Morgunblaðið - 19.01.1982, Side 20
/4‘« <
20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. JANÚAR 1982
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. JANÚAR 1982
25
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guömundsson,
Björn Jóhannsson.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Að-
alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift-
argjald 100 kr. á mánuði innanlands. i lausasölu 6 kr. eintakið.
Látið undan báðum
Fimmtudagskvöldið 14. janúar var sjávarútvegsráðherra Stein-
grímur Hermannsson sannfærður um, að hið eina rétta í fisk-
verðsmálum væri að ákveða það með fulltrúum fiskkaupenda, það er
fiskvinnslunni. Lá þá fyrir ákvörðun um fiskverð, sem tekin var af
sjávarútvegsráðherra í samvinnu við fulltrúa fiskkaupenda í yfir-
nefnd verðlagsráðs sjávarútvegsins,
Föstudagskvöldið 15. janúar var sami sjávarútvegsráðherrann,
Steingrímur Hermannsson, sannfærður um, að hið eina rétta í
fiskverðsmálum væri að ákveða það með fulltrúum fiskseljenda, það
er sjómönnum og útgerðarmönnum. Að vísu þýddi það meiri gengis-
fellingu, tefði fyrir í baráttunni við verðbólguna, en hverju skipti
það svo sem, þegar hagur sjómanna og útgerðarmanna væri annars
vegar?
A þeim sólarhring, sem sjávarútvegsráðherra kúventi í afstöðu
sinni til fiskverðsins, hafði 900 manna fundur sjómanna lýst van-
trausti á hann og fulltrúi sjómanna í yfirnefnd verðlagsráðs sjávar-
útvegsins lýst því, að ráðherrann hefði gengið á bak orða sinna,
þegar hann ákvað fiskverðið með fiskkaupendum.
Hvað stendur svo eftir, þegar sjávarútvegsráðherra hefur látið
undan báðum aðilum að fiskverðsákvörðun? Jú, fiskvinnslan hefur
fengið gengisfellingu til að standa undir fiskverðinu, sem ákveðið
var á fimmtudag, og loforð um hratt gengissig til að standa undir
fiskverðinu, sem ákveðið var á laugardag. Hvers vegna þurfti að
stöðva flotann, segja upp þúsundum manna um land allt, taka upp
atvinnuleysisskráningu og hefja greiðslu atvinnuleysisbóta, úr því
að ríkisvaldið taldi skynsamlegast að láta undan kröfum beggja
aðila? Líklega hefur deila um keisarans skegg aldrei leitt til jafn
mikils óskunda í íslensku þjóðarbúi. Hefði farið betur á því, að
stjórnarherrarnir og þá ekki síst sjávarútvegsráðherra hefðu spar-
að allar yfirlýsingar og sett sig þess í stað strax í upphafi inn í
málavexti. Eða á að álykta sem svo, að hin endanlega fiskverðs-
ákvörðun sé dæmi um algjöra uppgjöf ríkisstjórnarinnar við stjórn
efnahagsmála?
Geir Hallgrímsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði um rík-
isstjórnina hér í blaðinu síðastliðinn föstudag: „Ríkisstjórnin hefur
svikið öll sín loforð og misst allt frumkvæði og vald á þróun mála.
Þótt ríkisstjórnin sitji eitthvað áfram er hún vitagagnslaus, gerir
illt verra og er raunar aðeins til sýnis, eins og hún hefur verið frá
upphafi vega sinna, — sýndarmennskan einber." Réttmæti þessara
orða hefur svo sannarlega verið staðfest undanfarna daga — hið
kaldhæðnislegasta við fiskverðsákvörðunina er svo, að allt brölt
sjávarútvegsráðherra og uppgjöf hans fyrir báðum aðiium dugar
ekki til að sjósókn hefjist alls staðar á landinu.
