Morgunblaðið - 16.02.1982, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 16.02.1982, Blaðsíða 21
20 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1982 MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1982 29 fðm&w Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson. Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö- alstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift- argjald 100 kr, á mánuöi innanlands. í lausasölu 6 kr. eintakiö. Vanmáttur framsóknarmanna Framsóknarmenn hrósuðu sér af því fyrir tveimur árum, þegar ríkisstjórnin var mynduð, að efnahagsvandi þjóðarinnar væri þar með úr sögunni — niðurtalning verðbólgunnar myndi hefjast og á árinu 1982 yrði hún komin niður í það sama og í öðrum nágrannaríkjum. I ársbyrjun 1981 voru framsóknarmenn þó enn glaðari en ári fyrr og slógu því föstu, að niðurtalningin væri hafin. Þeir töldu efnahagsaðgerðir ríkisstjórnarinnar mótast af stórhuga baráttuanda sínum gegn verðbólgunni. í fréttatíma sjónvarpsins á sunnudaginn var skýrt frá mati OECD, Efnahags- og framfara- stofnunarinnaf, á árangrinum af niðurtalningunni á sðasta ári, verðbólgan á Islandi var sögð hafa verið rúm 47%, langtum meiri en í nokkru öðru OECD-ríki. Augljóst er, að engin ríkisstjórn á Islandi hefur á liðnum verðbólguáratug framsóknarmanna sett sér óraunhæfara markmið en þessi, þegar því var lýst yfir fyrir tveim- ur árum, að nú í ár, 1982, hefði efnahagsstefna stjórnarinnar leitt til sigurs á hinum sér íslenska verðbólguvanda. Það er ef til vill ekki undarlegt, þótt við þessar aðstæður séu forystumenn Framsóknarflokksins ekki mjög borubrattir, þegar þeir flytja mál sitt frammi fyrir alþjóð og kjósendum sínum. Fram eftir þessum vetri hafa þeir þó reynt að láta líta svo út, sem þeir hefðu enn eitthvað að segja innan ríkisstjórnarinnar og ætluðu sér stóra hluti í átökunum við verðbólguna. Á meðan Steingrímur Hermannsson, formaður flokksins, dvaldist erlendis fyrir jól, barði Tómas Árnason, viðskiptaráðherra, sér á brjóst í sölum Alþingis og lét orð falla um það, hve framsóknarmenn yrðu kröfuharðir innan ríkisstjórnarinnar við mótun þeirra efnahagsráðstafana, sem þá voru yfirvofandi — niðurtalningunni yrði svo sannarlega haldið áfram og hún þyrfti að ná jafnt til launþega sem annarra. Komm- únistar snerust hart við þessum orðum Tómasar, og sögðu, að honum, verðlagsmálaráðherranum, færist ekki að tala um verð- bólgu og aðgerðir gegn henni, hann skyldi fyrst líta í eigin barm, áður en hann færi að tala um niðurtalningu hjá öðrum. í krafti fjármálaráðherraembættisins tóku kommúnistar síðan ráðin innan ríkisstjórnarinnar, nú skyldi ríkishítin notuð til að leika á vísitöl- una og skattgreiðendur látnir borga eigin launalækkun með aukn- um niðurgreiðslum. Vitlausari „úrræði" eru ekki til miðað við nú- verandi aðstæður og auðvitað valdi ríkisstjórnin þau með samþykki framsóknarmanna. Þegar fjármálaráðherra gaf fyrst til kynna opinberlega, hvað fyrir honum og kommúnistum vekti í efnahagsmálum, lét Stein- grímur Hermannsson málgagn sitt Tímann hafa viðtal við