Morgunblaðið - 24.10.1981, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 24.10.1981, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 1981 Afrískt her- lið til Chad? FRANCOIS Mitterrand Frakk- landsforseti hefur skorad á Ein- ingarsamtök Afríku (OAU) ad koma á laggirnar afrísku herlidi til að skerast í leikinn í Mið- Afríkuríkinu Chad í kjölfar nýrra væringa í landinu. Jean-Pierre Cot samstarfs- og þróunarráðherra segir að forset- inn hafi sent Daniel Arap Moi Kenýaforseta, núverandi for- manni OAU, skeyti með þessari tillögu frá leiðtogafundinum í Cancun, Mexíkó. Mitterrand bað Moi forseta að koma herliðinu á fót „án tafar" og hét franskri aðstoð. Hann hét efnahagslegri aðstoð og fjárhags- aðstoð og einnig vistum, en ekki herliði. Cot ráðherra sagði að loforðið væri í samræmi við ályktun sem OAU samþykkti á fundi í Nairobi. Hann benti á að Mitterrand- stjórnin stæði við skuldbindingar fráfarandi ríkisstjórnar Valery Giscard d’Estaing forseta gagn- vart Nígeríu og OAU um aðstoð í Chad, þar sem bylting var gerð að undirlagi Líbýumanna í fyrra. — AP. Fréttaskýring: l.undúnum, 23. oklóbcr. Al'. TV'EGCJA flokka kerfið, sem rfkjandi hefur verid á Bret- landi í sextíu ár, hefur runnið skeið sitt á enda, ef marka má stórsigur kosningabandalags frjálslyndra og hins nýja jafn- aðarmannaflokks í aukakosn- ingum í Croydon í gær. Willi- am Pitt úr flokki frjálslyndra vann sæti sem íhaldsmenn hafa „átt“ í 26 ár. Næstur að atkvæðum varð frambjóðandi íhaidsflokksins, en Verka- mannaflokkurinn varð í þriðja sæti. Sérstaka athygli vekur að frá því i síðustu kosningum hafa um það bil jafnmargir íhalds- og verkamannaflokkssinnar í þessu kjördæmi misst trúna á gamla flokkinn, og það þótt William Pitt geti hvorki talizt sérlega til- þrifamikill frambjóðandi né nýj- ung. Pitt er gamall fallkandídat í kjördæminu, hefur þrívegis tapað kosningu. Croydon er ró- legheitahverfi í norðvesturhluta Lundúna, byggt þokkalega stæðu millistéttarfólki sem hingað til hefur ekki verið talið sérlega nýjungagjarnt. íhaldsflokkurinn og Verkamannaflokkurinn töp- uðu báðir 20% af fylgi sínu frá því í síðustu kosningum og bent er á það að kosningabandalagið kæmist til valda ef haldnar væru þingkosningar nú og sagan endurtæki sig um gjörvallt land- ið. Margir telja þó vafasamt að leggja of mikið upp úr úrslitun- um í þessum einu kosningum. Leon Britton, aðstoðarfjármála- ráðherra og ötull stuðningsmað- ur Thatchers og efnahagsmála- stefnu stjórnarinnar lét svo um mælt er úrslitin komu í Ijós, að ASSOCIATED PRESS William Pitt öndinni léttar því að þeir óttuð- ust mjög að óvinsældir ríkis- stjórnarinnar gerðu það að verkum að frambjóðandi þeirra fengi fæst atkvæði. í Verkamannaflokknum er lit- ið á Croydon-kosninguna sem ægilega niðurlægingu. Ekki eru menn þar í flokki á einu máli um ástæðuna fyrir þessum úrslitum, en Michael Foot, formaður flokksins, agði er hann heyrði tíðindin: „Það eru fyrst og fremst mistök okkar og áföll sem eiga sök á því að við erum að tapa.