Morgunblaðið - 24.10.1981, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. OKTOBER 1981
35
Sextug:
Lilja Bjarnadóttir
Sextug er í dag frú Lilja Bjarna-
dóttir, Hjallavefii 5, Reykjavík
(frá Búðardal). Foreldrar hennar
komu frá Litla-Nesi á Barða-
strönd, og réðust í húsmennsku að
Hornsstöðum í Laxárdal, þá með
þrjú börn. Nokkrum vikum seinna
fæðist Lilja, eða nánar til tekið
24.10. 1921. Þegar hún er 6 mán-
aða, flytjast þau niður í Búðardal.
Vegna fátæktar og veikinda
móður sinnar verður Lilja aðeins
fjögurra ára að fara að heiman.
Fer hún þá að Köldukinn í Hauka-
dal, dvelur þar meira og minna til
tólf ára aldurs að sumrinu til. Síð-
an dvelur hún að Ásgarði í Dölum
unglingsárin, og telur Lilja það
sín mestu gæfuspor að lenda hjá
þeim merkishjónum Bjarna Jens-
Skíðaferðir
að hefjast til
Húsavíkur
KLI'GLKIDIR hafa í samvinnu við
llótel Músavík ákveðið að hefja
skíðaferðir til llúsavíkur.
Olafur Skúlason hótelstjóri á
Húsavík sagði í samtali við
Morgunblaðið að hér væri um að
ræða ferðir þar sem gist væri í
tvær eða þrjár nætur og kostaði
syni og Guðrúnu Jóhannesdóttur,
seinni konu hans. Lilja hefur oft
minnst á það við mig hvað
mamma sín hafi staðið í mikilli
þakkarskuld við fólkið á Horns-
stöðum, ekki síst þar sem úr rúmi
gekk þroskaheftur drengur þeirra
hjóna, svo hún gæti alið Lilju þar.
Þessi maður (drengur) dvelst nú á
Kópavogshæli. Þetta markaði spor
í lífi Lilju svo sterkt að hún hefur
fórnað sér mjög fyrir fjölfatlað
fólk á ýmsum sviðum.
Hver kannast ekki við Lilju þar
sem hún stendur á götuhorni fyrir
utan skemmtistaði og bíður happ-
drættismiða, merki og blöð fyrir
einhvern slíkan félagsskap. En
ekki fær Lilja alltaf þakklæti fyrir
hjá samborgara sínum, heldur
skítkast, eins og „þú betlarinn
þinn“ og margt ljótara. En þetta
er eins og að skvetta vatni á tólg-
arskjöld fyrir Lilju, hún gengur
brosandi í burt og býður næsta
happdrættismiða. En hún á líka
miklu stærri þakklætishóp sem
betur fer. Það þekki ég persónu-
lega að Lilja er ekki að selja pen-
inganna vegna, hún gefur mjög oft
sölulaunin sín til baka. Hún er að
selja fyrst og fremst, og það fram
á nætur, ef hún gæti eitthvað lagt
af mörkum þeim sem minnst
mega sín.
Sjálf hefur Lilja ekki gengið
heil til skógar í mörg ár. Lilja er
gift Gunnari Marinóssyni fanga-
verði, núverandi forstöðumanni í
Síðumúla. Þau eiga fjögur börn.
Lilja verður að heiman í dag.
G.J.
tveggja nátta gisting með ferð-
um fram og til baka frá Reykja-
vík, frá kr. 700. Ólafur sagði, að
nú væri mikill og góður skíða-
snjór á Húsavík og færi í brekk-
um mjög gott. Lyftur eru allar
komnar af stað og eru brekkur
upplýstar á kvöldin.
Skíðaferðir til Húsavíkur hafa
verið algengar á vegum Flug-
leiða undanfarin ár, en yfirleitt
hafa þessar ferðir ekki hafist
fyrr en um jól eða síðar, þar sem
góður skíðasnjór hefur ekki ver-
ið kominn fyrr. Þess má geta aö
í gær var stólalyftan á Akureyri
opnuð.
Fermingar
Ferming í Garðakirkju sunnudaginn
25. okt. kl. 14.
Br.vndís Ýr Viggósdóttir,
Grenilundi 11.
Dóra Björg Jónsdóttil1 * * * * * 7 8,
Grund, Garðabæ.
Guðrún Jóhanna Benediktsdóttir,
Aratúni 1.
Heiðbjört Haðardóttir,
Dalsb.vggð 14.
Ferming í Lágafellskirkju, sunnu-
daginn 25. okt. kl. 13.30.
Fermd verða:
Elisabeth Maria Erikson,
Ilvergholti 4.
Kristrún Sigursteinsdóttir,
Arnartanga 21.
Jón Páll Gestsson,
Brekkutanga 11.
Strengjakvartett á fyrstu tón-
leikum Kammermúsikklúbbsins
TIITTUGASTA og fimnita starfsár
Kanimermúsikklúbbsins hefst með
tónleikum í Bústaðakirkju sunnu-
daginn 25. október, en þar mun
strengjakvartett leika verk eftir
Þorkel Sigurbjiirnsson, Mozart og
Rrahms.
