Morgunblaðið - 16.02.1982, Blaðsíða 38
V
46
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1982
Sílóið braut uppsláttinn og fcllu fimm mcnn niður með
sílóinu.
Betur fór en á horfðist — aðeins einn maður var fluttur í
slysadeild og fékk hann að fara heim að lokinni aðgerð.
Síló féll milli níu manna
MIKIL mildi var, að ekki varð stór
slys þegar stykki í bómukrana
brotnaði með þeim afleiðingum, að
síló fullt af steypu féll niður á upp-
slátt nýbyggingar málningarverk-
smiðjunnar Ilörpu við Hverfisgötu
um klukkan 14 í gær.
Sílóið, sem vóg um 2 tonn, féll á
plötuna milli fimm manna, sem
voru við steypuvinnu. Uppslátt-
urinn brotnaði og féll sílóið niður
á hæð fyrir neðan og mennirnir
einnig. Þar voru fjórir menn að
vinnu og skall silóið skammt frá
þeim.
Alls slösuðust sex menn, flestir
lítillega. Einn þeirra sem var á
neðri hæðinni var fluttur í slysa-
deild. Hann skarst í andliti og
handleggsbrotnaði. Orsakir
óhappsins eru ekki kunnar, en
líklegt talið að málmþreyta í
bómu kranans hafi valdið óhapp-
inu.
Akureyri:
Helgi Guðmundsson í efsta
sæti forvals Alþýðubandalagsins
SÍÐARI umferð forvals Alþýðu-
bandalagsins á Akureyri lauk um
helgina. Efstur varð Helgi Guð-
mundsson, 2. Sigríður Stefánsdótt-
ir, 3. Katrín Jónsdóttir og jafnir í
4. og 5. sæti urðu Páll Hlöðvesson
og Hilmir Helgason.
Um 55% af flokksbundnum fé-
lögum, sem eru á 2. hundrað ,
tóku þátt í forvalinum. Úrslitin
eru ekki bindandi og reiknað er
með að endanlega verði gengið
FVKKI umferð forvals Alþýðubanda-
lagsins á Selfossi fór fram um helgina
og af 50 flokksbundnum félögum tóku
38 þátt í henni.
Efstur varð Sigurjón Erlingsson,
2. varð Kolbrún Guðmundsdóttir, 3.
frá framboðslistanum und'.r
mánaðamótin. Alþýðubandalag-
ið á nú 2 fulltrúa í bæjarstjórn,
Soffíu Guðmundsdóttur og
Helga Guðmundsson, en Soffía
gaf ekki kost á sér að þessu
sinni.
Dagný Jónsdóttir og 4. Þorvarður
Hjaltason. Alls komu um 30 nöfn
fram í fyrri umferðinni og halda 10
þeirra áfram í síðari umferð, sem
verður næsta laugardag.
38 tóku þátt í fyrri umferð
forvals Alþýðubandalagsins
Prófkjör Alþýðuflokksins í Reykjavík:
Sigurður E. í 1. sæti,
Sjöfn Sigurbjörns í 2.
- alls greiddu rúmlega
SIGURÐUR E. Guðmundsson varð
efstur í prófkjöri Alþýðuflokksins í
Keykjavík, hlaut 767 atkvæði í 1.
sætið og 1.692 atkvæði alls, en Sjöfn
Sigurbjörnsdóttir hlaut 749 atkvæði
í það sæti. Sjöfn hlaut hins vegar
flest atkvæði samtals eða 1.779 og
1.374 atkvæði í 1. til 2. sætið og
bindandi kosningu í 2. sætið. Bjarni
P. Magnússon varð í 3. sæti, hlaut
1.139 í 1. til 3. sætið og alls 1.701
atkvæði. í 4. sæti varð Guðríður
Þorsteinsdóttir með 1.197 atkvæði í
3. til 4. sæti og 1.612 atkvæði alls.
