Morgunblaðið - 19.01.1982, Blaðsíða 38
42
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. JANÚAR 1982
Breytingarnar á Geysi f Haukadal:
„Stjórnvöld ættu að vera ánægð
með þetta myndarlega gos“
- segir Hrafn Gunnlaugsson kvikmyndagerðarmaður
„Það eina sem við gerðum var að
hreinsa raufina í hvernum, sem var
fullur af drullu, þannig að Geysir gaus
myndarlegu gosi,“ sagði Hrafn Gunn-
laugsson, kvikmyndagerðarmaður.
„Við ollum ekki neinu jarðraski
með þessum aðgerðum og ég held að
stjórnvöld ættu að vera ánægð með
það hve Geysir gaus myndarlega, enda
þótt það vantaði einhverja stimpla á
pappíra," sagði Hrafn.
„Mér hefur alltaf verið það hulin
ráðgáta, hvers vegna ekkert hefur
verið gert fyrir Geysi og þann fjölda
ferðamanna, sem hingað koma til að
skoða gos í hvernum," sagði Hrafn
ennfremur.
„Upphaf þessa máls var annars
það, að ég heimsótti Sigurð Greips-
son í Haukadal í fyrravor og spjall-
aði við hann. Ég þóttist vita að
hvergi væri til kvikmynd af gosi úr
þessum fræga hver og síst af öllu á
breiðfilmu. Ég skrifaði Sigurði síð-
an bréf um þetta mál og heimsótti
hann aftur og hafði því fullt samráð
við hann og hans menn. Mér til leið-
sagnar hafði ég Hallgrím Björnsson
efnaverkfræðing, sem hefur borið
Geysi mjög fyrir brjósti og staðið
dyggan vörð um varðveislu hans, og
tel ég því að vel hafi verið staðið að
máli þessu.
Auk þess tel ég það þjóðþrifamál
að það tókst að kvikmynda eitt
mesta gos, sem komið hefur í Geysi
á síðari árum en það var um 60—70
metra hátt. Ég vil að lokum segja
það, að ég vona að þessi málsrann-
sókn hafi ekki verið sprottin af af-
brýði. Geysir hefur sofið lengi og
það þurfti þolinmæði og vilja og
skynsemi til að láta hann gjósa. Ég
vona að það sama verði ekki hægt að
segja um Geysisnefnd, þó að raunin
virðist ætla að verða öll önnur.
Þetta framtak á vonandi eftir að
vekja bæði aðdáun og athygli víða,
þegar fólk fær að sjá gosið í kvik-
myndinni."
„Á eftir að valda
heimshneyksli"
~ segir Birgir Thorlacíus ráðuneytisstjóri
„Engin náttúruspjöll heldur mann
anna verk, sem hægt er að bæta“
— segir Hallgrímur Björnsson efnafræðingur
„ÞAÐ er hneyksli að við fslendingar
skulum ekki geta vardveitt þetta óvið-
jafnanlega náttúruundur, Geysi, og
það skuli geta átt sér stað, að það sé
rokið í Geysi með loftpressu, eins og
gert var í óleyfi Geysisnefndar og
Menntamálaráðuneytisins, og án alls
samráðs við færustu vísindamenn á
þessu sviði, sagði Birgir Thorlacíus
ráðuneytisstjóri í samtali við Mbl.
Tilefni þessara ummæla er, að
ráðuneytið hefur farið fram á það
við ríkissaksóknara að hann rann-
saki með hvaða hætti gömul rauf í
Geysi var dýpkuð í haust að beiðni
Hrafns Gunnlaugssonar, kvik-
myndagerðarmanns, vegna töku
kvikmyndarinnar Okkar á milli í
hita og þunga dagsins. Rauf þessi
var upphaflega gerð í Geysi árið
1938 í samráði við Trausta Einars-
son jarðfræðing.
Birgir Thorlacíus sagði ennfrem-
ur: „Ef við vildum fá Geysi til þess
að gjósa, þá er það hægt með því að
bora í strokkinn eins og gert var við
hverinn Strokk á sínum tíma, en
slík aðgerð sést ekki. Dýpkunin á
gömlu raufinni hefur aftur á móti
valdið því, að vatnsborðið hefur
lækkað til muna, en þegar lítið vatn
er í skálinni, eins og nú er, kvarnast
upp úr börmum hennar og hefur
myndast 75 cm langur skurður, sem
er til mikilla lýta auk þess sem hægt
er að ganga þarna ofan á þegar
vatnsborð er svona lágt.
Geysir er náttúruundur, sem
reynt hefur verið að halda óbreyttu
og varðveita með ýmsum ráðstöfun-
um. Hann er frægasti nver í heimi
og ég kvíði því þegar þetta fréttist
erlendis og á þetta eftir að valda
heimshneyksli," sagði Birgir Thor-
lacíus að lokum.
í GÆK var hér norðan stórhríð, með
13 stiga frosti og miklum stormi. Snjó
festi þó lítið vegna veðurofsans. Veður
fór batnandi seinni part dagsins, og
um klukkan 19 var komið sæmilegt
veður og keyrslufært milli sveita.
