Morgunblaðið - 24.10.1981, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 1981
39
„Gátum illa samþykkt kjör sem
þýskt ruddamenni ákvað okkur“
Greinargerð frá knattspyrnudeild Fram varðandi félagaskipti Péturs
Ormslevs til vestur-þýzka félagsins Fortuna Dússeldorf.
Nú um nokkra hríð hafa dagblöð flutt frásagnir af félaga-
skiptum Péturs Ormslevs frá Fram til fortuna Dusseldorf í
V-Þýzkalandi. Frásagnir þessar hafa sumar hnigið í þá átt, að
Fram stæði í vegi fyrir því að Pétur geti gerzt atvinnumaður
hjá hinu þýzka félagi. Hafa birzt viðtöl við umboðsmanninn
Willy Keinke og leikmanninn Atla Eðvaldsson, sem leikur
með Fortuna Diisseldorf auk viðtala við Pétur sjálfan. Hefur
Reinke þessi m.a. látið látið hafa eftir sér, að hann hafi aldrei
á sínum 30 ára ferli sem umboðsmaður kynnst öðru eins og
framkomu knattspyrnudeildar Fram við Pétur Ormslev, né
þurft að semja við jafn erfiða viðsemjendur sem Fram. Atli
hefur einnig verið óspar á yfirlýsingar sínar um Fram. Hefur
hann m.a. talið að Fram væri að „eyðileggja Pétur sem
leikmann". Af þessum tilefnum telur stjórn knattspyrnu-
- deildar Fram nú nauðsynlegt að skýra blaðalesendum nokk-
uð frá gangi þessa máls frá upphafi.
Semja þarf við
íslenzka félagið
Þegar leikmaður íslenzks félags
gerist atvinnuknattspyrnumaður
erlendis þarf aðallega að ganga
frá tvennu. I fyrsta lagi er þar að
sjálfsögðu um að raeða samning
leikmannsins sjálfs við atvinnu-
mannafélagið og í öðru lagi þurfa
félögin tvö að koma sér saman um
félagaskiptin. íslenzka félagið
þarf að gefa vottorð um félaga-
skiptin (í reynd gengur KSÍ frá
slíku vottorði og sendir hinu er-
lenda knattspyrnusambandi) svo
að leikmaðurinn megi taka að
leika með hinu nýja félagi. Er
tíðkanlegt að atvinnumannafélag-
ið greiði nokkra peningafjárhæð
til hins íslenzka félags til að losa
um leikmanninn, auk þess sem
menn kunna að vilja semja um
önnur atriði málsins. Má þar
nefna rétt leikmannsins til að
koma aftur endurgjaldslaust til ís-
lenzka félagsins að samningstíma
liðnum ef hann þá kýs, hugsanleg
samskipti félaganna um knatt-
spyrnuleiki o.m.fl.
Fram hefur tilkynnt öllum leik-
mönnum í meistaraflokki félags-
ins að við félagaskipti til útlanda
sé nauðsynlegt að hafa félagið
með í ráðum frá upphafi. Hefur
þessu verið beint til þeirra í því
skyni að félagið geti gætt rétt-
mætra hagsmuna sinna sjálft, og
einnig hefur verið lögð á það
áherzla að félagið vildi styðja leik-
mennina sjálfa við gerð þeirra eig-
in ráðningarsamninga. Þarf varla
að hafa mörg orð um að þar eru
margir pyttir til að falla í.
Ekkert talað við Fram
Aðdragandi að máli Péturs
Ormslevs var sá, að Willy Reinke
umboðsmaður bauð honum í áliðn-
um september sl. að koma til For-
tuna Díisseldorf til könnunar á að-
stæðum hjá félaginu og æfinga.
Ekki var haft minnsta samband
við Fram um þetta, þó að keppn-
istímabili væri ólokið (því lauk 1.
okt.) og Fram ætti enn eftir að
leika í Evrópukeppni bikarmeist-
ara. Pétur fór utan til Þýzkalands
en kom svo til írlands 30. sept. og
tók þátt í leik Fram við irsku bik-
armeistarana Dundalk. Tveir af
forráðamönnum Fortuna Dussel-
dorf komu einnig til að fylgjast
með Pétri í leiknum. Þeir rétt
köstuðu kveðju á forráðamenn
Fram, sem voru með liðinu á Ir-
landi en vildu ekkert ræða hugs-
anlega samninga Péturs
Ormslevs.
Einhliða samningsgerð!
