Morgunblaðið - 25.03.1982, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 25.03.1982, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. MARZ 1982 25 Frá blaðamannafundi Arnarflugs í gærdag. Fyrir enda borðsins eru Stefán Halldórsson, Gunnar Þorvaldsson, framkvsmdastjóri félagsins, Haukur Björnsson, stjórnarformaður, og Magnús Oddsson. i.jósmynd Mbi. rax. Arnarflug byrjar áætlunarflug sitt 20. júni nk.: Arnarflug stendur fyllilega undir þessari fjárfestingu sagði Gunnar Þorvaldsson, framkvæmdastjóri Arnarflugs um kaupin á eigum íscargo, á blaðamannafundi í gærdag ARNARFLUG hefur ákveðið að hefja áætlunarflug sitt 20. júní nk. og verður fyrsta ferðin farin til Amsterdam í Hollandi, en síðan hefst flugið til Ziirich í Sviss 3. júlí nk. og flugið til Diisseldorf í Vestur-Þýzkalandi hefst 7. júlí nk. Þessar upplýs- ingar komu fram á blaðamanna- fundi, sem forráðamenn fyrir- tækisins héldu i gærdag. Flogið verður tvisvar í viku til Amsterdam, sunnudaga og mið- vikudaga, einu sinni í viku til Dússeldorf, á miðvikudögum, og einu sinni í viku til Zúrich eða á laugardögum. Þetta er þó háð samþykki flugmálayfirvalda í viðkomandi löndum, að sögn Gunnars Þorvaldssonar, fram- kvæmdastjóra Arnarflugs. Gunnar Þorvaldsson sagði, að brottfarartímar yrðu nokkuð aðrir en íslendingar ættu að venjast. Yfir sumarið er fyrsta brottför klukkan 11.00 árdegis og yfir vetrartímann er fyrsta brottför klukkan 10.00 árdegis. — Á öllum áætlunarflug- völlunum eru miklir möguleikar til framhaldsflugs í allar áttir og má t.d. nefna, að Schipol-flugvöllur í Amsterdam var kjörinn af lesend- um tímaritsins „Business Travell- er“ bezti flugvöllur í Evrópu með tilliti til áframflugs, sagði Gunnar Þorvaldsson ennfremur. * Vetraráætlun tekur gildi 14. sept- ember nk. og verður áfram flogið tvisvar í viku til Amsterdam og einu sinni í viku til Ziirich. Hins vegar fellur Dusseldorf-flug niður til að byrja með, þar sem undirbún- ingstíminn var ekki nægilegur, að sögn Gunnars Þorvaldssonar. Arnarflug hefur sótt um til þar- lendra yfirvalda að fá að bjóða á þessum flugleiðum auk venjulegra IATA-fargjalda, APEX-fargjald og sérstakt hópfargjald. — Fáist þessi umbeðnu fargjöld samþykkt verða þau lægstu nálægt 40% af fullu IATA-fargjaldi, sagði Gunnar Þorvaldsson. Á fundinum kom fram, að Arnar- flug mun í sumar annast leiguflug til sólarlanda og annarra áfanga- staða fyrir íslenzkar ferðaskrifstof- ur. Ennfremur verður flogið leigu- flug fyrir svissneskar, þýzkar, kanadískar og finnskar ferða- skrifstofur og í sambandi við þær svissnesku og þýzku verður um eitt flug í viku að ræða, frá Dússeldorf og Zúrich. Meðal áfangastaða er Toronto í Kanada, Allecante og Mallorca á Spáni, Sikiley, Rimini og Trieste á Ítalíu, Aþena í Grikk- landi, Dublin á Irlandi, Tromsö og Þrándheimur í Noregi. Til áætlunarflugsins og leigu- flugsins verður notuð Boeing 720-þota félagsins, en að sögn Gunnars Þorvaldssonar er það draumur Arnarflugsmanna að fá Boeing 737-þotu í þetta flug, segir hana rekstrarlega hagkvæmustu vélina. Iæiguflugið hefst um pásk- ana og má geta þess, að vikuna 6.