Morgunblaðið - 03.04.1982, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 03.04.1982, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. APRÍL 1982 Frumvarp Halldórs Blöndal: Stofnaður verði Tón- skáldasjóður íslands HALLIXIR Blöndal alþingismaöur er fyrsti flutningsmaöur frumvarps til laga um „Tónskáldasjóð Ísíands“, sem hann hefur lagt fram á Alþingi. Gerir frumvarpið ráð fyrir að stofnfé sjóðsins verði tífold meðalárslaun mennta- skólakennara, og greiðist þau úr rikissjóði. Tilgangur sjóðsins skuii vera að hvetja tónskáld til starfa og stuðla að útbreiðslu islenskrar tónlistar. þetta frumvarp á þessu þingi. Hins vegar töldu flutningsmenn nauðsynlegt að leggja það fram nú þegar til þess að unnt sé að hafa framlög til Tónskáldasjóðs Is- lands í huga, þegar gengið verður frá fjárlagafrumvarpi á hausti komanda, enda auðgert að sam- þykkja stofnun sjóðsins á haust- þinginu, svo að hægt sé að veita fé úr honum strax á næsta ári. Þá ættu allar umsagnir og nauðsyn- legar upplýsingar að liggja fyrir til þess að alþingismenn geti glöggvað sig á því máli, sem hér er hreyft við.“ Til eftirfarandi verkefna megi veita framlög úr sjóðnum: A. Til tónsmíða, enda hafi um- sækjandi gert grein fyrir hvernig hann hyggst vinna að þeim. B. Til útgáfu íslenskrar tónlistar, á hljómplötum, snældum og nót- um. C. Til kynningar á íslenskri tón- list innanlands og utan. í greinargerð með frumvarpinu segja flutningsmenn svo: „Á síðustu árum og áratugum hefur menntuðum tónlistar- mönnum fjölgað svo hér á landi að það gengur kraftaverki næst. Fyrir því má raunar færa sann- færandi rök, að engin listgrein standi með jafnmiklum blóma um þessar mundir og tónlistin hér á landi, og er ekki hugsun flutn- ingsmanna að fara út í frekari meting um ágæti einstakra list- greina en þessi orð fela í sér. En um hitt ættu allir að geta orðið sammála, að okkur sem menning- arþjóð er mikill sómi að ágætri frammistöðu tónskálda okkar á erlendum vettvangi, ekki síður en hér heima. Er þess skemmst að minnast, að Atli Heimir Sveinsson hlaut tónskáldaverðlaun Norður- landa og þótti hvarvetna vel að þeim kominn. Það gerist og æ al- gengara, að íslensk tónverk séu flutt á erlendum vettvangi. Frumvarp það, sem hér liggur fyrir, er sniðið eftir lögum um Launasjóð rithöfunda og þýð- ingasjóð og þeim hugmyndum, sem uppi hafa verið um Launasjóð myndlistarmanna. Höfuðhlutverk sjóðsins er að örva tónskáld til dáða og fylgja eftir tónlistarvakn- ingu sem hér hefur orðið á undan- förnum árum. í þessu frumvarpi er út frá því gengið, að stofnfé sjóðsins nægi til þess, að unnt sé að veita 5 árslaun mennta- skólakennara til tónskálda svo að þau geti gefið sig heilshugar að tónsmíðum sínum. Síðan er gert ráð fyrir því, að jafnmiklu fé sé varið til annarra þeirra verkefna, sem sjóðurinn á að anna, og hlýtur það að fara eftir atvikum hverju sinni, hversu það fé skiptist. Það er skoðun flutningsmanna, að frumkvæði og sjálfstæði í menningarmálum sé ekki síður mikilvægt en efnaleg velgengni, enda styður þar hvort annað. Nauðsynlegt er að hvetja til skap- andi starfs á sviði allra listgreina og einn liður í því er að endur- skoða fjárveitingar til menning- armála með betri nýtingu þeirra í huga. Blómlegt menningarlíf gerir mannlífið auðugra og innihalds- ríkara. Við því er ekki að búast, að Al- þingi treysti sér til að samþykkja Ljósmvnd Mbl. Kmilía. Halldór H. Jónsson, stjórnarformaður Eimskipafélags íslands flytur skýrslu stjórnar á aðalfundi félagsins í gærdag. Á vinstri hönd er Hörður Sigurgestsson, forstjóri félagsins, en til hægri en Óttar Möller, fyrrverandi forstjóri ____________—-- félagsins. Halldór H. Jónsson, stjórnarformaður Eimskips, á aðalfundi: Fjárfestingar félagsins námu um 123,3 