Næst gerist það líklega mánu-
daginn 5. okt., að Atli Eðvaldsson
hringir frá Þýzkalandi í einn
stjórnarmanna knattspyrnudeild-
ar fram og tilkynnir að allir
samningar séu tilbúnir. Óskar
hann eftir að Fram sendi fyrir-
varalaust skeyti til Fortuna
Dússeldorf um samþykki við fé-
lagaskiptum, og skrifaði þar með
uppá hina tilbúnu samninga.
Greindi Atli frá því í stórum
dráttum, hvað samningar hljóð-
uðu um. Honum voru tjáð þau
augljósu sannindi, að svona
gengju samningar ekki fyrir sig.
Ef semja ætti við Fram um þetta
mál væri það lágmarkskrafa, að
fulltrúar þýzka félagsins kæmu
hingað til samningaviðræðna.
Daginn eftir eða þriðjudaginn 6.
okt. barst svo tilkynning um að
umboðsmaðurinn Willy Reinke og
Pétur sjálfur væru væntanlegir til
landsins síðdegis miðvikudaginn
7. okt. til viðræðnanna. Myndi
Reynke halda brott strax um
morguninn eftir og þyrfti því að
ljúka málinu á miðvikudagskvöld-
inu. Okkur stjórnarmönnum í
Fram þótti strax nokkuð undar-
legt að ekki skyldi koma hingað
fulltrúi félagsins sjálfs til við-
ræðna við okkur, en létum þó
kyrrt liggja, þar sem hugsanlegt
var að Reinke hefði samnings-
umboð.
„Þýzka aðferðin“
Á fundinum 7. okt. kom hins
vegar í Ijós, að grunur okkar
reyndist réttur. Reinke þessi var
aðeins kominn til að taka við sam-
þykki okkar á því, sem hann var
fyrir okkar hönd buinn að ganga frá
við hið þýzka félag, án þess þó að
okkur væri ljóst' hvaðan honum
kom umboð til slíks. Hér yrði engu
um þokað. Búið væri að ákveða á
hvaða kjörum gengið yrði frá
þessu máli og væri hlutverk Fram
ekki annað en að láta formlegt
samþykki í té. Taka má fram, að
samningsuppköst lágu engin
frammi á fundinum. Eftir að þetta
lá fyrir, var manninum tilkynnt
að ástæðulaust væri að ræða mál-
ið frekar á þessum grundvelli. Áð-
ur en menn skildu tókst þó Reinke
að koma á framfæri hinum marg-
víslegustu hótunum, ef ekki yrði
gengið að kostum hans. Tilkynnti
hann, að afgreiða þyrfti málið
þegar daginn eftir, þar sem sá for-
ráðamanna Fortuna Dússeldorf,
sem annaðist samningagerð, væri
að fara í frí! Möguleikar Péturs á
að komast í atvinnumennsku væru
úr sögunni ef ekki yrði gengið að
kostunum strax um kvöldið. Þá
reyndi hann að halda því fram, að
kröfur okkar fyrir Pétur væru
svipaðar eins og ef Paul Breitner
og Karl Heinz Rumenigge ættu í
hlut. Öðru hvoru seildist hann svo
í veski sitt svona til að minna á, að
unnt væri að snara fénu fram á
borðið. Þeir forráðamenn Fram,
sem fund þennan sátu hafa aldrei
á samanlögðum 120 ára ferli sín-
um kynnst öðru eins háttarlagi
hjá fullorðnum manni. Hins vegar
er ekki unnt að halda því fram að
maðurinn væri leiðinlegur slíkir
voru leikrænir tilburðir hans.
Fundinum lauk með því, að Reinke
þreif farseðilinn til Þýzkalands af
Pétri Ormslev og tilkynnti honum
að hann væri ekki lengur undir
agavaldi sínu!!
Willy fer — Pétur
verður eftir
Willy Reinke hélt nú til Þýzka-
lands svo sem hann hafði ætlað.
Varð Pétur Ormslev eftir hér á
landi. Af viðræðum okkar við Pét-
ur og athugunum að öðru leyti,
varð ljóst, að ráðlegt væri að
endurskoða a.m.k. nokkur atriði i
samningi hans við félagið. Var
honum bent á það. Málið var nú í
biðstöðu nokkra daga og gerðist
ekki annað en, að Pétur lýsti þvi
nokkrum sinnum í blöðum, að
hann vildi samþykkja það, sem
honum hefði verið boðið og Fram
myndi áreiðanlega líka samþykkja
pakkann. Er auðvitað ljóst, að hér
naut aðferð Willys Reinkes sín til
fullnustu. Hann þurfti bara að
bíða stuttan tíma til að æra Pétur
óstöðugan í málinu. Þegar óþreyja
hans næði vissu marki myndi and-
staða Fram bresta. Reinke veit
það sem sagt vel, að forráðamenn
íslenzku félaganna vilja ekki
standa í • vegi fyrir áformum
leikmanns, sem á þess kost að
komast í atvinnuknattspyrnu og
æskir þess sjálfur. Hver lesandi
fyrir sig getur hins vegar metið,
hversu geðslegar þessar aðferðir
eru.