—13. apríl nk. mun félagið flytja yfir 1.800 farþega, en samtals er um að ræða um 130 ferðir, sem bætast við reglulegt áætlunarflug félags- ins. Það kom ennfremur fram á fundinum, að áætlunarflugið inn- anlands verður með svipuðu sniði í sumar og í fyrra, en flogið verður á 11 staði, samtals 37 ferðir í viku. Auk innanlandsáætlunarinnar mun félagið eftir sem áður annast um- fangsmikið leiguflug á vegum ferðaskrifstofa, íþróttafélaga og annarra aðila. Aðspurður sagði Gunnar Þor- valdsson að hagur Arnarflugs væri mjög góður og hefði reksturinn á síðasta ári gengið framar öllum vonum. — Samkvæmt bráðabirgða- yfirliti, þá var hagnaður fyrirtækis- ins árið 1981 fyrir skatta um 10 milljónir króna, eða 1 milljarður gkróna, sagði Gunnar Þorvaldsson ennfremur. I máli Gunnars kom fram, að leiguflugið erlendis hefði komið langbézt út, en hins vegar hefði orðið eitthvert tap á innan- landsáætlunarflugi félagsins. Það hefði þó gengið nokkuð betur árið 1981 en árið þar á undan. Eins og kunnugt er af fréttum keypti Arnarflug verulegan hluta eigna íscargo á um 29 milljónir króna 11. marz sl. — Á fundinum kom fram sú spurning, hvort ekki hafi verið um yfirverð að ræða. Gunnar Þorvaldsson og Haukur Björnsson, stjórnarformaður fé- lagsins, sögðu að það mætti segja, að um ákveðið yfirverð hefði verið að ræða, en það yrði að hafa í huga, að keyptir hefðu verið hlutir, sem nánast ógjörningur væri að meta nákvæmlega til ákveðins verðs. Mætti þar t.d. nefna, að verðlag á Electra-flugvélum á heimsmarkaði væri á bilinu 1,5—2,3 milljónir doll- ara og miðað við ástand vélar þeirr- ar er félagið keypti af íscargo mætti ætla, að markaðsverð hennar væri í kringum 2 milljónir dollara. Þá keypti félagið húseignir íscargo á Reykjavíkurflugvelli. — Það má segja, að með þeim kaupum hafi langþráðu takmarki verið náð, þ.e. að félagið fengi eigið húsnæði á Reykjavíkurflugvelli, en það hefur háð félaginu mjög að vera með alla starfsemi sína vítt og breytt um völlinn. Það er því mjög erfitt að meta þessar húseignir til fjár. Ennfremur fékk Arnarflug í fyrsta sinn aðgang að góðu flugskýli við þessi kaup, því félagið gekk inn i leigusamning íscargo við flugmála- stjórn á skýli því er íscargo hafði til umráða, sagði Gunnar Þorvaldsson ennfremur. Arnarflugsmenn voru spurðir að því hvort þeir hefðu í raun verið að kaupa flugleyfi íscargo til Amst- erdam. Gunnar og Haukur svöruðu því til, að þeir hefðu alls enga vissu haft fyrir því að fá leyfið til Amst- erdam þegar kaupsamningurinn var undirritaður við íscargo. — Okkar eina vísbending í málinu voru ítrekaðar yfirlýsingar sam- gönguráðherra, þar sem hann sagð- ist fylgjandi því, að hér væri starf- andi eitt sterkt flugfélag og við hlið þess annað minna, sem veitt gæti hæfilega samkeppni. Eftir að við höfðum fengið leyfi til Dússeldorf og Zúrich töldum við því mjög lík- legt, að ráðherra liti á okkur sem annað félagið og gerðum okkur því vonir um að fá leyfum íscargo út- hlutað í kjölfar þess, að íscargo skilaði þeim inn til ráðuneytisins. Við höfðum hins vegar enga vissu fyrir þessu. Við urðum