Morgunblaðið - 13.12.1981, Page 25

Morgunblaðið - 13.12.1981, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. DESEMBER 1981 73 Fremst til hægri má sjá nýju heilsugæslustöðina, á miðri mynd er í smíðum íbúðarhús fyrir aldraöa Sæmundur Runólfsson framkvæmdastjóri Kötlu. Ekki eru verkefni fyrir prjónavélarnar að svo stöddu. Starfsmenn eru 23 til 24 og sagði Sæmundur fyrirtækiö nýlega hafa verið endur- skípulagt. Prjóna og sauma flíkur til útflutnings Litið í prjónastofuna Kötlu Prjónastofan Katia er hlutafélag í Vík í Mýrdal, sem starfar við prjónaskap og saumaskap, trúlega af myndarskap, en Sæmundur Runólfsson, innfæddur Víkurbúi, sér um framkvæmdastjórn. Hann fræddi Morgunbladsmenn um starfsemina og tjáði okkur að Katia væri í eigu margra aðila: hreppsins, sýslunnar, kaupfélagsins auk almennings og væru hluthafar nokkuð margir. Prjónastofan tók til starfa í mars 1971 og er hér prjónað og saumað til útflutnings að mestu í samstarfi við Álafoss, en við höf- um einnig skipt við Samband isl. samvinnufélaga og Hildu hf., segir Sæmundur. Hann er síðan spurður hvernig verkefnaval fari fram: — Við höfum ákveðið samstarf við t.d. Álafoss um að velja flíkur til að sauma, sem þeir síðan flytja út, en prjónastofurnar sjálfar bjóða líka sundum fram sína vöru. Við erum nú aðallega að framleiða peysur, jákka og kápur. Prjónastofan Katla flutti nýlega í nýtt hús og voru þá m.a. keyptar nýjar vélar. — Núna eru starfsmenn fyrir- tækisins 23 til 24, en við höfum aðstöðu fyrir 35 starfsmenn og sumt fólk okkar er í hálfu starfi. Við erum t.d. að fá nýja prjónavél og vonast ég til að við fáum á næstunni næg verkefni, en öðru hvoru ber á verkefnaskorti hjá okkur. Þegar þannig er ástatt höf- um við hreinlega framleitt á lager, sem við vonumst til að geta selt síðar og þannig höfum við stund- um legið með miklar birgðir og fjármagn bundið í þeim. Þá sagði Sæmundur Runólfsson að fyrirtækið hefði keypt aðstoð frá Iðntæknistofnun við að endur- skipuleggja framleiðsluna og sagði hann t.d. hugmyndir uppi um að koma á afkastahvetjandi launa- kerfi. En prjónastofur og sauma- stofur hafa átt í erfiðleikum af og J1 síðustu misseri og Sæmundur er spurður hvernig Katla spjari sig á erfiðum tímum: — Gengið og verðlagsmál eru erfiðust og sífellt er reynt að þrýsta verðinu niður á við. Prjón- astofurnar verða að kanna sjálfar og ákveða síðan hvort þær geta framleitt flíkurnar á því verði sem sett er upp og ef hægt er að ná hagkvæmni við framleiðsluna tekst það yfirleitt. Hins vegar er mitt álit að framleiðendur eigi að fá að einbeita sér að framleiðsl- unni og söluaðilar skuli sjá um allt er lýtur að sölustarfinu. Mér finnst þróunin vera sú, að sölufyrirtækin séu að fara sífellt meira út í fram- leiðslu sjálf, en ég kýs frekar hreina verkaskiptingu. En hvað með staðsetningu fyrir- tækisins, fjarlægð frá Reykjavík t.d., skiptir hún máli? — Efninu er ekið til okkar og við vinnum úr því, en síðan er framleiðslunni ekið til baka til Reykjavíkur. Óhætt er að segja að flutningskostnaður sé ekki mikill, því bílarnir eru oftast hálftómir til Reykjavíkur, þannig að það kemur okkur til góða að nýta þetta rými. Og þar sem útgerð og fiskvinnsla fyrirfinnst ekki í Vík segir Sæ- mundur mikilvægt að iðnfyrirtæki geti starfað á stað sem þessum og hann kveðst vera bjartsýnn á framtíð prjónastofunnar. Fyrir- tækið sé orðið gamalgróið í Vík, reyndar eitt hið elsta í sinni grein og um 80% starfsfólksins hafa ver- ið þar frá upphafi. NÝ PLATA Útgefandi: Heildsöludreifing: sUinorhf símar 85055 og 85742

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.