Morgunblaðið - 27.11.1981, Side 28
60
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1981
ntmmn
"Verbix SQnngjam! Honn bah pig
tvisvar ab taka hann olan."
«-o
... auyna-bón, sem þú get-
ur ekki neitad.
TM Ftec U.S Pat Otf.-all rights resarved
e 1981 Los Anjetes Times Syndlcate
Reyndar og í trúnadi sagt: Ég
trúi ekki á Guð!
HÖGISTI HREKKVÍSI
600/ j'f /.of nsÆ’/Æ’
MA/&./??Á) Suz/Ayc/O ö á (VA7
„LÍFSFJÖTRAR“
GÓÐUR ÞÁTTUR
Pálína Kjartansdóttir hringdi og
hafði eftirfarandi að segja: — Ég
hlustaði á þátt í útvarpinu á mánu-
dagskvöld, „Lífsfjötrar" hét hann, og
fjallaði um stöðu fjölfatlaðra í þjóð-
félaginu. Þetta var mjög góður þátt-
ur og svo athyglisverður að mér
finnst full ástæða til að hann verði
endurfluttur, ekki síst vegna þess
hve seint hann var á ferð, eða klukk-
an rúmlega hálfellefu. Ef af endur-
flutningi yrði, sem ég vona að verði,
ætti að mínum dómi betur við að
vera fyrr á ferðinni með þáttinn.
Frá sumardvalarheimili fyrir fötluð börn í Reykjadal, f.v.: Sigurjón,
l’órhallur og Björn.
Ætti að leyfa Jóhönnu að
taka að sér saltfisksölu
Einar Freyr skrifar í Gautaborg
16. nóv.:
„Kæri Velvakandi.
Élg sé það í Morgunblaðinu að frú
Jóhanna Tryggvadóttir Bjarnason
hefur lent í blásveðri blaðaskrifa
vegna saltfisksölumála. Áhugi frú-
arinnar er lofsverður og áreiðan-
lega þess virði að nefnd alþing-
ismanna úr öllum flokkum verði
látin rannsaka þetta mál niður í
kjölinn.
Eitthvert alvarlegasta vandamál
hverrar þjóðar er einmitt útflutn-
ingsverzlunin. Auðvitað er það ekki
nægilegt að fá sem hæst verð fyrir
fiskinn, ef slíkt kostar að vöruinn-
flutningurinn verður þeim mun
dýrari. En hækkað verð fyrir út-
fluttan fisk án hækkunar á inn-
fluttum vörum eru gæðakostir.
Gagnrök Friðriks Pálssonar
12.11. sl. eru ekki nægilega á
hreinu. Þess vegna verða greinar
frú Jóhönnu ennþá áhugaverðari.
Mér finnst að frúin ætti að fá tæki-
færi til að sýna hæfileika sína á
þessum sviðum og ætti að leyfa
henni að taka að sér sölu á saltfiski
til útlanda eitthvert tímabil til
reynslu. Konur eru engu síðri sölu-
menn en karlar.
Heilbrigð tortryggni á SÍF er
einnig nauðsynleg, og ef SÍF hefur
hreint mjöl í pokanum ætti ná-
kvæm rannsókn ekki að skaða þessi
samtök.
Með beztu kveðjum."
(Enn um saltfískinrí
1 Eftir Fridrik
i Pálsson
hreinn uppspuni. Hvernig á að
tala við fólk af þessu Ugi7
Þessi síðasta grein Jóhönnu,
sem birtist í Morgunblaðinu 10.
nóvember sl.,
undirstrika. ítrekað tal
þennan undirboðssamning, seml
virðist vera henni trúaratriði, 1
hefur gert það að verkum aðj
bi'm naoj- hvpn ' '
Bragðgóð dúsa það
Ilúsmóðir skrifar:
„Ég ætla að vona að hann Eyjólfur
hressist, þegar hann sér greinargerð
mína og fær skýringu á þessari
áráttu minni að tala helst um heims-
kommúnismann. Maður stendur líka
svo vel að vígi í þessu tilliti, því að
stefnu þessari verður best lýst með
orðum mannsins sem sagði: „Komm-
únisminn er svona útbreiddur á
Vesturlöndum vegna þess að þar er
ekki fæddur sá maður, sem getur
látið sig dreyma um, hversu hræði-
legur hann er í framkvæmd.“ Ég
held samt sem áður, að hver maður
ætti að geta gert sér grein fyrir því,
hvað þarna er á ferðinni, og þurfi
þess vegna ekki að láta áróðurs-
meistarana biekkja sig.
Tollir ekki á
handarbakimínu
Eyjólfur sagði líka, að hann ætlaði
ekki að afsaka gerðir Kremlherr-
anna. Það er heldur ekki heiglum
hent. Ég var svo heppin að ég gjör-
þekkti stokkfreðinn stalínista og
vissi hvernig hann brást við, þegar
ég var að segja honum sögur af af-
reksverkum þeirra Leníns og Stal-
íns. Það var eins og að skvetta vatns-
dropa á gæsahóp. Það sem sá góði
maður frá skaparans hendi hefði
ekki gertfyrir marxismann, það toll-
ir ekki á handarbaki mínu. Er það
svo furða, þó að maður sé hræddur?
Þeir eru engu betri trúuðu marxist-
arnir heldur en Kómeini, en mörg
eru kamelljónsins klæði. Ég er svo
matgírug að ég vil að stjórnvöld geti
vel brauðfætt fólkið. Ef þau geta það
ekki, þá eiga þau að breyta um efna-
hagsstefnu eða fara frá og lofa öðr-
um að bæta um.
Virðast ekki vera
„stéttvísir menn“
Nú er best að snúa sér að andleg-
um málum Rússa, og þar finnst mér
að ríki algert hungur, sem er afleið-
ing af banni kerfisins á frjálsri
hugsun og skoðanamyndun. Stalín
lét taka Maxim Gorki af lífi. Og hvað
var gert við hin Nóbelsskáldin?
Bannað var að sýna leikrit Solzhen-
itsyns, og Pasternak fór eins og
hann fór. Og allir aðrir eru í fanga-
búðum. Frá þeim sem skrifa eftir
flokksuppskriftinni kemur varla
stafur til annarra landa. Menningar-
frömuðirnir hérna, sem sjá um fjöl-
miðlana, þeir eru ekki að troða þeirri
Jósef Stalín ásamt Krúsjeff árið 1938: „Stundum er ekki hægt að fram
kvæma það góða nema í gegnum það illa.“