Strengjakvartettinn skipa þau
Laufey Sigurðardóttir, Júlíana Klín
Kjartansdóttir, llelga Þórarinsdótt-
ir og Nora Kornblueh.
Á næstu tónleikum klúbbsins
leika Árni Kristjánsson, Laufey
Sigurðardóttir og Gunnar Kvaran
tríó fyrir strengi og pianó eftir
Beethoven og Schubert. Þeir tón-
leikar verða á Kjarvalsstöðum í
byrjun desember.
í hyrjun marz kemur Sinn-
hofer-strengjakvartettinn frá
Múnchen og mun leika á tvennum
tónleikum, en heimsóknir þýzkra
strengjakvartetta til klúbbsins
eru nú árvissir atburðir. Tónleika
Þjóðverjanna ber upp á 25 ára af-
mæli klúbbsins.
Á fimmtu og síðustu tónleikun-
um verða leiknir kvintettar fyrir
strengi.
Landsþing LMF:
Veitti vikufrest vegna reglugerð-
ar um starfshætti áfangaskóla
MOKGUNBLAÐINII hefur borizt eft-
irfarandi ályktun 15. Landsþings
Landsamhands mennta- og fjöl
brautaskólanema:
„15. Landsþing LMF, haldið að
Varmalandi í Borgarfiröi 16,—18.
10. ’81, ályktar að reglugerð sú sem
menntamálaráðuneytið sendi frá
sér um starfhætti áfangaskóla hafi
verið unnin á ólýðræðislegan máta.
Fullvíst þykir nú að sá vinnuhóp-
ur skólastjóra og ráðuneytismanna
sem að reglugerðinni unnu höfðu
lítið sem ekkert samráð við sam-
starfsmenn sína né nemendur.
Viss samræming framhaldsskóla
hlýtur að vera nauðsynleg og fram-
haldsskólafrumvarp það sem lagt
var fyrir Alþingi á 99. löggjafar-
þingi '77—'78 er skref í þá átt.
Auk þess sent fyrrgreind reglu-
gerð er meingölluð, eins og þegar
hefur verið bent á í greinargerðum
fulltrúa M.Il. og F.B. teljum við að
hún gangi of langt í miðstýringu
skólakerfisins.
Vissum séreinkennum hverrar
skólastofnunar ber að halda og
ráðuneytið verður að treysta full-
trúum og starfsmönnum skólanna í
hinum einstöku innanhúsmálum.
Við bendum ráðuneytinu á sam-
starfsnefnd skólastjórnarfulltrúa
innan LMF sem viðræðuaðila í máli
þessu. Ljóst er að verði mála-
leitunum okkar um afturköllun eða
gagngera endurskoðun reglugerðar-
innar ekki sinnt innan viku hefja
LMF harðar aðgerðir í máli þessu.
Tíu punktar um prófkjör
eftir Sigfríö Ólafsson
Vegna þeirra breytinga sem orðið
hafa á prófkjöri Sjálfstæðisflokks-
ins til borgarstjórnarkosninganna,
langar mig til að tína til tíu punkta
til athugunar fyrir alla sjálfstæð-
ismenn. Ég tel að sameiginlegum
hagsmunum okkar sjálfstæðis-
manna sé stefnt í tvísýnu með því að
loka prófkjörinu eins og fundur í
Fulltrúaráði sjálfstæðisfélaganna í
Reykjavík samþykkti nú fyrir
skömmu. Punktarnir tíu eru þessir:
1. Sjálfstæðisflokkurinn er
óhemju stór fjöldahreyfing sem
spannar næstum alla þjóðina og
á sér hvergi hliðstæðu í nálæg-
um löndum. Flokkurinn hefur
síðustu tíu ár komið á móts við
óflokkshundið stuðningsfólk
með opnu prófkjöri. Nú lýsum
við vantrú okkar á þessum þús-
undum kjósenda með lokun
prófkjörsins.
2. Opin prófkjör hafa síðasta ára-
tuginn dugað okkur vel til að
raða niður á framboðslista
flokksins. Góðir sjálfstæðis-
menn hafa valist til starfa t
borgarstjórn Reykjavíkur og
enginn maður dregur heilindi
þeirra í efa. Þess vegna er
prófkjörinu nú ekki iokað af
gefnu tilefni eða að fyrir hendi
séu einhver víti til varnaðar.
Þvert á móti er þetta óréttmæt
aðgerð og lýsir vantrausti okkar
í garð kjörinna fulltrúa í borg-
arstjórn.
3. Sjálfstæðisflokkurinn ber höfuð
og herðar yfir aðra stjórnmála-
flokka landsins. Rösklega tíu
þúsund mannsgreiddu atkvæði í
síðasta prófkjöri okkar til borg-
arstjórnar eða margfalt fleiri
kjósendur en hjá öðrum flokk-
um. Vegna þessa hlutfalls er
ljóst að öðrum flokkum tekst
aldrei að hafa nein teljandi
áhrif á mðurstöður úr prófkjör-
um hjá Sjálfstæðisflokknum. Til
þess erum við of stórir en þejr of
litlir.