Gleði kommúnista
Um helgina lét Steingrímur Hermannsson, formaður Framsókn-
arflokksins, þess getið við fréttastofu útvarpsins, að menn
skyldu nú vara sig á þvi, að í blöðum væri gert of mikið úr ágrein-
ingi innan ríkisstjórnarinnar um aðgerðir í efnahagsmálum. Þetta
var svo sannarlega undarleg yfirlýsing úr þessari átt, því að á
laugardaginn réðst Steingrímur Hermannsson hárkalega á sam-
ráðherra sinn, Ragnar Arnalds, í Tímanum og á föstudaginn sam-
þykkti þingflokkur framsóknarmanna, að efnahagstillögur Ragnars
Arnalds gengju alltof skammt. Taldi Steingrímur Hermannsson, að
það hrikti í ríkisstjórninni, þegar sýndir væru slíkir „efnahagsmála-
pakkar", sem Ragnar Arnalds kynnti í Þjóðviljanum síðastliðinn
föstudag.
Ummæli Steingríms Hermannssonar í útvarpinu verður líklega
að skoða sem afsökunarbeiðni af hans hálfu í garð Alþýðubanda-
lagsins, ráðherrar kommúnista hafa vafalaust sagt við framsókn-
armenn: Við tölum ekki við ykkur, ef Steingrímur dregur ekki í land.
Útgönguleið Steingríms er svo að kenna fjölmiðlum um sín eigin
orð!
Á meðan Steingrímur Hermannsson dvaldist erlendis um nokk-
urra vikna skeið í desember sl., kom til harðra orðaskipta milli
Tómasar Árnasonar og kommúnista um efnahagsmál. Var látið að
því liggja í forystugrein Tímans, að árásir kommúnista á Tómas
væru vísbending um að „vissir aðilar séu að undirbúa samstarfsslit"
í ríkisstjórninni. Taldi Tíminn af og frá, að til þess ráðs væri gripið
og friðmæltist við kommúnista með þessum orðum: „... getur því
enginn flokkur fengið allt sitt fram, heldur verður að koma á mála-
miðlun".
Kommúnistar sáu í fiskverðsdeilunni, að ekki þurfa menn nema
byrsta sig við formann Framsóknarflokksins, þá hverfur hann frá
öllu því, sem hann hafði áður sagt. Innan ríkisstjórnarinnar hefur
forsætisráðherra Gunnar Thoroddsen einatt tekið afstöðu með
kommúnistum, þegar þeir sýna framsókn í tvo heimana. Það þarf
því engan að undra, j)ótt kommúnistar séu ánægðastir með þá
stjórn, sem nú situr á Islandi.
HVAÐ SEGJA ÞEIR UM FISKVERÐIÐ OG SJÓMANNASAMNINGANA?
Óskar Vigfússon
formaður SSÍ:
„Öllum aðilum
ljóst, að sjómenn á
stóru togurunum
eru illa launaðir“
„ÞAÐ var Ijóst, að ekki var haegt að
ganga frá fiskverði án þess að kaup-
endur kæmu þar við sögu og það
myndi því á einhvern hátt verða rýr
ara fyrir hluta af okkar hópi og sú
varð raunin á, sagði Oskar Vigfús-
son, formaður Sjómannasambands
íslands í samtali við Mbl. aðspurður
um fiskverðið og nýgerða kjara-
samninga.
„Sjómenn á stóru togurunum
eru illa launaðir og það er öllum
aðilum að málinu ljóst og hefur
verið ljóst lengi, ekki hvað sízt
þeim útgerðarmönnum, sem gera
þessi skip út. Þeir hafa viðurkennt
þessa staðreynd, en hins vegar
ekki talið sig geta gert neitt til að
bæta úr. Við vissum það fyrir-
fram, að svona myndi fara með
samninga sjómanna á stóru togur-
unum, en í stöðunni var tæpast
um annað að ræða, en að, skrifa
undir", sagði Óskar.