einfaldlega að taka þessa áhættu, sagði Haukur Björnsson. Þá voru þeir Arnarflugsmenn ítrekað spurðir að því hvort loforð eða vísbending frá samgönguráð- herra hefði ekki valdið því, að þeir fóru út í að kaupa Iscargo, jafn- framt því, sem þeir voru spurðir, hvort ráðherra hefði hreinlega neytt þá til að kaupa íscargo og koma þannig í veg fyrir gjaldþrot þess, en þeir fengju í staðinn áætl- unarleyfið. Gunnar Þorvaldsson sagði að ráðherra hefði aldrei beitt Arnarflugsmenn neinum þvingun- um. Hann hefði ekki haft nein af- skipti af málinu. Því hefðu engin loforð eða vísbendingar gert útslag- ið með það, að Iscargo var keypt. — Það var hins vegar ljóst, þegar við fengum leyfin til Dússeldorf og Zúrich, að það var ekki það sem við óskuðum eftir og jafnvel hæpið að leggj3 upp í áætlunarflug á þessa staði eina saman. Við þurftum á einhverjum góðum meginstað að halda, sem hefði góða tengimögu- leika í áframflugi. Við sóttum ein- mitt um Frankfurt á sínum tíma með það í huga. Við sáum að Amst- erdam gat vel hentað sem þessi meginstaður og við gerðum okkur ákveðnar vonir um, eins og áður sagði, að við gætum fengið úthlutað leyfum þangað ef íseargo hætti rekstri. Við tókum því einfaldlega áhættu, sem gekk upp og við feng- um leyfið, sagði Gunnar Þorvalds- son. Þá voru Arnarflugsmenn að því spurðir, hvort félagið hefði fjár- hagslegt bolmagn til að standa í þessum fjárfestingum. — Við telj- um okkur tvímælalaust hafa bol- magn til þess og má byrja að vitna í orð mín hér á undan um hagnaðinn af rekstri fyrirtækisins. Við höfum alla tíð staðið á eigin fótum og stað- ið við okkar skuldbindingar. í því sambandi kemur það okkur því töluvert spánskt fyrir sjónir, þegar þingmenn Alþýðuflokksins eru nú að heimta, að fram fari rannsókn á greiðslugetu fyrirtækisins. Reyndar finnst okkur heldur einkennilegt, að viðskipti tveggja einkafyrirtækja séu tekin til umfjöllunar á Alþingi eins og gert hefur verið að undan- förnu, sagði Gunnar Þorvaldsson. Gunnar sagði ennfremur, að sér fyndist framferði nokkurra þing- manna Alþýðuflokksins í meira lagi einkennilegt í þessu máli. Þeir hefðu ekkert samband haft við Arn- arflugsmenn, en reyndu að gera all- ar hreyfingar félagsins tortryggi- legar. Þá væri það einkennilegt, að það hefðu einmitt verið alþýðu- flokksmenn, sem einir hefðu viljað binda það í lög á sínum tíma, að Flugleiðir seldu hlut sinn í Arnar- flugi. — Þessir sömu menn lögðu svo fram þingsályktunartillögu í vetur, þar sem þess er krafizt að hér á landi verði aðeins eitt sterkt áætlunarflugfélag. Það sé ekki rúm fyrir fleiri. I öðru orðinu vilja þess- ir menn samkeppni og í hinu einok- un, sagði Gunnar Þorvaldsson. Að síðustu voru Arnarflugsmenn að því spurðir, hver staða þeirra væri í dag, eftir kaupin á íscargo, ef samgönguráðherra hefði alls ekki veitt þeim leyfi til Amsterdam. — Staða okkar væri auðvitað verri en elia. Hins vegar stæði félagið alveg undir þessari fjárfestingu. Það má nefna, að menn hafa verið með alls konar hrakspár í sambandi við El- ectra-vélina, sagt hana einskis nýta. Við erum hins vegar á loka- stigi með