Morgunblaðið - 19.01.1982, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. JANÚAR 1982
Kantbátarnir í Eyjum
drógu netin í gær
„Breyttar fyrirskipanir ráðuneytisins bárust of
seint“ segir Jóel Andersen á Danska Pétri VE
„ÞAÐ BENDIR allt til þess að
Eyjabálarnir, sem lögðu net sín
austur af Eyjum áður en verkfallið
leystist, hafi ætlað að verða við til-
mælum okkar um að koma með
netin í land,“ sagði Jón Arnalds
ráðuneytisstjóri sjávarútvegsráðu-
neytisins í gær í samtali við Mbl.,
„en þar sem við fáum ekki skýrslu
frá eftirlitsmönnum okkar sem
fóru til Eyja fyrr en í fyrramálið, er
erfitt að segja nokkuð um þetta, en
eftir að hafa kannað skýrsiurnar
tökum við afstöðu til hvers máls
fyrir sig. Jón kvað beiðni sem
þessa aldrei hafa verið senda út frá
ráðuneytinu áður, en hann kvað
ráðuneytið hafa fengið margar
mm
Jóhannes Óli
Sæmundsson lát-
inn á Akureyri
Akureyri, IK. janúar.
JÓHANNES Óli Sæmundsson, fyrrver
andi námsstjóri, er nýlátinn á Akur
eyri. Hann fæddist 10. júlí 1906 í
Stærra-Arskógi, sonur hjónanna Sigríð-
ar Jóhannesdóttur og Sæmundar Sæ-
mundssonar, skipstjóra.
Hann tók kennarapróf 1929 og var
fyrst kennari og síðar skólastjóri á
Arskógsstrðnd 1924 — 1926 og
1929—1953, en námstjóri á Austur-
landi 1955—1963 og fræðslufulltrúi
KEA 1953-1956.
Hann vann mikið að örnefnasöfn-
un við Eyjafjörð og ritaði margt,
bæði sögur og fróðleiksgreinar af
ýmsu tagi. Hann gaf út tímaritið
Súlur á vegum Sögufélags Eyfirð-
inga og ritstýrði því ásamt öðrum.
Hann tók mikinn þátt í margs konar
félagsstarfi í heimasveit sinni og
einnig á Akureyri eftir að hann
fluttist þangað 1953. Hann var m.a.
fyrsti formaður Styrktarfélags van-
gefinna á Akureyri og átti mikinn
þátt í því, að Vistheimilið Sólborg
var reist.
Hin síðari ár rak hann fornbóka-
verzlun og hélt m.a. nokkur bóka-
uppboð. Hann lætur eftir sig þrjár
dætur. — Sv.P.
hringingar frá Þorlákshöfn vegna
þessa máls og ráðuneytið teldi að
umræddir Eyjabátar hefðu brotið
þarna reglur.
Eyjabátarnir fóru allir á sjó í
gær og sóttu net sín, en Þorláks-
hafnarbátar voru þá búnir að
leggja net sín víða í Kantinn
einnig. Morgunblaðið hafði sam-
band við Jóel Andersen skip-
stjóra á Danska Pétri í gær, en
hann er einn af Kantskipstjórun-
um. Hann kvaðst hafa lagt fjórar
af átta trossum á Kantinn og
þær trossur hefði hann komið
með að landi í gærkvöldi, en lagt
hinar fjórar. „Eg verð örugglega
í einhverjum vandræðum með að
koma þessum fjórum niður, á
svipuðum slóðum," sagði hann,
„en það var nóg pláss fyrir Þor-
lákshafnarbátana þarna og ég
skil ekki þetta fjaðrafok sem þeir
hafa verið með. Við fengum
skeyti um að taka upp þau net
sem við lögðum og það var allt of
seint að vera að senda eitthvert
viðbótarskeyti í gær og setja
breyttar fyrirskipanir ráðuneyt-
isins fram, þá vorum við búnir að
vinna okkar vinnu. Annars má
geta þess að það er nú ekki allt
eins nákvæmt og þeir vilja vera
láta hjá ráðuneytinu, því margir
skipstjórar héðan hringdu fyrir
jól og spurðu hvenær netavertíð
hæfist og fengu ávailt sömu svör
að það yrði ekki fyrr en 15. janú-
ar. Vegna þessa voru margir bát-
ar ekki klárir á net hér um ára-
mótin, en síðan er gefin út reglu-
gerð rétt fyrir áramót um að
stunda megi ufsaveiðar í net til
15. jan. og okkur hefur nú borist
vitneskja um að upplýsingum um
það var komið til Þorlákshafn-
arbáta löngu á undan okkur,
enda voru þeir allir klárir með
steinað niður fyrir áramótin.