sig, þar sem hann sagði, að það „hrikti í stjórnarsamstarfinu", þegar menn sæju slíkar hugmyndir opinberlega, sem fjármálaráðherra hefði. Sagði Steingrímur, að þingflokkur framsóknarmanna gæti aldrei sætt sig við þær, hann vildi annað og meira meðal annars breyt- ingu á vísitölugrundvellinum. Þegar „úrræði" ríkisstjórnarinnar voru kynnt, kom í ljós, að ekki var neitt að marka yfirlýsingar forystumanna framsóknar frekar en fyrri daginn. Hefur enn einu sinni sannast, að í samstarfi kommúnista og framsóknarmanna gildir sú regla, að í efnahagsmálum „éta framóknarmenn allt oní sig“, svo að notuð séu orð Ólafs Jóhannessonar um kommúnista af öðru tilefni. Vanmáttur framsóknarmanna í reiptoginu við kommúnista um mótun efnahagsstefnunnar er augljós. Hitt er jafn ljóst, að áhrif framsóknarmanna á landstjórnina eru þveröfug við það, sem for- ystumenn þeirra segja. Allt frá 1971 hafa þeir sagst vera í slag við verðbólguna, „árangurinn" er öllum ljós nema þeim sjálfum. Kjós- endur einir geta sýnt Framsóknarflokknum það svart á hvítu, hve lítils virði innihaldslaus stóryrði forystumanna hans og málgagns eru. Samkeppni banka Þess hefur gætt í vaxandi mæli á undanförnum árum, að bank- ar hafa sóst eftir viðskiptavinum með því að bjóða þeim aukna lánaþjónustu. Þá hafa bankar einnig aukið ráðgjafaþjónustu við viðskiptavinina. Eðlilegt er, að samkeppni sé milli banka eins og annarra þjónustuaðila. Hún nær þó ekki að þróast með eðlilegum hætti nema almenn starfsskilyrði bankanna séu hin sömu. Til dæmis er tímabært að aflétta einokun tveggja ríkisbanka á gjald- eyrisviðskiptum og heimila bæði bönkum og sparisjóðum að stunda þau samkvæmt eigin ákvörðun og að uppfylítum almennum skil- yrðum. Hlutur ríkisins í fjármálalífinu er meiri hér en víða annars staðar í lýðræðisríkjum. Með því að bjóða raunhæfa ávöxtun á sparifé hafa innistæður í bönkum aukist. Eðlilegt er, að þetta fé nýtist borgurunum, samtökum þeirra og fyrirtækjum fyrir meðal- göngu bankastofnana. Hin aukna lánaþjónusta er gleðilegt merki um þetta, hinu má þó ekki gleyma, að ríkisforsjármenn í ráðherra- stólum vilja sölsa sífellt stærri hlut af sparifénu undir sig — íhlutun þeirra á að hafna. AUGU þeirra fjölmörgu áhorfenda, sem lögðu leid sína að Kjarvalsstöðum í gærkvöldi, beindust að skák þeirra Helga Olafssonar og Lev Alburts frá Bandaríkjunum. Helgi stýrði svörtu mönnunum og tefld var svokölluð Ben-Oni vörn. Skákin þróaðist eins og skák Birnboims og Jóns L. Árnasonar á svæðamótinu í Randers á dögunum, en Jón vann þá glæsiiega. Alburt tókst að endurbæta taflmennsku Birnboims og mannsfórn Helga reyndist ekki duga. Helgi varð að sætta sig við verra tafl og gaf skákina eftir 32 leiki. Skákin var allan tímann mjög skemmtileg og spennandi á að horfa, en heldur fannst mönnum hún hafa verið glæfralega tefld hjá Helga. hann viðurkenndi það að skákinni lokinni. „En það varð ekki aftur snúið." Korchnoi eyddi mikl- um tíma í að skýra skákin, aðra stundina hallaðist hann á sveif með Helga, en þá næstu sá hann ekkert nema sigur Alburts og sú varð raunin á. Með