„Markaðslögmál gildir í þessu
eins og öðru, og sannleikurinn er
sá að lélegi fiskurinn er tiltölulega
í meira verði heldur en betri fisk-
urinn eins og sést á því, að betur
hefur gengið að fá verð fyrir
skreið og saltfisk, heldur en fryst-
an fisk. Þess vegna er nú hægt að
greiða hærra verð fyrir óslægðan
fisk heldur en áður. Á síðustu ár-
um hefur hallað mjög á bátaflot-
ann, á meðan fyrsta flokks togar-
afiskur, sem fór í frystingu, var í
sem hæstu verði. Fyrir sjómenn á
hátaflotanum hefur orðið um
nokkrar úrbætur að ræða, en sjó-
menn hafa ekki fengið leiðréttingu
eins og þeir telja sig eiga rétt á
miðað við verkafólk í landi. Það
þurfti mikil átök til að ná þessu,
sem við þó fengum, en við eigum
enn talsvert eftir“, sagði óskar
Vigfússon.
I nýgerðum kjarasamningum
var samið um 10% launahækkun
fyrir sjómenn á stóru togurunum,
en þeir eru á föstu kaupi, en fá
síðan „premíu" eftir aflabrögðum.
Þeir fengu um 10% hækkun á
fastakaupið og hækkaði það úr
5.440 krónum í 6.022 krónur, en
þeir samningar voru felldir í
Reykjavík og Hafnarfirði. Stóru
togararnir, sem eru í verkfalli eru
Ögri, Vigri, Karlsefni, Viðey, Eng-
ey, Snorri Sturluson, Ingólfur
Arnarson og Bjarni Benediktsson,
allir frá Reykjavík, og Júní og
Apríl frá Hafnarfirði. Frá Akur-
eyri eru gerðir út 4 skuttogarar af
stærri gerðinni, þar voru samn-
ingarnir samþykktir á fundi og at-
kvæði greidd um samningana
sameiginlega. Einn stóru togar-
anna er gerður út frá Grindavík
og annar frá Keflavík, á þessum
stöðum voru samningar sam-
þykktir sameiginlega eins og á
Akureyri.
I bátakjarasamningunum, sem
gilda fyrir sjómenn á bátum og
minni togurunum, var samið um
7% hækkun á kauptryggingu, en
til greiðslu á henni kemur ef afla-
hlutur nær ekki tryggingu. Frí
sjómanna voru aukin með samn-
ingunum. Á minni skuttogurunum
er nú réttur til 4ra frídaga í mán-
uði, samið var um helgarfrí fyrir
sjómenn á netabátum og eiga þeir
nú rétt á einum frídegi um hverja
helgi allt árið. Loks fá sjómenn á
loðnuskipunum rétt á 48 tímum í
heimahöfn skips einu sinni í mán-
uði, en var áður einu sinni á ver-
tíð.
Guðmundur Hallvarðarson
formaöur Sjómannafélags
Reykjavíkur:
Hallar mjög á
okkur Reykvík-
inga miðað við
ýmsa aðra
„ÉG TRÚI því, að við finnum ein-
hvern flöt i áframhaldandi viðræð-
um við útgerðarmenn og fáum þá
leiðréttingu, sem við teljum okkur
eiga samanborið við sjómenn viða
annars staðar á landinu," sagði Guð
mundur Hallvarðsson, formaður
Sjómannafélags Reykjavíkur, meðal
annars í samtali við Mbl. í gær. Sjó-
mannafélag Reykjavíkur felldi bæði
bátakjarasamninga og samninga sjó-
manna á stóru togurunum á félags-
fundi á sunnudag. Fyrrnefndu samn-
ingarnir hafa alls staðar annars stað-
ar verið samþykktir, en í Hafnarfirði
voru samningar fyrir stóru togarana
einnig felldir.
Af hverju fella sjómenn í
Reykjavík bátakjarasamninga.
