Morgunblaðið - 03.04.1982, Side 12

Morgunblaðið - 03.04.1982, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. APRÍL 1982 llppbygging steinullarverksmidju í I>orlákshöfn: Staðreyndirnar tali en gustukaverkin víki Eftir Arna Johnsen Það er undarieg pólitík þegar miðað er við heilbrigða skynsemi að stjórnmálamenn og opinberir embættismenn skuli standa í þeirri sýndarmennsku að halda því fram að staðsetning steinull- arverksmiðju í Þorlákshöfn sé ekki mun hagstæðari kostur en bygging slíkrar verksmiðju á Sauðárkróki. Það er skoðun út af fyrir sig að það eigi að byggja umrædda verksmiðju á Sauð- árkróki en sú skoðun getur engan veginn byggst á rökum hjá fyrr- greindum aðilum, hún er tilfinn- ingasemi, pólitísk hrossakaup, en umfram allt beiting miðstýr- ingarvalds, misbeiting og vald- níðsla í höndum Hjörleifs Gutt- ormssonar iðnaðarráðherra. Eðli málsins af hans hálfu skýrir þó að nokkru kynlegheitin. Hann á traustan flokksbróður og flokks- leiðtoga á Norðurlandi vestra sem situr í ráðherrastól með buddu ríkisins á hnjánum. Iðnaðarráðherra hefur alltaf ætl- að sér að verzla með ýmsar fram- kvæmdir tengdar Norðurlandi og Austurlandi og gagnvart Suður- landi hefur hann sýnt algjört náttúruleysi í þeirri stöðnun sem lengi hefur verið þar umfram aðra landshluta í atvinnuaukn- ingu. Vinnubrögð Hjörleifs Guttormssonar í þessu máli minna á stíl sænsku félagsfræð- inganna sem fóru í kynnisferð til Grænlands. Fyrirfram höfðu þeir gert sér ákveðnar hugmyndir um mannlif Grænlendinga, gefið sér ákveðnar forsendur og það var al- veg sama þótt þeir fyndu þær hvergi, þær voru samt í niður- stöðunum af því að þær hlutu að vera þótt þær væru ekki finnan- legar. Þeir skiluðu því niðurstöðu sem heimamenn hvorki þekktu né skildu og það sama hefur Hjör- leifur Guttormsson látið gera í staðarvali fyrir steinullarverk- smiðju og nú er það spurningin hvort hann kemst upp með það þótt hann sé mesti miðstýringar- maður sem komist hefur í valda- stóla á íslandi. Sunnlendingar hafa unnið mjög vandlega að öllum undir- búningi byggingar steinullar- verksmiðju, bæði varðandi rekstrargrundvöll, tækjabúnað, staðsetningu og sölu framleiðsl- unnar. Þeir hafa haft frumkvæð- ið í þessum málum hér á landi án þess að nokkur vafi sé þar á, allt frá árinu 1966 og á síðustu árum eftir að Jarðefnaiðnaði hf. og Iðn- þróunarsjóði Suðurlands var hleypt af stokkunum með bygg- ingu Steinullarverksmiðju í Þor- lákshöfn sem prófmál, hafa öll rök byggð á heilbrigðum rekstri mælt með Þorlákshöfn umfram Sauðárkrók. Bæði varðandi reksturinn og tækjabúnaðinn, en minna má á að Norðanmenn urðu að kokgleypa hugmyndir sínar um frönsku aðferðina í vinnslu steinullar og fór þar ársvinna í súginn. An austur-þýzks alræðis og forsjár, án orðaleiks með stað- reyndir, án sýndarmennsku og hégóma iðnaðarráðherra í valda- leik sínum, skulum við líta á nokkrar staðreyndir í máli þessu, staðreyndir sem knésetja þann málflutning sem iðnaðarráðherra hefur leyft sér að móta og halda fram í nafni ríkisstjórnarinnar og byggist á því að þótt saman- burður á tveimur umræddum stöðum sé öðrum í vil á fjölmörg- um þáttum málsins skuli niður- staðan ávallt vera sú á pappírun- um að það