Morgunblaðið - 16.02.1982, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 16.02.1982, Blaðsíða 44
24 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1982 Skagamenn áttu yngri flokk- ana en TBR einokaði þá eldri FJÖLMENNASTA badmintonmótið í ísland.ssögunni til þessa fór fram á Selfossi um helgina — Unglinga- meistaramót Islands. Þátttakendur á mótinu voru 200 talsins frá 11 fé- lögum. Fríður flokkur ungra Akur- nesinga setti sterkan svip á mótið, en þaðan komu rúmlega 50 kepp- endur. í ávarpi, sem formaður Bad- mintonsambands Íslands, Rafn Viggósson, flutti við setningu mótsins á föstudagskvöld sagði hann m.a. að badminton væri vandasöm íþrótt, sem krefðist mikils af þeim, sem hygðust ná langt í henni. „Sigur er ekki aðal- atriðið, heldur hitt að sýna drengilegan og góðan leik,“ sagði Rafn. Þá lét hann þess einnig get- ið að líkast til yrði framtíðin sú að unglingameistaramótinu yrði skipt í tvennt. Þátttakan væri orð- in slík, að illmögulegt væri að halda keppnina alla á sama stað. , Eins og undanfarin ár var það barátta Akurnesinga og TBR, sem setti mestan svip á keppnina. Hefðin var í engu rofin að þessu sinni. Akurnesingar höfðu betur í tveimur yngri flokkunum — hlutu 7 gullverðlaun á móti 3, en TBR hafði algera yfirburði í tveimur eldri flokkunum og hirti öll gull- verðlaunin, 10 að tölu. Þessi félög eru óneitanlega í nokkrum sér- flokki, en það sem mest er um vert er, að íþróttin virðist vera að ná meiri fótfestu víðs vegar um land en verið hefur. Fjölmargar viðureignanna voru stórskemmtilegar. Úr flokki þeirra yngstu er sérstaklega minnisstæður leikur þeirra Bertu Finnbogadóttur, ÍA, og Ástu Kristjánsdóttur, TBV, sem Berta vann af geysilegu harðfylgi. Lítil og tággrönn, en með keppnisskap- ið í lagi. Sömuleiðis var innbyrðis viðureign Akranesstrákanna í úr- slitum tvenndarleiksins minnis- stæð og var ekki laust við að tár hrytu af hvörmum þeirra, sem biðu nauman ósigur. Þau Árni Þór Hallgrímsson, ÍA, og Guðrún Júlíusdóttir, TBR, voru í nokkrum sérflokki í flokki meyja og sveina og sömu sögu má segja um Snorra Ingvarsson, TBR, í flokki drengja. Snorri varð þre- faldur meistari og sýndi mikið ör- yggi í leik sínum. Stjarna mótsins var þó óumdeil- anlega Þorsteinn Páll Hængsson, TBR. Stórkostlega góður spilari, sem þegar er farinn að ógna þeim, sem hingað til hafa talist í sér- flokki í íþróttinni. Keppnisskap hans er með ólíkindum og líkt og Kínverjarnjr lætur hann aldrei sjá nein svipbrigði í keppni. Jafn- vel í hinni æsispennandi síðari lotu viðureignar hans við Skaga- manninn Þórhall Ingason, sem velgdi honum hressilega undir uggum og virtist um tíma ætla að fara með sigur af hólmi í lotunni, lét hann mótlætið ekki hafa áhrif á sig. Beit á jaxlinn og vann upp forskotið og tryggði sér sigur. Breytti stöðunni úr 9—11 í 15—11 eftir að hafa verið kominn í 9—2. Stórskemmtilegur leikur. Minnisstæðasti leikur mótsins er þó líklegast viðureign þeirra Gunnars Björnssonar og Elísabet- ar Þórðardóttur, TBR, gegn Þór- dísi Edwald og Indriða Björns- syni, TBR. Oddaleik þurfti til að skera úr um hvort parið færi í úr- slitin og þrátt fyrir fádæma keppnishörku þeirra Þórdísar og Indriða urðu þau að lúta í lægra haldi, 17—18, eftir upphækkun. — SSv. „Næsta ár verður miklu erfiðara“ - segir Þórdís