Morgunblaðið - 24.10.1981, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 1981
37
*
Þakkir til
Ferðamið-
stöðvarinnar
Hilda Björk Jónsdóttir, Kötlufelli
9, Reykjavík, skrifar:
„Mig langar til að koma á fram-
færi þökkum til Ferðamiðstöðvar-
innar fyrir þá þjónustu sem hún
lætur í té. Eg fór til Benidorm 4.
ágúst sl. og dvaldi þar í þrjár vik-
ur á hinu frábæra hóteli Don
Pancho sem er við ströndina. Öll
þjónusta var frábær, staðurinn er
yndislegur og leiðsögumennirnir,
Jórunn Tómasdóttir og Gérard
Chinotti, spöruðu enga fyrirhöfn
til að gera okkur íslendingunum
dvölina ánægjulega og þægilega.
Það er ekki einsdæmi að
skammir um þjónustufyrirtæki
eins og ferðaskrifstofur birtist í
lesendadálkum blaðanna, þannig
að mér finnst ekki úr vegi að geta
þess sem vel er gert. Ekki sízt er
ástæða til að þakka íslaugu Aðal-
steinsdóttur, framkvæmdastjóra
Ferðamiðstöðvarinnar, fyrir
hennar ágætu skipulagningu, sem
kemur farþegum til góða.“
D/TNIB
Eins og þjófur úr
heiðskíru lofti
J.Á.G. skrifar vegna „Poka-
hornsins" í Mbl. 18/10 (bls.
36-37):
„Af einskærri rælni fór ég að
lesa síður þessar. Greinarnar
tvær eru á lipru máli og léttu.
Sjálfsagt eru greinar þessar les-
efni skólakrakka, enda þeim ætl-
aðar. Er því mikils um vert að
vel takist um meðferð mála, gæti
orðið hinum ungu lesendum
hvati að orða hugsanir sínar
skýrt og skilmerkilega, hvort
sem væri í ræðu eða riti.
Höfundur notar þó nokkuð lík-
ingar, en þar skriplar hann á
skötunni. Köngurlóarvefir vefja
ekki upp á sig. Það gera hnykill
og snælda. Hlutir fara ekki að
ske, hjól fara að snúast.
Það yrði til prýðis að skreyta
mál Pokahorns ögn með máls-
háttum og orðtökum en vanda-
samt. Mesta hætta er að rugla
tveimur saman, svo úr verður
endileysa. Alkunna er: þjófur úr
heiðskíru lofti, milii heims og
sleggju, sitja með súrt enni o.fl. í
þeim dúr.
Noti menn málshætti eða orð-
tök má ekki orðinu halla. Því ber
mönnum að slá þeim upp leiki
minnsti vafi á um orðanna hljóð-
an. Við Islendingar erum svo
lánsamir að eiga tvö öndvegisrit
um þessi efni: Islensk orðtök,
efur prófessor Halldór Hall-
dórsson, og Islenska málshætti.
Þessar bækur ætti höfundur að
hafa á borði sínu, slá upp í þeim
og lesa sér til við hentugleika."
Tímabært að vera vel á verði
Einar Freyr, Gautaborg, skrifar 17.
okt.:
„Kæri Velvakandi!
Á fremstu síðu Morgunblaðsins
14.10. var AP-frétt um það, að Sov-
étmenn hafi grafið um 20 þúsund
manns lifandi í Afganistan. I frétt-
inni segir orðrétt: „Strax og þeir
voru búnir að ná undirtökunum
byrjuðu þeir að drepa prófessora,
kennara, lækna og trúarleiðtoga,“
sagði Pakitiawal. „Þeir skutu ekki
fólkið. Þeir bundu hendur þess
(bundu hendur 20 þúsund manns.
Athugasemd mín.) og grófu því gröf
með traktor og síðan ruddist trakt-
orinn yfir allt saman þannig að fólk-
ið grófst lifandi." Pakitiawal sagði,
að sovéskir hermenn hefðu ruðst inn
Bráðsmellnar
auglýsingar
P. Gunnarsson skrifar:
„Kæri Velvakandi!
Mig langar til að bera fram
fyrirspurn um það hver hann er
Þessi J.G.J. sem gerir auglýs-
ingarnar fyrir nýja diskótekið
Manhattan. Mér finnst þessar
auglýsingar bráðsmellnar og bera
af öðrum auglýsingum. Ég er viss
um að þær bera meiri árangur en
allar innantómu skrumauglýs-
ingarnar."
vandamálum. Væri okkur ekki
a.m.k. hollt að doka ögn við og hug-
leiða orð skáldsins Páls J. Árdal í
kvæði hans „Vakna barn“?
Líttu upp (il hárra hlída
horfóu út á sæinn víða
sjáðu engið, fjallið fríða,
fossa, vötn og gróin tún.
