Morgunblaðið - 27.11.1981, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1981
43
um gjaldeyri og er ferðamanna-
iðnaðurinn í fjórða sæti í öflun
gjaldeyris, á eftir sjávarútvegi, ál
og álmelmi og iðnaði. Gjaldeyris-
tekjur af erlendum ferðamönnum
námu 5,2% af heildargjaldeyris-
öflun landsmanna. Auk þessa hef-
ur ríkissjóður verulegar tekjur af
ferðamannaþjónustunni. Flugvall-
argjald, sérleyfisgjöld, gjöld á
ferðalög íslendinga til útlanda og
tekjur af Fríhöfninni námu á síð-
asta ári tæplega 49 milljörðum
gkróna. Það er ljóst, að ferða-
mannaþjónustan er mikilvægur
þáttur í efnahagskeðju okkar, auk
þess að benda má á, að um 6%
landsmanna starfa í ferðamanna-
þjónustunni. Fyrstu níu mánuði
þessa árs tók ríkið liðlega 3 millj-
arða gkróna í formi ferðamanna-
skatts af íslenzkum ferðamönnum.
Raunar mætti telja fleiri atriði til
um mikilvægi ferðamannaþjón-
ustunnar en í ljósi þessa, verður
afskiptaleysi og þá ekki síður af-
skipti stjórnvalda af ferðamanna-
þjónustunni að teljast furðuleg,
virðist engu líkara en stjórnvöld
líti þessa grein atvinnulífsins
hornauga.
Auk ráðstefnuhalds skipaði
sölusýning veglegan sess á nor-
ræna ferðamarkaðinum. I Hels-
ingfors voru mættir fulltrúar
ferðamannaþjónustunnar. Frá
ferðamálaráði voru Ludvig
Hjálmtýsson, ferðamálastjóri,
Birgir Þorgilsson, markaðsstjóri,
og Ragnar Samúelsson, skrifstofu-
stjóri, og hvíldi undirbúningur
ráðstefnunnar hér á landi á þeirra
herðum. Þá voru fulltrúar frá
Flugleiðum og Arnarflugi, Utsýn,
Úrval, Samvinnuferðum-Landsýn,
Ferðaskrifstofu ríkisins, Ferða-
skrifstofu stúdenta, Úlfari Jacob-
sen, Guðmundi Jónassyni og Hótel
Loftleiðum.
ísland utanveltu
Það fór ekki hjá því, að Island
væri nokkuð utanveltu og virðist,
sem aðilar á Norðurlöndum líti á,
að auka beri ferðamannastraum
innan „hinna fjögurra stóru“. Að
vísu verður íslands getið að jöfnu
í ferðamannabæklingum og her-
ferð Norrænu ferðamálaráðanna.
En einkaaðilar á Norðurlöndum,
flugfélög, járnbrautarfélög, hótel
og aðrar greinar ferðamannaþjón-
ustunnar, lita fyrst og fremst á
aukningu innan Skandinavíu.
í sjálfu sér er ekkert við þetta
að athuga; það er eðlilegt að
einkaðilar vilja leggja fé, þar sem
von er að það ávaxti sig. Til að
mynda kynntu hótelhringir í Nor-
egi, Svíþjóð og Finnlandi sérstaka
afslætti og munu dönsk hótel bæt-
ast í hópinn. Afsláttur mun nema
allt að 50%, en það kom fram, að
þessir aðilar höfðu ekki einu sinni
haft samband við íslenzka hótel-
hringi, svo sem Eddu-hótelin hér á
landi, sem mynda keðju um land-
ið. Hins vegar kom fram, að ís-
lenzkir ferðamenn munu njóta
sömu kjara og norrænir ferða-
menn.
Danski blaðamaðurinn Lennart
Weger kallaði ráðstefnuna í
Finnlandi „luksusflop" í blaði
sínu, Aktuelt. Hann sagði, að svo
virtist sem hin einstöku Norður-
lönd ætluðu sér að „stela“ ferða-
mönnum hvert frá öðru. Danir
vilji lokka sænska ferðamenn til
Danmerkur, á meðan sænska
ferðamálaráðið kjósi helst, að
sænskir ferðamenn ferðist innan
Svíþjóðar, og svo framvegis. Sam-
starf á sviði ferðamála eigi erfitt
uppdráttar, einmitt vegna mis-
munandi hagsmuna einstakra
Norðurlanda.
Að vísu njóta Danir legu sinnar;
Danmörk er nokkurs konar hlið
Norðurlanda að Evrópu og árlega
fer mikill fjöldi Norðmanna, Svía
og Finna í gegn um Danmörk á
leið sinni til Evrópu. Því gætu
Danir hugsanlega misst spón úr
aski sínum, ef Norðurlandabúar
fara í auknum mæli að ferðast
innan Skandinavíu.
Hvað sem því líður, þá er ljóst,
að á Norðurlöndum er mikill
markaður og með skipulögðu
átaki, ætti að vera hægt að stór-
auka ferðamannastraum þaðan.