„Meginmálið í þessu er það, að
menn eru óánægðir með þetta
fiskverð og þann mun, sem gerður
er á slægðum og óslægðum fiski og
telja að verið sé að borga minna
fyrir 1. flokks vöru og vöru, sem
mikið er haft fyrir að koma með
sem slíka að landi,“ sagði Guð-
mundur. „í annan stað er það líka,
að við stöndum frammi fyrir því
vandamáli, að samningarnir eru
mjög misjafnir eftir því hvort við
erum í Reykjavík eða á Vestfjörð-
um eða Austfjörðum svo dæmi séu
Fulltrúar deiluaðila ganga frá samningum. Við borðsendann eru meðal annars Vilhelm Þorsteinsson, formaður Félags íslenzkra
botnvörpuskipaeigenda, Guðlaugur Þorvaldsson sáttasemjari, Guðmundur Hallvarðsson, formaður Sjómannafélags Reykjavíkur, og Geir
Gunnarsson sáttanefndarmaður.
nefnd. Þar hallar mjög á okkur
Reykvíkinga. Við getum t.d. bent á
það, að skuttogarar fyrir vestan
eru inni um jól og nýár. Fyrir
austan eru þeir inni frá Þorláks-
messu og fram til 2. janúar. Hér
eru skipin inni yfir jól, en síðan er
rokið út. Það er svona sitt af
hverju tagi, sem safnazt hefur
saman.
Um stóru togarana er það að
segja, að þar er óánægja manna
með kjörin mjög afgerandi og ef
til vill átti maður von á þessu. ég
var formaður samninganefndar-
innar, sem fjallaði um samning
sjómanna á stóru togurunum. Ég
hafði ekki sérstakan fyrirvara á
við undirskrift, en staðan var hins
vegar þannig þegar þessi sáttatil-
laga kom frá sáttasemjara, að
ekki var um margt að velja. Þarna
var samspil milli verðlagningar og
kjarasamninga. Annars vegar var
að gera kjarasamning við útgerð-
ina og standa síðan með henni í
sambandi við fiskverðsákvörðun.
Til þess að útgerðin stæði að fisk-
verðsákvörðun þegar þetta plagg
var komið fram þá lá fyrir, að við
urðum að samþykkja það allt eða
ekkert.
Við skoðuðum þetta vel og lengi
í nefndinni og vorum alls ekki
ánægðir með plaggið, en með það í
huga að þarna voru allir aðilar
ásáttir við tillöguna um báta-
kjarasamningana, töldum við
ekki, að við gætum gert annað í
stöðunni en að ganga inn á þetta
og láta síðan reyna á það hjá fé-
lagsmönnum hvað þeir vildu. Það
sem vakti i fyrir okkur líka var að
ef Sjómannafélag Reykjavíkur
hefði eitt staðið að því að fella
þennan kjarasamning, þá hefði
það dregið alvarlegan dilk á eftir
sér í sambandi við verðlagningu
og annað. Fiskverðið, ef það hefði
verið ákveðið, hefði orðið mun lé-
legra og bezta fiskverðið, sem
hægt var að ná í stöðunni, hefði
kannski orðið að engu. Við hefðum
auk þess getað orðið þess vald-
andi, að skip annars staðar frá
hefðu ekki róið. Við töldum því
bezta kostinn að skrifa undir þetta
og láta félagsmennina síðan segja
til um hvað þeir vildu gera. Þeirra
vilji fer ekki á milli mála.
Það hefur reyndar sýnt sig, að
sjómenn víðar en í Reykjavík eru
óánægðir með sína samninga. Þeir
hafa hins vegar skilað auðu og
greinilega talið sig tilneydda að
samþykkja og hefja róðra upp á
kjör, sem þeir eru alls ekki sáttir
við,“ sagði Guðmundur Hallvarðs-
son.
Að sögn Guðmundar fréttu af
því á sunnudag, að einn eða tveir
af togurum ísbjarnarins væri að
halda úr höfn. Hann sagði, að
menn hefðu brugðið mjög hart við,
fjölmenn niður á bryggju og kom-
ið í veg fyrir að skipin létu úr
höfn. „Verkfallsvakt hefur verið
skipulögð allan sólarhringinn og
menn eru ákveðnir að standa sam-
an,“ sagði Guðmundur.
