Morgunblaðið - 24.10.1981, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 24.10.1981, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAIJGARDAGUR 24. OKTÓBER 1981 29 Séra Björn Björnsson prófastur - Minning Það var ekki fjölmennur stúd- entahópur sem útskrifaðist frá Menntaskólanum á Akureyri vorið 1936, aðeins 19 manns. En það var eigi að síður fjölbreytilegur hópur, ólíkir menn á ýmsum aldri, sumir innan við tvítugt, aðrir hálfþrítug- ir vel það, margir langt að komnir úr nær ótrúlega mörgum lands- hornum. vestan úr Breiðafjarðar- eyjum, Barðastrandarsýslu og ísa- fjarðarsýslu og Húnavatnssýslu, norðan úr dölum og austan af fjörðum, sunnan úr Reykjavík, að ógleymdum Eyjafirði og sjálfri Akureyri. Sundurleitur hópur við fyrstu sjón og kynni, en samstillt- ir í vináttu og vongleði þegar leið- ir skildu og hver fór sína braut. Nú hverfa þeir af sjónarsviði einn og einn, góðu gömlu félagarnir, og minningarnar koma, ljúfar en tregablandnar. Gömul saga, göm- ul reynsla, en þó alltaf ný og söm við sig. Að þessu sinni er úr hópn- um kvaddur séra Björn Björnsson, fyrrum prófastur í Skagafjarð- arprófastsdæmi. Æviatriði séra Björns eru í stuttu máli þau sem nú skal greina. Hann fæddist 7. maí 1912 í Fremri-Gufudal í Austur-Barða- strandarsýslu. Foreldrar hans voru Björn Björnsson bóndi þar, ættaður frá Gröf í Gufudalssveit en í móðurætt af Arnardalsætt vestra, og kona hans Sigríður Jónsdóttir frá Djúpadal í sömu sveit, systurdóttir Björns Jónsson- ar ráðherra, hins þjóðkunna manns. Séra Björn hóf nám í Menntaskólanum í Reykjavík, en gerði hlé á námi sínu til þess að leggja foreldrum sínum lið í þungri sjúkralegu móður hans. Eftir lát hennar brá faðir hans búi og Björn tók aftur til við nám sitt, en hélt nú til Akureyrar og þar tók hann stúdentspróf vorið 1936. Hann var prýðilegur námsmaður og hneigðist hugur hans í önd- verðu mest að stærðfræðilegum greinum. Eigi að síður hafði hann þegar fyrir stúdentspróf afráðið að leggja stund á guðfræði og ger- ast prestur og var okkur vel kunn- ugt um það. Embættisprófi í guð- fræði lauk hann með sóma við Há- skóla Islands í ársbyrjun 1940, og má af því ráða að honum sóttist námið greiðlega enn sem fyrr. Hann var settur prestur í Viðvík- urprestakalli 3. júní sama ár og veitt það árið eftir. Á skólaárun- um á Akureyri kynntist hann Emmu Hansen frá Sauðárkróki og 22. júní 1940 gengu þau í hjóna- band. Heimili sitt stofnuðu þau á Vatnsleysu í Viðvíkursveit, sem þá hafði verið gerð að prestssetri. Á Vatnsleysu áttu þau heima til 1953, þegar Hólar í Hjaltadal voru Fædd 24. febrúar 1893 I)áin 15. október 1981 Eins og rökkrið færist yfir, eins kemur aftur bjartur morgunn og nýr dagur á jarðlífsins braut. Eins og blær harms og saknaðar kemur snögglega inn á hugdjúpsins svið, eins getur blær trúarinnar kveikt nýtt Ijós og nýja von á þungri stund sorgarinnar. Guðrún Krist- jánsdóttir, sem nú hefur kvatt sinn jarðneska ævidag, hafði þá trú að á bak við skammvinna stund jarðlífsins væri öllum búið nýtt og bjart tilverusvið. Enn- fremur tók hún vel eftir þeirri tónlist og þeim ljóðum sem ná til tilfinninganna. Hún vitnaði oft í sálm Davíðs „Ég kveiki á kertum mínum við krossins helga tré“ og vitnaði einnig í marga sálma eftir Valdimar