Morgunblaðið - 27.11.1981, Síða 27

Morgunblaðið - 27.11.1981, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1981 59 Sjötugur: Jón Sveinsson rafvirkjameistari Um það bil 50 ár eru liðin frá því ég kynntist Jóni Sveinssyni fyrst. Hann var þá rafvirkja- sveinn og í stjórn síns stéttarfé- lags og bjó sig nú undir að ljúka meistaraprófi. Mér hlotnaðist sú ánægja að leiðbeina honum smá- vegis í teikningu og stærðfræði við það tækifæri. Svo langt er nú um- íiðið síðan þetta var, að ég man ekki einstök atvik í sambandi við þennan fyrsta fund okkar Jóns, en mér er sérstaklega minnisstætt að mér leist mjög giftusamlega á þennan unga mann. Þegar Jón hafði staðist meist- araprófið með prýði gekk hann í rafvirkjameistarafélagið og var fljótlega kominn í stjórn þess og formaður þess var hann um ára- bil. A þessum árum stofnaði Jón, ásamt vini sínum, Ingólfi Bjarna- syni, raftækjaverslunina Ljósa- foss, sem á skammri stundu varð ein vinsælasta lampa- og ljós- tækjaverslun borgarinnar, sakir óvenju vöruvals við hagstæðu verði. Jón lagði stund á íþróttir í æsku. Hann var félagi í KR og fór snemma að veiða á stöng, fyrst silung og síðan lax. I því sambandi færðist nýtt líf í samband okkar Jóns Sveinssonar. Við vorum sam- an í hópi veiðimanna við Laxá í Þingeyjarsýslu um langt árabil og einnig vorum við saman í rekstr- arráði Stangaveiðifél. Reykjavík- ur í nokkur ár. I veiðimannahópn- um fyrir norðan voru aðeins úr- valsmenn og stóð Jón þar framar- lega í flokki. Þær voru oft skemmtilegar vísurnar, sem þeir Jón og Steingrímur heitinn í Nesi Sjötugur: Finnska tónskáldið Erik Bergmann Ekki ætla ég að telja upp öll þau virðingarsæti sem Erik Bergman hefur hlotið innan finnskra tón- listarstofnana. Prófessor við Sib- elíusar akademiuna, kjörinn í Konunglegu sænsku tónlistaraka- demíuna, meðlimur Finnska tón- listarráðsins, eru aðeins hluti þeirra mörgu ábyrgðarstarfa sem Bergman hafa verið falin. Heið- ursmeðlimur fjölmargra finnskra tónlistarstofnana er Bergman og þ.á m. Finnska tónskáldafélags- ins. Erik Bergman er þó fyrst og fremst þekktur sem afkastamikið tónskáld og einn aðal frumkvöðull nútíma tónsköpunar í Finnlandi. Bergman er einnig þekktur sem framúrskarandi kórstjóri og hefur um árabil stjórnað sumum þekkt- ustu kórum Finnlands, svo sem Akademiská Sangföreningen og Muntra Musikanter, sem komið hefur nokkuð við sögu hér uppi á Islandi. Erik Bergman er mikill áhugamaður þjóðlegrar tónlistar og takmarkast sá áhugi ekki við landamæri Finnlands. Eins og 0. Messiaen og fleiri, hafa austur- lensk áhrif í ljóðum og tónum heillað Bergman og gætir þeirra áhrifa í verkum hans. Tónsköpun Bergmans skiptist aðallega í tónverk fyrir hljóðfæri eingöngu og kórverk með eða án hljóðfæra. Ópustal kórverka hans er orðið æði hátt og eru mörg þeirra engin smásmíði. Mjög sterkur persónulegur stíll ein- kennir kórtónasmíðar Bergmans, sem að mörgu leyti hafa verið stefnumarkandi fyrir finnska kórtónlist síðari áratuga. Erik Bergman er ógleymanlegur persónuleiki þeim sem kynnast honum. Eldlegur áhugi hans á því sem hann tekur sér fyrir hendur lætur engan ósnortinn og gildir þá einu hvort um er að ræða analýsur á eigin tónverkum eða æfingu með kórum sínum. Konur hafa heldur ekki ósnortar orðið af eldlegu og glettnu tilliti hans. Félögum Karlakórsins Fóstbræðra verður Erik Bergman vafalaust ógleym- anlegur og undirritaður þakkar vináttu gegnum árin. Hamingjuóskir eru sendar þér Gamli Jarpur og konu þinni, Sól- vegur Schultz. Vænst er af þér að „Faglar" haldi áfram að fljúga. „Svanbild" haldi áfram að breiða út vængi sína og „Barnets dröm“ eigi langa framtíð. Ragnar Björnsson SAGAN um Þráin heitir ný bók sem bókaútgáfan Örn og Örlygur gefur út. Sagan um Þráin er eftir Hafliða Vilhelmsson og er þetta þriðja skáldsaga hans. „Leið 12 — Hlemm- ur Fell“ kom út árið 1977 og ári síðar „Helgalok“. Sagan um Þráin er nútímasaga — átakasaga. Á bókarkápu segir m.a.: „Þráinn er barn síns tíma, mótaður af umhverfinu og föstum venjum, bæði í einkalífi sínu og í atvinnu. Bak við skelina býr per- sóna búin mörgum eðlisþáttum sem togast á og eiga í innbyrðis styrjöld. Hvað gerist þegar viðj- arnar bresta? Fellur lífið í þann farveg sem ætlað er — eða fer persónan í enn smærri einingar en áður.