4. Kinungis flokksbundið sjálf-
stæðisfólk má bjóða sig fram í
prófkjörum flokksins. Þess
vegna stendur hver þátttakandi
í prófkjöri frammi fyrir að velja
eingöngu sjálfstæðisfólk, sem
allt er jafn vel að atkvæðum
hans komið. Þeir utanflokks-
menn sem hugsanlega greiða at-
kvæði hjá okkur eiga því ekki
annarra kosta völ en að kjósa
sjálfsta'ðisfólk.
5. Borgarstjórnarflokkur sjálf-
stæðismanna hefur áratugum
saman verið óvenju samhent og
sterkt stjórnmálaafl. Þetta hafa
mörg hundruð kjósendur ann-
arra flokka virt að verðleikum
og því greitt okkur atkvæði til
borgarstjórnar þótt þeir fylgi
öðrum flokkum til Alþingis. Oft
hefur þessi stuðningur riðið
baggamuninn þegar Sjálfstæð-
isflokkurinn hefur haldið meiri-
hluta í höfuðborginni með ör-
fáum atkvæðum. Sjálfstæðis-
flokkurinn er því vissulega
skuldbundinn þessum kjósend-
um og því sjálfsagt að gefa þeim
kost á að hafa hönd í bagga með
niðurröðun á framboðslistann ef
þeir þá kæra sig um það. Það
eflir ntikilvæg tengsl.
fi. Þá er sjálfsagt að geta þess að
Sjálfstæðisflokkurinn er ekki
rekinn fyrir erlent gjafafé.
Flokksstarfið er afar kostnað-
arsamt og það er borið uppi af
happdrættistekjum. Við útsend-
„Opin prófkjör hafa síð-
asta áratuginn dugað
okkur vel til að raða
niður á framboðslista
flokksins.“
ingu happdrættismiða er stuðst
við skrá yfir þátttakendur í
prófkjörum og þeir því orðnir
fjárhagslegir bakhjarlar flokks-
ins. Þannig hafa um fjögur þús-
und óflokkshundnir sjálfslæði.s-
menn fengið senda happdrættis-
miða flokksins hverju sinni og
gert mjög góð skil. Hér er mik-
ilvægri tekjulind stefnt í voða
að ástæðulausu á erfiðum tím-
um.
7. Vinna okkar hverfisfulltrúa á
kjördegi er að mestu leyti fólgin
í að hafa samband við hugsan-
lega kjósendur flokksins. Með
skrá yfir þátttakendur í próf-
kjöri höfum við öðlast niikil-
vægar upplýsingar um líklegt
stuðningsfólk. Nú er þessum
gögnum okkar svipt í burtu.
8. Eðli stjórnmálaflokka er að laða
til sín kjósendur og því ber að
opna faðm þeirra svo sem frek-
ast er unnt. Óráðnum kjósend-
um virðist fara fjölgandi með
hverju árinu sem líður og ungu
fólki er ekki öllu jafn sýnt unt að
ganga í stjórnmálaflokka. Því er
afar mikilvægt að ungir kjós-
endur eigi greiða leið að Sjálf-
stæðisflokknum. Lokað prófkjör
er steinn í götu unga fólksins.
í). Stundum er deilt á prófkjör
vegna þess að þau eru ekki al-
gildur mælikvarði á hæfni
frambjóðenda. Einnig þykja þau
hvetja til hjaðningavíga hjá
flokksmönnum. Þessi gagnrýni
á vissulega rétt á sér en lokuð
prófkjör draga ekki úr þessum
vanda. Menn vega hvorn annan
jafnt í opnum prófkjörunt sem
fyrir luktum dyrum.
10. Lokun prófkjörsins er örlagarík
breyting á starfi Sjálfstæðis-
flokksins á mjög viðkvæmu
tímabili í sögti hans. Kostir og
gallar við prófkjör eru miklu
nteira umræöuefni en sVo, að
þeim verði gerð skil á stuttum
fulltrúaráðsfundi. Nauðsynlegt
er að ræða ntálin til þrautar í
félögum og stofnunum flokksins
áður en ákvörðun er tekin í Full-
trúaráði. Þess vegna tel ég að
þessi ákvörðun þurfi meiri unt-
fjöllunar við.
Sjáifstæðisflokkurinn byggir
kjörfylgi sitt á góðri stemmningu á
kjörd.'gi. Lokun prófkjörsins leiðir
til óánægju og neikvæðs hugarfars
hjá kjósendum flokksins okkar í
borginni og dregur mjög úr sigur-
möguleikum Sjálfstæðisflokksins,
Breytinga kann að vera þörf á regl-
um um prófkjör en þær má aðeins
framkvæma eftir itarlega umræðu
og alls ekki fáeinum vikum fyrir
viðkvæmustu kosningar okkar
sjálfstæðismanna frá stofnun
flokksins.
Sigfríð Olafsson,
formaður Nemenda-
sambands stjórnmálaskóla
Sjálfst&'ðisflokksins.