milljónum króna 1981 Flutningarnir voru svipaðir á síðasta ári og 1980 „FÉLAGIÐ flutti á síðasta ári samtals 646 þúsund tonn til og frá íslandi, innanlands og milli hafna erlendis. Flutningar til landsins stóðu því sem næst i stað, en örlítil minnkun varð á flutningi frá landinu. Var það vegna minnkandi útflutnings á frystum fiski og áli. Strandflutningar félagsins og flutningar milli erlendra hafna jukust nokkuð," sagði Halldór H. Jónsson, stjórnarformaður Eimskipafélags íslands, í skýrslu stjórnar félagsins á aðal- fundi þess, sem haldinn var í gærdag. — Á árinu 1981 var áfram unn- ið að því að koma í framkvæmd þeirri flutningsstefnu, sem félagið hefur mótað sér, og ítarlega hefur verið gerð grein fyrir á síðustu að- alfundum. Megin atriði hennar eru áframhaldandi þróun til ein- ingaflutninga, endurnýjun skipa- stólsins með færri og stærri skip- um, og áframhaldandi uppbygg- ingu vöruafgreiðslu félagsins og flutningur hennar í Sundahöfn. Stærsta átak félagsins á árinu voru kaupin á Álafossi og Eyrar- fossi. Skipin höfðu verið um eins árs skeið á leigu, en gengið var frá kaupum á þeim í ágústmánuði 1981. Þessi tvö ekjuskip hafa reynst vel og verið hagkvæm. Hægt er að auka afkastagetu þeirra um 30% með lengingu, sagði Halldór H. Jónsson enn- fremur. — Eitt meiri háttar verkefni á árinu 1981 var áframhaldandi uppbygging í Sundahöfn. Undir- ritaður var á árinu leigusamning- ur til 31 árs um þetta hafnar- svæði, sem er samtals um 18 hekt- arar. Nær öll starfsemi félagsins er flutt frá gömlu höfninni, og verður svo að fullu, er síðari hluti Háskólinn: Slitnað hefur upp úr viðræð- um umbótasinna og Vöku STJÓRNARKREFPA ríkir nú innan nýkjörins stúdentaráðs Háskóla ís- lands eftir að slitnaði upp úr samningaviðræðum umbótasinna og Vöku, en Félag vinstri manna hefur hafnað samningaviðræðum, bæði við Vöku og umbótasinna. frá Vöku, þar sem sagt var að Vaka treysti sér ekki til að skipta þessum stöðum jafnt á milli fylk- inganna og bent var á þá stað- reynd, að Vaka ætti 10 fulltrúa í nýkjörnu stúdentaráði, en umbótasinnar aðeins 7. Hið nýja stúdentaráð kom saman til fundar síðastliðinn fimmtudag og var þá ákveðið að fresta kosningum inn- an ráðsins um óákveðinn tíma. Faxaskála verður afhentur Reykjavíkurhöfn á miðju árinu, sagði Halldór ennfremur. Um fjárfestingar, sagði Hall- dór, að í varanlegum rekstrar- fjármunum á síðastliðnu ári hafi þær numið samtals um 123,3 milljónum króna. Skiptingin milli einstakra verkefna var sú, að 103,4 milljónir voru vegna kaupanna á Álafossi og Eyrarfossi, 16,2 millj- ónir króna voru vegna fjárfest- ingar í aðstöðu í Sundahöfn og 3,7 milljónir króna voru vegna véla, flutningatækja, áhalda og annars. — Haldið var áfram endurnýjun á tækjakosti og gámum fjölgaði. Aukning vörumagns í gámum sem fór um hendur vöruafgreiðslu fé- Davíð Scheving Thorsteinsson kjörinn formaður bankaráÖs Iðn- aðarbankans DAVÍÐ Scheving Thorsteinsson, framkvæmdastjóri, var í gær kjörinn formaður bankaráðs Iðnaðarbankans. Hann tekur við starfi Gunnars J. Friðrikssonar, framkvæmdastjóra, sem ekki lagsins í Reykjavík var um 30% á árinu, sagði Halldór H. Jónsson. Við stjórnarkjör áttu fjórir menn að ganga úr stjórn, þeir Ax- el Einarsson, Hjalti Geir Krist- jánsson, Indriði Pálsson og Thor R. Thors. Þeir voru allir sjálf- kjörnir til næstu tveggja ára í stjórn félagsins, en fyrir í henni sitja Halldór H. Jónsson, sem ver- ið hefur formaður, Ingvar Vil- hjálmsson, sem verið hefur vara- formaður, Pétur Sigurðsson og Jón H. Bergs, en auk þessara manna skipar ríkið einn mann í stjórnina til eins árs í senn. Hall- dór E. Sigurðsson, sem setið hefur í stjórninni var skipaður áfram. Allir endurskoðendur félagsins voru endurkjörnir, þeir Ólafur Nilsson og