Edwald, íslandsmeistari í einliðaleik telpna „ÞETTA var auðveldur leikur," sagði Þórdís Edwald, sem sigraði mótherja sinn, Karitas Jónsdóttur frá Akranesi, átakalítið í úrslitaleik einliðaleiks telpna. „Ég fékk meiri mótspyrnu í öðrum leikjum á mót- inu,“ sagði hún sallaróleg og virtist ekki sérlega uppveðruð yfir sigrin- um, enda orðin keppnisvön vel. „Ég held ég sé búin að stunda þetta í ein 6 ár ... látum okkur sjá ... já, síðan ég var 9 ára. Það var nú líkast til mest vegna þess að TBR-húsið var reist skammt frá þeim stað er ég bý í Álfheim- unum að ég fór að stunda þetta. Húsið hefur gerbreytt allri að- stöðu hjá TBR því við getum feng- ið að æfa þar svo að segja hvenær sem er dagsins." — Hvað þarf góður badminton- spilari að hafa til að bera? „Hann má að sjálfsögðu ekki vera of rólegur. Hann þarf að vera gæddur keppnishörku, en þó ekki þannig að hann gangi um æpandi og öskrandi. Svo er það gamla mottóið að gefast ekki upp þótt á móti blási." — Finnst þér þú fá of litla mót- spyrnu eins og t.d. í þessu móti? „Já, hún var ekki mjög mikil núna, en það kemur til af því að ég er á eldra árinu í mínum flokki. Næsta ár verður þetta miklu erf- iðara því þá geng ég upp og verð í flokki með mörgum sterkum stelp- um,“ sagði Þórdís, en var þar með rokin þar sem hún þurfti að keppa í tvíliðaleiknum með stöllu sinni, Ingu Kjartansdóttur. — SSv. Þórdís Edwald, TBR, haföi yfirburöi í einliðaleik telpna. „Námið vill stundum sitja á hakanum 4 - segir þrefaldur íslandsmeistari í piltaflokki, Þorsteinn Páll Hængsson „ÞAÐ ER fyrst og fremst mikil æf- ing,“ sagði stjarna unglingameist- armótsins, Þorsteinn Páll Hængs- son, TBR, er undirritaður sveif á hann, eftir að hann hafði tryggt sér þriðja gullið á mótinu, og spurði hann hvað lægi að baki slíkum ár- angri. Þorsteinn Páll á ekki langt að sækja hæfileikana. Foreldrar hans, Hængur Þorsteinsson og Hanna Lára Pálsdóttir, voru bæði í fremstu röð í íþróttinni þegar þau voru upp á sitt besta og að sögn Þorsteins var það einmitt fyrir þeirra tilstuðlan fyrst og fremst, að hann hóf að iðka badminton. „Ég fór með þeim á æfingar oft og iðulega og auðvitað kom að því að ég fór að leika mér í þessu. Pabbi leiðbeindi mér mikið fram- an af, en síðan hafa þjálfarar TBR tekið við. Ég æfi núna daglega og svo verður að vera ef árangur á að nást.“ Þorsteinn vakti mikla athygli á mótinu fyrir fádæma yfirvegun á leikvelli, skapfestu og öryggi. „Ég reyni að vera ekki með nein læti í þessu — það hefur ekkert upp úr sér og reyndar finnst mér leiðin- legt þegar menn láta þannig." Skyldi enginn leiði sækja að mönnum, sem æfa sína íþrótt af kappi dag hvern? „Jú, vissulega kemur stundum upp þreyta, en þá reynir maður að sleppa úr 2 dög- um eða svo til að jafna sig. Ég er búinn að vera í þessu af krafti síð- an ég var átta ára, þannig að ég er farinn að læra nokkuð á sjálfan mig.“ — Hvað með námið? „Það vill stundum sitja á hakan- um — það gerir ekkert. Mér finnst skemmtilegra að æfa badminton en að vera í skóla og ánægjan er það sem gerir það að verkum að ég stunda íþróttina af svo miklu kappi.“ Berta Finnbogadóttir, ÍA, sigraöi í einliöaleik táta af geysilegu harðfyigi. Þorsteinn telur sig eiga um 80 gullverðlaun úr mótum undanfar- inna ára — þar af ein 11—12 frá íslandsmótum. Gerir hann sér vonir um að velta þeim bestu af stallinum? „Eðlilega geri ég mér vonir um það, en líkast til verður þess enn að bíða um nokkurn tíma. Ef heppnin er með mér gæti ég kannski komist langt á ís- landsmótinu í ár.