sé nú í rauninni enginn marktækur munur á þessum stöðum. Hlutlausir embættismenn og sérfræðingar á faglegum sviðum voru skipaðir til þess af iðnaðar- ráðuneyti fyrir tveimur árum að meta staðarvalið og það fór ekk- ert á milli mála að miðað við Þorlákshöfn og Sauðárkrók, hafði Þorlákshöfn yfirhöndina svo af bar, enda þarf vart sérfræðinga til að sjá það þegar að er gáð, brjóstvitið ætti að nægja flestum sem þora að taka afstöðu byggða á rökum, en ekki þýzku. Einn nefndarmanna, Svavar Jóna- tansson verkfræðingur, kvaðst t.d. ekki í neinum vafa um að bygging og rekstur steinullar- verksmiðju í Þorlákshöfn væri mun hagkvæmari en á Sauðár- króki og kæmi þar margt til, sér- staklega þó mikill munur á flutn- ingskostnaði og einnig kostnaði vegna efnisöflunar til vinnslu. Sömu sögu segja ýmsir opinberir embættismenn sem treysta sér ekki til vegna stöðu sinnar að tjá sig opinberlega í andstöðu við vilja ráðherra. Það er illa komið íslenzku þjóðfélagi þegar menn þora ekki að segja skoðun sína vegna ótta við yfirboðara sína sem eru í ráðherraleik. Þegar þingmenn taka ákvörðun um vilja Alþingis í þessum efnum hljóta þeir að lúta rökum og hér skulu rakin nokkur. Opinber steinullarnefnd gaf meðmæli með því árið 1980 að það væri flötur fyrir reksturina miðað við staðsetningu í Reykja- vík og þau meðmæli byggðust á því að lagernýting væri í há- marki, ódýrir flutningsmöguleik- ar væru nýttir út i yztu æsar og að miðað yrði við framleiðslu bæði fyrir innlendan og erlendan markað með kaupum á hag- kvæmustu staðlaðri gerð af 15.000 tonna verksmiðju. Þor- lákshöfn stendur svo til jafnt að vígi. Þá var gert ráð fyrir léttri steinull, aðallega, sem gæti keppt við glerull. Fyrst átti að kanna bráðabirgðasamkomulag erlendis um sölu á framleiðslunni, síðan um flutningana og þá var komið að ákvörðun um framkvæmd. Allt þetta hefur Jarðefnaiðnaður gert, óaðfinnanlega, en virðist nú eiga að verða leiksoppur miðstýr- ingaraflanna sem telja það eitur í beinum að eitthvað muni borga sig og velja þá þann kostinn sem skilar tapleiðinni. Það eru til dæmis allir sérfróðir menn sam- mála um að 15.000 tonna stöðluð verksmiðja sé hagkvæmari en 6000 tonna sersmiðuð verksmiðja, klæðskerasaumuð eins og iðnað- arráðherra vill, en þar situr al- menningur á Islandi uppi með hinn fína smekk iðnaðarráðherra í klæðaburði. Klæðskerasaumað er jú fínna. Þá var það grundvallaratriði í sjónarmiðum steinullarnefndar- innar að stærð verksmiðjunnar yrði 15.000 tonn til framleiðslu fyrir erlendan markað einnig til þess að minnka fastakostnað til muna, en hins vegar hefur hvort tveggja, stór og lítil verksmiðja, ávallt verið inni í dæminu hjá Jarðefnaiðnaði eftir því sem ástæða þykir til á lokastigi. Nú hefur iðnaðarráðherra valið þann kostinn að krefjast niður- stöðu þar sem allt ber sig á papp- írunum, annað hvort með póli- tískri valdníðslu eða með lögum sem flokkast undir ólög og ganga ekki upp frekar en sænsku félags- fræðingarnir í Grænlandi. Það sem ræður meginúrslitum í staðreyndum um staðarval er flutningskostnaðurinn og efnis- öflunin. Basaltsandurinn er við bæjardyrnar í Þorlákshöfn, inn- an við 1 km frá væntanlegri verk- smiðju, en um 6 km frá umræddri