Morgunblaðið - 16.02.1982, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1982
Ljóðatónleikar
Tónlist
Jón Ásgeirsson
Rosemarie Landry og Dalton
Baldwin héldu tónleika á vegum
Tónlistarfélagsins sl. föstudag, í
Austurbæjarbíói. Þau fluttu söng-
verk eftir Gounod, Debussy, Wolf,
Pouleng og Strauss.
Söngkonunni lætur einkar vel
að túlka frönsku tónskáldin, en
flutti einnig verk þýsku tónskáld-
anna ágætlega. Das Verlassene
Mágdlein, eftir Wolf, var frábær-
lega vel flutt og Stándchen, eftir
Strauss, var laust við allan söng-
rembing, en flutt á sérkennilega
hljóðlátan máta, með ekta kvöld-
stemmningu. í viðbót við frábær-
an söng Rosemarie Landry, var
samleikur Dalton Baldwin merkt-
ur handbragði meistarans. Margir
tónlistafmenn gera lítið úr túlkun
eða skáldlegu innsæi og segja
tónflutning aðeins tækni og má
það vera rétt. En hætt er þá við,
að túlkun tilfinninga og stemmn-
inga yrði eitthvað ankanaleg og
ljoðasöngur þar með látinn víkja
fyrir „vituósiskum" söng og „trill-
eríi“. Glamrið er að verða aldar-
einkenni, þar sem tilfinningatúlk-
andi rödd einstaklingsins er að
kafna í ofboðslegri ofmötun fjöl-
miðla, svo ofboðslegri, að þeir,
sem enn hafa stund til að sækja
tónleika, eru skotspónn þeirra, er
ekkert skilja nema gagnrýnislaus
Rosemarie Landry
og æðisgengin hlaupin eftir þessu
fjölmiðlaglamri.
Tónleikar eins og þessir eru því
stórkostleg mannvistarvin, vin,
þar sem enn er vistuð tilfinning
fyrir því sem með einhverjum orð-
Dalton Baldwin
um má kallast fegurð. Rosemarie
Landry og Dalton Baldwin ráða
yfir tækninni, en í flutningi sínum
gefa þau meira, þau bjóða hlust-
endum sínum til vistar í vin feg-
urðar og mannhlýju.
Musica Antica
Tónlist
i Jón Ásgeirsson
Félagsskapur er kallar sig
Musica Antica hélt tónleika í sal
Menntaskólans í Reykjavík.
Fluttu voru verk eftir P.D. Phili-
dor, Hotteterre, Loeillet, Fux og
Vivaldi. Að flutningnum stóðu
Camilla Söderberg, Kristján Þ.
Stephensen, Helga Ingólfsdóttir
og Ólöf Sesselja Óskarsdóttir. í
heild voru tónleikarnir góðir en
skemmtilegustu verkin voru Sin-
fónía í F-dúr eftir þann fræga
tónfræðing Johann Fux og Tríó í
g-moll eftir rauðhærða prestinn
Vivaldi. Kontrapunktískt sam-
spit flautu og óbós í Sinfóníunni
eftir Fux er frábærlega samið en
við upphaf Tríósins eftir Vivaldi
var þó eins og tónleikarnir væru
að hefjast, eða með öðrum orð-
um, að ræða Vivaldis væri sjálf
alvaran, en það sem á undan var
leikið hefði aðeins verið leikur.
Umhverfi, gerð hljóðfæranna, að
undanteknu óbóinu, og tónlistin,
var allt svo samstætt að nærri
var að myndirnar á veggjunum
lifnuðu við, svo að líðandi stund-
in hverfðist aftur til löngu liðins
tíma, er Jón Sigurðsson forseti,
Sveinbjörn Egilsson og aðrir
merkir menn stóð hér í ströngu,
þó erfitt væri að hugsa sér sam-
tímafólk þeirra á tónleikum sem
þessum. Það eina sem amaði að
var fámenni hljómleikagesta.
Musica Antica er skemmtilegur
og góður samstarfshópur og af
gamalli og góðri tónlist er mikið
til. Það sem oft vill verða áber-
andi í starfi slíkra hópa, er þjón-
ustan við söguna og þá oft á
kostnað gæðanna að því er varð-
ar viðfangsefnin, sem ekki er
nauðsynlegt, því nóg er til af
verkum eftir góð tónskáld frá
öllum tímum.
V-Þýzkaland:
Bréfsprengja
til aðstoðarmanns
flóttamanna
Bad Tot lz, V Þyzkalandi. Al\
ÞRJÁTÍU og sex ára gamall Vestur
Þjóðverji Kai Mierendorff sem er
sagður hafa hjálpað tugum Austur
Þjóðverja að flýja vestur fyrir járn-
tjaldið, slasaðist alvarlega í
sprengjutilræði á hóteli sínu fyrir
skömmu.
Mierendorff var að opna umslag
er sprengja í því sprakk af feikna
krafti. Hann skaddaðist í andliti
og missti nokkra fingur, að því er
talsmaður lögreglunnar skýrði
frá. Kona hans meiddist lítillega í
sprengingunni. Miklar skemmdir
urðu á móttökusal hótelsins þar
sem þessi atburður gerðist.
Mierendorff er sagður vera
fyrrverandi fyrirliði hóps í Vest-
ur-Þýzkalandi sem skipuleggur
flótta frá A-Þýzkalandi fyrir stór-
ar upphæðir, allt upp í 50 þúsund
mörk á mann og reiða venjulega
vinir og ættingjar í Vestur-
Þýzkalandi fram fé þetta. í AP-
fréttum segir að tveir menn sem
hafi unnið í nánum tengslum við
Mierendorff hafi látizt sviplega að
undanförnu. Þá segja óstaðfestar
heimildir að ák/eðið hafi verið að
Mierendorff hætti afskiptum af
þessum málum vegna þeirrar
hættu sem hann var kominn í.