Morgunblaðið - 25.03.1982, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. MARZ 1982
VIÐSKIPTI
VIÐSKIPTI - EFNAHAGSMÁL - ATHAFNALÍF
— umsjón Sighvatur Blöndahl
Vaxandi markads-
hlutdeild
(TIRVSLKR-bílaverk.smiöjurnar í
Kandaríkjunum hafa aukiA mark-
aðshlutdeild sína úr 10% á árinu
1980 í 12% i janúarlok á þessu ári.
Greiöslustaða fyrirtækisins er góð
og nú þurfa bílasmiöjurnar aö selja
mun færri bíla en áöur til þess aö ná
hagnaði.
Gert er ráð fyrir, að rekstrar-
tapið á árinu 1981 hafi numið um
500 milljónum Bandaríkjadala,
sem er mun minna en tapið á ár-
inu 1980, sem nam 1,7 milljörðum
Bandaríkjadala. Möguleikar
Chrysler
Chrysler til þess að ná sér veru-
le(?a á strik, byggjast að dómi sér-
fræðinga mjög á aukinni hílasölu í
Bandaríkjunum. Heildarsalan á
síðasta ári var um 8,5 milljónir
bifreiða. Miðað við söluna í janú-
armánuði sl. yrði hún um 8 millj-
ónir bifreiða á þessu ári, en þyrfti
að verða um 9 milljónir til þess að
Chrysler næði hagnaði í ár.
Bílasmiðjurnar telja sig verða
að seija 1200 þúsund bíla, fólksbíla
og flutningabíla, á þessu ári, til
þess að sýna hagnað, en seldu um
1 milljón bíla á síðasta ári.
Markaðurinn að verða
tilbúinn að taka við
ritvinnslukerfum
— segir Sveinn Guömundsson, sölumaður hjá Heimilistækjum,
sem bjóða fjölbreytt úrval kerfa frá bandaríska fyrirtækinu Wang
„É(i TEL, að markaðurinn sé nú að verða tilbúinn að taka
við þessari nýju tækni, sem fyrirtæki kynntu fyrst að
einhverju marki hér á landi á síðasta ári,“ sagði Sveinn
Guðmundsson, sölumaður í tölvudeild Heimilistækja, í
samtali við Mbl., er hann var inntur eftir því hvort einhver
hreyfing væri komin á sölu ritvinnslukerfa fyrirtækisins,
en Heimilistæki bjóða tölvukerfi frá bandaríska fyrirtæk-
inu Wang.
„Verkefni tölvudeildarinnar
hafa verið í gegnum tíðina, að
veita alhliða tölvuþjónustu, s.s.
sölu á tölvum, forritum og við-
hald, einnig tökum við að okkur
tölvukeyrslu fyrir ýmsa aðila.
Heimilistæki hafa á undanförn-
um sex árum haft umboð fyrir
Wang-tölvur og eru nú um 50
fyrirtæki, sem hafa notfært sér
þær með ágætum árangri. Helztu
verkefnin eru á sviði bókhaids
fyrirtækja, viðskipta, birgða,
launabókhalds og tollskýrslu og
verðútreikninga, eins og t.d. í
heilbrigðissektornum, þar sem
m.a. Krabbameinsfélag Islands,
Borgarlæknir, Sjúkrahús Egils-
staða og Reykjalundur eru
fremstir í flokki.
Tölvur hafa hingað til aðallega
verið notaðar til lausnar á
ákveðnum „rútínuverkefnum" s.s.
verkefnum sem falla inn í ákveð-
inn „struktur". Hins vegar hafa
athuganir leitt í Ijós, að einungis
30% af aliri þeirri vinnu, sem
fram fer á skrifstofum í dag, fell-
ur undir einn eða annan „strukt-
ur“. Það má eiginlega segja, að
forsvarsmenn Wang hafi séð
þessa þróun fyrir á sínum tíma og
hagað þróun sinni samkvæmt því.