I hádegisfréttum útvarpsins nú
rétt áðan, kom tilkynning frá Vega-
gerðinni, um að Kerlingarskarð
„ÞAÐ sem gert var við Geysi, var,
að það var brotin upp steypa, sem
sett var við raufina, þegar skurð-
urinn var gerður upphaflega, var
þetta gert með loftpressu. Mynd-
aðist 7—8 metra langur skurður,
en það var nauðsynlegt að hafa
hann svo stóran svo hægt væri að
hreinsa rásina,“ sagði Hallgrímur
Björnsson efnaverkfræðingur.
„Hér er því ekki un neinar
náttúruskemmdir að ræða heldur
mannanna verk, sem hægt er að
bæta með því að steypa upp í aftur
og gera það enn betur en áður var
gert, því tækninni hefur fleygt
fram,“ sagði Hallgrímur.
„Við reyndum að brjóta gat
með röri í kísilinn undir stein-
steypunni, svo við gaetum komið
slöngu þar ofan í og veitt vatn-
inu burtu þannig, að yfirborðið
yrði minna og auðveldaði guf-
unni að lyfta vatnssúlunni og
minnka kæliflötin, svo gos gæti
væri öllum bílum ófært vegna snjóa,
en sæmileg færð væri um Alftafjörð
og Heydal. Þegar þessar fréttir voru
lesnar var staddur hér bifreiðar-
stjóri, sem fór um Kerlingarskarð
fyrri partinn í nótt. Taldi hann veg-
inn færan öllum bílum rétt eins og á
sumardegi. Þessi sami bílstjóri fór
svo frá Stykkishóími í morgun um
Álftafjörð og Heydal; í Álftaíirði
var mjög þungfært og ekki fært
nema stórum bílum. Þetta er ekki í
oröið. Þegar þetta var ekki hægt
gripum við til ofangreinds ráðs.
Eg reyndi ítrekað að ná í Runólf
Þórarinsson, formann Geysis-
nefndar, en hann var í fríi, en
„EFTIR að rásin var dýpkuð og hver
inn fór að gjósa oftar, þá fer vatnið
oftar yfir skálina og kísilmyndunin
verður örari og heldur hverahrúðrinu
fyrsta sinn, sem svona villandi
fréttir koma frá Vegagerðinni. Geta
slíkar fréttir haft afdrifaríkar af-
leiðingar fyrir okkur, sem búum hér
sunnan fjalls á Snæfellsnesi, þar
sem við Jjurfum á læknishjálp frá
Stykkishólmi að halda bæði fyrir
menn og skepnur. Eru það vinsam-
leg tilmæli til Vegagerðarinnar, að
hær fréttir sem þaðan komi um
ástand vega séll féttar.
fengið var leyfi Sigurðar
Greipssonar, þjóðgarðsvarðar í
Haukadal, annars hefði þetta
aldrei verið framkvæmt," sagði
Hallgrímur.
við og tel ég það fremur til bóta, en
hitt,“ sagði Greipur Sigurðsson í
Haukadal.
„Þegar raufin var gerð árið 1938
var hún gerð til þess að minnka
þrýstingin á vatnssúlunni í rásinni
til að auðvelda gufunni að lyfta
vatnssúlunni, svo að gos gæti orð-
ið.
Raufin þrengdist svo með tím-
anum þangað til við breikkuðum
hans og nú gýs Geysir 40—50
metra hárri vatnssúlu," sagði
Greipur.
„Það er alls ekki hægt að sjá að
framin hafi verið spjöll á hvernum
og tel ég tíðari gos til bóta fyrir
Geysi. En ef menn vilja láta hann
hætta að gjósa má steypa aftur í
raufina," sagði Greipur Sigurðs-
son.
Snæfellsnes:
Rangar upplýsingar um færð á vegum
Horg í Miklahollshreppi IS. janúar 1982.
„Fleiri gos halda hvera-
hrúðrinu við í skálinni og
breikkunin því til bóta“
- segir Greipur Sigurdsson í Haukadal
Sextán þús. söfn-
uðust á vinnuvöku
„VINNUVAKAN gekk Ijómandi vel og milli 50 og 60 kvenfélagskonur
tóku þátt í vökunni auk þess sem fólk kom í heimsókn til okkar. Allt
seldist upp á bazarnum, sem haldinn var á sunnudeginum þar sem
boðið var upp á hannyrðir og kökur, sem við höfðum búið til á vinnu-
vökunni og söfnuðust þannig 16 þúsund krónur,“ sagði Dagmar Gunn-
laugsdóttir, formaður Kvenfélags Bústaðasóknar, en kvenfélagið
gekkst fyrir svokallaðri vinnuvöku í félagsheimili Bústaðasóknar um
helgina.
Stóð vinnuvakan frá klukkan 20
á föstudagskvöldi og samfleytt til
klukkan 2 á sunnudegi er kvenfé-
lagskonurnar hlýddu á messu séra
Ólafs Skúlasonar. Eftir messuna
var bazarinn haldinn og seldist
allt upp á skömmum tíma.
„Kveikjan að vinnuvökunni, var
sú að okkur blöskra þær kröfur,
sem fólk gerir í þjóðfélaginu nú án
þess að vilja leggja nokkuð af
mörkum sjálft. Það gekk alveg
fram af okkur þegar við urðum
vitni að því er mæður gengu með
Svipmynd af vinnuvöku Kvenfélags Bústaðasóknar, sem var um helgina og tókst mjög vel.