“ — í hverju getur sú heppni fal- ist? „T.d. því að lenda ekki á móti Brodda," sagði Þorsteinn og brosti. — SSv. Gullverölaunahafarnir á unglingameistaramótinu á Selfossi. I Unglingameistaramótið í badmii Þannig lauk viðureigr HÉR Á EFTIR fara úrslitin úr Unglingameistaramótinu í badminton, sem lauk á Selfossi um helgina. HNOKKAR — TÁTIJK (12ÁRA OG YNGKI) KINLIÐALKIKUR IINOKKA Njáll Kyslpinsson, TBK — Jón B. (iuómundsson, IIMFS, II —I, 11-1. Tbeodór llervarsson, ÍA — Siguróur Sigursteinsson, ÍA 12-9, 10-12, 12-9. Karl Yidarsson, ÍA — Arnar (iuðlaugsson, ÍA 11-4, 11-0. (iarðar Adolfsson, TBK — Sigurður Mýrdal, ÍA 11 -8, 11 -5. KINLIDALKIKIJK TÁTA María (iuðmundsdóttir, ÍA — Anna llalldórsdóttir, ÍA, 11-3, 11-7. Berta Kinnbogadóttir, ÍA — (iuðrún Kyjólfsdóttir, ÍA, 11-10, 11-7. Vilborg Viðarsdóttir, ÍA — (iunnhildur Magnúsdóttir, UMFS, 11-6, 11-5. Ásta Kristjánsdóttir, TBV — llnnur llallgrímsdóttir, ÍA, 11-7, 11-6. TVÍLIÐALEIKIJR IINOKKA Njáll Kysteinsson, TBR/ (iarðar Adolfsson, TBK. — Kristján Jónasson, ÍA/ Sigurður Sigursteinss., ÍA, 15-5, 15-4. Jón Birgir (iuðmundsson/ Finnur (.uðmundsson, IJMFS — Theodór llervarsson/ Sigurður Mýrdal, ÍA, 15-3, 15-6. Kósant Birgisson/ Oliver l'álmason, ÍA — Bjarki (iuðlaugsson/ Arnar (iuðlaugsson, ÍA, 15-3, 15-4. Karl Viðarsson/ Ingi Steinarsson, IA — TVÍLIÐALKIKIJR TÁTA Vilborg Viðarsdóttir/ Berta Finnbogadóttir, ÍA — (iunnhildur Magnúsdóttir/ Sigríður (ieirsdóttir, UMFS tölur vantar en þær fyrrnefndu unnu. Ásta Kristjánsdóttir, TBV/ Hulda Björk Stefánsdóttir, TBV — Agústa Andrésdóttir/ Andrea lljálmarsdóttir.ÍA, tölur vantar en þær fyrrnefndu unnu. Júlía Sigursteinsdóttir/ Anna llalldórsdóttir, ÍA — TVKNNDARLKIKUR Njáll Kysteinsson/ Birna Petersen, TBR — Jón B. (iuðmundsson/ (iuðrún Sigurðardóttir, UMFS, 15-12, 15-2. Sigurður Mýrdal/ (iuðrún Kyjólfsdóttir, ÍA — Logi (iuðmundsson/ Stella Sigvaldadóttir, ÍA, 15-2, 15-0. (iarðar Adolfsson, TBK/ Júlía Sigursteinsdóttir, ÍA — Þröstur Ilallgrímsson/ Unnur Ilallgrímsdóttir, ÍA 15-7, 15-2. MKYJAR — SVKINAR (Í2—14 ÁKA) KINLIDALKIKUK SVKINA Bjarki Jóhannesson, ÍA — Ilermann Olafsson, IISK, 11-8, 7-11, 11-4. Pétur Lentz, TBR — Pórhallur Jónsson, ÍA, 9-11, 12-10, 11-4. Árni l*ór Hallgrímsson, ÍA — Sigurður Ilarðarson, ÍA, úrslit vantar, en Árni vann. Ilaraldur Hinriksson, ÍA — llaukur Finnsson, Val, úrslit vantar, en Haraldur vann. Bjarki Jóhannesson, ÍA — Pétur Lentz, TBR, 9-11, 11-2, 11-1. KINLIDALKIKUK MKYJA (iuðrún Júlíusdóttir, TBR — llafdís Böðvarsdóttir, ÍA, 11-5, 11 — 1. Ásta Sigurðardóttir, ÍA — Auður Kyvindsdóttir, Val, 11-3, 11-4. TVÍLKIÐALKIKUR SVKINA Haraldur Hinriksson/ Bjarki Jóhannesson, ÍA — Ármann Porvaldsson/ Georg Sigurðsson, TBR, 15-0, 15-2. (iuðmundur Bjarnason/ Leó Sigurðsson, TBR — Pétur Kristjánsson/ Porsteinn Baldursson, ÍA 15-3, 15-3. Pórhallur Jónsson/ Sigurður Már llarðarson, ÍA — Valgeir Magnússon/ Kristján Kristjánsson, Víkingi, 10-15, 15-10, 15-4. Stjarna mótsins var tvímælalaust Þorsteinn Páll Hængsson sem sýndi fádæma yfirvegun og keppnisöryggi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.