Briem. Húsið við Fálka- götuna var þess vegna sá staður þar sem yfirborðskennd og lítils- virðing var ekki til. Minningin frá því heimili og þeim liðnu árum verður björt mynd sem ekkert orðnir að prestssetri í hinu gamla Viðvíkurprestakalli. Þangað flutt- ist nú séra Björn með fjölskyldu sína. Má segja að með komu hans þangað yrðu nokkur tímamót í kirkjusögu Hóla, því að þá hafði ekki prestur verið á hinu forna helgisetri síðan 1862, þegar séra Benedikt Vigfússon lét af prestsskap. Á Hólum sat séra Björn upp frá þessu og varð pró- fastur i Skagafjarðarprófasts- dæmi frá 1959. Á seinni árum sínum á Hólum kenndi séra Björn alvarlegs heilsubrests sem ágerðist jafnt og þétt og skerti lífsfjör hans og starfsþrek. Hann lét þó ekki und- an síga fyrr en í fulla hnefana, heldur þjónaði söfnuðum sínum með sinni miklu skyldurækni með- an þess var nokkur kostur. En hér varð að lokum við ofurefli að etja, og þar kom árið 1976 að hann hlaut að láta af embætti sínu. Hafði hann þá þjónað sama prestakalli frá upphafi prestskap- ar síns eða samtals í 36 ár. Síðustu árin bjuggu þau séra Björn og Emmma í Reykjavík og þar lést hann hinn 9. október síðastliðinn. I dag er hann til moldar borinn að Hólum í Hjaltadal. Með séra Birni Björnssyni eig- um við á bak að sjá góðum dreng og vönduðum manni til orðs og æðis, manni sem hlýddi köllum sinni og rækti embætti sitt með heiðri og sóma. Man ég það frá æskuárum að hann var glaður og góður féiagi, prúður maður og gamansamur eins og vel við átti, en þó duldist ekki að þar fór alvörumaður, gjörhugulli á veg og vanda mannlegs lífs en gengur og gerist um unga menn. Hann var gáfaður maður og hneigður fyrir andlega hluti, en heimshyggja og veraldarvafstur var að sama skapi fjarri eðli hans. Þótt bóndasonur væri var hann ekki gefinn fyrir búskap, en vildi þó vera prestur í sveit fremur en kaupstað. Má því með sanni segja að Hólar í Hjalta- dal væru við hans hæfi, enda kunni hann vel að meta staðinn og það andrúmsloft sögu og kristni- halds sem um hann leikur. Þaðan hlaut hann þó að hverfa fyrir ald- ur fram og sársaukalaust var það ekki. En bót var í máli að á Hólum átti hann hamingjurík ár meðan hann var enn heill heilsu, og bjartar minningar tók hann með sér þaðan. Séra Björn var einlægur trúmaður og gekk sannur og heils hugar í þjónustu kirkjunnar. Hann hafði þá eiginleika til að bera sem löngum hafa þótt prýða góðan sóknarprest. Hann vandaði vel allar ræður sínar, var ágætur óhreint fellur á. Guðrún heitin sá sólarupprás bernsku sinnar á fögrum stað vestur á Breiðafirði í hinni litríku E.vrarsveit. Hún sá líka sólarlag hins jarðneska ævi- dags í nálægð við annan fjörð þar sem hennar dvöl var orðin um það bil sextíu ár, þó að blær sorgar- innar kæmi inn á heimilið þegar maður hennar, Bjarni, féll frá þá var samt áfram bjart yfir öllu. Synir hennar voru í nálægð. Sá elsti þeirra fór ekkert burt, og trú- arvissan var það ljós sem lýsti upp fram á hinsta kvöld hins jarðn- eska ævidags. Nú hefur hún kvatt, en eftir stendur björt og hrein minning. Ég votta eftirlifandi son- um og öðru venslafólki mína sam- úð og hluttekningu. Ilin lanjia |»raul er lidin nú loksins hlauslu friúinn oj» alll vr ordid rólt. Nú sa ll or siKur unninn og sólin hjörl upprunnin á hak