Morgunblaðið - 24.10.1981, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 1981
25
Karl Strand yfirlæknir
- Aftnæliskvedja
í dag, 24. október, á sjötugsaf-
mæli Karls Strand, yfirlaeknis,
minnist ég fyrstu kynna minna af
honum. Það var haustið 1959. Við
hjónin vorum í námsferð í Lund-
únum. Karl var þá löngu orðinn
íslendingum að góðu kunnur
vegna Lundúnabréfa sinna í
Morgunblaðinu. Einnig flutti
hann vikulega erindi í brezka út-
varpið frá hausti 1942 til hausts
1943, sem voru send á stuttbylgju
til íslands. Hann hafði líka um
árabil verið í stjórn félags Islend-
inga í Lundúnum. Þessi störf
Karls höfðu verið metin að verð-
leikum, og hann verið sæmdur
riddarakrossi fálkaorðunnar 1953.
Okkur datt í hug, að fróðlegt væri
að hringja í þennan þekkta lækni,
sem hafði numið og starfað að
geðlækningum í tæpa tvo áratugi í
Lundúnum. En Karl taldi ekki
nægilegt að auðsýna alls ój)ekkt-
um læknishjónum utan af Islandi
hlýju og kurteisi í símtali. Hann
bauð okkur ásamt öðrum lækn-
ishjónum, sem einnig dvöldust
ytra við nám, heim til sín. Mér
verður ævinlega minnisstætt, hve
þau hjón voru miklir höfðingjar
heim að sækja. Þar fór saman
mikil rausn og myndarskapur, en
þar á húsmóðirin stærstan þátt.
Um gestrisni þeirra hjóna vitna
ummæli fjölda íslendinga, sem
sóttu þau hjón heim á Lundúnaár-
um þeirra og dvöldust þar í lengri
eða skemmri tíma í góðu yfirlæti.
Islenzk menningarheimili, sem
samhent hjón, eins og frú Margrét
og Karl, skapa, eru mikiis virði,
ekki sízt á erlendri grund. Þau
kunna þá list að láta gestum líða
vel í návist sinni, líka þeim, sem
þau hafa aldrei augum litið fyrr.
Þá nýtur sín vel sú hlýja, kurteisi
og persónutöfrar, sem þau bæði
eru gædd. Karl er hafsjór af fróð-
leik, enda mikill bókamaður og á
gott bókasafn. Hann hefur frá-
bæra hæfileika til að ræða við
fólk, segir skemmtilega frá, þann-
ig að allt verður ljóslifandi fyrir
þeim, sem á hlýða. Hann kann líka
þá list að vekja umræður um
óskyldustu efni. Karl hefur frá
bernsku vanizt við rammíslenzkt
og fjölbreytt tungutak úr hásveit-
um Þingeyjarsýslu.
Mörg ár liðu þar til fundum
okkar Karls bar saman aftur og
þá í samstarfi á geðdeild Borg-
arspítala. Borgarspítalinn hafði
lengi verið í smíðum og mikið til
hans vandað af hálfu heilbrigðis-
yfirvalda. Deildir hans voru
opnaðar hver af annarri frá
stofndegi hans 28. desember 1967.
Til þeirra allra völdust færir yfir-
læknar hver í sinni sérgrein. En
nú var brotið blað í sögu íslenzkra
heilbrigðismála. Við þennan nýja
veglega Borgarspítala skyldi
starfrækt geðdeild. Áratuga gam-
all draumur allra beztu manna
læknastéttarinnar og annarra
heilbrigðisstétta hafði rætzt. Fá-
mennur, en stórhuga hópur ís-
lenzkra geðlækna, fagnaði því, að
einangrun sjúklinga með geðræn
vandamál var loks rofin. Það var
nú viðurkennt, að gagnkvæm sam-
vinna lækna um meðferð geð-
rænna og líkamlegra sjúkdóma
væri bæði æskileg og nauðsynleg
innan sama spítala. Þeir, sem til
þekkja, vita vel, hve oft geðræn og
líkamleg einkenni fléttast saman
hjá sama sjúklingi, og því mikils
virði, að hann geti fengið full-
nægjandi rannsókn og meðferð.