þessum sigri tók Lev Alburt, stigahæsti maður mótsins, ásamt Adorjan frá Ungverjalandi, forystu á mótinu. Hann hefur hlotið 5 vinn- inga, en Gurevich, sem á heldur betri biðskák gegn Burger, gæti náð honum að vinningum. Sjö skákir fóru í bið í gærkvöldi og staða manna er því nokkuð óljós. Helgi Olafsson er þó enn í einu af efstu sætunum með 4‘k vinning og getur enn náð áfanga að stórmeistaratitli. Haukur Angantýsson bar sigur- orð af Friðrik Ólafssyni. Sá síðar- nefndi virtist lengst af skákinni hafa jafnteflið í hendi sér, en undir lokin hrjáði tímahrakið Friðrik og er hann féll á tíma var staða hans verri. Skák Bajovic og Guðmundar Sigurjónssonar lauk með jafntefli og sama er að segja um viðureign þeirra Adorjans og Jóns L. Árna- sonar. Jóhann Hjartarson tapaði fyrir Robert Byrne og skák þeirra Jóhannesar Gísla Jónssonar og Margeirs Péturssonar fór í bið, staða Margeirs var heldur vænlegri. Schneider vann Ivanovic í skemmtilegri skák, sem hér fer á eftir. Hvítt: Boris Ivanovic, Júgóslavíu. Svart: Lars Ake Schneider, Svíþjóð. 1. e4 — c5, 2. Rf3 — Rc6, 3. d4 — cxd4, 4. Rxd4 — Rf6, 5. Rc3 — d6, 6. Bg5 — e6, 7. I)d2 — a6, 8. (HH) — Bd7, 9. Del — Be7,10. f4 — h6, 11. Bxf6 — Bxf6, 12. e5, — Be7, 12. Rf5 — exf5, 14. exd6 — Be6, 15. dxe7 — Dxe7, 16. g3 — 0-0, 17. (I.jósm. KAX). Jafnt í skáksalnum sem utan hans var það skák Alburts og Helga Úlalssonar, er aui aiia athygli manna. Alburt vann Helga og hefur tekið forystuna X.REYKJAVIKUR SKÁKMOTIÐ Bg2 — llacS, 18. Df2 — Rb4, 19. Hhel — Hxc3, 20. bxc3 — Rxa2+, 21. Kb2 — Rxc3, 22. Hd4 — Dc5, 23. De3 — Hc8, 24. Dd3 — Da5, 25. He5 — Ra4+, 26. Kcl — Rc5, 27. Hxc5 — Hxc5, 28. Bf3 — Hc3. Hvítur gaf. Staðan á mótinu að loknum sex umferðum er þessi: 1. Lev Alburt USA 5 2. -3. Helgi Ólafsson og Schneider Svíþjóð 4 'k 4.-5. Gurevich USA, Burger USA 4 og biðskák. 6.-9. Adorjan Ungverjalandi, Jón L. Árnason, Robert Byrne USA, Knut Helmers Noregi 4. 10, —13. De Firmian USA, Sahovic Júgóslavíu, Abramovic Júgóslavíu, Wedberg Svíþjóð 3 'A og biðskák. 14.—18. Ivanovic Júgóslavíu, Zalts- man USA, Haukur Angantýsson, Bischoff V-Þýzkalandi, Sævar Bjarnason Vk. 19,—21. Shamkovic, USA, Kogan, USA, Horvath, Ungverjalandi 3 og biðskák. 22.-26. Jóhann Hjartarson, Kaizauri Svíþjóð, Guðmundur Sigurjónsson, Bajovic Júgóslavíu, Iskov Danmörku 3 vinningar. 27.—31. Höi Danmörku, Margeir Pét- ursson, Forintos Ungverjalandi, Jó- hannes Gísli Jónsson, Kráhenbuhl Sviss 2'k og biðskák. 32.—41. Friðrik Ólafsson, Kuligowski Póllandi, Westerinen Finnlandi, Kindermann V-Þýzkalandi, Frey Mexíkó, Hilmar Karlsson, Elvar Guð- mundsson, Grúnberg V-Þýzkalandi, Leifur Jósteinsson, Stefán Briem 2'k. 41.—43. Benedikt Jónasson 2 og bið- skák. 44.-46. Savage USA, Karl Þorsteins, Júlíus Friðjónsson 2. 47.-48. Goodman Englandi, Dan Hansson 1 'k og biðskák. 49.—50. Róbert Harðarson, Ásgeir Þór Árnason 1 'k. 51.—53. Magnús Sólmundarson, Jónas P. Erlingsson, Jóhann Örn Sigur- jónsson 1. 