Morgunblaðið - 13.12.1981, Page 22
70
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. DESEMBER 1981
Jólaplötur eru hluti
afjólunum . .^§SSl
Fást í hljómplötuverzlunum
um land allt.
Hljómplötudeild
Mývatnssveit:
Aldarminn-
ing skáld-
konunnar
Huldu
Mývatnssveit. 7. desember.
KVENFÉLAG Mývatnssveitar
gekkst fyrir samkomu í Skjólbrekku
sl. laugardagskvöld í tilefni aldar
minningar Huldu skáldkonu, Unnar
Benediktsdóttur Bjarklind. Bauð fé-
lagið allmörgum Mývetningum til
þessa samkvæmis, sem var fjölsótt.
Kynnt voru verk skáldkonunnar
í bundnu og óbundnu máli, þá
söng kór Skútustaðakirkju lög við
ljóð eftir Huldu, undir stjórn Þrá-
ins Þórissonar. Hinn síungi Jón
Sigtryggsson í Syðri-Neslöndum
lék á munnhörpu nokkur lög. Þar
á meðal eitt lag eftir sjálfan sig er
hann ánafnaði félagsheimilinu
Skjólbrekku til eignar. Sannast að
segja kom Jón mörgum á óvart
með ágætum leik sínum, því ekki
var mörgum kunnugt um að hann
væri þessum gáfum gæddur.
Síöast var stiginn dans fram á
nótt. Þessi samkoma tókst vel og
ber að þakka Kvenfélagi Mý-
vatnssveitar fyrir þetta framtak.
Formaður félagsins er Guðrún
Jakobsdóttir í Reykjahlíð.
Kristján
Sælgætisgerð-
in Góa byggir
í Hafnarfirði
SÆLGÆTISGERÐIN Góa á
Reykjavíkurvegi 72 í Hafnarfirði
hefur fengið leyfi til að byggja á lóð
í nýja iðnaðarhverfinu við Kapla-
hraun í Hafnarfirði.
Að sögn Helga Vilhjálmssonar
forstjóra Góu verður byrjað á
byggingarframkvæmdum á lóð-
inni í vor og áætlað að flytja inn í
húsið innan tveggja ára. Það verð-
ur 1500 til 2000 fermetra stórt á
einni hæð en núverandi húsnæði
sælgætisgerðarinnar er 750 fer-
metrar. Ekki vissi Helgi hver
kostnaðurinn við byggingu húss-
ins yrði.
Sagði Helgi að þeir væru að
byggja til þess að fá betri aðstöðu,
meira rými, en nú er ansi þröngt
orðið í því húsi sem sælgætisgerð-
in hefur í dag. Sælgætisgerðin
Góa hóf starfsemi sína í 100 fer-
metra húsnæði í Súðarvogi en
flutti þaðan á Grundaveg í 150 fer-
metra. Þá var flutt á Reykjavík-
urveginn í 200 fermetra húsnæði
og skömmu seinna í viðbyggingu
þess húss og var þá húsnæðið orð-
ið 500 fermetrar. Enn var viðbygg-
ingin stækkuð þar til hún var orð-
in 750 fermetrar eins og hún er í
dag.
/K
BOKAHILLUHATALARI
AR-Bókahilluhátalarinn er tæknilega eins útbúinn og stærri og dýrari hátalarar, þ. e. a. s.: I
Tvískiptur tóndeilir, djúpur bassahátalari, hátíðni hátalari og samlímdur, loftþéttur viðarkassi. |
Bókahilluhátalarinn hefur frábær tóngæði við lítinn tónstyrk og staðsetning hans á skáp |
eða í hillu gerir það að verkum að stólar, borð og önnur húsgögn, spilla ekki hljómburði.
Sönghæfni og raddstyrkur fólks er ekki metinn eftir stærð, og það á einnig við um
Bókahilluhátalarann. ar iss:sow/sohm/9.9ltr/skg/24xm sxi6.7cm
s: 50W/6OHM/ 18 LTR /10 KG./54 4x29 8 18 8CM
s: 75W/8 OHM/ 37 LTR./13 KG./61 x34.35.3x27.5 CM 5
AR 18s:
AR 28s:
AR 38s;
Bókahilluhátalarinn er ekki
stór en skýr og skemmtilegur.
FÁLKINN SUÐURIANDSBRALIT8 SÍMI85884