Vafalaust hefur þetta átt drýgst-
an þátt í að eyða fáfræði og skað-
legum fordómum, sem áður ríktu
um geðsjúkdóma. Sjúklingum og
aðstandendum þeirra var gert
léttbærara en ella að leita lækn-
ishjálpar á sjúkrahúsi.
Karl Strand var ráðinn yfir-
læknir hinnar nýju geðdeildar
þann 20. maí 1965 af borgarstjórn.
Hann hafði að baki áratuga nám
og starf við beztu sjúkrastofnanir
í Lundúnum í geðlækningum og
vefrænum taugasjúkdómum. Til
Lundúna hélt hann strax haustið
1941 að loknu læknaprófi í maí
sama ár. í læknatali er ýtarlega
rakinn læknisferill hans ytra.
Hann hafði einnig sent frá sér
greinar í ýmis tímarit, svo sem
Heilbrigt líf 1956 og ’57, og Helga-
fell 1957. Einnig hafði hann þýtt
bækur um fjölbreytt efni. En það
rit, sem lengst mun halda nafni
hans á Iofti, er bókin: „Hugur einn
það veit“, þættir um hugsýki og
sálkreppur. Þessi bók var gefin út
í október 1960. Tilgangur hennar
var, eins og höfundur getur um í
foryrðum, „að auðvelda lesandan-
um skilning á ákveðnum hópi
huglægra sjúkdóma og vanda-
mála, uppruna þeirra, mikilvægi
þeirra fyrir einstaklinga og þjóð-
félög og möguleikum til úrbóta".
Fágæt er hin frábæra fágun máls
og stíls á þeirri bók. Tök Karls á
íslenzkri tungu koma þar skýrt í
Ijós. „Ritun bókar af þessu tagi er
fjölmörgum vandkvæðum háð og
val heita og orðatiltækja næsta
erfið, ef rita skal um fræði, sem
lítt eða ekki hafa verið rituð á þá
tungu." En Karli tókst að skapa
mörg falleg nýyrði, sem fara vel í
íslenzku máli, og skýra vel það,
sem við er átt. Sem dæmi má
nefna geðlægð, geðhæð, óvirkni,
ofvirkni, haldvillur, sjálfsvíg, svo
fátt eitt sé nefnt. Bókin á enn er-
indi til allra, en því miður er hún
löngu uppseld.
Það var þaulreyndur geðlæknir,
sem var brautryðjandi í að byggja
upp nýja geðdeild á deildaskiptum
spítala. Deildin hafði því miður
ekki verið hönnuð frá byrjun sem
geðdeild og húsnæðið því að ýmsu
leyti óhentugt. En Karli tókst með
samstarfsmönnum sínum bæði í
stjórnun spitalans og á geðdeild-
inni að sníða af verstu annmarka
þess. Hann lagði frá upphafi
áherzlu á að gera deildina hlýlega,
heimilislega og manneskjulega,
hvað allan húsbúnað snerti. Hann
ákvað líka, að deildin skyldi ávallt
vera opin deild, enginn kæmi
þangað sviptur sjálfræði. Vildi
hann þannig skapa andrúmsloft
mannúðar, hlýju og öryggis fyrir
hinn sjúka. Einnig voru kvöldvök-
ur frá byrjun haldnar vikulega,
þar sem sjúklingar sjálfir
spreyttu sig á að skemmta í sam-
vinnu við starfsfólk og samsjúkl-
inga. Geðdeild Borgarspítala tók
til starfa í júní 1968. Fljótlega
kom í ljós, að brýn þörf var á að fá
meira húsnæði fyrir sjúklinga,
sem þurftu lengri vistun en unnt
er að veita á deild fyrir bráða
geðsjúkdóma. Opnun Hvítabands-
ins í febrúar 1970 var því mikið
heillaspor. Þar hefur verið rekin
dagdeild og göngudeild síðustu ár.