En það sem fælir norræna ferða-
menn frá Islandi er fjarlægðin;
hve dýrt það er að koma hingað til
lands. Verðlag almennt er svipað á
íslandi og Norðurlöndum, en fjar-
lægðin hefur fælt frá. Með mark-
vissu starfi, ódýrari fargjöldum
má stórauka ferðamannastraum
frá Norðurlöndum.
stofa og þar er feikimikið starf
unnið.
Ráðherranefnd Norðurlanda-
ráðs veitir árlega stórar upphæðir
á okkar mælikvarða til verkefna á
sviði ferðamála, verkefna, sem
koma öllum þjóðunum að gagni.
Norræna ferðamálaráðið veitir
síðan fé til hinna ýmsu verkefna.
Svo ég nefni dæmi um fjárveit-
ingar, þá verður á næsta ári veitt
fé til norrænna markaðskannana,
fé er veitt til norræna ferðamála-
ársins, einnig hefur fé verið veitt
til námskeiðahalds fyrir þá sem
starfa að ferðamálum, gefin hefur
verið út kennslubók um ferðamál
og áfram mætti telja.
Eins og ég sagði, þá eru veittar
stórar upphæðir á okkar mæli-
kvarða til ferðamála, fyrir árið í
ár voru veittar um tvær milljónir
íslenzkar krónur og það slagar
hátt í heildarútgjöld íslenzka
ríkisins til ferðamála. Það er því
ekki minnsti vafi á, að ísland nýt-
ur góðs af norrænni samvinnu á
sviði ferðamála, sem raunar á öðr-
um sviðum norrænnar samvinnu."
— Nú hefur íslands að litlu ver-
ið getið í umræðum hér í Helsinki
og svo virðist, sem Island sé nokk-
uð utanveltu. Svo ég nefni dæmi,
þá kynntu hótelhringir í Finn-
landi, Noregi og Svíþjóð samstarf
sín á milli þar sem þeir boðuðu
sérstakan afslátt. Boðað var að
hótel í Danmörku myndu taka
þátt í þessu samstarfi en íslands
var að engu getið, ekki einu sinni
hafði verið haft samband við ís-
lenzk hótel um samvinnu og sam-
starf.
„Það er auðvitað alveg ljóst, að
átak eins og norræna ferðamála-
árið og samstarf ferðamálaráð-
anna norrænu, getur aldrei orðið
meir en stefnumarkandi. Jú, við
munum vinna að kynningu ferða
innan Norðurlanda og munum
hvetja Norðurlandabúa til að ferð-
ast innan Norðurlanda en þegar
kemur til fyrirtækja, þá er eðlilegt
að þau leggi fé í verkefni, sem arð-
vænleg teljast. Og ég er ekki
hræddur um, að Island verði utan-
veltu.
Við verðum auðvitað að gera
okkur grein fyrir fjarlægð okkar
frá öðrum Norðurlöndum. Hve
dýrt það er að ferðast hingað, en
almennt held ég að almenningi á
Norðurlöndum sé ekki fulljóst á
hvaða kjörum hingað er hægt að
koma og þá á ég við sérfargjöld
flugfélaganna. Mín reynsla er, að
ekki skorti áhuga annarra Norð-
urlandabúa á að ferðast til Is-
lands. Því hlýtur, með ódýrum
ferðum til Islands, að vera tiltölu-
lega auðvelt að fá Norðurlandabúa
til að ferðast í auknum mæli til
íslands. Markaðurinn er stór, vilji
Norðurlandabúa er fyrir hendi og
það er ekki mikið dýrara að ferð-
ast innan íslands en annarra
Norðurlanda.
Þessi markaður bíður okkar og
hann verðum við að nýta, en því
má ekki gleyma, að ferðamenn frá
Norðurlöndum voru á síðasta ári
fjölmennastir. Næstum 3 af hverj-
um 10 ferðamönnum, sem til
landsins komu, voru Norðurlanda-
búar, við getum gert enn betur.
En auðvitað ráðum við ekki, og
viljum ekki ráða, stefnu einkaað-
ila innan ferðamannaþjónustunn-
ar. Þeir leggja fé í verkefni, sem
þeir telja arðvænleg. Við skikkum
ekki einn eða neinn til samstarfs
við íslenzk hótel, né heldur skikk-
um við aðila hér á landi til sam-
starfs við aðila á Norðurlöndum.
Við mörkum stefnu og vonumst til
þess, að aðilar sjái sér hag af að
fylgja henni. Annars væri hún
bara dauður bókstafur. A þessu,
sem svo mörgum öðrum duga eng-
in valdboð.
rfíl13mAmi
Sr. Þorbergur Kristjánsson, formaður I’restafélags afhendir hr. Sigurbirni Kinarssyni fyrsta eintakið af afmæl-
isritinu.
Fyrir augliti guðs
Greinasafn dr. Sigurbjöms Einarssonar komið út
CORAM DEO — greinasafn eftir
hr. Sigurbjörn Kinarsson biskup
gefið út í tilefni af sjötugsafmæli
hans 30. júní sl.