54. Jóhann Þórir Jónsson 'k og bið- skák. — áij. 4. umferð: Haukur tap- aði slysalega FJÓRÐA umferð Reykjavíkurskák- móLsins, sem tefld var á laugardag, var umferð mikilla sviptinga og ólíkt skemmtilegri heldur en líflítil þriðja umferðin síðastliðinn fimmtudag. Helgi Ólafsson lagði Kindermann að velli í skemmtilegri skák. Þegar Þjóð- verjinn lagði niður vopnin stóðu öll spjót á honum og Helgi hafði hótanir á hraðbergi. Jón L. Árnason tefldi sömu- leiðis mjög vel og vann Savage. Laugardagurinn var ekki dagur ís- lenzku stórmeistaranna því Friðrik tapaði fyrir Svíanum Wedberg og Guðmundur fyrir Adorjan frá Ung- verjalandi. Haukur var kominn með betri stöðu gegn Kogan, en fann ekki rétt svör við hótunum andstæðings- ins og tapaði skákinni slysalega. Margeir var með svart gegn De Firmian og þáði jafntefli er Banda- ríkjamaðurinn hafði orð á slíku eftir aðeins 10 leiki. Jóhann Hjartarson stóð sig vel og vann Krahenbuhl frá Sviss. ÍJrsIit í 4. umferðinni urðu þessi: Ivanovic - (íurevich 0-1 Forinlou - Schneidcr 0-1 llc*lj(i ÓlafsMin Kindcrmann 1-0 Alhurl - WesUTÍncn 1-0 Wedherg - Fridrik ()lafs.son 1-0 Adorjan (iudmundur Sij;urjóns.s<in 1-0 llelmers - Byrne •/r'/j Burger - Shamkovic 1-0 Ik* Firmian - Marjjeir PéturuMon '/r'/j llaukur Anganlýason Kojjan 0-1 Ahramovic - Kulij;owski 1-0 Mednis - Kais/auri 0-1 Sahovic - (ioodman 1-0 Jón L Árnason Savajje H) Jóhann lljartarson - Krahenbuhl 1-0 Leifur Jósteinsson - Horvath (H /altsmann - ('. Ilöi 1-0 Hischoff - Ásjjeir I*. Árnason 1-0 Iskov - Sævar Kjarnason 0-1 Júlíus Kridjónsson Bajovic 0-1 Klvar (•uómundsson - Ifilmar Karlsson 1-0 Jóhannes (tísli Jónsson - Karl Porsteins 1 r' 2 (■runberg - Benedikt Jónasson ' r' i Jóhann ()rn Sij»urjónsson - Krey 1 r* i Jónas I*. Krlinjf.sson - Majjnús Sólmundarson 1-0 Jóhann l»órir Jónsson - Stefán Briem (H Hóbert llaróarson - l)an llansson |-0 — áij 5. umferö: Gurevich missti þráðinn og Helgi gekk á lagið HELGI Ólafsson vann sigur gegn Bandaríkjamanninum Gurevich í 5. umferð, sem tefld var á sunnudag, á Reykjavíkurskákmótinu. Helgi átti lengst af undir högg að sækja, en Gur evich missti þráðinn í endataflinu og Helga tókst að knýja fram sigur og náði forustu eftir 5 umferðir, með 4'k vinning. „Ég hélt ég væri lengst af að berj- ast við að ná jöfnu. Gurevich hafði betri stöðu lengi, en ég held að hann hafi leikið af sér í 30. leik þegar hann ákvað að fara út í endataflið og drap riddara minn á d7. Raunar var ég smeykur við þennan leik, en eins og skákin tefldist kom í ljós, að þetta reyndist rangt mat og frípeð mín á b-línu gerðu gæfumuninn. Gurevich þekkti byrjunina vel og greinilega gjörþekkti hana, en réð ekki við stöð- una í lokin," sagði Helgi Ólafsson í viðtali við blaðamann Mbl. Kemur frammistaða þín hér þér á óvart, eftir fremur slaka útkomu á svæðamótinu í Danmörku? „Ég var í sjálfu sér ekki óánægður með taflmennsku mína í Danmörku, en það háði mér að ég hafði teflt lítið á alþjóðlegum skákmótum um nokk- urt skeið. Nú hins vegar finnst mér mótið í Danmörku hafa komið mér að góðum notum, en auðvitað er ómögulegt að segja til um framvindu mála hér. Ég læt hverri skák nægja sína þjáningu, ef svo má að orði kom- ast,“ sagði Helgi. ílrslit