“ Aðrir kenna um þungum fasteignasköttum Verkamanna- flokksins sem hefur meirihluta í aðalborgarstjórninni og enn eru þeir sem telja að kjósendum sé hjó jafnt á báóa bóga „það hefði getað verið verra", um leið og hann bætti því við að við þetta væru hvorki Ihaldsflokk- urinn netefnahagsvandræðin í landinu úr sögunni. Víst er að margir íhaldsmenn hafa varpað farinn að ofbjóða hinn eindregni vinstrisvipur á Verkamanna- flokknum. Vinnudeilur færast í aukana í Frakklandi ELLKFII af 12 alvinnuleysis-skrifstofum var lokað vegna verkfalla í París í gær, truflun varð á járnbrautasamgöngum til norðurútborganna vegna að- gerða viðgerðarmanna, ekkert lát varð á deilum í Renault-bílaverksmiðjun- um og horfur eru á enn nýjum og harðnandi vinnudeilum í Frakklandi. Stjórn Renault-verksmiðjanna samþykkti eftir 2'k tíma vinnu- stöðvun þúsunda starfsmanna að ræða við verkamenn um kröfur þeirra. Verkfallið var til stuðnings starfsmönnum Billancourt-verk- smiðjunnar skammt frá París. Verkbann var sett á starfsmenn- ina þegar nokkrar vinnustöðvanir höfðu stöðvað framleiðslu á R-4- gerð fyrirtækisins. Reanault-starfsmenn krefjast styttri vinnuviku, lækkunar eftir- launaaldurs og starfa handa 2.000 verkamönnum í Billancourt. Kommúnistaleiðtoginn Georges Marchais heimsótti Billancourt í dag og sagði: „Hvernig er hægt að skilja að á sama tíma og þjóðnýt- ing er rædd á þingi sjáum við í þessari deiiu hér, hjá Reanault, óbilgjarna synjun um viðræður. Það verður engin breyting nema þið reynið að hjálpa ykkur sjálfir." Ymis skæruverkföll að undan- förnu hafa rofið fimm mánaða vinnufrið eftir valdatöku Mit- terrand-stjórnarinnar og afstaða verkamanna virðist hafa harðnað. Aðgerðirnar hafa ekki verið lang- vinnar og útbreiddar nema hjá Renault og ekki haft alvarleg áhrif á efnahagslífið. Þótt aðeins um 22% franskra verkamanna séu í verkalýðsfélög- um eru félögin sérstaklega áhrifa- mikil hjá hinu opinbera og þau geta valdið geysimiklum truflun- um ef afstaða þeirra harðnar. Alvarlegri tíðindi geta verið í vændum á vinnumarkaðnum. Air France hefur hafnað kröfum hlaðmanna um 500 franka launa- hækkun vegna 400-milljóna- franka halla í fyrra. Bankamenn gera sólarhringsverkfall í næstu viku til að krefjast styttri vinnu- viku og raunverulegrar kaupmátt- araukningar og starfsmenn al- mannatrygginga fyrirhuga eins dags vinnustöðvun. — AP. > * y bL i v Þetta eru aðeins fjögur börn úr hópi hundraða sem hafa verið tekin af lífi og sett í fjöldagrafír í íran á nokkrum vikum. Talið frá vinstri: Mohamad, Majid, Nadim, Razieh. — Börn tekin af lífi á kostnað foreldranna ÞESSI BÖRN voru í „styrjöld gegn guði“ og höfðu því glatað réttin- um til að lifa. Þau voru á aldrinum 10—14 ára og voru meðal þeirra milli 2 og 3 hundruð barna sem var stillt upp við múrinn í hinu alræmda Evin-fangelsi, en lík þeirra fundust á dögunum í fjöidagröf skammt suður af Teheran. Myndirnar og upplýsingarnar eru komnar frá Mudjaheddin andstöðuhreyfingunni, sem börnin voru sökuð um aðild að. Sakargiftir á hendur þeim og öðrum börnum og unglingum, sem hlotið hafa sömu örlög eru óljósar. Sum eiga að hafa tekið þátt í mótmælaaðgerðum gegn stjórn Khomeinis ayatollah, önnur eiga að hafa rægt Khomeini, enn önnur eru sökuð um guðlast, þátttöku í ólöglegum leynifundum og óviðurkvæmilega framkomu við bylt- ingarverði sem svo eru nefndir. Korchnoi hélt jöfnu Þegar tekið var til við að tefla 8. einvígisskákina kom í Ijós að Korchnoi átti í öllu meiri erfiðleik- um en sumir skákskýrendur gáfu til kynna. Keppendur léku fyrstu leikina mjög hratt sem vænta málti því að báðir hafa þeir harð- snúið lið aðstoðarmanna. Karpov tefldi grcinilega til vinnings en Korchnoi varðist vel og hélt jöfnu. I 80. leik sömdu keppendur jafn- tefli enda gat Korchnoi þá þvingað fram jafntefli á einfaldan hátt. Staðan í einvíginu er því óbreytt, .