Morgunblaðið - 10.10.1981, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 10.10.1981, Qupperneq 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 1981 Golfmót í Grafarholti KYLFINGAR úr Golfklúbbi Reykjavíkur unnu sér rétt til þátttöku á KAS-keppninni í Kolfi. sem væntanleKa fer fram á Spáni næsta vor. Þeir GR-menn ætla sér að vera meö í mótinu og til að fjármagna hluta af kostnaði efna þeir til opinnar keppni i Grafar- holti á morKiin, lauKardatc. Byrj- að verður að ræsa út klukkan 10 f.h. Um kvöldið verður siðan skcmmtikvöld í golfskálanum ok m.a. sýndar Kolfmyndir af myndseKulbandi. Kínverji kennir unglingum bad minton hjá KR UNGLINGASTARFIÐ hefst hjá badmintondeild KR i daK. en i vetur verða sérstakir unKÍinKa- tímar á lauKardöKum milli klukkan 13 ok 15. Kennsluna annast kinverskur badminton- kappi, sem KenKur undir þvi áKH'ta nafni Jón hér á landi. Fram mætir KR EINN leikur fer fram i 1. deild- inni í handknattleik i daK, Fram ok KR eÍKast við i I.auKardals- höllinni ok hefst leikurinn klukk- an 1.15. Ovíst er hvernÍK leik bú- ast má við, því Framarar eru mikið til óskrifað blað. I>eir hafa misst marKa fastamenn ok tekj- urnar á móti hafa verið litlar. l>að mun því mæða mikið á unK- um ok lítt reyndum leikmönnum hjá liðinu. Telja verður KR sÍKur- stranKÍCKri aðilann. Úrslit ráðast senn ÞRÍR leikir fóru fram í Reykja- vikurmótinu í blaki í fyrrakvöld, en úrslit þar ráðast á miðviku- daKÍnn. í mcistaraflokki karla sÍKraði fyrsta lið Þróttar lið Vík- inK-s 3-1. 15-13, 9-15, 15-5 ok 15—2. ÍS sÍKraði annað lið Þróttar 3—0. 15—11, 16—14 ok 15—12. í mcistaraflokki kvenna sÍKraði ÍS lið UBK 3—1. Karfa um helgina NOKKRIR leikir eru á dagskrá í körfuknattleik um helKÍna, að vísu enKÍnn í úrvalsdeildinni, en þeim mun fleiri i öðrum deildum. Leikirnir fara allir fram i daK- í IlaKaskólanum leika KR ok UMFN i 1. deild kvenna ok hefst leikurinn klukkan 14.00. Stór- leikur körfunnar er þó án tiltak- anleKs vafa viðureÍKn ÍBK ok Hauka suður i Keflavik, en sá leikur er liður i 1. deildar keppni karla. Hefst leikurinn klukkan 14.00. En annar leikur er einnÍK á daKskrá i 1. deildinni i daK. SkallaKrímur ok Grindavik mæt- ast í íþróttahúsinu i BorKarnesi ok hefst leikurinn klukkan 14.00. • Ein af Cosmos-stjörnun- um, Jeff Durgen, sýnir strákunum skallatæknina. Ekki þarf þessi kennari að kvarta undan því að hafa ekki óskipta athygli nem- enda sinna. Það vakti at- hygli, að Hennes Weisweil- er stjórnaði sjálfur einum námsflokknum. <-------------------------- al kennara var sjálfur refurinn Hennes Weisweiler, hinn heims- frægi þjálfari, markvörðurinn Hu- bert Birkemeier og Brasilíumað- urinn frábæri Carlos Alberto. Létu menn kuldann ekkert á sig fá og höfðu greinilega gaman af. Á meðan drógu aðrir leikmenn Cosmos sig afsíðis og glömruðu í þeim tennurnar af kulda. Með- fylgjandi myndir tók RAX á Valsvellinum við Hlíðarenda í gær. Var þar margt um manninn, Góð mæting í Cosmos-skólanum Norðanáttin og kuldinn drógu á engan hátt úr áhuganum hjá um 100 strákum, sem voru svo lán- samir að geta verið með 1 Knatt- spyrnuskóla Cosmos á Valsvellin- um í gærdag. Skólinn átti að hef j- ast klukkan 15.00, en löngu áður en klukkan sló voru pollarnir komnir um allan völl sparkandi ok hlaupandi, ekki sist þó til að halda á sér hita. Voru þátttak- endur aðkomnir frá flestum ef ekki öllum landshlutum og marg- ir efnilegir drengir voru þarna á stjái. Eitthvað seinkaði stjörnunum, en þó fór allt prýðilega fram. Með- fulltrúar Vals og Flugleiða sem standa fyrir