Finn.st þér ekki flest allt prýða
fósturjörðu þína?
Sumargull í sólarljósi skína.
Gaman er að vaka og vinna
verkin þörf af hendi inna
vel að lýð og landi hlynna
leiða prýði yfir sveit
margan kalinn rækta reit.
Keyndu gæfu gull að spinna
úr gæðum lands og sjóar.
Iðni finnur yndisstundir nógar.
Með þökk fyrir birtinguna."
á heimili að næturþeli, tekið heilu
fjölskyldurnar til fanga og útrýmt
þeim með ofangreindum hætti.“
Nú er ekki hægt fyrir mig að
ganga úr skugga um það, hvort þessi
frétt er sönn eða ekki. En það er ekki
fréttin í sjálfu sér sem ég vil vekja á
athygli, — heldur framsetning frétt-
arinnar.
Einmitt slíkur framsetningarmáti
frétta var notaður sem áróður til að
hleypa af stað tveim heimsstyrjöld-
um, 1914 og 1939. Og þegar Kenýa
barðist fyrir sjálfstæði sínu 1952
komu Bretar þeirri sögu af stað í
heimsfréttunum, að Mau-Mau-
hreyfingin og foringi hennar, Jomo
Kenyatta, væru mannætur og morð-
ingjar. Þannig fengu Bretar „sið-
ferðilegan" kraft til að stunda
fjöldamorð á íbúum Kenýa. Bæði í
fyrri og síðari heimsstyrjöldinni
breiddu Þjóðverjar út þann áróður
að bandamenn ætu niðursoðið
mannakjöt.
Áður en Sovétmenn réðust inn í
Tékkóslóvakíu sögðu þeir að stjórn
Dubceks væri að innleiða kapítal-
isma í Tékkóslóvakíu.
Ég er þeirrar skoðunar, að ef ekki
væri til í kringum 10% af mjög góð-
um og heiðarlegum blaðamönnum og
fréttariturum í heiminum, að þá
væru stríðsæsingamennirnir í austri
og vestri fyrir löngu búnir að hleypa
af stað þriðju heimsstyrjöldinni.
Það eru ekki valdhafarnir í
Moskvu eða Washington sem bera
aðallega ábyrgðina á heimsfriðnum
— heldur ekkert síður fréttaritar-
arnir og blaðamennirnir. Ritstjórar
dagblaðanna gætu komið í veg fyrir
nýja stórstyrjöld.
Nú er tímabært að vera sérstak-
lega vel á verði fyrir áróðursmeist-
urum KGB og CIA.
Með beztu kveðjum."
Afganistan:
Grófu Sovétmerai
20 þús. lifandi?
Sfartaabwa. S-IUrMtea. II «U—r.. ... .
ITLÆGUR h(jórnarerlndrrkl frá AI(ul«Un telur ið wvéib Inn-
ránarlMiA h.fi CrmfM llfmndt uu 20 þúnundlr m.nn. akOuuu eftlr
innránina 1 Afganlatan fjrrlr trpum tveinur árum. Utlaainn, aem
heltlr Akktar Mukammed Paktlawal. var til akaama tlma fulltrúl
Ugana hjá UNESCO llann hélt fram I káakólafyrírleatH I
•* ■IBJón Afgana kaíðl látM ItflA ag krjár
milljunir flulA land (rá þvt aA innrásin bófst.
.Straa og þeir voru bónir aó grófu því gröf með traktor og
aA nndirtókunum bvriuAu hair
fjólakyldurnar til fanga og út-
rýmt þaim með ofangreindum
hatti.
Paktiawfi aneri ekki aftur til i
Afganiatan að loknum I
UNÐCXVhínjli l Belgrad fyrir I
ráttu árí. Með hjálp júgóala- I
vneakra ambmttiamanna tókat |
honum að komaat til V-Þýaka-
landa og þaðan til Bandaríkj-
ÞESSI GULLFALLEGI
KOPARSANSERAOI
Auói
100 5S
ARG. 1979 — SKRÁÐUR 1980
EKINN ADEINS 27000 KM
ERTIL
SÖLU
UPPLYSINGAR
í SÍMA 51880
JUDOBUNINGM
IJÚDÓBÚNINGAR
VERD 255—387
KARATEBÚNINGAR
VERÐ 226—325
ALAUGARDÖGUM
Folaldakjöt
1/2 skrokkar
aðeins 28 kr. kg.
Tilbúið í frystinn.
Folaldahakk 33 kr. kg
Folaldasnitzel 95 kr. kg
Folaldafillet 98 kr. kg
Folaldagullasch 89 kr. kg
Folaldabuffsteik 91 kr. kg
Reykt folaldakjöt 28 kr. kg
Saltaö folaldakjöt 25 kr. kg
OPIÐ TIL KL. 4 I DAG
KJÖTMIÐSTÖÐIN kaugalaek 2.s. 865II