Morgunblaðið - 24.10.1981, Blaðsíða 1
40 SÍÐUR OG LESBÓK
238. tbl. 68. árg.
LAUGARDAGIJR 24. OKTÓBER 1981
Prentsmiðja MorKunblaðsins.
Konald Reagan, Bandaríkjaforseti, situr hér kvöldverðarboð, sem Jose Lopez Portillo, Mexíkóforseti, efndi til fyrir leiðtoga 22 iðn- og þróunarríkja, sem nú
bera saman bækurnar í Cancun í Mexíkó. Lengst til vinstri er Indira Gandhi, forsætisráðherra Indlands, þá Reagan, Abdus Sattar, forseti Bangla-Desh,
Hans-Dietrich Genscher, utanríkisráðherra V-Þýskalands, og Portillo, Mexíkóforseti. AP-símamynd.
Stjórnarvöld hóta að
beita hemum í Póllandi
- til að binda enda á „efnahagslega hnignun“ og uppþot
\ arsjá, 23. okt. Al\
POLSKA stjórnin lýsti því yfir í dag, að sérstakar hersveitir yrðu
sendar um allt Pólland til að binda enda á „cfnahagslega hnignun" og
uppþot. Koma þcssar fréttir í kjölfar þeirrar samþykktar Samstöðu í
dag að efna í næstu viku til klukkustundar mótmælaverkfalls um allt
Pólland vegna „kreppuástands á öllum sviðum þjóðlífsins“, matar
skorts, harðýðgi lögreglunnar og rangrar stjórnarstefnu. Víða í Póllandi
standa nú yfir verkföll í trássi við áskoranir Samstöðu og óttast margir
að í uppsiglingu sé mesta verkfallsalda í rúmt ár.
„Spennan fer vaxandi," sagði
talsmaður stjórnarinnar, Jerzy
Urban, í pólska sjónvarpinu í dag.
„Ríki, sem komið er að hruni,
verður að grípa til allra ráða sér
til bjargar." Litið er á þessa
ákvörðun stjórnarinnar sem svar
við vaxandi ókyrrð í Póllandi.
Til allsherjarverkfallsins er boðað
nk. miðvikudag og það verður það
fyrsta síðan í mars í vor þegar
milljónir manna lögðu niður vinnu
í fjórar klukkustundir. Eftir heim-
ildum innan Samstöðu var haft í
dag, að Lech Walesa, formaður
samtakanna, ætlaði að eiga fund
með nýkjörnum leiðtoga kommún-
istaflokksins, Wojciech Jaruzelski
yfirhershöfðingja, og að líklega
gæti orðið af honum á morgun,
laugardag. Hermt er að Walesa
hafi sagt landsnefndinni, að hann
hefði þennan boðskap að flytja
Jaruzelski: „Hershöfðingi, við get-
um enn einu sinni bjargað þessari
þjóð og þess vegna skulum við tala
saman af fullri alvöru. Látum
okkur ekki dreyma um að efna til
átaka."
Í 36 fylkjum Póllands af 49 hef-
ur ýmist verið boðað til verkfalla
eða þegar efnt til þeirra þótt Sam-
staða hafi hvatt verkalýðsfélög til
aö hætta þeim að sinni. í Zielona
Gora eru 150.000 verkamenn í
verkfalli annan daginn í röð og
verkfall 12.000 verkakvenna í
spunaiðnaði í Zyrardow hefur nú
staðið í 11 daga. Verkamenn í stál-
iðnaði, námum og verksmiðjum í
Tarnobrzeg hafa lagt niður vinnu
og einnig í Sandomierz í Mið-
Póllandi.
A þingi Samstöðu í Gdansk var
samþykkt að krefjast þess, að
stofnað yrði sérstakt „efnahags-
ráð“ verkalýðsfélaganna og
stjórnvalda en við þeirri kröfu
hefur stjórnin ekki orðið. Haft er
eftir heimildum innan Samstöðu,
að ef ætlunin sé að hunsa kröfuna
alveg, muni verða gripið til að-
gerða, sem fælust í því, að verka-
menn í námum og matvælaiðnaði
legðu ekki niður vinnu heldur
sæju um að dreifa vörunni og af-
henda hana upp á eigin spýtur.
w
Anægja
með gang
Cancun-
fundarins
('ancun, 23. okl. AIV
I DAG var haldið áfram
fundi leiðtoga 22 iðn* og
þróunarríkja í ('ancun í Mex-
íkó, svokölluðum Norður-
suður-fundi. og var það
flestra mál, að viðræðurnar
hefðu gengið vel og að nokk-
urs mætti af þeim vænta.
Reagan Handaríkjaforseti
sagði, að „mikill árangur“
hefði orðið af fundinum en
boðskapar Bandaríkjamanna
hafði verið beðið með mestri
eftirvæntingu.