verksmiðju á Sauðárkróki. Samt alhæfa talsmenn Hjörleifs nú að þetta sé sama vegalengd. Skeljasandinn ráðgera Sunn- anmenn að sækja í þekkta námu á botni Faxaflóa og dæla upp sandi árlega, en Norðanmenn hyggjast sækja skeljasandinn á botn Húnaflóa á svæði sem hafa aldrei verið könnuð, hvorki gerð sandsins, þykkt, né magn, en þó er vitað að um annars konar sand er að ræða en í Faxaflóa. Hafa sanddæluaðilar t.d. fyrirvara vegna þess. Þeir renna sem sagt blint í sjó- inn á þessu atriði. Til þess að fá út sömu tölu og hjá Sunnlending- um gera talsmenn Hjörleifs ráð fyrir því að skeljasandi verði dælt upp úr Húnaflóa á þriggja ára fresti, en ekki er neitt hugsað fyrir mannvirkjagerð í því sam- bandi eins og nauðsyn er til. Þá má taka atriði eins og raf- magnið. Rafmagn í stóra verk- smiðju eins og Sunnanmenn vilja byggja, en gera þó einnig ráð fyrir minni verksmiðjunni, kost- ar 457 kr. á tonnið en 480 kr. á tonnið í litlu verksmiðjunni mið- að við álit sérfræðinga Jungers. Eitt af þeim efnum sem nota þarf í framleiðsluna er Fenollim en í kostnaðaráætlun Hjörieifs er ekki gert ráð fyrir neinum flutn- ingskostnaði að auki fyrir Norð- anmenn. Hér er um 200 tonn að ræða, en hugsanlega er gert ráð fyrir því að Rikisskip flytji þetta ókeypis sem eins konar uppbót við þann hallærisbúskap sem ríkisfyrirtækið hyggst taka á sig vegna hreppsómagaflutnings á framleiðslunni fyrir Norðan- menn. Flutningskostnaður frá Þor- lákshöfn er áætlaður 730 kr. á tonn um landið, en 890 kr. á tonn frá Sauðárkróki með afslætti Ríkisskips sem enginn skynsam- legur flötur er á og enginn vill nú kannast við sem króa sinn. Þarna Þorlákshöfn mun hagkvæmari kostur en Sauðárkrókur er samt um að ræða mismun upp á 2 millj. kr. sem neytendur eiga að taka á sig fyrir utan taprekst- ur Ríkisskips vegna ráðgerðra flutninga. Svo segja menn að dagar 1001 nætur séu taldir, en ævintýrin eru á fullri ferð hjá ríkisforsjánni. Flutningskostnaður frá Þor- lákshöfn til Evrópu er 2648 kr. á tonn í áætlun, en frá Suaðárkróki 3163 kr. miðað við niðurgreiðslur Ríkisskips frá Sauðárkróki til Reykjavíkur. Þetta er miðað við 1000 tonn til Þýzkalands, 2000 tonn til Bretlands og 3100 tonn á innanlandsmarkað, en alls er hér um að ræða flutningskostnað upp á 8,1 millj. kr. frá Þorlákshöfn, en 9,8 millj. kr. frá Sauðárkróki. Mismunur á flutningskostnaði á markað frá Sauðárkróki og Þor- lákshöfn er 22% þrátt fyrir niðurgreiðslurnar sem Ríkisskip hefur gefið óljós og óbundin vil- yrði fyrir. Mismunur á flutnings- kostnaði frá Þorlákshöfn og Sauðárkróki á innanlandsmarkað er 9 millj. kr. án undirboðs Ríkis- skips, en hver á svo að greiða þetta framlag ríkisins til verk- smiðju á Sauðárkróki? Auðvitað skattgreiðendur, kækur ríkis- valdsins að seilast í vasa fólks til að bjarga vitleysunni er yfir- þyrmandi. Það er eins og ekkert megi borga sig, ekkert má skera sig út úr miðstýringunni. Það er ekkert gaman að hafa svoleiðis með í leiknum. Þegar maður ber saman stóra og litla verksmiðju kemur i ljós að 15.000 tonna verksmiðja er 18% dýrari en sú minni klæð- skerasaumaða. Framlag rekstrar upp í fastan kostnað og hagnað er áætlað 26,7 millj. kr. í litlu verk- smiðjunni, miðað við 6000 