heimsókn bandaríska stórliðsins, áhorfendur, ungir knattspyrnumenn o.fl. o.fí. Leikur Vals og Cosmos hefst í dag klukkan 14.00. Hann fer fram á Laugardalsvellinum. Margt hef- ur þegar verið ritað um liðið og verður ekki endurtekið hér. En lið- ið skipa margir mjög snjallir knattspyrnumenn. Það má því vafalaust búast við hörkuleik og vonandi verður ívið hlýrra í dag. Knaltspyma ] Áhugi leikmanna fyrir landsliðinu dvínandi ÍSLENZKA landsliðið í knattspyrnu hefur náð fram- bærilegum árangri í landsleikj- um sumarsins og ber þar hæst jafntefli gegn Olympiumeistur- um Tékka og sigur gegn Tyrkj- um. Báðir leikirnir voru í und- ankeppni heimsmeistarakeppn- innar. ísland hefur hlotið fimm stig í riðlinum en með okkur i riðli eru Sovétmenn, Tékkar, Tyrkir og Waleshúar. Við höf- um tvívegis Iagt Tyrki að velli en hins vegar fengið skelli gegn Tékkum og Sovétmönnum er- lendis og gegn Wales hér heima. Þrátt fyrir það er jirang- ur landsliðsins frambæriíegur i IIM. En þrátt fyrir frambærilegan árangur, þá er kurr meðal ým- issa landsliðsmanna og telja leikmenn sem leika hér á landi, sig hafa verið setta til hliðar í vali landsliðsnefndar. Það er engin tilviljun, að aldrei hafa jafn margir „heimamenn" afboð- að þátttöku í landsleikjum og í haust. Þessir leikmenn gera þetta ekki vegna þess að þeir hafi ekki áhuga, heldur af því að þeir telja sig hafa verið setta til hliðar, — setta út í kuldann. Það er ekki verið að deiia á það í sjálfu sér, að leikmenn á borð við Ásgeir Sigurvinsson, Arnór Guðjohnsen, Janus Guð- laugsson, Atla Eðvaldsson og Pétur Pétursson eigi ekki erindi í landsleiki. Ýmsir þessara leikmanna hafa boðið forföll oftar en einu sinni, meðal annars í sumar en jafnan verið kallaðir heim í næsta leik. Ellert Schram, formaður KSÍ, gagn- rýndi í sumar í viðtali leikmenn fyrir að leggja ekki nógu mikla áherzlu á að leika með íslenzka landsliðinu og átti hann þá við atvinnumennina. Þegar hins vegar ber svo und- ir, að leikmenn hér heima gátu ekkl gefið kost á sér gegn Tékk- um, þá skyndilega kveður við annan tón hjá Guðna Kjartans- syni landsliðsþjálfara og lands- liðsnefnd KSÍ. I Vísi á þriðjudag var haft eftir Guðna: „... þeir Ieikmenn úr Vestmannaeyjum, Víkingi og Akranesi, sem fórn- uðu landsíiðssætum sínum fyrir utanlandsferðir komu ekki til greina í landsliðshópinn" (og átti hann þá við gegn Wales) og síð- ar: „„Þessir leikmenn vissu, að með því að gefa ekki kost á sér í HM-leikinn gegn Tékkum, væru þeir búnir að gefa landsliðssæti sín laus að sinni,“ sagði Guðni.“ (Tilvitnun líkur). Lárus Guðmundsson, miðherji Víkings, fór með félagi sínu í æf- inga- og keppnisferð til Sovét- ríkjanna. Þrátt fyrir að hann hefði staðið sig mjög vel með landsliðinu, leikið 4 landsleiki og skorað 3 mörk og auk þess að hafa skorað gegn enska atvinnu- mannaliðinu Manchester City, var hann ekki valinn í 22 manna hópinn gegn Wales, hvað þá 16. Það var verið að refsa honum fyrir að hafa farið með félagi sínu. Lárus gagnrýndi í Mbl. á miðvikudag, að Guðni léti ekki sama yfir alla ganga. Þegar at- vinnumenn annars vegar boðuðu forföll, þá væri það gott og gilt og þeir kallaðir í næsta leik eins og ekkert hefði í skorist en hins vegar þegar leikmenn hér heima boðuðu forföll þá rigndi eldi og brennisteini og mönnum væri refsað. Leikmenn hérlendis afhuga landsliðinu Nú er í sjálfu sér ekki verið að gagnrýna það, að landsliðsnefnd velji ekki „heimamenn" í ís- lenzka landsliðið. Þeir sem til greina koma fóru annað hvort í sumarfrí, eða keppnis- og æf- ingaferð með