Þeir bjóða upp á fimm mismun-
andi, en þó samtengjanleg tölvu-
kerfi, þ.a.m. ritvinnslukerfi, sem
ég tel, að fari að ná fótfestu á
markaðinum. Öll þessi kerfi get-
um við auðvitað boðið okkar við-
skiptavinum," sagði Sveinn Guð-
mundsson ennfremur.
„Við bjóðum upp á ritvinnslu-
kerfi, „Word Processing", ein-
göngu ætlað til bréfa og skýrslu-
gerðar alls konar. Þetta kerfi hef-
ur því til viðbótar reiknimögu-
leika, sem gefur því mjög aukið
gildi.
Þá bjóðum við upplýsingakerfi,
„Office Information System", sem
er aðallega hugsað sem rit-
vinnslukerfi, en gefur ennfremur
möguleika á gagnavinnslu ýmiss
konar og er kjörið til að skrifa út
sendibréf.
Við bjóðum gagnavinnslutölvur
af gerðinni 2200 SVP og 2200
LVP, sem eru aðallega hugsaðar
til gagnavinnslu, en gefur jafn-
framt því möguleika á ýmiss kon-
ar ritvinnslu.
Ennfremur bjóðum við upp á
gagnavinnslutölvu af gerðinni
Wang VS, sem er jafnvíg hvort
sem er á rit- eða gagnavinnslu.
Hún er sérstaklega hönnuð og
ætluð til stærri verkefna.
Loks er það Wangwriterinn,
sem er sjálfstæð ritvinnslutölva,
sem getur ennfremur notað
CP/M-smátölvu-stýrikerfi.
Wangwriterinn er kannski það,
sem við reiknum með að nái mest-
um vinsældum af þessum rit-
vinnslukerfum. Hann getur einn-
ig tengzt sem skermur við 2200
SVP- og 2200 LVP-kerfin,“ sagði
Sveinn ennfremur.
Sem dæmi úm kostnað, sagði
Sveinn Guðmundsson, að
Wangwriterinn, skermurinn,
borðið og prentarinn, myndi kosta
í námunda við 100 þúsund krónur
í dag, „en menn eru auðvitað fljót-
ir að vinna upp þennan kostnað,"
sagði Sveinn ennfremur.
IBM hefur fram-
leiðslu á vélmennum
BANDARÍSKA stórfyrirtækið
IBM kynnti nú fyrir skömmu
fyrstu vélmennin, sem fyrirtækið
framleiðir. Það kom keppinautum
IBM á óvart, hversu rólega fyrir-
tækið hóf baráttu sína um þennan
markað. Það hefur verið almenn
skoðun hjá þeim fyrirtækjum, sem
framleiða vélmenni, eða sjálfvirk
framleiðslukerfi, að nauðsynlegt
sé að hafa töluverða breidd í þeim
(egundum sem boðnar eru til sölu,
þar sem viðskiptamenn vilji kaupa
tækin frá sama aðila.
Flestir bandarískir framleið-
endur hafa tekið þessa stefnu.
Bandaríska stórfyrirtækið West-
inghouse kynnti t.d. nú í byrjun
marzmánaðar fimm tegundir
vélmenna og eru þrjár þeirra
framleiddar með leyfi frá Japan
og Ítalíu. General Electric, sem
hefur varið miklum fjármunum
til þess að þróa sjálfvirk fram-
leiðslukerfi, hefur sömuleiðis lagt
áherzlu á breidd í framleiðslu
sinni, þ.á m. framleiðir fyrirtæk-
ið eina tegund með leyfi frá
Wolkswagen.
IBM fer hins vegar af stað með
aðeins tvær tegundir og er önnur
mjög einföld og ætluð til ein-
faldra verka, en hin fyrir nokkuð
flóknari verk. Keppinautar IBM
hafa hins vegar áhyggjur af því,
hvernig fyrirtækið hyggst þróa
þessa framleiðslu í framtíðinni,
en IBM hefur engar upplýsingar
gefið um það.
Nú nemur sala vélmenna að-
eins um 150 milljónum dollara á
ári í Bandaríkjunum, en því er
spáð, að á næsta áratug muni
sala vélmenna nema um tveimur
milljörðum dollara á ári.