Víglundur Möller og ríkið skipaði Sigurbjörn Þor- björnsson. Varaendurskoðandi var kjörin Þorbjörn Jóhannesson. Forstjóri Eimskipafélagsins er Hörður Sigurgestsson. Starfsmenn Stjómarráðsins: Úrsögn úr BSRB hlaut ekki tilskilinn meirihluta Starfsmenn StjórnarráAsins felldu tillögu um að þeir gengju úr BSRB og stofnuöu eigið stéttarfélag, í at- kvæðagreiðslu í fyrradag. Meirihluti var þó fylgjandi úrsögn úr BSKB, en ekki 2/3 eins og lög kveða á um að þurfi til. Að sögn Ingu Ólafar Ingimars- dóttur, formanns Starfsmannafé- lags Stjórnarráðs, reyndust 118 fylgjandi úrsögn, 85 vildu vera áfram innan vébanda BSRB. Einn seðill var auður, samtals kusu 204. Tillaga um úrsögn úr BSRB var borin undir allsherjaratkvæða- greiðslu eftir að skoðanakönnun hafði leitt áhuga á slíku í ljós, og var hún borin upp af meirihluta stjórnar. Inga Ólöf sagði að úrslitin yllu sér vonbrigðum. Hún teldi hags- munum starfsfólksins betur borg- ið í sérfélagi. „Mér þykir leitt að svona fór,“ sagði hún, „meiri líkur á árangri eru að mínum dómi í sérfélagi," sagði hún í samtali við blaðamann Morgunblaðsins í gær. Hæstiréttur stað- festi gæzluvarð- haldsúrskurð H/ESTIRÉTTUR staðfesti í gær gæzluvarðhaldsúrskurð, sem kveð- inn var upp í Nakadómi síðastliðinn sunnudag að kröfu Rannsóknarlög- reglu ríkisins. Maður úr Keflavík var úrskurðaður í gæzluvarðhald til 7. apríl vegna rannsóknar RLK á bif- reiðaviðskiptum, sem hann hefur staðið í. A félagsfundum hjá umbóta- sinnum og Vöku síðastliðið mið- vikudagskvöld voru lögð fram samningsdrög samninganefnda og voru þau samþykkt á fundi um- bótasinna, en felld á fundi Vöku. Samkvæmt þessum samnings- drögum skyldi þeim fjórum stöð- um, sem mestu máli eru taldar skipta, deilt jafnt á milli umbóta- sinna og Vöku. Skyldu umbóta- sinnar fá formann stjórnar Fé- lagsstofnunar stúdenta og rit- stjóra Stúdentablaðsins, en Vaka formann stúdentaráðs og fulltrúa stúdenta í Lánasjóði íslenzkra námsmanna. Umbótasinnum barst í gær bréf Rektorskjör við Háskólann: Guðmundur endurkjör- inn með 50,6% atkvæða Fundur verður haldinn með gamla stúdentaráðinu næstkomandi þriðjudag og verður þar fjallað um lagbreytingu þess efnis, að skila- fundur skuli haldinn síðar en nú er samkvæmt lögum félagsins. Davíð Scheving ThorsleinNNon gaf kost á sér til endurkjörs að þessu sinni. Auk Davíðs voru Sveinn Valfells, verkfræðingur, og Gunnar Guðmundsson, raf- verktaki, kjörnir í bankaráð á aðalfundi Iðnaðarbankans. Að skipan iðnaðarráðherra taka Kjartan Ólafsson, ritstjóri, og Sigurður Magnússon, rafvéla- virki, einnig sæti í ráðinu. Guðmundur K. Magnússon var í gær endurkjörinn rektor Iláskóla íslands til þriggja ára. Hlaut Guðmundur 50,6% atkvæða, og þarf því ekki að kjósa aftur þar eð hann hlaut meira en helming greiddra atkvæða. Sigurjón Björnsson fékk 41,4% atkvæða, og aðr- ir hlutu 7,1%, þar sem atkvæði dreifð- ust á allmarga prófessora Háskólans. I*eir Guðmundur og Sigurjón voru einu opinberu frambjóðendurnir í rektors- kjöri að þessu sinni, en formlega eru allir hinir 74 skipuðu prófessorar við llaskólann í framboði, og voru því 74 nöfn á kjörseðlinum. Alls greiddu 253 kennarar og aðrir starfsmenn Háskólans atkvæði í kosningunum, eða 83,5%. Níu hundr- uð fimmtíu og átta stúdentar greiddu atkvæði, sem er 26,6% þátt- taka. Guðmundur Magnússon fékk 154 atkvæði starfsmanna, eða 60,9%, og 289 atkv. stúdenta, 30,2%, sem umreiknað eftir gildi atkvæða er 50,6% sem áður segir. Sigurjón Björnsson fékk atkvæði 81 starfs- manns, 32,0% og atkvæði 576 stúd- enta, 60,1%. Umreiknað þýðir það 41,4%,. Kjörtímabil rektors Háskóla ís- lands er þrjú ár sem áður segir, hefst 15. september nk. og rennur út 15. september árið 1985.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.