Reynt að tala beint
við „viðsemjendurna"
Það kom á daginn að Reinke
vissi hvað hann söng. Engin þörf
var á að ræða neina samninga við
Fram. Pétur hélt utan mánudag-
inn 19. okt., án þess að láta nokk-
urn af forráðamönnum Fram vita.
Við gerðum tilraun til að ná fram
beinum samningaviðræðum við
forstjóra Fortuna Dússeldorf í
símtali 20. okt. Þeir herramenn
töldu sig hins vegar ekki hafa
neitt við Fram að ræða í málinu.
Við náðum að vísu sambandi við
meintan framkvæmdastjóra fé-
lagsins en hann tilkynnti eftir ör-
stutt samtal, að Willy Reinke
myndi hringja í okkur eftir stutta
stund. og Reinke hringdi. Fengum
við nú enn að heyra, að annað
hvort myndum við ganga umyrða-
laust að öllum kostum hans
óbreyttum eða hann færi með það
í þýzk blöð og íslenzk, að við vær-
um ruddar og svaðilmenni, sem
vildum ekki að Pétur kæmist í at-
vinnumennsku. Hótaði hann einn-
ig að skilja Pétur eftir vegalausan
(án farmiða heim) í Þýzkalandi og
yrðum við að kosta heimför hans.
Þar sem að við töldum ekki nú
fremur en fyrr unnt að ræða málið
á grundvelli hótana frá umboðs-
manninum slitum við samtalinu.
Taka varð ákvörðun
Og þar kom miðvikudaginn 21.
okt. að við stóðum frammi fyrir
því að taka ákvörðun um að sam-
þykkja upphaflega afarkosti Will-
ys Reinke eða ekkert. Auðvitað
voru allir stjórnarmenn deildar-
innar sammála um, að heiðurs
okkar vegna gætum við illa sam-
þykkt kjör um félagaskipti, sem
þýzkt ruddamenni hefði ákveðið
okkur, án þess að við hefðum
nokkurn tíma komið að einu orði í
málinu. Á hinn bóginn var svo
Pétur Ormslev og óskir hans um
að verða atvinnuknattspyrnumað-
ur. Við höfðum aldrei ætlað okkur
að komast í þessa aðstöðu, að
þurfa að velja á milli þess annars
vegar að láta koma fram við okkur
með öðrum eins dónaskap og raun
ber vitni og hins vegar að standa í
vegi Péturs. Meiri hluti stjórnar-
innar kaus að éta stoltið ofan í sig,
og láta hag Péturs sitja í fyrir-
rúmi. Má vera að þar hafi rangt
skref verið stigið, því að það er
eins víst að nú telji Willy Reinke
eða aðrir pótintátar sig í framtíð-
inni geta komið fram eins og
þeirra sé mátturinn um afstöðu ís-
lenzkra knattspyrnufélaga til fé-
lagaskipta leikmanna til útlanda.
Þó er hugsanlegt að endir verði nú
bráðlega á starfsemi hans á þessu
sviði, sem áreiðanlega fer í bága
við 10. gr. 1. tl. í reglum FIFA, en
þar er kveðið á um, að notkun um-
boðsmanna eða milliliða við fé-
lagaskipti leikmanna sé strang-
lega bönnuð. Verður varla annað
séð en Fortuna Dússeldorf hafi
freklega brotið gegn þessu ákvæði
með því að nota Willy Reinke í
þessu máli á þann hátt, sem raun
ber vitni.
Stjórn KnatLspyrnudeildar Fram.
• l’mboðsmaðurinn umdeildi VVilly Reinke.
Akranes — H.P.-húsgögn Reykjavík
Stórglæsilegar
húsgagnasýningar
á morgun sunnudag
í íþróttahúsinu Akranesi og H.P.-húsgögnum, Ármúla 44
OPIÐFRÁ 1-6
Einstaklega athyglisverð og eiguleg húsgögn