Morgunblaðið - 16.02.1982, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 16.02.1982, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1982 Klasaður skipverji af togaranum Jóni Baldvinssyni var fluttur frá borði með TF Rán og upp á Borgarspítala og er þetta í fvrsta skipti sem TF Rán sækir slasaðan mann á hafi úti. l.jósm. Júlíus TF Rán sækir slasaðan mann I.AI'ST fyrir klukkan 2 á laugardag- inn komu boð til Slysavarnarfélags íslands frá Loftskeytastóð Reykja- víkur, að það hefði orðið alvarlegt slys um borð í togaranum Jóni Bald vinssyni. Var Slysavarnarfélagið beðið að koma boðum til Landhelg- isgæslunnar um að senda þyrlu til að sækja slasaðan skipverja, en hann hafði klemmst alvarlega og misst framan af fæti um miðja rist. Að sögn Hánnesar Hafstein, hjá Slysavarnarfélagi íslands, þá var togarinn staddur 90 sjómílur suð- vestur af Reykjanesi. Landhelgisgæslan sendi þyrluna TF-Rán á slysstað og um klukkan 16.30 var þyrlan komin um borð í skipið og klukkan 16.42 var sjúkl- ingurinn, sem er annar stýrimað- ur á skipinu og heitir Ómar Þórs- son, kominn um borð í þyrluna og loks lenti þyrlan á þyrlupalli Borgarspítalans klukkan 17.30. Hér var um fyrstu ferð þyrlunnar TF-Rán að ræða, til að sækja slas- aðan mann á hafi úti. Að sögn Hannesar Hafstein, þá gekk þetta í alla staði vel. Veður var líka hagstætt á þessum slóðum eða um 4 vindstig, sjólítið og skyggni gott nema það gekk á með smá éljum. I áhöfn þyrlunnar voru Björn Jónsson flugstjóri, Þorkell Karls- son aðstoðarflugstjóri, Kristján Jónsson, stýrimaður og Bjarni Jónsson vélamaður. Mikil harka í stjórnar- kosningum í Einingu Listi stjórnar sigraði, báðir aðilar ánægðir miðað við aðstæður LISTI Jóns llelgasonar, formanns Verkalýðsfélagsins Einingar á Akur- eyri, sigraði í stjórnarkosningum í félaginu um helgina. A-listi stjórnar og trúnaðarmannaráðs hlaut 1054 atkvæði eða 61,5% atkvæða. B-listi borinn fram af Jóni S. Þorsteinssyni og fleirum með Guðmund Sæmunds- son í formannssæti hlaut 619 at- kvæði eða 31,1%. Auðir seðlar voru 29, ógildir 8 og 5 atkvæði voru per sónuleg, þ.e. kjósandinn hafði hlauþ- ið á milli lista. Á kjörskrá voru 3415, þar af kusu 1715 og var þátttakan því rúmlega 50%. í aðalstjórn Einingar næsta árið sitja því: Jón Helgason, Sævar Frí- mannsson, Úlfhildur Rögnvaldsdótt- ir, Aðalheiður Þorleifsdóttir, Björn Snæbjörnsson, Guðrún Skarphéð- insdóttir og Ágúst K. Sigurlaugsson. Mikil harka í kosningunum „Miðað við allar aðstæður er ég ánægður með árangurinn," sagði Jón Helgason. „Veður var vont þessa kosningadaga og þar af leiðandi minni þátttaka, sem ég tel að hafi einkum komið niður á okkur. Þetta stríð var ekkert að byrja núna held- ur hefur það staðið í 1!Á ár og skipu- lögðum áróðri verið haldið uppi á mig og stjórnina. I þeim tilgangi hafa verið notuð alls lags meðul. Það var mikil harka í þessum kosningum og ég og aðrir stjórnarmenn vorum rakkaðir niður. Þar var flest tínt til sem ég hirði ekki um að nefna. Þá var greinilegt, að Guðmundur átti mjög innangengt og greiðari aðgang að fjölmiðlum heldur en við, sem þurftum að sinna okkar skyldustörf- um. Ég tel, að ríkisútvarpið hafi brotið hlutleysi sitt í þessari kosn- ingabaráttu. Ég vil sérstaklega þakka þeim, sem unnu að undirbúningi kosn- inganna og unnu á kjördegi, þeir lögðu á sig mikla vinnu. Einnig vil ég þakka þeim, sem lögðu á sig mikið erfiði við að komast á kjörstað til að styðja okkar lista. Ég vil láta það koma fram, að það var sérstaklega ánægjulegt að vinna í þessum kosn- ingum og finna viðbrögð þess fólks, sem ég hef verið í tengslum við á starfsferli mínum hjá Einingu síðan árið 1964,“ sagði Jón Helgason. Árið 1%4 réðist Jón til starfa hjá Einingu á Akureyri og varð formað- ur árið 1974. Þá sigraði listi Jóns Helgasonar lista Jóns Ásgeirssonar, þáverandi formanns, og aftur ári síðar. Forsetinn fór til Stóra-Bret- lands í morgun FORSETI íslands, Vigdís Finnboga- dóttir, hélt í morgun