‘I—1 fyrir Karpov. Hvað sem bolla- leggingum um stöðuna í einvíginu líður er Ijóst að báðir aðilar verða að sína meiri tilþrif, þó ekki væri nema af tilliLssemi við skákáhuga- menn víðs vegar um heiminn. 41. - Ha8, 42. f4 - exf4, 43. gxf4 — Rb6, 44. Bf3 — Hd8, 45. Be2 — Re4, 46. Ha7 — Hd7. Að sjálf- sögðu ekki 46. — Re6, 47. f5 og vinnur lið. 47. Kd2 — Re6. Svart- ur notar tækifærið og þvingar fram hrókakaup. 48. Hxd7 — Bxd7, 49. Bg4 — g6, 50. f5 — gxf5, 51. Bxf5 — Kg7. Skák 52. — e5! Þessi leikur skapar svörtum erfið vandamál því að nú nær hvítur að mynda sér hættulegt frípeð á e-línunni. — Rf8. Eftir 52. - h6? 53. Rg4! hrynur svarta staðan. 53. Bxd7 — Rxd7, 54. e6 — Rbd6, 55. Rf4. Eftir 55. Rf5+ - Kf8, 56. Rd4 - Rd5 bægir svartur hættunni frá. Jóhannes Gísli Jónsson — Kf8, 56. Kd3 — Rc8, 57. Rg4 — Ke7, 58. Rh6 — Kd6. Nauðsyn- legt vegna hótunarinnar 59. Rg8+, 59. Kd4. Annar möguleiki var 59. Rf5+ - Ke5, 60. e7 - Rxe7, 61. Rxe7 - Kxf4, 62. Rxc6 en hæpið er að hvítur hagnist á þessu. — Re7, 60. RI7+ — Kc7, 61. Rh5 — c5+. Einfaldasta lausnin á vandamálum svarts. 62. bxc5 — Rc6+, 63. Ke3, 63. Kd5?? — Rxc3 mát gæti kallast óvænt endalok! — Rxc5, 64. Rxf6 — Rxe6, 65. h5. Ekkert liggur á að taka h-peðið sem er alltaf dauðans matur. — Rf8. Verkefni svarts er nú að fórna riddurum sínum fyrir frípeð hvíts og fá upp fræðilega jafnteflisstöðu með kóngi á móti 2 riddurum. 66. Ke4 — Kb6, 67. Rg5 — h6, 68. Rf7 — Re6, 69. Re8. Leikið til að koma í veg fyrir 69. — Rg7. — Rc5+, 70. Kc3 — Ra4, 71. Kd2 — b4, 72. cxb4 — Rxb4. Eftir þessi uppskipti er jafnteflið í höfn sbr. skýringar við 65. leik svarts. 73. Rxh6 - Rc5, 74. Rf5 — Rd5, 75. h6 — Re4+, 76. Kd3 — Rg5, 77. Kd4 — Kc6, 78. Rfg7 — Re7, 79. Rf6 — Rg6, 80. Rf5. Hér urðu keppendur ásáttir um jafntefli enda getur svartur þvingað þau úrslit fram með 80. - Rf7, 81. h7 - Rg5, 82. Re7+ - Kb7. Lokastaðan verðskuldar stöðumynd. Greinilega falla þessi börn undir skilgreiningu yfirböðuls Khomeinis, Gilani nokkurs, sem hvað eftir annað hefur bent á það opinberlega að kyn- þroski sé rétt viðmiðun varð- andi sakhæfi þegnanna. Gilani túlkar lögmál Islams svo að stúlkur verði kynþroska níu ára að aldri en drengir þegar þeir eru fjórtán ára. Börn á þessum aldri eru sem sagt tal- in eiga að svara til ábyrgðar fyrir gjörðir sínar, jafnvel með því að láta lífið. Foreldrar barnanna fá ekk- ert að vita um það hvað komið hefur fyrir þau fyrr en þeim berst reikningur frá Evin- fangelsinu fyrir flutning á fanganum í fangelsið, kostnað við réttarhöld og kostnað við aftökuna. Fjöldi foreldra læt- ur sér ekki nægja að bíða eftir reikningunum heldur flykkist að Evin-fangelsinu til að lesa lista dagsins yfir þá sem hafa verið líflátnir. Flesta dagá eru milli 50 og 100 nöfn á listan- um. Metið er 103 nöfn á einum degi. Aður en dómur klerka- veldisins fellur gefst sakborn- ingum enginn kostur á að verja sig eða bera fram máls- bætur. Þegar bezt lætur fara fram færibandaréttarhöld sem taka örfáar mínútur. Og þeir sem hafa verið svo óheppnir að vera staddir í námunda við einhverja mót- mælendur skulu gjalda fyrir það með lífi sínu — jafnvel þótt þeir séu aðeins börn að aldri.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.