vió dimma dauóans nótt. Valdimar Kriom. Þorgeir Kr. Magnússon prédikari, og veit ég það af sjálfs mín kynnum, en þó einkum um- mælum margra Skagfirðinga, sem einum rómi hafa dáðst að ræðu- mennsku hans. Hann hafði bjarta og fagra söngrödd og öll prests- verk fóru honum vel og hátt- víslega úr hendi með framkomu hins einlæga manns og nærgætna sálusorgara. Ég tel mig vita fyrir víst að söfnuðir hans í Skagafirði minnast langrar þjónustu hans við þá með þakklæti og virðingu. Séra Björn var ekki einn hinna háværu og umsvifamiklu í þjóðfé- laginu, tranaði sér hvergi fram og dró sig lítt fram til mannvirðinga. En virðingin kom til hans fyrir verðleika ótilkvödd af hans hálfu. Hann fylgdist vel með þjóðmálum, en það kæmi mér á óvart ef hon- um hefur nokkurntíma dottið í hug að láta þar til sín taka í verki. Hans vettvangur var annar og þar var ærið mannsverk að vinna. Hann var prestur og einnig kenn- ari oft og tíðum. Hvortveggja átti vel við skaplyndi hans, til slíkra starfa var köllun hans í æsku og við það stóð hann á manndómsár- um, og er þá vel lifað. Séra Björn bjó við hamingju- samt einkalíf, átti mikilhæfa konu og fjögur velgerð börn. Við bekkj- arsystkin hans og aðrir sem vænt þótti um hann, hugsum nú til Emmu og þökkum henni fyrir það sem hún var honum og þó mest hvernig hún bar með honum þann kross sem á hann var lagður hin síðustu æviár hans. Vinarhugur okkar og þökk fylgja Birni frá Gufudal inn á land hinna lifendu, sem hann þegar á skólaárum og alla tíð síðan trúði svo staðfast- lega að biði okkar allra. Enda láti nú Guð honum raun lofi betri. Krislján Kldjárn Séra Björn Björnsson, fyrrum prófastur að Hólum í Hjaltadal, virtist mér jafnan líkari þeim mönnum helgum, sem eiga óðal sitt á hitnni, en þeirri manngerð sem oftast ber fyrir sjónir í ver- aldarsollinum hlaupandi í blindni eftir þeim auði sem mölur og ryð granda. Engum manni hef ég kynnst sem veraldarvafstur og bjástur var jafnfjarri sem honum, engum sem var jafneðlilegt að koma í hvívetna þannig fram að ekki væri á annarra hlut gengið, engum sem var óeigingjarnari eða betri. — Hann var flestum mönnum hógværari og hlédræg- ari. Ef til vill olli hlédrægnin því að gáfur hans og hæfiieikar féllu stundum í skugga. Séra Björn var maður djúpvit- ur. í afmælisgrein um annan mann sagði stílsnillingurinn séra Guðmundur Óli Ólafsson í Skál- holti fyrir fáum vikum: „... fyrir mörgum árum komu saman á Hól- um nokkrir prestar, sem fengið höfðu mætur á fornu tíðahaldi og gömlum hefðum í messusöng. Síra Björn Björnsson, prófastur á Hól- um, varpaði orðum á þessa menn við messu í dómkirkjunni. Vildi ég óska þess, að þau orð hans væru einhvers staðar til skráð. Hef ég varla heyrt íslenskan prest fjalla um mikið deilumál af meiri and- ans spekt né sannari hógværð." Þessi stutta lýsing á dómpróf- astinum á Hólum er sönn og segir mikla sögu um hæfileika og hjartalag þess öndvegismanns. Hann var maður sátta og sam- lyndis. Hann sá veraldarbjástrið af hærri sjónarhóli en flestir að- rir. Því var það honum lítils virði og tíðum skoplegt í augum hans. En þó að hann hugsaði dýpra og sæi betur en margur var hann engu að síður glaðvær og skemmtinn í vinahópi. Með einni stuttri setningu eða kímilegri at- hugasemd gat hann breytt