til Bretlands og hefst opinber heimsókn hennar þar á morgun, miðvikudag. I heimsókninni mun forsetinn m.a. eiga viðræður við Thatcher forsætisráðherra Bretlands og sitja hádegisverðarboð Elísabetar 11 drottningar. Þá mun forsetinn einnig hitta björgunarmenn áhafnar Tungufoss og maka þeirra, en auk dvalar í London fer forsetinn til Oxford og Stratford-on-Avon. í fylgdarliði for- seta eru dr. Ólafur Jóhannesson utanríkisráðherra, Hörður Helgason ráðuneytisstjóri og Ólafur Egilsson sendiherra og konur þeirra, en Ólaf- ur gegnir um þessar mundir starfi forsetaritara í orlofi Halldórs Reyn- issonar. Hvatning um að halda áfram „Við erum ánægð með okkar út- komu og teljum, að við höfum veitt stjórninni alvarlega áminningu og sýnt henni, að hún nýtur ekki fyllsta trausts félagsmanna," sagði Guð- mundur Sæmundsson. „Við viljum túlka litla þátttöku á þann veg, að heima hafi setið fólk, sem er óánægt með stjórn félagsins, en treysti okkar malflutningi þó ekki. Það hef- ur trúað ýmsu af því sem listi stjórn- ar og trúnaðarmannaráðs bar á borð um okkur. Þá á ég við kjaftasögur ýmiss konar, sem skipta okkur þó ekki miklu máli, og ósannindi um pólitíska afstöðu okkar, þ.e. að við værum vinstra megin við heiminn, þó svo að á lista okkar hafi verið fólk með mjög ólíkar skoðanir. Um leið og þessi úrslit veita stjórninni aðhald er þau hvatning fyrir okkur um að halda áfram. Við leggjum ekki niður baráttuna, við höfum eignast fjölda nýrra sam- herja og það gætu því orðið kosn- ingar að nýju eftir eitt ár,“ sagði Guðmundur Sæmundsson. Hann gat þess ennfremur, að spjaldskrá og kjörskrá hefðu verið í mikilli óreiðu og 15—20 manns hefðu ekki fengið að kjósa þó þetta fólk hefði haft fé- lagsskírteini upp á vasann. 55 ára afmæli Heimdallar: Afmælisvaka í Valhöll IIEIMDALLIIR, samtök ungra sjálfstædismanna í Reykjavfk, á 55 ára afmæli í dag, en lleimdallur var stofnaður hinn 16. febrúar 1927. Stjórn lieimdallar gengst, af þessu tilefni, fyrir vöku þessa viku, þar sem Heimdall- arfélögum og öðrum verður boðið upp á fræðslu- og skemmtiefni af ýmsu tagi- Vaka hefst í Valhöll í kvöld, þar sem boðið verður upp á veitingar í Valhöll klukkan 20. Þar mun núverandi formaður Heimdallar, Árni Sigfússon háskólanemi flytja ávarp. Þá flytja nemendur úr Tónlistar- skóla Reykjvíkur klassíska tónlist, og hljómsveitin Messoforte leikur um stund. Á neðstu hæð hússins verður svo opnuð myndverkasýning. í frétt frá Heimdalli segir, að allt sjálfstæðisfólk sé hvatt til að fjölmenna og taka með sér gesti, jafnt ungir sjálfstæðismenn og þeir eldri. Ekki hvað síst eru fyrrverandi stjórnarmenn í Heimdalli eindreg- ið hvattir til að líta inn í Valhöll í kvöld, á vökuna sem þar hefst klukkan 20. Umhverfismálanefnd Sjálfstæðisflokksins: „Betra líf í bæjum“ - yfirskrift „Opins húss“ í Valhöll nk. laugardag Umhverfismálanefnd Sjálfstæðis- flokksins efnir til Opins húss sem ber yfirskriftina „Betra Iff í bæjurn", nk. laugardag, 20. febrúar, í Valhöll við Háaleitisbraut 1, Reykjavík. Flutt verða fjölmörg stutt erindi um málefni varðandi tengsl daglegs lífs við umhverfið. Þá verður sérstök kynning á vegum ýmissa félagasam- taka sem starfa að umhverfismálum. Hér er annars vegar um að ræða kynningu frjálsra félaga er tengj- ast umhverfismálum í þéttbýli, en þeim býðst sýningaraðstaða í Valhöll þennan dag. Hins vegar verða flutt stutt yfirlitserindi um þessi málefni í öðrum sal og einnig verður kvikmyndasýning í kjall- ara hússins. Efnt var til kynn- ingar með svipuðu sniði í Valhöll sl. haust þar sem 20 félög kynntu starfsemi sína. Á þá kynningu komu um 2.500 manns. Meðal þeirra sem flytja erindi á laugardaginn eru: Skúli Johnsen borgarlæknir, sem fjallar um heilsusamlegt umhverfi. Stefán Snæbjörnsson innanhússarkitekt um hönnum umhverfis, Arnfinnur Jónsson skólastjóri um æskuna og umhverfið, Þórir Guðbergsson fé- lagsráðgjafi ræðir um umhverfi fyrir aldraða, Jóhann Sveinsson laganemi umhverfi