Þegar sest var á rökstóla í dag,
á öðrum og síðasta degi fundarins,
ríkti almenn ánægja með gang
viðræðnanna milli ríku þjóðanna í
norðri og fátæku þjóðanna í suðri
þó að enn væri eftir að semja end-
anlega um „heimsviðræður" um
efnahagsvandamálin, sem eru
þróunarþjóðunum einkum þung í
skauti.
Ronald Reagan Bandaríkjafor-
seti flutti ræðu á ráðstefnunni í
gær og var orða hans beðið með
mikilli eftirvæntingu vegna þeirra
efnahagslegu áhrifa, sem Banda-
ríkjamenn hafa um heim allan.
Þar lagði hann áherslu á, að taka
yrði tillit til gagnkvæmra hags-
muna þjóðanna og að fjalla yrði
um vandamál hvers ríkis fyrir sig.
Einnig varaði hann við því að
hróflað yrði við þeim alþjóða-
stofnunúm, sem þegar væru fyrir
hendi, og stofnað til nýs skrif-
finnskukerfis.
A fundinum í dag voru orkumál-
in efst á baugi en fulltrúar fátæku
ríkjanna hafa lagt til, að stofnað-
ur verði 30 milljarða dollara sjóð-
ur til aðstoðar þróunarríkjunum í
þeim efnum. Af öðrum málum,
sem rædd hafa verið, má nefna
matvælaframleiðslu, verslun og
fjárhagsmál.
Jafntefli
í áttundu
skákinni
Mcrano, 23. okl. Al’.
ÁTTUNDU skákinni í heimsmeist-
araeinvíginu milli þeirra Anatoly
Karpovs, heimsineistara, og áskor-
andans, Viktors Korchnois, lauk í
dag með jafntefli eftir 80 leiki.
Attunda skákin fór í bið í gær
eftir 41. leik og var staðan í henni
þá þannig, að flestir hölluðust að
jafntefli en töldu þó að Karpov
hefði heldur rýmra tafl. Að sögn
skákskýrenda tefldi Korchnoi
framhaldið vel og gaf hvergi færi á
sér í þessari lengstu skák í einvíg-
inu til þessa. Staða keppenda er nú
óbreytt, 3—1 Karpov í vil en jafn-
tefli eru marklaus.
Sjá skákskýringu á bls. 18.
Bretland:
Kosningabandalagið nýja
sigrar í aukakosningum
l/ondon, 23. okl. Al\
Kosningabandalag nýja jafnað-
armannaflokksins og frjálslyndra
fékk í dag sinn fyrsta mann kjör
inn á breska þingið þegar það bar
sigur úr býtum í aukakosningum í
Croydon í SuðurLondon. fhalds-
flokkurinn, sem hefur haldið kjör
dæminu í 26 ár, varð í öðru sæti en
Verkamannaflokkurinn rak lest-
ina. Leiðtogar kosningabandalags-
ins fögnuðu úrslitunum ákaflega,
kölluðu þau „stórkostlegan sigur"
og strengdu þess heit að brjóta á
bak aftur tveggja flokka kerfið í
Bretlandi.
„Með kosningabandalaginu
stendur fólki til boða annars
konar stjórn. Hinir flokkarnir
tveir hafa fengið sitt tækifæri,"
sagði David Steel, leiðtogi
Frjálslynda flokksins, og Shirley
Williams, formaður nýja jafnað-
armannaflokksins, sagði, að með
sigrinum í Croydon hefði tveggja
flokka kerfið verið skorað á
hólm ásamt öllu því, sem þeir
hefðu fram að færa.
Frambjóðandi kosninga-
bandalagsins var William Pitt,
sem fjórum sinnum áður hefur
boðið sig fram fyrir Frjálslynda
flokkinn. í síðustu kosningum,
1979, fékk hann 10,5% atkvæða
en nú komu 40% í hans hlut eða
13.800 atkvæði. íhaldsflokkurinn
fékk 10.546 og Verkamanna-
flokkurinn 8.967 atkvæði. „Við
höfum brotið upp gamla flokka-
kerfið og nú mun ekkert stöðva
okkur,“ sagði Pitt við fagnandi
stuðningsmenn sína í morgun
þegar úrslitin lágu fyrir.
Margaret Thatcher, forsætis-
ráðherrayvoru færðar fréttirnar
um kosningarnar þar sem hún er
á Norður-suður-fundinum í
Cancun i Mexikó og var haft eft-
ir aðs :oðarmönnum hennar, að
hún hefði orðið fyrir vonbrigð-
um. Ron Hayward, aðalritari
Verkamannaflokksins, sagði um
úrslitin, að þau væru „mjög dap-
urleg“. Búist er við, að kosninga-
úrslitin valdi því, að sam-
flokksmenn Thatchers margir
muni leggja enn harðar að henni
en fyrr að milda nokkuð þá
hörðu stefnu, sem hún hefur
fylgt í efnahagsmálum, enda
óttast þeir stórkostlegan ósigur í
næstu kosningum.