skáka í 5. umferð urðu: (■urevic - llelgi Olafsson 0-1 Schneider - Alburt 0-1 Wedberg - Adorjan '/r'/* Kogan - Burger 0-1 Byrne - Abramovic ' r'/i Margeir IVMursson - Ivanovic (H De Firmian - Forintos 1-0 Kindermann - Sahovic 0-1 Jón L. Arnason - /altsman I () llorvalh - llelmers ’/rVi Kaus/uari - Jóhann lljartarson x/rV,i Friðrik Olafsson - Kischoff 1 r'/i Shamkovic - Klvar (iuðmundsson lO Weaterinen - Bajovic ’/r'/i Sævar Bjarnason - llaukur Angantýsson 1 r'* (iuðmundur Sigurjónsson - Mednis X/rx/1 Kulijjowski - læifur Jósteinsson IO Stefán Briem - Höi 0-1 Asjjeir l»ór Árnason Jóhannes Jónsson 0-1 (ioodman - Kenedikt Jónasson biðskák Savajje Jónas I*. Krlinjjsson 1 r'/2 Krahenbuhl - Kólwrl llarðarson IO Karl l»orsieins - lskov (H Frey Júlíus Friðjónsson IO Majjnús Sólmundarson - (irunberjj 1 r' * llilmar Karlsson Jóhann ()rn IO I)an llansson - Jóhann l»órir biðskák Lev Alburt, Bandaríkjunum, vann næsta auðveldan sigur á Svíanum Schneider og er ljóst, að hann verður Helga skeinuhættur. Jón L. Árnason var eini íslenzki titilhafinn, fyrir utan Helga, sem vann á sunnudag. Hann sigraði Zaltsman nokkuð ör- ugglega, en hins vegar tapaði Mar- geir fyrir Ivanovic, lék af sér manni undir lokin. Guðmundur Sigurjóns- son gerði sitt þriðja jafntefli og í öllum tilvikum hefur hann verið herzlumun frá því að sigra og að því leyti óheppinn; kannski situr hið langa og stranga mót í Danmörku enn í honum. Vantar neistann til að nýta betri stöðu til vinnings. Mikil spenna var undir lokin í viðureign hans við Mednis og lentu báðir í miklu tímahraki. Klukkan féll á Mednis, en þegar leikirnir voru tald- ir kom í ljós að þeir höfðu leikið 48 leiki, en tímamörkin eru við 45 leiki, svo Mednis slapp með skrekkinn, en Guðmundur hafði mjög saumað að Bandaríkjamanninum, án þess þó að finna vinningsleið í tímahrakinu. - H.Halls. Úrslit í 6. umferð ÚRSLIT í sjöttu umferð: Alburl - llcljji Burjjcr - (iurevich Adorjan - Jón L. Ivanovic - Schncidcr Abramovic - De Firmian Sahovic - Wedberjj Jóhann - Kyrne llorvalh - Shamkovic llöi - Kojjan llelmers - Kaiszauri llaukur - Friórik ZalLsman Kulijjowski Bischoff - Westerinen Kajovie - (iuómundur Jóhannes (.ísli - Margeir Forinlos - Krahenbuhl Sævar - Kindermann Mednis Savajje Benedikt - Frey Iskov - (.oodman Jónas IV llilmar Klvar - Karl (irunlHTj; - Ásgeir lx*ifur - Maj;nús KóImtI Stefán Jóhann Örn - Dan llansson Jóhann l*orir - Júlíus l-ö biðskák 1 r' 2 0-1 biðskák biðskák 0-1 hiðskák biðskák 1-0 1-0 1-0 1-0 'r'í biðskák hiðskák 1-0 1-0 'r'/j 1-0 'r'j ' r'/j 1-0 10 0-1 0-1 0-1 Sýning handrita og í Bandaríkj unum bóka Eftir dr. Jónas Kristjánsson^ for- stöðumann Árna- stofnunar Nokkrar umræður hafa að undanförnu orðið í Morgunblað- inu um hugsanlega sýningu ís- lenskra handrita í Pierpont Morgan bókasafninu í New York. Ritstjóri Morgunblaðsins, Matthías Johannessen, hefur verið svo elskulegur að bjóða mér rúm í blaðinu til að gera stutta grein fyrir aðdraganda þessa máls, og fyrir mínu sjón- armiði sérstaklega. Segja má að við Islendingar höfum einkum tvenns konar skyldur gagnvart