Tandy-Radio Shack-umboðið:
Sveinn Guðmundsson, sölumaður hjá Heimilistækjum.
Ljfamjwl MbL EmiHa.
Seldi skattstofum lands-
ins 33 tölvusamstæður
Á SÍÐASTA hausti skrifaöi Inn-
kaupastofnun ríkisins tölvuinn-
flytjendum bréf, þar sem óskaö var
eftir tilboöum í tölvubúnaö, sem ætl-
aóur var til notkunar á skattstofum
landsins, vió skráningu, ritvinnslu
og fleira. Nióurstaöan varö sú aö
Innkaupastofnunin ákvaó aö taka
tilboöi frá Oskari Jóhannssyni, sem
hefur umboó fyrir Tandy-Radio
Shaek-tölvur.
í samtali við Mbl. sagði Óskar
Jóhannsson, að um hefði verið að
ræða 33 tölvur og 17 prentara. „Á
sínum tíma var Skýrsluvélum
ríkisins og Reykjavíkurborgar fal-
ið að meta tilboðin, sem bárust, en
þau komu frá öllum stærstu tölvu-
fyrirtækjum landsins. Þeirra val
var TRS-80 Model 11 64K, en hún
er með innbyggðri 8“ diskettu-
stöð, en það er mjög fjölhæf tölva.
Við erum auðvitað mjög ánægðir
með, að okkar tölvur skyldu verða
fyrir valinu og teljum það mikil
meðmæli," sagði Óskar ennfrem-
ur.
óskar sagði, að hægt væri að fá
1—3 aukadrif með vélinni, en
skattstofurnar hefðu fengið eitt
drif með hverri vél. „Auk þess, að
hægt er að nota þessa tölvu til
margvíslegra starfa sjálfstætt,
getur hún „talað" við stóru tölv-
urnar, þannig að t.d. geta skatt-
stofurnar skráð allar skatta-
skýrslur á diskettu, sent upplýs-
ingar sínar símleiðis til Skýrslu-
véla ríkisins og Reykjavíkurborg-
ar, sem reikna út skattinn, og
senda síðan útreikningana til
baka símleiðis.
Prentararnir, sem keyptir voru
með tölvunum, eru af Malibu-gerð.
Þeir eru hentugir bæði til prent-
unar á skýrslum og einnig til rit-
vinnsluskriftar, en það er fyrir-
tækið Órtölvutækni, sem flytur þá
inn og setur upp vélarnar og sér
um viðhald þeirra."
Aðspurður um hvað tölvur kost-
uðu í dag, sagði Óskar, að Model
11 64 K kostaði um 80 þúsund
krónur og væri þá innifalin kostn-
aður við breytingu fyrir íslenzka
stafi og ísetningu lyklaborðs, sam-
kvæmt kröfum íslenzku staðal-
nefndarinnar, en verið væri að
framleiða það í verksmiðju Tandy
í Bandaríkjunum.
Þá var Óskar spurður að því,
hvort þessar tölvur gætu fullnægt
bókhaldsþörf meðalstórra fyrir-
tækja. „Jú, það geta þær auðveld-
lega. T.d. hefur Hagvangur/Hag-
tala valið þessa tölvu og notar með
henni öflugt bókhaldskerfi, sem
hentar stórum fyrirtækjum og
hefur reynzt mjög vel. Annars er
engin hætta á því, að þessi tölva
verði úrelt á næstunni, því Tandy
leggur mikla áherzlu á möguleika
á að bæta við og stækka tölvurnar.
Um þessar mundir er t.d. að
koma á markaðinn ný tölva frá
Tandy. Það er Model 16. Hún hef-
ur nýverið verið kynnt og hlotið
góða dóma þeirra sem til þekkja.
Þá má bæta því við, að með tveim-
ur spjöldum, sem kosta um 1.500
dollara, er hægt að breyta Model
11 í Model 16 og nota áfram sömu
forritin, en margfalda afkastaget-
una,“ sagði Óskar Jóhannsson að
síðustu.
linnið viö tölvu
frá Tandy-Radio
Shack.