Bragi Jósepsson varð í 5. sæti
með 934 atkvæði í 1. til 5. sæti og
1.065 alls. I 6. sæti varð Asta
.500 manns atkvæði
Benediktsdóttir með 1.304 atkvæði
í 5. til 6. sæti og bindandi kosn-
ingu. í 7. sæti var Snorri Guð-
mundsson með 1.078 atkvæði í 1.
til 6. sæti, í 8. sæti varð Grétar
Nikulásson með 960 atkvæði, Guð-
mundur Haraldsson varð í 9. sæti
með 789 atkvæði í 4. til 6. sæti,
Skjöldur Þorgrímsson í 10. sæti
með 699 atkvæði í 1. til 6., Jón
Hjálmarsson varð í 11. sæti með
638 atkvæði í 3. til 6. sæti og 12.
varð Marías Sveinsson með 399 at-
kvæði í 1. til 6. sæti. Atkvæði
greiddu 2.545 en ógild voru 165 at-
kvæði. I síðasta prófkjöri Alþýðu-
flokksins í Reykjavík greiddu
2.893 atkvæði.
Sigurður E. Guðmundsson:
Stefnum að því að
fá fjóra menn kjörna
í næstu kosningum
„(•:<; er auóvilað afar þákklátur fyrir
þetla mikla traust og stuóning, sem mér
var veittur í þessu prófkjöri. Mér er
ánægja að geta sagt frá því að þessi
prófkjörsbarátta, sem háð var, var mjög
drengileg á allan mála eftir því, sem ég
bezt vcit. I’ersónulega er ég líka þeirrar
skoðunar að það hafi tekizt alveg sér
lega vel til, því mér finnst niðurstaða
prófkjnrsins gefa nkkur Alþýðuflnkks-
mönnum mjög sterkan lista og gntt
mannval og því erum við bjartsýn með
að fara fram með þennan lista í komandi
kosningum," sagði Nigurður K. (luð-
mundsson, sem varð í efsta sæti í próf-
kjöri Alþýðuflokksins í Keykjavík, er
Morgunblaðið ræddi við hann.
„Við stefnum þvi alveg hiklaust að
því að fá fjóra borgarfulltrúa kjörna í
vor, vegna þess að miðað við atkvæða-
tölur frá 1978 hefðum við nú 3 menn
inni samkvæmt fjölgun borgarfulltrúa
í 21 og nú finnst okkur allar aðstæður
gefa okkur tilefni til bjartsýni og því
getum við gert okkur vonir um að fá 4
menn kjörna og að því munum við
örugglega stefna. Mér finnst niður-
stöður prófkjörsins sanna það sem ég
sagði á fundi hjá Alþýðuflokknum
nokkrum dögum áður en prófkjörið fór
fram, að ég vænti þess að við kæmum
heldur sterkari út úr prófkjörinu held-
ur en við færum í það og mér finnst að
niðurstaðan sýni að svo hafi orðið."
Viðhjá Heimilistækjum hf höfum aldrei
boðið ódýrari
heimilistæki en einmitt núna!
Vegna tollalækkana, sem nýlega tóku gildi, lækkaði útsöluverð nokkurra gerða heimilistækja mjög verulega.
Við hjá Heimilistækjum hf. erum reyndar ekki í nokkrum vafa um að verðið er hagstæðara en nokkru sinni
fyrr. Þessvegna ætlum við að nefna nokkur dæmi:
Philco þvottavélar: Verð frá kr. 6.129.- Philips uppþvottavélar: Verð frá kr. 8.458.-
Philips og Philco kæliskápar: Verð frá kr. 3.806.- Philips brauðristar: Verð frá kr. 429.-
Philco þurrkarar: Verð frá kr. 5.235.- Philips hrærivélar: Verð frá kr. 1.926.-
Philips og Caravell frystikistur: Verð frá kr. 5.998.- Philips ryksugur: Verð frá kr. 1.772.-
PS. Tollur á eldavélum lækkaði
ekki, en samt kosta Philips
eldavélar aðeins frá kr. 3.486.-
Kannaðu málið!
heimilistæki hf
HAFNARSTRÆTI 3 — 20455 SÆTÚNI 8 —15655