Bókaútgáfan Örn og Örlygur
hf. hefur gefið út bókina Coram
Deo — Fyrir augliti guðs — en
bók þessi hefur að geyma greina-
safn eftir dr. theol. Sigurbjörn
Einarsson biskup og er bókin
gefin út í tilefni sjötugsafmælis
hans er var 30. júní sl. Var það
Prestafélag íslands sem átti
frumkvæðið að útgáfu bókarinn-
ar og er formáli hennar ritaður í
nafni stjórnar félagsins. Þar
segir m.a.:
„Biskup íslands, herra Sigur-
björn Einarsson varð sjötugur
hinn 30. júní sl. Hann hefur um
fjölda ára verið mikill áhrifa-
maður með þjóðinni, virtur mjög
og metinn sem kirkjuhöfðingi og
þekktur að einstakri snilldar-
meðferð máls og efnis í ræðu
sem riti.
Að fenginni samþykkt aðal-
fundar Prestafélags íslands árið
1979, ákvað stjórn félagsins, að
minnast fyrrgreindra tímamóta
í lífi biskups með því að gefa út
ritverk honum til heiðurs. í bók
þessari eru valdar greinar og
ræður herra Sigurbjörns Ein-
arssonar, þar sem m.a. er fjallað
um frumþætti guðfræðinnar,
innihald kristinnar trúar og trú-
vörn.“
Bókin Coram Deo er 292 blað-
síður og hefur mjög verið til
hennar vandað. Auk greina eftir
herra Sigurbjörn Einarsson eru
tvær ritgerðir í bókinni, Jón
Sveinbjörnsson prófessor skrifar
um guðfræðinginn og predikar-
ann Sigurbjörn Einarsson og dr.
Páll Skúlason, prófessor um trú-
vörn hans. Greinar herra Sigur-
björns skiptast í fjóra aðalkafla
er bera yfirskriftina: Efnið frá
upphafi; Þekking og trú; Fögn-
um fyrir Drottni og Sýnir. Þá er
í bókinni ýtarleg skrá yfir rit-
verk herra Sigurbjörns, og
frömst í bókinni er Tabula grat-
ulatoria. Bókin verður ekki til
sölu í bókaverslunum, en unnt er
að fá hana hjá Bókaforlaginu
Erni og Örlygi hf., Síðumúla 11,
en upplagið sem er til er mjög
takmarkað.
(Fréttatilkynning.)
Spellvirki
Ný skáldsaga Jóns Dan
ÚT ER komin hjá Almenna bókafé-
laginu ný skáldsaga eftir Jón Dan.
Nefnist hún Spellvirki og segir frá
unglingi sem lendir í vandræðum.
I kynningu AB á bókinni segir
m.a.: „Ný skáldsaga eftir Jón Dan,
raunsönn, spennandi, um eitt af
brýnustu vandamálum samtím-
ans.
Unglingur við erfiðar aðstæður
og misrétti beittur, lendir í hræði-
legum vanda þégar hann missir
stjórn á sjálfum sér á örlagastund
— og fremur spellvirki.
Hvað er til ráða?
Er nóg að læra af mistökunum?
Svarið er neitandi. Sá sem þegar
er stimplaður í augum fjölmiðl-
anna og fólksins á erfiðara en aðr-
ir með að sanna sakleysi sitt ef
eitthvað illt hendir, jafnvel þótt
hann hafi hvergi nærri komið.
Og þó er ef til vill erfiðast að
losna við sitt innra víti — hræðsl-
una við það að vera það sem aðrir
halda að maður sé.
Þetta er vandi Ragnars Torfa-
sonar, aðalpersónu bókarinnar.
Er einhver lausn á honum?“
Spellvirki er gefin út í pappírs-
Jón Dan
kilju, 157 bls. að stærð. Bókin er
unnin í Prentsmiðju Árna Valde-
marssonar og Bókbandsstofunni
Örkinni.
Ljódakorn
29 lög eftir Atla Heimi
ÚT KRU komin í nótnabók 29 lög
eftir Atla Heimi Sveinsson. Nefnist
bókin Ljóðakorn og er að öllu leyti
unnin af tónskáldinu sjálfu —
nótna- og textaritun, káputeikning
o.s.frv. — allt nema filmutaka,
prentun og bókband, sem Prent-
smiðjan Oddi hefur annast.
Öll eru þessi 29 lög samin við ís-
lenska texta eftir kunna og
ókunna höfunda. Bókin skiptist í
fjóra kafla sem nefnast: 1) Barna-
gælur, 2) Nútímaljóð, 3) Gaman-
söngvar, 4) Aukalög.
Tónskáldið hefur skrifað fyrir
neðan sitt handskrifaða efnisyfir-
lit á bls. 3 á þessa leið:
„Öll ljóðin, nema aukalögin, eru
tekin úr Litlu skólaljóðunum,
(Ríkisútgáfa námsbóka, Reykja-
vík), sem Jóhannes skáld úr Kötl-
um tók saman.
Heimilt er að flytja lögin, eitt
eða fleiri, í hvaða röð sem er, og
tónflytja þau eftir þörfum."
(k
Ljóðakorn er 61 bls. að stærð í
þægilegu nótnabroti (34x25 sm).
Útgefandi er Almenna bókafélag-
ið.