Margir sátu hjá, en samningar þó samþykktir
Samningar fyrir stóru togarana og bátakjörin felldir í Reykjavík
Friörik Pálsson
framkvæmdastjóri:
„Heimsiglingar
verkföll og
verkbönn raska
öllu jafnvægi
í Verðlagsráðiu
„VINNSLAN I heild má ef til vill
sæmilega við þessi málalok una,
enda þótt lausnin sé talsvert dýrari
fyrir þjóðarbúið en ég tel að skyn-
samlegt hefði verið," sagði Friðrik
Pálsson, framkvæmdastjóri Sölu-
sambands ísl. fiskframleiðenda og
annar fulltrúi kaupenda í Verðlags-
ráði sjávarútvegsins, þegar Morgun-
blaðið spurði hann álits á fiskverðs-
ákvörðuninni.
„Á hinn bóginn er ég afar ósátt-
ur við það hvernig málið þróaðist
og tel ekki aðilum málsins til
sóma,“ sagði Friðrik ennfremur.
Þá sagði hann, að auðvitað hefði
gengið verið fallið löngu fyrir ára-
mót og útreikningar Þjóðhags-
stofnunar hefðu átt að liggja fyrir
miklu fyrr en þeir gerðu, „en ég
held að samkomulag með okkur
kaupendafulltrúunum strax 2. eða
3. janúar, að mestu byggt að
hugmyndum Steingríms, hefði
þrátt fyrir allt verið skynsamleg-
ur kostur. Á þeim tíma voru sjó-
menn og útvegsmenn ekki búnir
að móta sínar kröfur og enginn
hiti hlaupinn í deiluaðila, en strax
eftir þá helgi fóru hjólin að snúast
nokkuð skrykkjótt.
SAMNINGAR um bátakjör voru alls
staðar samþykktir nema í Reykja-
vík, en þar og í Hafnarfirði voru
samningar um kjör á stóru togurun-
um einnig felldir. Stórir skuttogarar
eru gerðir út frá Reykjavík, Hafnar-
firði, Grindavík, Keflavík og Akur
eyri, alls 16 skip, og eru 10 þeirra
enn við bryggju vegna verkfallsins.
Sáttafundur hafði ekki verið boðað-
ur í gær, en búist var við honum
síðdegis í dag. Þátttaka í atkvæða-
greiðslum sjómanna var yfirleitt all-
góð nema í Reykjavík, en þar eru
yfir 200 skráðir félagsbundnir sjó-
menn. Hér fara á eftir úrslit í at-
kvæðagreiðslu þeirra félaga, sem
fjallað höfðu um samningana í gær:
Sjómannafélag Reykjavíkur,
samningar sjómanna á stóru tog-
urunum: 1 já, 23 nei. Bátakjara-
samningarnir: 14 já, 26 nei, 2 auðir
og ógildir.
Sjómannafélag Hafnarfjarðar:
Samningar sjómanna á stóru tog-
urunum voru felldir, en bátakjara-
samningarnir voru samþykktir: 20
já, og 5 nei.
Akranes: 41 já, 19 nei, 2 ógildir.
Aftureldingá Hellissandi: 20 já.
Verkalýðs- og sjómannafélagið
Jökull í Olafsvík: 17 já, 8 nei.
Stjarnan, Grundarfirði: 20 já, 5
sátu hjá.
Verkalýðsfélag Stykkishólms:
Samþykkt samhljóða með 26 at-
kvæðum.
Á Vestfjörðum voru sjómenn
ekki í verkfalli.
Skagaströnd: 12 samhljóða at-
kvæði.
Skagafjörður: 14 já, 2 nei, 1
ógildur.
Siglufjörður: 18 já, 22 sátu hjá.
