Morgunblaðið - 13.12.1981, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. DESEMBER 1981
93
_
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 10—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Ríkisútvarpið:
Fáar stofnanir
grípa jafnmikið
inn í daglegt líf fólks
Skúli Magnússon Keflavík, skrifar
1. des.:
„Utvarpsdagskráin gefur oft
tækifæri til ýmissa hugleiðinga um
dægurmál og veröld mennta. Fáar
stofnanir grípa jafn mikið inn í
daglegt líf fólks sem útvarpið. Á
liðnum árum hefur útvarpið oft
flutt landsmönnum hið ágætasta
efni, bæði til ánægju og dægrastytt-
ingar. Það er orsökin til þess að ég
hef stundum kvatt mér hljóðs um
dagskrárliði ríkisútvarps okkar.
Ymsar hræringar eiga sér nú stað
í fjölmiðlamálum íslendinga. Skipt-
ast menn þar í ýmsa hópa eftir því
hverjir í hlut eiga. Um þau skoðan-
askipti ætla ég ekki að ræða að sinni
enda leyfir rúm Velvakanda það
Arnór Kristmann
Hannibalsson Guðmundsson
tæplega. Óhætt er þó að undirstrika
þýðingu útvarpsins sem menning-
artækis og upplýsingamiðils, sem
vissulega þarf að aðlaga sig breytt-
um aðstæðum þjóðfélagsins á hverj-
um tíma.
I október og nóvember flutti Arn-
ór Hannibalsson merkileg erindi um
pólitíska þróun mála í Austur-
Evrópu eftir lok seinni heimsstyrj-
aldar. Ræddi hann einkum um Ung-
verjaland og Pólland. Væntanlega
hefur tilefni erinda þessara verið
það ástand sem undanfarið hefur
ríkt í Póllandi. Flutningur þeirra
var vissulega tímabær og vék nokk-
uð á burt pólitísku moldviðri liðinna
ára. Með því að rekja atburðfna í
samhengi sögulegrar þróunar var
varpað ljósi yfir hvers vegna þessar
hræringar krauma í slavneskum
þjóðfélögum. Æskilegt væri að Arn-
ór flytti fleiri erindi af svipuðu tagi
um þennan heimshluta.
Skáldið Kristmann Guðmundsson
varð áttræður 23. október sl. Var
þess minnst með hálftíma dagskrá í
útvarpinu að kvöldi þess dags.
Fannst mér sá tími nokkuð naumt
skammtaður þar sem Kristmann er
í hópi mikilvirkustu rithöfunda
okkar. Að vísu var bætt úr þessu
síðar með endurtekningu á viðtali
Jónasar Jónassonar við skáldið frá
árinu 1970.
Kristmann er sjálfur góður upp-
lesari og hefur lesið töluvert í út-
varp á liðnum árum. Til dæmis sögu
Kostur rar
sína „Ströndin blá“, sem hann las á
árunum 1972— 73.
Annars hefur verið hljótt um
Kristmann og bókmenntafræðingar
skyggnast því miður minna um af
sjónarhóli sagna hans en vert væri.
Það er þó ekki síður áhugaverð um-
fjöllun en um verk annarra sam-
tímahöfunda.
Auk sagna og ljóða hefur Kfist-
mann skrifað tveggja binda heims-
bókmenntasögu, sem út kom á árun-
um 1955—56. Ennþá er það verk hið
eina sinnar tegundar sem út hefur
komið hérlendis, þó vissulega sé orð-
ið tímabært að huga að slíkri útgáfu
á ný.
Fyrir þá sem áhuga hafa á tónlist
og gefa sér tíma til að hlusta á hana,
Leifur Jón
Þórarinsson Þórarinsson
hefur Leifur Þórarinsson verið með
ágæta þætti um kammertónlist á
þriðjudagskvöldum, þar sem fléttað
er saman gömlu og nýju úr sögu
erlendrar tónlistar.
Fjórir þættir um Jón Þórarinsson
gáfu líka góða mynd af ferli hans
sem tónskálds. Þeir þættir voru á
sunnudögum, um klukkustundar
langir. Fer útvarpið þarna inn á
áhugavert svið með því að fjalla sér-
staklega um íslenska tónlist og höf-
unda hennar. Sjónvarpið hefur
nokkuð gert af slíku undanfarið og á
þakkir skilið fyrir. Enda er íslensk
tónlist auðug að mörgu sem vert er
að vekja athygli á, ekki síður en
heimur bókmennta og sjónlista."
Flugáhugamaður skrifar:
„í dálkum þínum þann 8. des., er
smágrein um merki í húfum
Flugleiðaflugmanna. Mér finnst
þessi klausa hálfgerður uppvakn-
ingur og ætluð til þess að koma
illu til leiðar. Finnst mönnum ekki
nóg komið? Um þetta merki má
segja, að það er mjög hugmynda-
snautt og ekkert í það varið. Hitt
er svo annað mál að bréfritari tal-
ar um að nú sé verið af afmá
merki Loftleiða. Stóð nokkurn-
tíma annað til en að afmá merki
og nöfn gömlu flugfélaganna?
