Morgunblaðið - 03.04.1982, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. APRÍL 1982
3
Brúðuleikhús á
Kjarvalsstöðum
Brúduleikhúsþættirnir „Hátíð
dýranna“ og „Eggið hans Kiwi“
verða sýndir á Kjarvalsstöðum í
dag klukkan 15. Báðir eru þætt-
irnir um dýrin og gerðir fyrir
yngstu kynslóðina.
Brúðugerð í þessum þáttum
er eftir Hallveigu Thorlacius,
sem gerir brúður í „Eggið
hans Kiwi“ og Helgu Steffen-
sen, sem sér um brúðugerð í
„Hátíð dýranna".
Á sunnudag verður sýning á
„Kabarett" og „Gömlu kon-
unni" og hefst hún klukkan
14.30. Um þessa leikþætti sjá
Helga Steffensen og Hallveig
Thorlacius með brúður sínar.
Jón E. Guðmundsson og Sig-
ríður Hannesdóttir.
Klukkan 16 á sunnudag
verður síðan sýning Leik-
brúðulands á „Þremur þjóð-
sögum".
Nær væri að ríkissjóður
greiddi þessa reikninga
— segir póst- og símamálastjóri um afslátt á símum stjórnmálaflokkanna
Að höfðu samráði við ríkisstjórnina hefur Steingrímur Hermannsson sam-
gönguráðherra fyrirskipað Pósti og síma að gefa stjórnmálaflokkunum 85%
afslátt af stofngjaldi og skrefagjaldi á kosningasímum flokkanna vegna
sveitarstjórnarkosninganna í vor. Áður hefur verið veittur afsláttur af sama
tilefni, en þá aðeins af stofngjaldi.
Jón A. Skúlason póst- og síma-
málastjóri sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að hann væri
óánægður með þessa fyrirskipun,
sem gefin væri án alls samráðs við
stofnunina. Þau 15%, sem eftir
stæðu er afslátturinn hefði verið
gefinn, dygðu ekki fyrir kostnaði
við að lesa af og setja upp síma
vegna kosninganna. Þetta væri ef
til vill ekki mikið mál á stöðum
eins og Reykjavík og Akureyri, en
þegar um allt landið væri að ræða,
horfði málið öðru vísi við. Víða
væri t.d. einkasímum brey tt í
kosningasíma, setja þyrfti á lása
vegna utanlandssímtala, lesa af
símunum, tengja nýja o.sv.frv.
„Stofnuninni er legið á hálsi fyrir
lélega stjórn og að afnotagjöld
dugi ekki til rekstursins. Á sama
tíma er okkur svo fyrirskipað að
greiða með kosningasímunum.
Nær hefði verið að flokkarnir
kæmu með reikninga eftir kosn-
ingar, og fjármálaráðherra
greiddi 85% af þeim. Ég er
óánægður með þetta, og ráðherr-
ann þarf ekki að vera undrandi á
þessu,“ sagði Jón A. Skúlason, en
tók um leið fram að samstarf hans
við samgönguráðherrann hefði
jafnan verið gott.
• CITROÉNA CX-REFLEX
• CITROÉNA CX-FAMILIALE
BÍLASÝNING I
• CITROÉNA GSA PALLAS • CITROÉNA VISA II CLUB
Viö sýnum fjórar mismunandi tegundir af hinum glæsilegu CITROÉN^ bílum. Aldrei áöur
höfum viö getað boöiö eins hagkvæm verö og skilmála. Missiö því ekki af þessu einstæöa
tækifæri.
Globus?
Lágmúla 5, sími 81555.
Sýningin er opin laugardaginn 3. apríl frá kl. 10.00—19.00 og
sunnudaginn 4. apríl kl. 14.00 til 19.00 — Innkeyrsla að norðan-
verðu.
KOMIÐ — SKOÐIÐ — SANNFÆRIST
CITROÉN^