hinum gömlu handritum sem okkur hafa bor- ist heim frá Danmörku. Okkur ber að varðveita þau svo vel sem kostur er, fyrir öllum bráðum háska og fyrir þeirri hægfara eyðingu sem tíminn vinnur á öll- um hlutum. Og okkur ber að hagnýta handritin með ýmsum hætti. Við gerum úr garði nýjar útgáfur sem byggðar eru á hand- ritunum sjálfum, og þessar út- gáfur eru síðan undirstaða undir fræðilegum rannsóknum, alþýð- legum lesútgáfum og þýðingum á erlend mál. Við gefum út ljósprentaðar eftirmyndir sjálfra handritanna. Við höldum handritasýningar þar sem inn- lendum og erlendum gestum gefst kostur á að skoða handritin með eigin augum. Við hlynnum að rannsóknum á tungu okkar, bókmenntum og sögu, og leit- umst við að veita öðrum þjóðum hlutdeild í þeirri miklu auðlegð sem í handritunum er fólgin. Ég leyfi mér að halda því fram að við höfum rækt vel þær skyld- ur sem heimkoma handritanna leggur okkur á herðar. Reist var nýtt handritahús með fullkomnu geymslurými. Traustir gæslu- menn vaka yfir handritunum allar nætur og helga daga. Sett var á fót öflug rannsóknastofn- un með sérhæfðu starfsliði. Út- gáfubækur Árnastofnunar eru nú komnar á þriðja tug, auk nokkurra ljósprentana. Nú hefur verið tekin upp sú nýbreytni að ljósprenta hin fegurstu forn- handrit í réttum litum, og standa þær útgáfur jafnfætis því besta sem gert er í heiminum á þessu sviði. Svo sem flestum lesendum þessa blaðs mun kunnugt stend- ur til að hafa mikla norræna sýningu í Bandaríkjunum á hausti komanda. „Scandinavia today" á hún að heita — hvort sem öllum mun þykja það rétt- nefni. í lauslegum tengslum við þessa samnorrænu sýningu munu síðan vera fyrirhugaðar sérsýningar frá hverju landi. Heyrt hef ég að í öndverðu væri um það rætt að kynna á hinni íslensku sýningu bókmenntir okkar og myndlist frá fornöld til nútíðar. Síðar virðist þessi sér- sýning hafa skroppið nokkuð saman, og er nú ætlunin að ein- skorða hana við kynningu forn- bókmennta okkar og við kynn- ingu hinna elstu íslensku prent- uðu bóka. Ekki veit hvar sú hugmynd er í öndverðu upp kom- in að hafa handrit til sýnis á hinni íslensku bókmenntasýn- ingu, en tilmæli bárust mér munnlega frá þáverandi fulltrúa utanríkisráðuneytis í fram- kvæmdanefnd sýningarinnar. ís- lensk handrit hafa ekki fyrr ver- ið send til sýningar erlendis, og má því segja að hér sé um nokk- urs konar prófmál að ræða. Þyk- ir mér því rétt að gera stuttlega grein fyrir því hversu háttað hefur verið sendingum og lánum íslenskra handrita milli landa fram til þessa. Meðan íslensku handritin voru í Kaupmannahöfn voru þau jafn- an lánuð greiðlega hingað til lands til fræðilegra nota. Sama máli gegndi um íslensk handrit í Stokkhólmi, en á þessum tveim- ur stöðum voru mest söfn fornra íslenskra handrita. Eftir að handritin tóku að berast heim hefur sömu stefnu verið fram haldið um lán til fræðilegra af- nota; en ég hef hin síðari ár beitt mér fyrir því að hætta ekki hin- um dýrmætustu handritum milli landa nema brýna nauðsyn beri til, svo sem vegna hinna vönduðu ljósprentana sem nú er unnið að hér á landi og