Morgunblaðið - 16.02.1982, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 16.02.1982, Qupperneq 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1982 Rud Thygesen og Johnny Sörensen Myndlist Bragi Ásgeirsson Það er svo sannarlega þess virði að líta inn í vestursal Kjarlvalsstaða en þar eru til sýnis húsgögn eftir þá frægu dönsku arkitekta Rud Thygesen og Johnny Sörensen. Allt frá því að þeir félagar útskrifuðust úr húsgagnaháskóla listiðnaðar- skólans árið 1966 hafa þeir unnið saman að hinum aðskiljanleg- ustu verkefnum. Þeir voru jafn- vel áður en skólanámi lauk farn- ir að sanka að sér verðlaunum, sem þeir hafa og gert allar tíð síðan, jafnframt því sem þeir hafa verið heiðraðir af ýmiss- konar styrktarsjóðum. Húsgögn eftir þá hafa verið keypt af söfn- um austan hafs og vestan m.a. hefur Nútímalistasafnið í New York fest sér verk eftir þá. Það mætti því vera ljóst af þessari upptalningu, að hér eru engir aukvisar á ferð og sérhverjum verður það ennþá ljósara eftir innlit á hina frábærilega vel uppsettu og vönduðu sýningu, að Kjarvalsstöðum. Vel formuð húsgögn skipta miklu máli á tímum harla ómerkilegrar og staðlaðrar fjöldaframleiðslu á því sviði sem öðrum. Hér er hugsað um allt í senn notagildi, þægindi og fagurt útiit. Við hér heima höfum fengið að kynnast slíkum viðhorfum á nokkrum ágætum sýningum islenzkra húsgagnasmiða, sem ættu að vera árviss viðburður. Húsgögn skipta svo miklu máli í daglegu lífi hvers og eins, hafa áhrif á skap manna og vellíðan og því er hverjum og einum mikill vandi á höndum er hann velur sér slíka hluti í híbýli sín. Það lætur að líkum, að hús- gögn eiga sér langa þróunarsög- CHRYSLER LE BARON ‘81 fEnn einu sinni getum við boðið fáeina hverjar hinar mestu „lúxus drossíur” sem super deluxe Chrysler LeBaron ’81 4 dr hér er völ á, enda á LeBaron stóran hóp og station, á ótrúlegu verði. Petta eru ein- aðdáenda á Islandi. Af útbúnaði má nefna: leðurklætt stýrishjól, veltistýri, rafmagnslæst skottlok, rafmagns- rúður, stuðpúða á stuðurum, elektróniska digital klukku, öll gler lituð, hita í aftur- rúðu, læst mismunadrif, sjálfskiptinu, vökvastýri, aflhemla, sérstaklega bólstruð pluss sæti, auka Ijósabúnað, deluxe hljóð- einangrun og m.m.fl. Við bjóðum þessa bfla á sérstöku verði, sem innifelur afslátt allt að kr. 20.000.00 frá fullu verði. Verð með afslætti: LeBaron Wagon LeaBaron 4DR LeBaron 4DR (Verð miðuð við gengi pr. 04.02.82). 6 cyl Kr. 279.617 6 cyl Kr. 262.726 8 cyl Kr. 266.924 Ö Ifökull hf. Ármúla 36 Sími: 84366 ur sem listgrein og engu ómerk- ari en t.d. byggingarlistin, — um það geta allir sannfærst er skoða hin stóru listasöfn t.d. Ríkislistasafnið í Amsterdam. Kjallari safnsins er heimur út af fyrir sig sem margborgar sig að skoða vel og vandlega, því að þar má sjá marga gimsteinana í eldri húsgagnagerð, — ótrúlega vel hannaða hluti og magnaða í formfegurð sinni. Þeir félagar Rud Thygesen og Johnny Sörensen ganga fyrst og fremst út frá léttum og einföld- um formum er byggjast á sam- setningarlögmálum er þeir hafa sjálfir fundið upp. Er hér um að ræða hið snilldarlega lögmál náttúrunnar í samskeitingu greina við trjábolina. Nefna þeir aðferðina „kvistagræðslu" (Podning). A sýningunni getur m.a. að líta stílfögur húsgögn fyrir alla aldurshópa og eru þau þrátt fyrir styrkleika sinn svo létt að þau eru vel meðfæranleg einum manni. Það er gott að fá slíkar sýn- ingar á Kjarvalsstaði af og til og góð tilbreyting frá málverkasýn- ingunum og það er hárrétt að marka þeim tíma á miðjum vetri. Sjón er sögu ríkari og ættu því sem flestir að leggja leið sína á Kjarvalsstaði á næstunni og skoða vel það sem þar getur að líta. Listamönnunum Rud Thyge- sen og Johnny Sörensen þakka ég fyrir upplífgandi framlag á íslenzkum sýningarvettvangi. EF ÞAÐ ER FRÉTTNÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í MORGUNBLAÐINU / K3>

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.