Karl hefur einnig haft yfirumsjón
með Arnarholti á Kjalarnesi,
hjúkrunar- og endurhæfingar-
deild fyrir geðsjúklinga. Er hún
hluti af geðdeild Borgarspítala.
Þar hefur Reykjavíkurborg á síð-
ustu árum reist nýjar byggingar
bæði fyrir starfsfólk og sjúklinga.
Því miður hefur starfsmanna-
skortur hamlað fullri’ nýtingu
staðarins, sem annars býður upp á
mikla möguleika.
Starfi Karls sem yfirlæknis
kynntist ég fyrst sem aðstoðar-
læknir árið 1970—’71 og síðan aft-
ur sem geðlæknir frá því í des-
ember 1975. Það verður ævinlega
matsatriði og skiptar skoðanir
um, hvaða kostum góður og dug-
legur yfirlæknir eigi að vera bú-
inn. Enginn gerir í því efni svo
öllum líki, enda ekki á færi dauð-
legra manna. En ég tel hiklaust,
að Karl sé í hópi þeirra yfirlækna,
sem hefur leyst störf sín farsæl-
lega af hendi. Hann hefur ævin-
lega haft góða samvinnu við sam-
starfsmenn sína í stjórnun Borg-
arspítalans og starfsbræður sína á
öðrum deildum spitalans. Hann er
friðsamur maður, tillitssamur,
samvizkusamur og sanngjarn. Öll
smákóngasjónarmið og auglýs-
ingastarfemi fyrir sína deild og
sjálfan sig er fjarri skapi hans.
Hann er gæddur þeim sveigjan-
leika, sem er nauðsynlegur í sam-
starfi, en hopar þó hvergi á hæl
með þau mál, sem hann berst fyrir
hverju sinni. Hann hefur hæfi-
leika til að Iáta aðra njóta sín.
Skapfesta og föðurleg umhyggja
eru aðalsmerki Karls. Hann er
góður yfirboðari samstarfsmanna
sinna í öllum starfsgreinum og á
virðingu þeirra sakir kurteisi og
siðfágunar. Hann hefur ávallt
fylgst vel með nýjungum í geð-
lækningum, og verið óhræddur við
að reyna öll meðferðarform, sem
bezt eru talin hverju sinni. Sjálfur
er Karl góður geðlæknir og hefur
frá byrjun starfað á stofu, þrátt
fyrir krefjandi stjórnunarstörf og
læknisstörf á spitalanum. Er það
mikils virði, þegar haft er í huga,
hve fámenn geðlæknastéttin hefur
alla tíð verið. Það er skaði, að
geðdeildin skyldi ekki verða
kennsludeild frá upphafi, en það
var ósk Karls. Hann er ágætur
kennari og deildin býður upp á
fjölbreytt kennsluefni. Geðskoð-
anir hans eru annálaðar að gæð-
um og frágangur til fyrirmyndar.
Eg er ekki viss um, að Karl
kunni mér þakkir fyrir að skrifa
um hann sjötugan. En mér hefur
ávallt fundizt full hljótt um hann
og störf hans, slíkur heiðursmaður
sem hann er í hvívetna. Ég vil að
lokum þakka honum samstarf,
sem aldrei hefur borið skugga á.
Ég óska honum og Margréti, konu
hans, langra lífdaga, góðrar
heilsu, gæfu og gengis. Við hjónin
biðjum þess, að blessun Guðs hvíli
ávallt yfir heimili þeirra og Borg-
arspítalanum, sem hann hefur
helgað krafta sína.