Sjómannafélag Akureyrar:
Sameiginleg atkvæðagreiðsla um
samningana fyrir stóru togarana
og bátakjarasamningana að ósk
fundarins: 56 já, 36 nei, auðir og
ógildir 2.
Á Húsavík, Þórshöfn og Rauf-
arhöfn var ekki verkfall, en hins
vegar futl samstaða með sjómönn-
um í verkfalli.
Austfjarðafélögin hafa öll af-
lýst verkfalli, en skrifað var undir
með fyrirvara um samþykki Al-
þýðusambands Austurlands og
fjallar það á næstu dögum um
samninginn. Á Austfjörðum hafa
sjómenn sérstaka samninga við
vinnuveitendur. Á Fáskrúðsfirði
voru samningarnir teknir fyrir og
samþykktir með 2 atkvæðum, en
24 sátu hjá.
Höfn, Hornafjörður, stjórn og
trúnaðarráð tók afstöðu, 12 já, 1
sat hjá.
Jötunn, Vestmannaeyjum: 44 já,
6 nei, 2 auðir og ógildir.
Eyrarbakki: 13 samhljóða.
Stokkseyri: Þar voru sjómenn
ekki í verkfalli, en studdu aðgerð-
ir.
Þorlákshöfn: 37 já, 3 nei, 1 auð-
ur.
Grindavík: 47 já, 27 nei.
Sandgerði: 10 já, 3 nei.
Garður: 7 já, 1 nei, 2 auðir og
ógildir
Vélstjórafélag Suðurnesja og
Sjómannaféiagið í Keflavík voru
með sameiginlegan fund og sam-
eiginlega atkvæðagreiðslu um
samningana: 40 já, 15 nei, 3 auðir
og ógildir.
Matsveinafélag Sjómannasam-
bandsins: Felldi samninga um
kjör á stóru togurunum: 1 sagði já,
13 sögðu nei. Það fjallaði ekki um
bátakjarasamninga að öðru leyti
en því, að það aflýsti verkfalli og
er opin atkvæðagreiðsla á skrif-
stofu Matsveinafélagsins til 12.
febrúar.
Vélstjórafélag íslands: Sameig-
inleg atkvæðagreiðsla, 45 já, 17
nei, 5 auðir og ógildir.
Þegar loks um miðjan janúar,
sjómenn og útvegsmenn í verkfalli
og verkbanni en ná saman um
fiskverðskröfu og oddamaður fær
ekki einhuga stuðning ríkisstjórn-
ar til að ganga frá þeim, var auð-
sýnt að ekki gátum við Eyjólfur
einir afgreitt verðið,“ sagði Frið-
rik.
Þá sagði hann, að sú 2% geng-
isfelling eða þar um bil, sem til
hafi komið á síðasta stigi málsins
skrifaðist því að sjálfsögðu á
reikning fulltrúa sjómanna og út-
vegsmanna.
„Vinnuveitendur hafa tekið upp
þá nýbreytni að boða verkbönn á
móti verkföllum. Það virðist gefa
þá góðu raun, að báðir aðilar
semji nokkuð á jafnréttisgrund-
velli. Nýgerðir samningar um fisk-
verð voru ekki háðir með jafna
vígstöðu eins og allir hljóta að sjá.
Tilkynning
Verðlagsráðs um
fiskverðsákvörðun
Á fundi yfirnefndar Verðlagsráðs sjávarútvegsins á laugardag varð samkomulag um almennt fiskverð,
sem gildir frá 1. janúar til 28. febrúar 1982.
Verðákvörðunin felur í sér að meðaltali 17,9% hækkun á fiskverði. Gert er ráð fyrir að olíugjald
á árinu 1982 verði 7%.
I þessari meðalhækkun er meðtalin sérstök hækkun á óslægðum þorski og ýsu. Þannig er
hækkun á slægðum þorski 16,4% en óslægðum 23,3%. Slægð ýsa hækkar um 9,3% en óslægð um
rúmlega 23%. Aðrar tegundir hækka um 15,8%.