félagi sínu og á því er mikill munur. Að minnsta kosti hefur svo verið í augum landsliðsnefndar. Leikmenn okkar erlendis hafa kosið að fara í æfinga- og keppnisferðir með félögum sínum og afboðað þátt- töku í landsleikjum en engu að síður verið kallaðir í næsta leik. Hví bregður nú svo við að leik- mönnum er refsað? Raunar verður að skoða þetta mál í víðara samhengi, — það hefur komið berlega í ljós, að „heimamenn", sem og atvinnu- menn okkar erlendis, hafa í auknum mæli orðið afhuga landsliðinu. Og hver er ástæðan? Sjálfsagt liggja margar orsak- ir að baki. Stjórn Knattspyrnu- sambands íslands hefur ekki starfað af sama krafti í sumar og oft áður. Einnig stefna lands- liðsnefndar og þá einkum Guðna Kjartanssonar, landsliðsþjálf- ara. Leikmenn hér heima hafa nánast undantekningarlaust orðið að víkja fyrir atvinn- umönnum og það þrátt fyrir góða frammistöðu. Jafnvel svo, að varamenn erlendis frá eru kallaðir heim. Menn greinir í sjálfu sér ekki á, að leikmenn á borð við Ásgeir Sigurvinsson, Janus Guðlaugsson, Atla Eð- valdsson, Arnór Guðjohnsen og Pétur Pétursson, eigi erindi í landsliðið, þó einhverjir þeirra mættu gjarnan vera áhugasam- ari. Einnig hefur stjórn KSÍ ver- iö allt of lin gagnvart félögum þessara leikmanna. Öllum í Danmörku ber í sjálfu sér saman um, að Ivan Nielsen, danski leikmaðurinn hjá Feye- l noord, eigi fullt erindi í danska landsliðið. Sepp Piontek, lands- liðsþjálfari Danmerkur, hefur hins vegar ekki valið hann, vegna þess að hann telur Nielsen ekki nógu áhugasamán. Nielsen tók einhverju sinni Feyenoord fram yfir landsliðið. Þá er kunn- ara en frá þurfi að segja, að danska knattspyrnusambandið hefur átt í deilum við féiög í Evrópu, sem hafa verið treg að láta leikmenn af hendi. Þar er komið fram af festu og vel haldið á málum. Það hlýtur að teljast vafasöm stefna, að kalla leikmenn erlend- is frá í leiki, sem ekki eru í leik- æfingu. Nú er í sjálfu sér ekki verið að segja að Magnús Bergs og Örn Óskarsson eigi ekki ej- indi í landslið en það hlýtur að teljast röng stefna með tilliti til leikmanna hérlendis, að vara- menn og varavaramenn séu valdir í landslið meira og minna úr æfingu en leikmenn hérlendis séu settir til hliðar. Þá getur það ekki talist rétt, að senda mann, sem aðeins hefur mætt á eina æfingu í heilan mánuð og leikið hálfan leik, til Wales. Þorsteinn Bjarnason hefur átt við meiðsli T að stríða síðastliöinn mánuð og leikiö hálfan leik, þá haltur. Enn á Þorsteinn við meiðsli að stríða en er engu að síður valinn í hóp- inn. Færi svo, að Guðmundur Baldursson meiddist, þá yröi Þorsteinn að fara í markið, — honum yrði enginn greiði gerður með því, eins og hann er, bæði ekki búinn að ná sér fyllilega og eins úr allrí leikæfingu. Fyrir utan, hvers á Guðmundur Ás- geirsson að gjalda? Þó Þorsteinn sé góður markvörður, þá hlýtur svona framkoma að teljast van- virðing við Guðmund Ásgeirs- son. Lengi mætti áfram telja og gagnrýna en það hlýtur að vera tími til kominn að KSÍ marki stefnu í sambandi við lands- liðsmál sín. Svo sem, að ieik- mönnum hérlendis sé sýndur sá sómi, sem þeim ber og einnig að leikmenn sem ekki eru í leikæf- ingu séu ekki sóttir út fyrir landsteinana. Það er staðreynd, að margir leikmenn hér heima eru óánægðir með störf og stefnu landsliðsnefndar KSÍ og að áhugi fyrir að leika með ís- lenzka landsliðinu hefur farið dvínandi. Þessari þróun verður að snúa við og efla verður starf KSÍ til muna. Þá mætti ná enn betri árangri. H. Halls. A

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.