Morgunblaðið - 10.10.1981, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 1981
Sýning um prent-
listina á Akranesi
ÞESSA dagana stendur yfir sýn-
ing i Bókhlöðunni á Akranesi,
sem ber heitið „Prentlistin breyt-
ir heiminum“. Sýningin er opin
öllum almenninKÍ klukkan
15—20 daglega fram á laugar-
dagskvöld.
Sýningin er farandsýning og
fram að þessu hefur hún verið sett
upp í Reykjavík og á Sauðárkróki.
Þarna er sýndur þróunarferill
prentlistarinnar, allt frá því ritun
hefst, aðdraganda prentlistarinn-
ar, frá fyrstu prentunartilraunum
og aðferðum, einnig þróun prent-
listar fram á okkar öld.
Sýningunni var fylgt úr hlaði
með því að Bragi Þórðarson,
prentsmiðjustjóri, flutti erindi í
Fjölbrautaskólanum um sögu
prentlistarinnar.
Áður hafa verið haldnar slíkar
yfirlitssýningar í Bókhlöðunni.
Ber þar hæst sýninguna: „Prent-
verk í Borgarfirði".
Kirkjukaffi, basar og
söngur í Bústaðakirkju
A SUNNUDAGINN gefst kirkju-
gestum kostur á að ganga i safn-
aðarsal Bústaðakirkju eftir mess-
una kl. 2 og setjast að borðum og
njóta góðra veitinga, sem Kvenfé-
lag Bústaðasóknar reiðir fram
gegn vægu gjaldi. Og einnig er
hægt að hafa með sér heim vistir,
þar sem konurnar verða með
margs konar kökur og slikt góð-
gæti á basarborðum.
Þá munu tvær söngkonur gleðja
kirkju- og kaffigesti með flutningi
sínum á ýmsum þekktum tónverk-
um. Eru þær báðar að góðu kunn-
ar, ekki aðeins í Bústaðakirkju,
heldur hvarvetna þar sem fólk
kann að meta góðan söng. Eru
þetta söngkonurnar frú Ingibjörg
Marteinsdóttir og frú Ingveldur
Hjaltested, óperusöngkona.
Við vonum að sem flestir leggi
leið sína í Bústaðakirkju á sunnu-
daginn, fyrst í messuna og síðan í
kirkjukaffið. Og um leið viljum við
benda á það, að barnastarfið er nú
hafið með guðsþjónustum kl. 11
árdegis.
Bikarkeppni BSÍ
- Úrslit
Úrslitaleikurinn í Bikarkeppni
BSÍ verður haldinn á Hótel Loft-
leiðum laugardaginn 10. október.
Til úrslita keppa sveitir Egils
Guðjohnsen og Arnar Arnþórs-
sonar. Úrslitaleikurinn er alls 64
spil, en aðstaða fyrir áhorfendur
verður ekki sett upp fyrr en að
loknum 16 spilum eða klukkan
13.00. Þá verða spilin sem eftir
eru sýnd á sýningartjaldi. Að-
gangseyrir verður 25 krónur.
Sveit Egils Guðjohnsen skipa
auk hans: Stefán Guðjohnsen,
Guðmundur Pétursson, Sig-
tryggur Sigurðsson, Óli Már
Guðmundsson og Þórarinn Sig-
þórsson.
Sveit Arnar Arnþórssonar
skipa auk hans: Guðlaugur R.
Jóhannsson, Hörður Arnþórs-
son, Jón Hjaltason, Jón Ás-
björnsson og Símon Símonarson.
Keppnisstjóri er Guðmundur
Sv. Hermannson.
Önnur umferð í haust-
tvímenningi Bridgefélags
Bridge
Arnór Ragnarsson
Reykjavíkur var spiluð síðastlið-
inn miðvikudag.
Þessi pör fengu hæsta skor:
Gestur Jónsson —
Sverrir Kristinsson 207
Jón Baldursson —
Valur Sigurðsson 204
Sævar Þorbjörnsson —
Þorlákur Jónsson 204
Jón Ásbjörnsson —
Símon Símonarson 193
Sigurður Sverrisson —
Þorgeir Eyjólfsson 190
Guðlaugur R. Jóhannsson —
Örn Arnþórsson 185
Röð efstu para eftir tvær um-
ferðir er þessi:
Sævar Þorbjörnsson —
Þorlákur Jónsson 396
Gestur Jónsson —
Sverrir Kristinsson 375
Jón Baidursson —
Valur Sigurðsson 375
35
Jónas P. Erlingsson —
Þórir Sigursteinsson 365
Guðlaugur Jóhannsson —
Örn Árnþórsson 359
Ásmundur Pálsson —
Karl Sigurhjartarson 354
Gísli Hafliðason —
Gylfi Baldursson 353
Sigurður Sverrisson —
Þorgeir P. Eyjólfsson 348
Ágúst Helgason —
Hannes Jónsson 346
Guðmundur Pétursson —
Hörður Blöndal 344
Bjarni Sveinsson —
Sigmundur Stefánsson 343
Þriðja umferð verður spiluð í
Domus Medica nk. miðvikudag
kl. 19.30 stundvíslega.
Bridgefélag V-Hún.
Hvammstanga
Vetrarstarf félagsins hófst
29.9. með eins kvölds tvímenn-
ingi. 8 pör mættu til leiks og
urðu úrslit þessi:
Eggert Karlsson og
Sverrir Hjaltason 102
Eyjólfur Magnússon og
Rúnar Ragnarsson 102
Flemming Jessen og
Hrafnkell Óskarsson 87
Karl Sigurðsson og
Kristján Björnsson 87
Meðalskor 84.
Hið árlega Guðmundarmót fé-
lagsins verður haldið laugardag-
inn 17.10. og hefst kl. 13.00.
Spilaður verður Barómetertví-
menningur, 23 umferðir, keppn-
isstjóri Guðmundur Sigurðsson.
Boðið er til mótsins úr eftir-
töldum bridgefélögum: Borgar-
nesi, Borgarfirði, Hólmavík,
Blönduósi, Skagaströnd, Sauð-
árkróki, Fljótum og Siglufirði.
Spilað verður um silfurstig.
Einnig verða veitt verðlaun fyrir
3 efstu sætin, gefin af Kaupfé-
lagi V-Húnvetninga.
Fyrsta skipti á íslandi
Símatækjasýning
að Lækjargötu 46, Hafnarfirði. Sími 51201
í DAG, laugardag frá 13.00—18.00
Við sýnum nokkuð af því sem koma skal, m.a. fullkomin símatæki:
umvinsL
★ Símatæki meö hnappavali
★ Símatæki meö minnum
★ Símatæki meö klukku, vekjara, og minnum
★ Símatæki sem man síöasta valda númer
★ Símatæki sem mælir lengd símtala
★ Tölvustýrö innanhúss símakerfi fyrir smærri fyrirtæki og heimili
★ Síma-sjálfveljara meö minnum frá 16—120 meö klukku, Ijósaborði og
hátalara
Auk þess bjóðum
við:
Mjög fullkomin Electr-
onisk þjófavarnarkerfi
fyrir heimili og bíla.
Sími 17811, Hafnarstræti 18,101 Reykjavík.