tonn, og 29,2 millj. kr. í stóru verk- smiðjunni miðað við framan- greindar forsendur um magn. Sú minni á að skila 7,3 millj. kr. hagnaði, en sú stóra 6,4 millj. kr. hagnaði og munar þar t.d. hærri vaxtatölum vegna hærri fjárfest- ingar. Munurinn á stórri og lítilli verksmiðju er því sáralítill í framkvæmdinni, en stórkostlegur varðandi möguleikana. Hagnaður af heildarveltu stóru verksmiðj- unnar á ári er áætlaður 12,64%, en 14,33% af minni verksmiðj- unni. Brygðist erlendi markaður- inn algjörlega myndu þessar töl- ur lækka nokkuð, en þó væri stóra verksmiðjan með viðunandi arðsemi og sjaldan hefur því ver- ið tekið jafn lítil áhætta vegna útflutningsstarfsemi og nýrrar atvinnugreinar. Það segir sig sjálft að það sem er hægt að framleiða umfram erlendan markað og aukinn markað inn- anlands, eykur hagnað, lækkar vöruverð og um leið og verk- smiðjan þarf að keppa við erlend gæði á það að tryggja lands- mönnum betri vöru. Miðað við 6000 tonna fram- leiðslu er áætlaður starfsmanna- fjöldi 51 í 6000 tonna verksmiðj- unni, en 39 í stóru verksmiðjunni, en með fullri nýtingu í 15.000 tonna verksmiðjunni þ.e.a.s. á þremur vöktum, er gert ráð fyrir 62 mönnum. Á fyrsta ári er rætt um að steinullarverksmiðja framleiði 2500—3100 tonn af steinull. Á ár- inu 1981 nam innflutningur á glerull 880 tonnum og 970 tonn- um af steinull, en aukningin á þessum tveimur tegundum hefur verið 23% á ári frá 1974—1981 í glerull en 18% í steinull. Ef þess- ar tölur eru framreiknaðar með helmingi hægari þróun en verið hefur, fer talan upp í 3100 tonn árið 1984, en þó hefur ekkert markaðsátak átt sér stað þótt hér sé um að ræða markverðan þátt í baráttu fyrir orkunýtingu og sparnaði í meðferð fjármuna. Á fimmta ári gæti þessi tala verið komin upp í 4500 tonn og á tíunda ári upp í 5500 tonn, eða nálægt nafnafköstum litlu verksmiðj- unnar, en allt er þetta þó í al- gjöru lágmarki sem við er miðað hér. Jarðefnaiðnaður hefur gert markvissa markaðskönnun í Evr- ópu og niðurstaðan var sú að tveir aðilar vildu kaupa 5000 tonn á ári, einn vildi kaupa 6—10 þús- und tonn og einn vildi kaupa 3000 tonn á ári á því verði sem Jarð- efnaiðnaður hf. bauð. Hlutur steinullar, óbrennanlegrar ein- angrunar, er alltaf að aukast á markaðnum og allt bendir til að svo verði lengi enn. Hvers vegna ekki að notfæra sér markaðinn, byggja upp ís- lenzkan arðbæran iðnað, auka at- vinnumöguleika, nýta tækifærin? Jarðefnaiðnaður kannaði málin hjá þremur dreifingaraðilum á steinull í Bretlandi og Þýzkalandi og fékk einnig upplýsingar frá merku brezku markaðsráðgjafar- fyrirtæki. Niðurstaðan var sú að verð Jarðefnaiðnaðar sé mjög samkeppnisfært. Hvers vegna að hika, sér í lagi þar sem stærri verksmiðjan kostar nær sama vferð, en gefur stórkostlega mögu- leika fyrir reksturinn og upp- bygginguna. Bygging timburhúas hér er að stóraukast og hlutfall steinullar t.d. í byggingum í Bretlandi fer stórhækkandi sem einangrun vegna breytts bygg- ingarmáta. Þá má til dæmis benda á að næstu grannar okkar Grænlendingar eru nú að fara úr EBE og þar opnast 50 þús. íbúa markaður. 1‘orlák.shöfn, allt til staðar sem til þarf. I*"m MW RAX

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.