Ég vil minna þennan bréfritara
á það, að merki og nafn Flugfélags
íslands er alveg horfið og sést nú
lltangarðsmenn
Eru þetta
kópíurnar?
Egóisti skrifar:
„Velvakandi og gott fólk.
I bréfi sem hr. Flinkur (furðu-
legt nafn) skrifaði sagði hann að
Bubbi Morthens hefði ekki efni á
að kaupa sér 4—5 plötur á viku ef
hann lifði á verkamannakaupi.
Verkamenn hafa að ég held alveg
örugglega 900 kr. yfir vikuna (5
plötur kosta 900 kr.). Ég styð þá
skoðun Ub 40, að Bubbi syngi inn á
plötur fyrst og fremst af sköpun-
argleði. Það er að minnsta kosti
okkar álit (mitt og Ub 40).
„Geislavirkir" er mjög vönduð
plata og lögin eftir því. Á plötunni
eru bitastæðir og beittir textar. Af
hverju heldur hr. Flinkur því fram
að Utangarðsmenn hafi aðeins
verið kópía af Utangarðsmönnum
þetta rúma ár sem þeir störfuðu?
Má ég benda hr. Flink á að hlusta
á lögin: Where Are the Bodies?
eða Rækju-Reggae, The Big Step
og Pretty Girls. Eru þetta kópí-
urnar sem hr. Flinkur talar um?
Hann bendir vinsamlega á ein-
hverja ágæta menn sem hafi sagt
að Utangarðsmenn væru staðnað-
ir í tónlistarflutningi. Þó sömdu
þeir og semja helling af lögum. Er
það merki um að þeir hafi verið
orðnir staðnaðir? Þessir ágætu
menn sem hr. Fiinkur talar um
mættu líta í sinn eigin barm,
hvort sem þeir eru í Brimkló eða
ekki. Hr. Flinkur þarf svo ekki að
benda mér á að Grafík eigi bestu
íslensku plötuna. Besta platan er
tvímælalaust „Plágan". Henni er
sjálfskipað i fyrsta sæti.“
hvergi, en allsstaðar blasir gamla
merkið og nafn Loftleiða við aug-
um. Má þar t.d. nefna hótelið, bíla-
leiguna, sem meira að segja heitir
nú „Loftleiðir bílaleiga“ og svo
blasir gamla merkið við augum
t.d. í Austurstræti og víðar.
Ég held að þessi sálarkvöl bréf-
ritara sé ástæðulaus með öllu og
að hluta hjákátleg. Væri meiri
ástæða fyrir hann að koma því til
leiðar að merki og nöfn BEGGJA
gömlu flugfélaganna hyrfu með
öllu og allir reyndu að gleyma for-
tíðinni, a.m.k. því hugarfari sem
kemur fram hjá bréfritara, því að
Flugleiðir þurfa á allt öðru að
halda þessa dagana en óeiningu og
klofningi meðal starfsmannanna.“
Hálfgerður uppvakningur
Hraðréttir í
hádeginu
mánudaga til föstudaga.
H RAÐRÉTTASEDILL
viKunnAR
Gnenmetissúpa fylgir með öllum réttum.
Steiktur grísakambur með súrkáli og kraftsósu 98
Lambabuff með spaghetti og papríkusósu 85
Roast Beef með rjómasoðnum kartöflum og esdragonsósu 105
Gratineruð rauðspretta á planka 79
Skötuselur „orly“ með karrýsósu 79
Gufusoðið heilagfiski með nekjusósu 78
Omiletta að eigin vali 45
CheCs special:
Svartfuglsbrínga með kartöflum „au gratin“ og eplasalati 75
Sjávarréttavagn með ýmsum völdum réttum 129
Jólaglögg pr. glas 15
Söluskattur og þjónustugjald innifalið.
ARNARHOLL
Hverfisgötu 8—10, sími 18833.
BOR-útihurðir
—4
Sænsku Bor-útihuröirnar eru einangraöar. 5 gerðir
úr teak fyrirliggjandi og verðið sérstaklega hagstætt.
\!P
VALD. POULSEN!
SUÐURLANDSBRAUT10
sími 86499
EF ÞAÐ ER FRÉTT-
NÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í
MORGUNBLAÐINU
J.H. Hafnarfirði skrifar:
„Hér kemur staka um hæfni
fiskifræðinganna:
Kallast má það kostur rar,
kringum land úr djúpum mar
okkar fiskifræðingar
fiskinn geta vigtað þar.
Óska eftir að fá að vita, hver
muni vera höfundur þessarar eft-
irfarandi mjög sérstæðrar stöku:
N vil ég kaupa af þér H,
S sem líka vakurt C,
Q vel þrifna þar með Á,
Þ í hringju læt í T. -
Með kveðju."
53? SlGeA V/QGÁ g