a. að enn ættu 30-40 nótabátar eftir að hefja veiðar, aðeins á milli 10 og 20 væru byrjaðir. Kvað hann að ef ekki næðist alger samstaða meðal manna nú myndi allt riðlast innan skamms. Óskar Vigfússon skoraði á sjómenn á nótaskipunum að hlíta úrskurði fundarins og í lok fundarins samþykktu menn að enginn myndi skorast undan, og ákveðið var að senda skeyti til þeirra nótaskipa sem voru við Ing- ólfshöfða síðastliðna nótt og skora á áhafnir þeirra að halda til heimahafna. Rex-Rotary Ijósritunarvélar Dönsk gæöaframleiðsla, verðlaunuð fyrir hönnun, viðurkennd um víða veröld. Allir Rex-Rotary Ijósritarnir skila hnífskörpum, þurrum Ijósritum strax, þ.e. án upphitunartíma. Eftir eðli og umfangi verk-' efnanna velur þú þann rétta, og Rex-Rotary skaffar þér besta vélaverð, besta ef nisverð og þar með ódýrustu Ijósritin. jFOmx HÁTÚNI 6A • SÍMI 24420 Veturliði vígir nýjan sýningarsal BJÖRN nermannsson. sem rekið hefur innrömmunarverkstæði að Hverfisgötu 32 i Reykjavík, hefur nú opnað þar sýningarsali og nefn- ir fyrirtæki sitt Gallerí Hverfisgata 32. Fyrsta sýning, sem haldin er i hinu nýja gallerii, er á oliukritar- myndum Veturliða Gunnarssonar, listmálara. Veturliði sýnir í Galleríi Hverfis- götu 32 47 olíukrítarmyndir, sem all- ar eru til sölu. Veturliði sagði í sam- tali við Morgunblaðið að í raun væru þessar myndir skissur að stærri málverkum, en þar sem honum hefði boðizt sýningaraðstaða í Galleríi Hverfisgötu 32 hefði hann tekið boð- inu. Sýningin er opin um óákveðinn tíma daglega á tímabilinu frá 14 til 22. Aðgangur er ókeypis. Talsverð aðsókn mun þegar vera að Galleríi Hverfisgötu 32 og hafa 5 til 6 listamenn þegar sótt um að fá að sýna þar. Skólaskórnir í ár ÚTILÍF Glæsibæ, sími 82922. FRAM 0G KR íslandsmót í handknattleik 1. deild Laugardalshöll í dag. M.fl. karla kl. 14.00. M.fl. kvenna kl. 15.30. ÁGÚST ÁRMANN hi UMBOOS OG HEICVERZIUN #V\ SUNDABORG ?4 - REYKJAtÁK Æm ÖÖPIONEER PLASTPOKAR PI«isí.os liF OSRAM AðÍMfhf © ALDA Hoffell sf. Master handboltar. Borgarinn Bakaríið Kringlan

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.