fatlaðra. Þá ræðir Elín Pálmadóttir blaðamað- ur um stefnumótun í umhverfis- málum, svo fátt eitt sé nefnt. „Opið hús“ umhverfisnefndar verður nánar auglýst næstu daga, segir í lok fréttatilkynningar frá umhverfismálanefnd Sjálfstæðis- flokksins. Verðlækkun á grásleppuhrognum: „Út í hött að lækka verðiða - segir Þorsteinn Jónsson á Akranesi „ÞAÐ er alvog út í hött að lækka verðið á gráslcppuhrognunum," sagði Þorsteinn Jónsson forstjóri fiskiðjunnar Arctic, sem fullvinnur grásleppuhrogn fyrir erlendan mark- að, er Mbl. innti hann eftir skoðun hans á þeim hugmyndum sem uppi eru um að lækka verð á tunnu af grásleppuhrognum um allt að 12 pró- sent. Sagði hann að þeir hjá Arctic hefðu keypt öll sín hrogn í sumar á 330 dali tunnuna og sagði hann að ef Danir t.d. fengju tunnuna á miklu lægra verði en þeir hafa keypt hana á, þá hefðu Danir miklu betri aðstöðu heldur en ís- lendingar til að selja sína vöru. Sagði Þorsteinn að þeir myndu fara fram á að viðskiptaráðuneyt- ið borgaði þeim mismuninn ef það lækkaði verðið. Ef verðið verður lækkað og Dan- ir kaupa hrognin og fullvinna þau hjá sér, myndu þeir þá ekki geta selt þau fullunnin til íslands á miklu lægra verði en þið getið boð- ið? „Nei, því það er varla hægt að tala um að Danir flytji inn grá- sleppuhrogn til íslands. Það er svo iítið. Annars hef ég enga trú á að þeir fari að lækka verðið." í samtali við Mbl. sagði Stefán Gunnlaugsson deildarstjóri út- flutningsdeildar viðskiptaráðu- neytisins, að engin ákvörðun hefði verið tekin um verðbreytingu á grásleppuhrognum. Málið væri í athugun og vissi hann ekki hve- nær niðurstöður lægju fyrir. Ólafur Jónsson SÍS: Er ekki undirboð „ÉG VIL ekkert segja um þetta á þessu stigi. Vil frekar bíða með það þangað til öl) viðbrögð eru komin fram,“ sagði Olafur Jóns- sonar aðstoðarframkvæmdastjóri sjávarafurðadcildar SÍS í samtali við Mbl. þegar hann var inntur eft- ir viðbrögðum sínum við frétt í Morgunblaðinu, þar sem haft var, eftir Guðmundi G. Halldórssyni grásleppuhrognaútflytjanda á Húsavík að SÍS undirbyði grá- sleppuhrognamarkað erlendis. Aðspurður um hvort SIS væri að undirbjóða á grásleppu- hrognamarkaðinum, sagði Olaf- ur að ekki vildi hann kalla það að undirbjóða þegar gerðir væru samningar við erlenda aðila um lægra verð á grásleppuhrogna- tunnu, svo hægt væri að selja þær birgðir grásleppuhrogna, sem til eru í landinu, en 6000 tunnur eru nú í landinu. Ólafur hefur lagt fram tillögu, eftir að hafa átt fund með helstu kaup- endum í Danmörku um söluverð á komandi vertíð, sem felur í sér um 12 prósent lækkun á hverja tunnu. Þannig að tunna sem áð- ur kostaði 330 dollara fer niður í 290 dollara. Ennfremur hefur Ólafur lagt það til að söluverði verði breytt úr dollurum í dansk- ar krónur því að á árunum 1980 til ’82 varð 21 prósent hækkun í dönskum krónum en 12 prósent lækkun í dollurum. Megn óánægja á Siglufirði „ÞAÐ RÍKIR megn óánægja með þetta hér, enda hefur vcrið í 330 döl- um í tvö ár, en á nú að lækka niður í 252 dali, það þarf ekki stóra aðila í þessu til að tjónið verði mjög tilfinn- anlcgt í svona mikilli lækkun," sagði Kristinn Konráðsson á Siglufirði í samtali við Morgunblaðið, er hann var spurður álits á verðlækkuninni á grásleppuhrognunum. Kristinn sagðist telja að eina rétta leiðin í málinu hefði verið að draga stórlega úr veiðum, þannig að með minna magni hefði mátt halda verðinu óbreyttu eða litlu lægra. „Tillögur hafa verið uppi um að í ár verði hverjum bát leyft að veiða um 75% af því sem veidd- ist í fyrra, en þá var metafli. Það þykja mér skynsamleg vinnubrögð, og takist að halda verðinu uppi má jafnvel hugsa sér að veiðarnar minnkuðu enn meira,“ sagði Krist- inn. „En vandamálið er það auðvit- að, að Danir vita nákvæmlega hvað er til af grásleppuhrognum hjá okkur, og síðan halda þeir að sér höndum þangað til allt springur, og þeir geta fengið vöruna á lægra verði."

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.