Guðrún Jónsdóttir
Þegar við Karl Strand vorum
ungir menn og hófum læknisnám
niðri í Alþingishúsi, var stúdenta-
hópurinn hvorki stór né lífsreynd-
ur, en að sjálfsögðu fullur áhuga
og bjartsýni. í fyrstu kennslu-
stundinni hélt prófessorinn yfir
okkur ræðustúf og sagðist skilja
það mætavel, að okkur langaði til
að nema læknisfræði, enda væri
hún skemmtilegt fag, en það væri
svo gífurleg offramleiðsla á lækn-
um á íslandi, að við myndum
aldrei fá neitt að gera.
Greinilega létu menn þessi
varnaðarorð eins og vind um eyr-
un þjóta, og ekki hefur bólað á
atvinnuleysi í stéttinni þá tæplega
hálfu öld sem liðin er frá því við
rituðum okkur inn í læknadeild-
ina.
Skömmu eftir kandidatspróf fór
Karl til framhaldsnáms i London
og enn lágu leiðir okkar saman um
skeið, því að í full tvö ár, meðan
styrjöldin stóð sem hæst, var ég
ýmist tíður gestur á heimili hans
og Margrétar í Grófinni (Victoria
Grove í Kensington) eða heimilis-
fastur undir þaki þeirra hjóna.
Þetta hús var lengi miðpunktur
íslenska þjóðarbrotsins í London
og annað sendiráð okkar í þeirri
borg, en steinsnar frá Grófinni
var öldurhús nokkurt, sem ýmsum
löndurn þótti viðkunnanlegur
staður. Varð um það þegjandi
samkomulag, að menn hittust þar
eigi sjaldnar en einu sinni í viku
og sötruðu stríðsöl með Bretum.
Þessi skipan mála varð svo vinsæl
og sjálfsögð þjóðunum báðum, að
þegar klukkan nálgaðist tíu'að
kvöldi og kránni skyldi lokað lög-
um samkvæmt hrópaði barþjónn-
inn hátt og snjallt: „Ladies and
gentlemen and Icelanders; time,
please!" og gestirnir tíndust nauð-
ugir viljugir út á strætið og
dreifðust um myrkvaða borgina,
hver til síns heima.
Grófar-hjónin stöldruðu lengur
við í Lundúnum en flest okkar
hinna. Karl vann þar á geðspítala
í fjöldamörg ár, en heim fluttust
þau þegar hann tók að sér stjórn
geðdeildar i nýstofnuðum Borg-
arspítala.
Þetta greinarkorn er, eins og
allir sjá, einungis persónulegar
endurminningar rifjaðar upp á
merkisdegi í lífi vinar og sam-
verkamanns; hugskeyti til ágætra
hjóna, sem nú dveljast erlendis í
góðu yfirlæti á fornum slóðum.
Við Karl höfum átt ýmislegt sam-
an að sælda um dagana, setið sam-
an á skólabekk, ferðast saman,
föndrað í æsku við þýðingar og
önnur bókmenntastörf í tóm-
stundum, jafnvel tekið þátt í tíma-
ritaútgáfu; og starfað að lækning-
um á sama sjúkrahúsi um nokkur
undanfarin ár. Annar hefur að
vísu reynt að efla líkamshreysti,
hinn hefur lagt aðaláhersluna á
sálarheill, en munurinn á þessu
tvennu er kannski minni en ætla
mætti, og kappkostað höfum við
að tre.vsta sem best og varðveita
sem lengst samskeytin milli sálar-
innar og líkamans. Megi sú við-
leitni bera þann árangur sem við
báðir óskum.
Þórarinn Guðnason
Bifreióareigendur
Opið í dag frá ki. 10 til 12 og frá ki. 13 til 15.
Sérhönnuö sætaáklæði á allar teg. bíla. Send-
um í póstkröfu. 25 litir.