“ sendu hvor öðrum. Þetta voru dá- samlegar samverustundir. Jón fékk snemma áhuga á lax- eldismálum og lét ekki sitja við orðin tóm. Flestir þekkja Lárós, laxaræktarstöðina, sem nú má telja eina af fullkomnustu og tryggustu laxeldisfyrirtækjum landsins. Þar hefur Jón Sveinsson reist sér óbrotlegan minnisvarða. Vitanlega var öll sú uppbygging ekki á færi eins manns, en mann- virkin þar sem eru ekki nein smá- virki eru að mestu verk Jóns Sveinssonar og sona hans. Þeir eru sex talsins, allir lærðir raf- virkjar nema einn, sem er enn í skóla. Eru þeir allir hörkuduglegir eins og faðir þeirra. Þeir eru ekki margir frídagarnir sem þeir hafa ekki farið vestur í Lárós og unnið myrkranna á milli, þeir feðgar, á undanförnum tuttugu árum. Félagshyggja Jóns á þessu sviði Ieynir sér ekki, enda er hann for- maður í Félagi áhugamanna um laxarækt svo og í stjórn Félags fiskræktar- og hafbeitarstöðva. Jón er tvíkvæntur. Fyrri konu sína, Bjarneyju Einarsdóttur, missti hann árið 1950. Seinni kona hans er Jórunn Rósmundsdóttir. Jón Sveinsson á tíu börn á lífi, sex syni og fjórar dætur. Barna- börn hans eru orðin tuttugu og tvö og barnabarnabarn á hann eitt. Við Anna kona mín sendum Jóni og fjölskyldu hans beztu árn- aðaróskir og ég vil nota þetta tækifæri til þess að þakka Jóni vini mínum sérstaklega góða við- kynningu frá upphafi okkar kynna. Jón Sveinsson tekur á móti gest- um í dag, í húsakynnum Stanga- veiðifélags Reykjavíkur, að Háa- leitisbraut 68 (Austurveri) milli kl. 16:30 og 19:00. Gunnar Bjarnason, fyrrver andi skólastjóri Vélskóla fs- lands og fv. form. Stanga- veiðifélags Reykjavíkur. Hátíndur alpagleðínnar Austurrískt kráarknall Enska kráarknallið á dögunum sló heldur betur í gegn og er mál manna að betri skemmtun haíi ekki verið haldin á Hótel Sögu í annan tíma. En við látum ekki þar við sitja. og setjum markið hœrra en áður. því nú er það austurrískt alpa- kvöld eins og það best gerist. með tilheyrandi íjailabar, langborðum. „vínarveitingum" og alpastemmningu sem aldrei bregst. -Sannkallað draumakvöld í skammdegisdrunganum. Sjóðheit móttaka Tekið verður á móti gestum með ekta alpadrykk sem áreiðanlega tekur úr mönnum mesta hroll- inn svo ekki sé meira sagt Fjallabar Uppi í bláa salnum blasir svo við austurrískur skíðabar þar sem „réttar" veitingar eru á boð- stólum og auðvitað höíum við píanóleikara og forsöngvara sem hríía okkur með í söng og leik. Vínarsnitsel Á boðstólum verður austurrískur veislumatur -netnilega hið heimsirœga vínarsnitsel með við- eigandi meðlœti í mat og drykk. Og auðvitað njótum við krœsinganna við langborð þannig að ekkert vanti á til að skapa andrúmslott þar sem söngur. glens og grín skipar öndvegi Blóm í barminn Blómaverslunin Stefánsblóm við Barónsstíg sér um að allar konur tái blóm i barminn þegar þœr ganga í salinn Tiskusýning Módelsamtökin koma í heimsókn og sýna okkur nýjustu tisku í skiðafatnaði trá versluninni Útilif Bingó - 3 skíðaferðir Bingó er ómissandi á góðu kvöldi sem þessu Spilað verður um 3 irábœrar skíðaferðir í sjália skíðaparadísina Austurríki Skíðaspjall Fýrir þá f jölmörgu sem heillast haia af tign austur- risku alpanna og vilja frceðast um alla þá nýju ferðamöguleika sem beina leiguflugið hefur opnað, verður örstutt ferðakynning Að auki verða sýndar kvikmyndir frá skiðastöðunum Söl- den. Zillertal og Niederau i hliðarsal Frábærir skemmtikraftar: Við láum fjöldann allan aí landsfrœgum skemmtikröftum í heimsókn Við megum engu ljóstra upp um hverjir það eru en fullyrðum að engfínn verður svikinn aí þeirra framlagi. Hljómsveit Ragnars Bjarnasonar leikur fyrir dansi til kl 01 og mun að auki stjórna alls kyns skemmtilegum uppakomum, leikjum, hópdönsum og fleiru Við stjórnvölinn verða lararstjórarnir Magnús Axelsson og Sig- urður Haraldsson. bráðíjörugir að vanda og tryggir sínum aðdaendum Askorun: Hér með skorum við á alla sem (skiða)vettlingi geta valdið að mœta á sunnudagskvöldið. hitta tjörugl tólk og upplifa austumsku alpastemm- ninguna i hárrettu umhverfi Allir eru velkomnir og engum er ofaukið svo framarlega sem söng- gleðin. goða skapið og húmorinn verði ekki eftir heima Við stetnum á hátind alpagleðinnar tjörug og lrialslega klaedd rett eins og hentar í hlylegu austurnsku tiallahoteli Cl belffe I ollrsso tfitw ígóba sKap\nú'- Sætapantanir e.kl. 16.00 i sima 20221 Dansad til kl. 01 - húsið opnað kl. 19.00 - boröhald kl. 20.00. Verð aðeins kr. 125.- Samvinnuferdir - Landsýn AUSTURSTR/ETI 12 - SÍMAR 27077 & 28899 f

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.