Morgunblaðið - 25.03.1982, Page 17
- MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. MARZ 1982 17
Gústaf og félagar
Leiklist
Jóhann Hjálmarsson
Brúöuleikhúshátíö
aö Kjarvalsstööum:
Albrecht Roser:
GÚSTAF OG
FÉLAGAR HANS
Albrecht Roser var hér fyrir
nokkrum árum með brúður sínar
og er óhætt að segja að sú fjöl-
skylda öll hafi vakið mikla at-
hygli. Nú sýnir hann fjórtán
smáþætti með strengjabrúðum
og kallar Cústaf og félagar hans.
List Albrecht Rosers er hljóð-
lát, afar vönduð, en verður
naumast talin nýstárleg. Það er
sosum ekki aðalatriði. Við trúð-
inn Gústaf leggur hann að von-
um mikla rækt, enda verður
hann áhorfendum hjartfólginn.
Gústaf er ekki haldinn neinni
vanmetakennd, svolítið stríðinn
og fær líka að kenna á stríðni
sjálfur. Þetta er lifandi brúða,
henni stjórnað af nærfærni, há-
mark þegar Gústaf leikur á pí-
anó fyrir áhorfendur.
Við fáum að kynnast fleiri
trúðum og einnig pierrot hjá
Roser. Hann sýnir okkur líka
kostulega froskahljómsveit.
Dansari hrífur áhorfendur með
og söngvari syngur af mikilli til-
finningu. Hér eru líka fuglaat-
riði á boðstólum.
Albrecht Roser stundar ekki
neinn feluleik á sviðinu. Við
fylgjumst með stjórn hans og
einnig aðstoðarkonu hans. Hún
sér einkum um hljómflutnings-
tæki. Roser hefur fengist við
brúðustjórn síðan 1951. Það er
ótrúleg vinna sem liggur að baki
slíkri sýningu, áhorfandinn gerir
sér það Ijóst þegar hann kynnist
vinnubrögðum Rosers.
Það var góð stemmning á sýn-
ingu Rosers, en leitt að börn
fengu ekki að vera viðstödd. Ros-
er hefur sjálfur gert þær kröfur
að áhorfendur séu ekki yngri en
fimmtán ára. Vitanlega er list
hans einkum við hæfi fullorð-
inna, en mörg atriðin eins og
sniðin fyrir börn.
I lok sýningar kom gamla góða
prjónakonan frá Stuttgart,
heimaborg Rosers, og ávarpaði
áhorfendur. Hún er nú enn betur
að sér í íslensku en síðast og náði
góðu sambandi við áhorfendur.
Gamansemi Rosers kom ekki
síst í ljós í þessu atriði. Þegar sú
gamla var farin birtist enn ein
fígúran úr heimi Rosers, glett-
inn fíll og fékk alla til að hlæja
að uppátækjum sínum.
Gústaf og félagar hans voru
upphaf kynna minna af brúðu-
leikhúshátíðinni sem nú stendur
yfir á Kjarvalsstöðum. Reynt
verður að gera sem flestu skil á
hátíðinni næstu daga. Eftir
dagskrá Albrecht Rosers að
dæma er hér á ferð mikið og gott
framlag til listalífs borgarinnar.
Söngleikurinn
EF ÞAÐ ER FRETT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
INNS
3
A4 Frum-
8^ sýning
föstudag kl. 21.
2. sýning laugard.
3. sýning sunnudag
4. sýning mánudag
Forsala
er í Háskólabíói
T iskusyning ■ uag ki. 14.00-18.00
Stúlkur í Modelsamtökunum sýna. Kynnir Hermann Ragnar Stefánsson.
Skódeild
Vor og sumarskórnir.
Glæsilegasta úrvaliö í borg-
inni.
Módelskór
fyrir dömur í glæsilegu úr-
vali og sérlega vandaöir, 1
par af hverri tegund. í
númerunum 36 og 371/2
Vor- og sumartízkan er
komin
Töskur — skór —
hanskar — slæöur —
ennisbönd — belti
Stórglæsilegt úrval
Fermingargjafir
tölvuveski
skór
tízkutöskur
hanskar
slæður
ennisbönd
belti
dess.
3304
Fáið ykkur bragögott og svalandi
Geysilegt
úrval
af
kventöskum
frá
}
Mikið úrval
af ítölskum
tízkutöskum
Karlmanna
hanskar
kvenhanskar
frá
Claus Buch
Það besta er aldrei of gott
LEÐURVÖRUVERZLUNIN
Laugaveg 58 • Simi 13311