Sumir kaupa köttinn í sekkn-
um, en aðrir versla við
okkur. Valshamar hf.,
Linnetstíg 1, sími 51511,
Hafnarfiröi.
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
húsnæöi
i boöi
Keflavík
Til sölu litiö iönaöarhúsnæöi viö
Hafnargötu. Stækkunarmögu-
leikar Verö 200 þús.
Eldra einbýlishús á 2 hæöum,
steinsteypt, í góöu ástandi.
Mögulegt aö hafa sem 2 íbuöir.
Verö 600 þús.
Komum á staöinn og verömet-
um.
Eignamiölum Suöurnesja, Hafn-
argötu 57. sími 3868
Keflavík
Til sölu raöhús, 140 fm á 2 hæö-
um í góöu astandi. Verö kr. 650
þús. Kemur til greina aö taka
ódýrari eign upp í.
Eignamiölum Suöurnesja, Hafn-
argötu 57, simi 92-3868.
Til leigu
4ra herb. einbýlishús ásamt
geymslu og bilskur á góöum
staö i Vesturbænum frá og meö
1. nóv. Tilboö merkt: „Hús —
7940“ sendist augl.deild Mbl.
Ung reglusöm hjón
meö barn á leiðinni, óska eftir
2ja til 3ja herb. ibúö. Smá hús-
hjálp ef óskaö er. Uppl. i sima
44067.
Teppa- og húsgagna-
hreinsun
Simi 50678.
Konur athugið
Okkur vantar sjálfboöaliöa i
verslanir okkar Uppl. i síma
28222.
Kvennadeild Reykjavikurdeildar
Rauöakross íslands.
m
IÚTIVISTARFERÐIR
Sunnud. 25.10 kl. 13
Ketilsstígur — Krísuvík, létt
ganga í fylgd meö Einari Egils-
i syni. Verö 60 kr.. fritt f. börn m
fullorönum. Farið frá BSI, vest-
anveröu.
Snæfellsnes um næstu helgi.
Utivist
Hjálpræðisherinn
Laugardag kl. 20.30 kvöldvaka.
Veitingar, happdrætti. söngur,
og hljóöfærasláttur.
Nýir stólar teknir í notkun.
Ofursti Moen og frú tala. Kaft-
einn Daniel Oskarsson stjórnar.
Allir velkomnir.
Skíðadeild Víkings
Skiöafólk! Vetrarkaffiö veröur i
Skiöaskálanum. sunnudaginn
25. okt. kl. 15.30.
Stjórnin
Sunnudagaskólar
Fíladelfíu
A kristniboösári göngum viö i
sunnudagaskola Komdu meö.
Njarövikurskóli sunnudaga kl.
11.00.
Grindavíkurskóli sunnudaga kl
14.00 Veriö velkomin Muniö
svörtu börnin.
Kristján Reykdal
Félag kaþólskra
leikmanna
heldur fund i Stigahliö 63, mánu-
daginn 26. okt. kl. 20.30 Séra
Agúst flytur hugleiöingarorö um
mál hluta og fegurö náttúrunnar
og sýnir litskyggnur. Allir vel-
komnir
Stjorn FKL.
Elím Grettisgötu 62 Rvík
A morgun, sunnudag. verður
sunnudagaskóli kl 11 00 og al-
menn samkoma kl. 17.00. At-
hugiö breyttan samkomutima.
Veriö velkomin.
Heimatrúboöið,
Óðinsgötu 6A
Almenn samkoma á morgun kl.
20.30. Allir velkomnir.
FERDAFELAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU3
SÍMAR 11798 og 19533.
Grímmannsfell
Létt ganga. sem allir geta tekiö
þátt i. Fararstjóri: Baldur Sveins-
son.
Verö kr. 50.00 grv./bilinn.
Fariö fra Umferöarmiöstööinni
aö austanveröu
Ferdarfelag Íslands
Ath. Enn er allmikiö af oskiladoti
á skrifstofunni.