Fulltrúar fiskkaupenda gerðu svohljóðandi grein fyir atkvæði sínu.
Á fimmtudag sl. varð samkomulag milli fulltrúa fiskkaupenda og sjávarútvegsráðherra um
tiltekna meðalhækkun fiskverðs.
Að beiðni sjávarútvegsráðherra höfum við nú fallist á frekari hækkun fiskverðs til samkomu-
lags milli aðila í yfirnefnd Verðlagsráðs, þar sem fyrir liggur loforð sjávarútvegsráðherra um að
kostnaðarauki vegna þessa, sem nemur nær 2% af tekjum, verði fiskvinnslunni að fullu bættur
með aðlögun gengis eða öðrum jafngildum hætti innan tveggja til þriggja vikna.
I yfirnefndinni eiga sæti: Ólafur Davíðsson, forstjóri Þjóðhagsstofnunar, sem er oddamaður
nefndarinnar, Ingólfur Ingólfsson og Kristján Ragnarsson, fulltrúar seljenda og Eyjólfur ísfeld
Eyjólfsson og Friðrik Pálsson, fulltrúar kaupenda.
Yfirnefndin mun síðar ákveða fiskverð frá 1. mars til 31. maí.
Ég tel að það hljóti að verða að
íhuga hvort fiskvinnslan á fram-
vegis að taka þátt í samningum
um nýtt fiskverð, á sama tíma og
sjómannasamningar eru í gangi.
Það ægivald, sem heimsiglingar,
verkföll og verkbönn gefa sjó-
mönnum og útvegsmönnum við
þessar kringumstæður raskar öllu
jafnvægi í Verðlagsráði og hlýtur
reyndar að stofna framtíð þess í
fullkomna hættu," sagði Friðrik
að lokum.
Árni Benediktsson:
„Einhver von til
þess að vinna
upp tap
síðasta ársu
„HVAÐ varðar sjálfa fiskverkunina,
þá held ég að hún megi sæmilega við
una með það fiskverð, sem ákveðið
hefur verið," sagði Árni Benedikts-
son hjá Framleiðni þegar rætt var
við hann.
„Hvað frystinguna varðar, þá er
hún á núlli, en hinar greinarnar
standa betur, þannig að einhver
von er til þess að hægt verði að
vinna upp það tap, sem varð á síð-
astliðnu ári. Það er einnig já-
kvætt, að við gengisfellinguna nú,
er ekki tekinn gengishagnaður af
birgðum og því batnar staða síð-
asta árs við það,“ sagði Árni
ennfremur.
Kristján Ragnarsson:
„Ekkert sem
réttlætir
verkfalls-
aðgerðir
sjómanna
í Reykjavíku
„ÉG FAGNA þessari lausn á fisk-
verðinu og að fiskverðið skuli hafa
verið ákveðið með samþykki allra
aðila, en ég met það mikils að það
náist samkomulag um fiskverð milli
kaupenda og seljenda. Allt tókst
þetta með viðunandi hætti og sömu
sögu er að segja um samningana,"
sagði Kristján Ragnarsson, formað-
ur Landssambands íslenzkra útvegs-
manna, þegar rætt var við hann.
„Á hinn bóginn harmar maður
niðurstöður atkvæðagreiðslna
vegna samninganna í Reykjavík
og vegna stóru togaranna í Hafn-
arfirði. Máliö lítur nú þannig út að
búið er að samþykkja samningana
fyrir stóru togarana á Akureyri,
en þar eru þeir 4 og 1 í Keflavík.
Það er venjulega svo, að þegar að-
ilar gera með sér kjarasamning,
þá treysta menn á, að með undir-
skrift viðkomandi sé verið að
mæla með samningi. Ég hef hins
vegar fyllstu ástæðu til að draga í
efa, að í Reykjavík hafi samning-
arnir verið kynntir með þeim
hætti, sem venja er til,“ sagði
Kristján.