Mönnum hér þykir lykta illa af
þeim áhrifum sem Björgvin
Jónsson, eigandi Glettings, hefur
á stjórn sjávarútvegsráðuneytis-
ins, þar sitja ekki allir við sama
borð.“
Þá hafði Mbl. spurnir af öðrum
bát, Álsey, sem kom til hafnar
um kvöldmatarleytið með net sín
og hélt þegar út aftur að leggja.
í gær voru bæði flugvél og skip
Landhelgisgæslunnar á þessum
slóðum, og fylgdust með bátun-
um. Lagning netanna á sínum
tíma tafði fyrir undirskrift
samninga í sjómannadeilunni, og
það var ekki fyrr en sjómannafé-
lagið Jötunn í Eyjum og Verka-
lýðsfélag Hveragerðis og ná-
grennis, sem hefur með samn-
inga sjómanna í Þorlákshöfn að
gera, féllu frá ákvörðun sinni um
að standa ekki að undirskrift
samnings, að gengið var frá
samningum á laugardagskvöld.
Þá hafði sjávarútvegsráðuneytið
sent þau fyrirmæli til útgerð-
armanna bátanna að draga
skyldi netin úr sjó, vegna brots á
reglugerð, en bátarnir lögðu net-
in í verkbanni og verkfalli sjó-
manna.
Skömmu fyrir klukkan 18 í gær var bifreið ekið á Ijósastaur til móts við
Borgartún 21. Ljósastaurinn brotnaði og féll yfir bílinn, en við hann eru
tengdar rafmagnslínur. Ökumaðurinn slapp við meiðsli, en Borgartún-
inu var lokað fyrir allri umferð af hættu við að staurinn félli alveg niður
og leiddi rafmagnsstraum. Mynd Mbl. Július
Fasteignamat fbúðarhúsnæðis hækkar um 55% milli ára:
Verð einbýlis- og raðhúsa hækk-
aði 14% umfram blokkaríbúðir
ÍBIIÐARHÚS á landinu öllu hækka
almennt um 55% í fasteignamati frá
fyrra ári, segir í fréttatilkynningu frá
Fasteignamati ríkisins. I Reykjavík
hækkar mat íbúðarhúsa í dýrum
hverfum þó aðeins meira, 56 til 57%,
en í ódýrari hverfum hækkað það
minna eða um 53 til 54%. Mat allra
annarra fasteigna hækkar um 45%.
Qlafur Jóhannesson utanrfkisráðherra:
Olíutankarnir
fara í Helguvík
„ÞKSSIK olíutankar ofan við Keflvík
verða fluttir til Helguvíkur. Ég er bú-
inn að ganga frá því sjálfur,“ sagði
Olafur Jóhannesson utanríkisráðherra,
er Mbl. spurði hann hvort tekin hefði
verið ákvörðun í svonefndu llelguvík-
urmáli.
Ólafur sagðist hafa tekið ákvörð-
un í máli þessu samkvæmt þings-
ályktunartillögu, sem samþykkt var
á Alþingi á sl. vetri, um að utanríkis-
ráðherra væri falið að ganga frá
málinu. Hann var spurður, hvort
hann hefði í huga að leggja málið
fyrir ríkisstjórn til samþykktar:
„Það geri ég ekki ráð fyrir, en þeir
hafa nú sjálfsagt einhverja hug-
mynd um það,“ svaraði hann.
Utanríkisráðherra sagði einnig, að
á þessu ári yrði unnið að hönnun
framkvæmda, flutningur geymanna
færi fram á næstu árum.
Þó tekur atvinnuhúsnæði í Reykja-
vík nokkuð breytilega hækkun. Hús-
næði á ódýrum lóðum hækkar
nokkru minna eða um 40 til 43%, en
húsnæði á verðmeiri lóðum hækkar
meira eða um 46 til 4H%.
í fréttatilkynningunni segir, að
hækkun fasteignaverðs hafi fylgt
að mestu hækkun byggingarkostn-
aðar sé miðað við tímabilið 1.
október 1980 til sama dags árið
eftir. Hækkunin hafi þó engan
veginn verið jöfn og má segja, að
mestöll hækkunin hafi orðið í
janúar og febrúar annars vegar og
í júlí, ágúst og september hins
vegar, en að verðið hafi haldizt
óbreytt aðra mánuði. Einbýlishús
og raðhús hafa hækkað nálægt
14% umfram íbúðir í fjölbýlis-
húsum á þessu tímabili. Þá hækk-
aði verð á íbúðarhúsnæði utan
höfuðborgarsvæðisins meira en í
Reykjavík. Þar munar einkum um
hækkanir á síðasta ársfjórðungi
1980, sem komu fram úti á lands-
byggðinni á meðan verð hélzt
óbreytt í höfuðborginni. Greiðslu-
kjör hafa ekki breytzt frá fyrra
ári, þegar litið er til fyrstu 9 mán-
uða áranna beggja.