samning um leigu hennar til Afríku, en þar er gert ráð fyrir, að hún verði í flugi milli Kamerún og ítaliu með byggingarefni næstu þrjá mánuðina. Eftir okkar athug- anir síðustu daga erum við fullviss- ir um, að hægt er að finna fyrir hana markaði víðs vegar um heim- inn, sagði Gunnar Þorvaldsson. Helgi Hálfdanarson: Einfaldlega einfaldlega einfaldlega Sjaldan lætur sá betur sem eftir hermir, segir máltækið. Það getur stundum á sannazt, þegar Islendingar sækja sér málfar til annarra þjóða, vilj- andi eða óviljandi. Dæmi þess, hvernig gott erlent orð getur spéspeglazt í íslenzku máli, er atviksorðið einfaldlega. Þó að orð þetta sé ekki nýtt í málinu, stafar óskapleg ofnotk- un þess í svipinn vafalaust af enska orðinu simply. Á skömm- um tíma hefur það rutt sér til rúms af þvílíkri frekju, að telj- ast verður mjög til óþurftar. Ur nógu er þó að velja af góðum og gegnum orðum, eins og: aðeins, einungis, einvörðungu, blátt áfram, beinlínis, alltjent, hreint og beint, í raun og veru, í raun- inni, raunar, reyndar, ekki ann- að en, ekki nema, o.s.frv. eftir því hvernig á stendur hverju sinni. Viðskeytið —lega fer ekki allt- af vcl á samsettum orðum eða afleiddum. Þá er oft ástæða til að athuga, hvort önnur orð færu ekki betur, ef merking og stíll leyfðu, til dæmis „í upphafi" fyrir „upphaflega"; „með gát“ eða „með athygli" fyrir „gaum- gæfilega"; „með vissu" fyrir „ómótmælanlega"; o.s.frv. Hins vegar geta ýms lega-atviksorð af þessu tagi komið sér vel, ef beinlínis er sótzt eftir flötum eða kátlegum stíl, eins og þegar segir í frægri vísu: sína gerir svipu upp vega sérastefánsámosfellilega í staðinn fyrir „eins og hann séra Stefán á Mosfelli". Enska orðið simply er ágætt orð í sínu máli, snöturt og þjált. Þar er ósamsettur stofn gerður að atviksorði með einkvæðu viðskeyti. En hafa menn þá veitt því athygli, hvað þetta islenzka orð, ein-fald-lega, getur orðið kauðalegt við hlið sinnar fögru ensku fyrirmyndar? Og er þá svo brýnt að reyna að stæla tungu- tak Engilsaxa, að menn vilji taka sér það í munn í tíma og ótíma? Hér skal ekki lagt til, að við göngum í bindindi á orðið „ein- faldlega", heldur reynum að draga mjög úr notkun þess, því hún hefur um skeið rokið langt fram úr öllu lagi. Það mætti hins vegar vera til marks um ofnotk- un einstakra orða, sem jafnan verður til lýta á máli og spillir auðsæld þess um leið. Oft er með réttu við því varað að sóa fleiri orðum og lengri en nauðsyn ber til. Reyndar er líka hægt að spilla máli með nirfils- hætti. Sparsemi er góð dyggð, meðan hún verður ekki að mein- lætum. Og vitaskuld verður nákvæm merking að ganga fyrir nízku á orð og atkvæði. Það væri góð regla að velja að öðru jöfnu sem stytzt orð og sem fæst, en þó sem fjölbreyttust. Mætti ég að lokum leggja til, að næst þegar orðið „einfald- lega“ leitar í pennann eða fram á varirnar, verði athugað, hvort t.d. „hreinlega“ kæmi ekki að sömu notum, ef ekki eitthvert þeirra orða sem fyrr voru talin. Ég er illa svikinn, ef þau skipti þættu ekki til prýði, þegar að væri gáð.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.