dauf- legri samkomu í gleðifund. Heimili séra Björns var í sam- ræmi við bestu eiginleika hans. Hann var kvæntur hinni ágætustu konu, Emmu Hansen frá Sauð- árkróki, og voru þau hjónin sam- taka í rausn og höfðingsskap. Það er ætíð stórviðburður að koma heim að Hólum. Hvergi á landi hér er heimreið glæsilegri, hvergi tjá hauður og himinn ferðamanni greinilegar en þar að hann nálgist höfuðból, andlegt og veraldlegt hefðarsetur. Mikla mannkosti þarf til að hækka svo helgan stað. Það gerðu þau prófastshjónin. Prestur hafði ekki setið á Hólum í hálfan níunda áratug þegar þau fluttust heim eftir. Þá varð þessi fornfrægi helgistaður prestsetur á ný; og vart hefðu geta valist þang- aö hjón sem hefðu stýrt kirkjulegu starfi heima á Hólum með meiri prýði en þau. Hógvær Guðs þjónn er genginn inn í fögnuð herra síns. I hjörtum vina sinna skilur hann eftir auð sem mölur og ryð fá ekki grandað: vitneskjuna um að í veröld okkar eru til svo góðir menn að jafnvel „heljarhúmið svart“ verður sól- bjartur dajjur í návist þeirra. Olafur Ilaukur Árnason „(■óúur t'óni'iimaóur þvrlar okki upp ryki. (ióóur ra-óumaóur Mj'ir ckkort scm aó vcróur fundió. (ióóur rcikninj'sntaóur (tarf cnj'ar (öDur. (ótóur viiróur þarf hvorki lása nú slaj'hranda oj» cnjfinn gclur opnaó þar scm hann lokar. Si scm hindur Ih sI þarf cnjjra rcipa nc hnúla vió cn cnj'inn jjclur lcysl þaó scm hann hindur." (Hókin um vcjjinn.) I dag verður til moldar borinn á Hólum í Hjaltadal séra Björn Björnsson en var þar hann þjón- andi prestur í 35 ár og lengi dóm- prófastur. Hann andaðist á Land- spítalanum í Reykjavík þann 9. október síðastliðinn eftir langvinn veikindi og sjúkralegu þar í nokkrar vikur. Síðustu ár ævinnar var hann mjög þrotinn að heilsu og kröftum af Parkinsonveiki en af henni kenndi hann sér fyrst meins fyrir um það bil 15 árum. Fregnin um hægt andlát hans kom því ekki á óvart þeim sem til þekktu og með honum fylgdust. Með honum er genginn góður göngumaður sem þyrlaði ekki upp ryki þar sem hann gekk um garða. Dagsverki sínu hafði hann skilað nokkrum árum áður en til þess vandaði hann svo mjög að erfitt var að sjá missmíði á verkum hans. Hann var ræðumaður svo góður að vart varð fundið að því sem hann sagði en víða eftir tekið. Sakir mannkosta sinna ávann hann sér fljótt traust og virðingu sóknarbarna sinna og reyndar allra sem honum kynntust. Vin- sældir hans fóru stöðugt vaxandi og óvildarmenn eignaðist hann enga á langri starfsævi. Hann var hógvær maður til orðs og æðis. Björn var fæddur í Fremri- Gufudal í Gufudalssveit 7. dag maímánaðar árið 1912. Foreldrar hans voru þau hjónin Björn Guð- mundur Björnsson frá Gröf á Barðaströnd af Arnardalsætt þar vestra og Sigríður Ágústa Jóns- dóttir frá Djúpadal (austan Gufu- dals). Jón í Djúpadal var bróðir Ara Arnalds sýslumanns en móðir Sigríðar var systir Björns Jóns- sonar ritstjóra og ráðherra. Þau hjón bjuggu sitt á hvað í Fremri- og Neðri-Gufudal og ólst Björn þar upp ásamt bræðrum sínum tveimur, Sigurði skipasmið, sem látinn er fyrir nokkrum ár- um, og Jakobi orkumálastjóra. Skólaganga Björns var ekki mikil á barns- og unglingsárum. Mér er sagt að hann hafi veriö 6 vikur í barnaskóla og tvo vetrar- hluta við undirbúningsnám fyrir 3. bekk í menntaskóla og var það í