„Þá standa málin þannig, að við
erum skuldbundnir þeim, sem bú-
ið er að semja við og samþykkt
hafa samningana, um að verð-
launa þá ekki sem fella samning-
ana með því að gera eitthvað
meira fyrir þá. Við teljum okkur
skuldbundna um að gera engar
breytingar á samningunum í
Reykjavík og Hafnarfirði, hvað
varðar stóru togarana. Með hlið-
sjón af því hve fáir tóku þátt í
atkvæðagreiðslunni vonast ég til
að Sjómannafélag Reykjavíkur
endurskoði afstöðu sína. Sjómenn
í Reykjavík eiga enga þá sérstöðu
í þessu máli, sem réttlætir það að
þeir haldi verkfallsaðgerðum
áfram einir,“ sagði Kristján
ennfremur.
Matthías Bjarnason
alþingismaður:
Stjórnvöld þekktu
ekki sinn vitjunartíma
„ÉG FAGNA því að fiskverð er komið og samningar hafa náðst, en ég
tel að ef stjórnvöld hefðu þekkt sinn vitjunartíma og játað staðreyndum
hefði aldrei þurft að koma til þessarar löngu deilu og mikla tjóns sem
þjóðin hefur orðið fyrir," sagði Matthías Bjarnason alþingismaður og
fyrrverandi sjávarútvegsráðherra í samtali við Mbl.
„Ég harma það hins vegar að Þá var Matthías Bjarnason
samkomulagið hefur ekki verið spurður álits á ummælum Svav-
samþykkt af öllum aðilum, en
treysti mér ekki til þess að fara
út í ákveðin atriði né gagnrýna
einstaka menn,“ hélt Matthías
áfram, „það er sjáanlegt að rík-
isstjórnin hefur séð það sem
flestir voru búnir að sjá að það
var ekki hægt að halda genginu
föstu eins og 1980, með þremur
undantekningum þó, þegar
kostnaðarhækkun útflutnings-
framleiðslunnar nam um
50—60%. Þá harma ég hvernig
komið er fyrir Verðjöfnunarsjóði
þrátt fyrir mjög hagstætt ár í
saltfiskverði, en ekkert var
greitt í sjóðinn, aðeins úr hon-
um. Þar er um algjört fyrir-
hyggjuleysi að ræða. Þá má
einnig deila á þá stefnu sem tek-
in er upp að minnka bilið milli
slægðs fisks og óslægðs, en þá
hafa menn þau rök að frystingin
á nú mjög í vök að verjast og
vissulega eru þau rök að nokkru
haldbær, en hitt vegur mjög
þungt á metunum að þá á að
greiða hæsta verð fyrir bezta
hráefnið og stefna þar með að
aukinni vöruvöndun."
ars Gestssonar á þá leið að
Sjálfstæðisflokkurinn hafi unnið
gegn samkomulagi í deilu sjó-
manna:
„Ég get aðeins talað um sjálf-
an mig, en það er sama hvort ég
er í stjórn eða stjórnarandstöðu,
ég er ákaflega mótfallinn verk-
föllum og verkbönnum. Menn
eiga að ganga til frjálsra samn-
inga og skilja stöðu hver annars
svo ekki þurfi að grípa til þess-
ara bitru vopna. Allir þeir menn
úr forystu Sjálfstæðisflokksins,
sem ég hef rætt við, hafa verið
sama sinnis og þessi ljótu um-
mæli Svavars Gestssonar hljóta
því að vera sprottin af því að
hann og hans flokkur hugsa
öðruvísi en við því þar beita þeir
skemmdarstarfsemi af mikilli
hörku og óþjóðhollustu eins og
gert var með útflutningsbanninu
1978 og er ekki ástæðan þá hjá
Svavari að vera með slíkar get-
sakir, sú að hann heldur innræti
annarra vera með eitthvað lík-
um hætti og hjá honum sjálfum
og hans nánustu fylgifiskum."