fyrr er getið. í stað handritasendinga leysum við vandann með samvinnu milli stofnananna í Reykjavík og Kaupmannahöfn eða með því að senda fræðimennina sjálfa milli landa. Stundum voru íslensk handrit send frá Kaupmannahöfn til sýninga í öðrum löndum, og skal ég nefna tvö dæmi þess. Sumarið 1966 var Biblíusýning í Háskóla- bókasafninu Osló. Þar var meðal annars til sýnis handritið AM 227 fol., eitt hið fegursta forn- handrit íslenskt sem til er, Stjórnarhandritið sem dr. Selma Jónsdóttir hefur fjallað um í sér- stakri bók. Þarna lá þessi dýr- gripur langtímum saman í and- dyri safnsins, gæslulaus að því er virtist, í heldur veigalitlum trékassa. Ólíklegt þykir mér að handritið hafi verið léð til þess- arar sýningar án vilja og vitund- ar þáverandi forstöðumanns Árnastofnunar í Kaupmanna- höfn, Jóns Helgasonar. Nokkrum árum síðar var hald- in í Stokkhólmi mikil sýning ís- lenskra handrita sem þangað voru léð frá Kaupmannahöfn. Óhætt er að segja að sum þau handrit sem þar voru sýnd voru ekki valin af verri endanum. Allt fór það vel, og hefur væntanlega „Það er skodun mín að íslensk handrit megi stöku sinnum, og að fullnægðum tilteknum skilyrðum, hagnýta sem sýningargripi, einnig í öðrum lönd- um. Skilyrðin eru fyrst og fremst þau að fyllsta öryggis sé gætt og aldrei séu lánuð þau handrit sem teljast verða mestir kjörgrip- I)r. Jónas Kristjánsson. orðið Svíum til nokkurs fróð- leiks. Varðandi hina fyrirhuguðu sýningu í New York langar mig að taka fram eftirfarandi atriði: 1. Þetta er íslensk sýning, haldin að frumkvæði íslenskra stjórnvalda og kostuð af þeim að mestu leyti. Tilmæli bárust mér frá utanríkisráðuneyti, eins og fyrr segir, og síðan bárust stjórnarnefnd Árna- stofnunar skrifleg tilmæli frá menntamálaráðuneyti um að fela stofnuninni og starfs- mönnum hennar að gera til- lögur um gerð sýningarinnar í samráði við stjórnarnefndar- aðila „Scandinavia today 1982". Samkvæmt þessum til- mælum höfum við stofnun- armenn gert drög að tillögum um handrit til sýningar, og þegar sú skrá verður fullbúin mun hún verða lögð fyrir rík- isstjórnina til samþykktar eða synjunar. 2. Pierpont Morgan-bókasafnið hefur verið valið til að annast sýninguna af íslenska sendi- ráðinu í Washington. Safn þetta hefur mikla reynslu í sýningarhaldi, og hafa þar iðulega verið sýndir ýmsir kjörgripir heimslistarinnar, fengnir frá Evrópulöndum. Við höfum kynnt okkur vand- lega allar aðstæður og þær ör- yggisráðstafanir sem safn þetta viðhefur varðandi flutn- ing og varðveislu sýningar- gripa. Óhætt er að staðhæfa að þær eru svo fullkomnar sem best. verður á kosið. 3. Til sýningar verða ekki valin nein þau handrit sem dýrmæt- ust má telja, svo sem Flateyj- arbók, Konungsbók eddu- kvæða, Skarðsbók Jónsbókar eða Reykjabók Jónsbókar. Forstöðumaður safnsins, Charles Ryskamp, annast persónulega um skipulag þess- arar sýningar, enda hefur hann lesið íslenskar fornsögur við Yale-háskólann á yngri ár- um og hrifist mjög af þeim sem vænta má. Hann hefur nú komið hingað til lands og er fullkomlega ánægður með þau handrit sem valin