Flatey. Námsgáfur hans voru hins vegar í besta lagi og mun því heimanám og sjálfsnám hafa gengið mjög vel. Skólaleysið mun þó hafa tafið hann eitthvað því stúdentspróf tekur hann 24 ára eða vorið 1936. í Menntaskólanuni á Akureyri stundaði hann nám í þrjá vetur, sat í 3. bekk, 4. bekk og 6. bekk en las 5. bekk utanskóla. Þar gat hann sér gott orð sem námsmaður og þar mun hann hafa hnýtt margt vináttubandið eins og oft vill verða á skólaárum. Hann var mjög jafnvígur á ailar náms- greinar en hafði einna mest yndi af stærðfræði, var enda svo góður reikningsmaður að það hvarflaði að honum um skeið að nema verk- fra*ði eins og Jakob bróðir hans gerði síðar. I Háskóla íslands lagði Björn stund á guðfræði og lauk þvi námi á þremur og hálfu ári, útskrifaðist sem guðfræðikandidat í janúar 1940. Um vorið sótti hann um Við- víkurprestakall í Skagafirði og vígðist þangað 9. júní sama ár. Auk Viðvíkursóknar fylgdu prestakallinu Hóla-, Hofstaða- og Rípursókn. Nokkrum dögum síðar eða 20. júní kvæntist hann Emmu Hansen frá Sauðárkróki en þau höfðu verið heitbundin frá skóla- árum þeirra á Akureyri. Þau sett- ust fyrst að á Vatnsleysu í Viðvík- ursveit og bjuggu þar í 12 ár. Þá var ekki kominn akfær vegur að prestssetrinu í Viðvík og húsa- kynni þar léleg en góð á Vatns- leysu á þeirra tíma mælikvarða. Á öndverðum vetri 1945—46 dvaldi ég í 2—3 mánuði á heimili þeirra séra Björns og Emmu syst- ur minnar. Ég var þá 15 ára og var komið til náms þar undir hand- leiðslu Björns. Las ég þar hluta af námsefni annars bekkjar eins og það var þá í MA. Fram að þeim tíma var skólanám mitt oft alvörulítið og árangur eftir því. Ég er viss um að markviss kennsla Björns kom mér að miklu gagni á þessum tíma og er þar skemmst frá að segja að þegar ég um vorið tók próf upp í 3. bekk MA gekk mér betur en í öðrum prófum sem ég tók við þann skóla. Árið 1953 urðu Hólar í Hjalta- dal prestssetur. Nýtt íbúðarhús hafði þá verið reist á staðnum fyrir prestinn og fluttu þau hjónin þangað á þessu ári frá Sauðár- króki en þar bjuggu þau í eitt ár. í þessu nýja prestshúsi stóð heimili þeirra lengst og var frá upphafi með miklum myndarbrag. Þangað var gott að koma og gott þar að dveljast. Björn var skemmtilegur viðræðumaður, víðlesinn, minnug- ur og skopskyn hans lét vel í eyr- um. Lengi var það svo að ég og fjölskylda mín komum þangað á hverju ári um langan veg, það varð fastur liður. Börn þeirra hjóna urðu fjögur: Björn Friðrik, kennari við grunn- skólann á Sauðárkróki; Ragnar, nú skrifstofumaður á Vegamála- skrifstofunni; Sigurður Jósep, vélsmiður í Reykjavík, og Gunn- hildur, nemi í bókasafnsfræðum við Hí. Árið 1975 lét Björn af embætti og fluttist til Reykjavíkur með fjölskyldu sína þar sem hann bjó síðan til dánardægurs. Það er trú mín að hann hafi verið mjög góður prestur og köllun sinni trúr alla tíð, vörður sem lokaði svo vel að vart varð upp lokið aftur og batt svo vel að vart varð aftur leyst. Ég kveð nú mág minn með þakklæti og virðingu frá mér og mínii fólki. Guðmundur Hansen + Þökkum innilega auösynda samúð og vinarhug viö andlát og úttör bróöur okkar, ÁGÚSTAR KRISTÓFERSSONAR garðyrkjumanns, Hverageröi. Systkini Guðrún Kristjánsdótt- ir - Minningarorð

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.