Sú tregða, sem verið hefur á
sölu atvinnuhúsnæðis undanfarin
ár, hélzt. Hækkun á verði þess hélt
ekki í við hækkun byggingar-
kostnaðar annað árið í röð.
Elín Pálmadóttir varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins:
Skipulagsfólk meirihlutans
hefur verið borginni dýrt
„VIÐ SKOÐUN kemur í Ijós að á þessu kjörtímabili hefur ekkert
gerst og mióað við þessa síðustu fjárhagsáætlun mun ekkert
gerast, þrátt fyrir stórhækkaða skatta og meira ráðstöfunarfé,“
sagði Elín Pálmadóttir, varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, á
fundi borgarstjórnar fyrir nokkru.
Sagði Elín að á sumum sviðum
hefði framkvæmdum verið hald-
ið áfram, sem ákveðnar hefðu
verið, en nánast alltaf hefði ver-
ið dregið úr framkvæmdahraða.
Sagði Elín það eiga m.a. við um
áætlunina „umhverfi og útivist".
Einnig hefðu áætlanir um fram-
kvæmdir við holræsi verið stöðv-
aðar algerlega, en með fram-
kvæmdum við holræsi hefði átt
að hefja hreinsun á fjörum
Reykj avíku rborgar.
Þá sagði Elín að fjöldi mála
hefði verið að velkjast og klúðr-
ast allt kjörtímabilið og kvað El-
ín Grjótaþorpið dæmi um slíkt
mál. Ennfemur sagði Elín að
ýmis mál hefðu verið sköðuð
verulega, jafnvel óbætanlega.
„Má þar nefna ágang á frátekin
útivistarsvæði Reykvíkinga
framtíðarinnar. Það er jafnvel
gengið á Elliðaárdalinn og Laug-
ardal, gróður skemmdur og 9000
trjáplöntur eyðilagðar," sagði
Elín.
Elín kvað ástæðu þessa þá að
ekki hefði verið reynt að leysa
Keldnamálið árið 1978, þ.e. að
afla borginni eignarhalds á landi
Keldna, og því hefði borgar-
stjórn gengið á dýrmæt svæði.
Það hefði verið í andstöðu við
hópa borgara, t.d. íbúa heilla
hverfa, íþróttamenn, hestamenn,
skógræktarmenn, útivistarfólk
og fleiri. „Skipulagsfólk meiri-
hlutans, sem svo hátt lét í upp-
hafi, er búið að vera borginni
dýrt,“ sagði Elín Pálmadóttir.
Bjartmar Guð-
mundsson frá
Sandi látinn
BJARTMAK Gudmundsson frá Sandi,
fyrrverandi alþingismaður, lézt á
Ijindspítalanum síðastliðinn sunnu-
dag, 17. janúar, 81 árs að aldri.
Bjartmar fæddist á Sandi í Aðal-
dal 7. júní 1900 og var sonur hjón-
anna Guðmundar Friðjónssonar
skálds og bónda þar og Guðrúnar
Lilju Oddsdóttur frá Hrappsstaða-
seli í Bárðardal. Hann nam við ungl-
ingaskólann á Breiðumýri 1919 og á
Eiðum 1921 til 1922. Hann var síðan
bóndi á Sandi frá 1938 til 1960. Hann
átti sæti í hreppsnefnd Aðaldæla-
hrepps frá 1931 til 1962, hreppsstjóri
frá 1944 og oddviti frá 1954. Hann
átti sæti í stjórn Kaupfélags Þingey-
inga frá 1937 til 1961 og var lands-
kjörinn þingmaður frá 1959 til 1971.
Bjartmar átti sæti í úthlutunar-
nefnd listamannalauna 1960 til 1966,
var skipaður í endurskoðunarnefnd
vegalaga 1961 og í endurskoðunar-
nefnd laga um lax- og silungsveiði
1967.
Bjartmar ritstýrði Árbók Þingey-
inga frá 1958 og ritaði auk þess smá-
sögur og fjölmargar greinar í blöð og
tímarit. Eftirlifandi kona Bjartmars
er Hólmfríður Sigfúsdóttir frá Múla
í Aðaldal.
Bjartmar Guðmundsson