verða til sýningarinnar, skilur vel það sjónarmið okkar að lána ekki hina mestu kjörgripi. Flest þau handrit sem valin verða eru Jónsbókarhandrit, en Jónsbók er til í hinum mesta fjölda uppskrifta, eldri og yngri; enginn veit gjörla tölu þeirra, enda mörg í einkaeigu, en stundum er giskað á um það bil 250 handrit alls. 4. Auk þess að kynna íslenskar fornbókmenntir verður sýn- ingin helguð landnámi Græn- lands og Vínlandsferðunum. Það er kunnara en frá þurfi að segja að þar eigum við íslend- ingar undir högg að sækja, að fá viðurkennt að það voru ís- lenskir menn sem unnu þau miklu afreksverk. Við opnun sýningarinnar mun einmitt verða haldið erindi um þetta efni. 5. Charles Ryskamp hefur í hyggju að bjóða til New York öllum þeim sem kenna ís- lensku eða íslenskar bók- menntir við háskóla í Banda- ríkjunum og Kanada. Mun það verða til uppörvunar þeirri kennslu og gæti orðið vísir að nánari samvinnu þessara há- skólakennara. Að lokum vil ég segja þetta: Það er skoðun mín að íslensk handrit megi stöku sinnum, og að fullnægðum tilteknum skil- yrðum, hagnýta sem sýningar- gripi, einnig í öðrum löndum. Skilyrðin eru fyrst og fremst þau að fyllsta öryggis sé gætt og að aldrei séu lánuð þau handrit sem teljast vera mestir kjörgrip- ir. Það sem hér hefur sagt verið eru mínar skoðanir, en ég tala ekki fyrir hönd samstarfamanna minna við Árnastofnun. Mig grunar að sumir þeirra muni vera enn tregari til handritalána en ég, þótt þeir hafi á húsþingi okkar viljað verða við þessum tilmælum íslenskra stjórnvalda. Greinargerð vegna fyrirhugaðrar sýn- ingar á íslenskum handritum í New York Hluti af starfsemi Árnastofn- unar hefur verið að kynna íslensk handrit á sýningum sem haldnar eru árlega á vegum stofnunarinn- ar í Árnagarði. Einnig hafa hand- rit nokkrum sinnum verið lánuð á sýningar innanlands, þegar þótt hefur tryggt að gætt væri fyllsta öryggis. Með því hefur stofnunin viljað auðvelda almenningi að kynnast handritunum af eigin sýn. Engu að síður er það vilji starfsmanna að handritin fari sem minnst úr húsi stofnunarinn- ar, enda ætti öryggi þeirra að vera þar best tryggt. Áf þessum sökum hefur verið lagst gegn lánum á sýningar erlendis. Samkvæmt Lögum um Stofnun Árna Magnússonar á íslandi 29. maí 1972, nr. 70, heyrir stofnunin undir menntamálaráðherra, „en undir ríkisstjórnina um varðveizlu og umsjón með handritum þeim og skjalagögnum, sem til íslands verða flutt frá Danmörku, sbr. 2. gr.“ Starfsmenn stofnunarinnar hafa fullan skilning á því að stjórnvöld telji æskilegt að íslensk handrit séu kynnt almenningi á aðgengilegan hátt og þá jafnvel í einstaka tilfelli með lánum á sýn- ingu erlendis, ef tryggt þykir að þar sé gætt fyllsta öryggis bæði við flutning handrita og á meðan á sýningu stendur. Jafnframt er auðsætt að það getur ekki verið ósk okkar að handrit séu lánuð til sýningar út af stofnuninni, enda höfum við aldrei átt frumkvæði að áætlun í þá veru. Bjarni Einarsson, Einar G. Pétursson, Hallfreður Örn Eiríksson, Jón Samsonarson, Ólafur Halldórsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.