Morgunblaðið - 03.04.1982, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. APRÍL 1982
13
Þá ætti það að vega þungt í
afgreiðslu Alþingis að Jarðefna-
iðnaður vill eiga og reka steinull-
arverksmiðjuna á eigin ábyrgð
með sem minnstu framlagi ríkis-
ins, en forsendur fyrir steinullar-
verksmiðju á Sauðárkróki eru
þær að ríkið eigi 40% í fyrirtæk-
inu.
Það þarf að hyggja að mörgu
þegar teknar eru ákvarðanir sem
eiga að gilda, en það er galli þeg-
ar mál hafa þróast þannig að rík-
ið er farið að sjá um rannsóknir á
öllum málum. Þegar óprúttnir
stjórnmálamenn eru við völd
þora undirmenn þeirra ekki að
tjá sig og verkfræðingastofurnar
sem í kippum eiga undir högg að
sækja hjá því opinbera eru í
sömu gryfju, því líf þeirra
margra er undir iðnaðarráðu-
neytinu komið. Dæmin eru borð-
liggjandi.
Von er til þess að Alþingis-
menn vilji hafa þessa hluti á
hreinu þegar kemur til lokaaf-
greiðslu þeirra, að það sé á
hreinu hver á að borga mismun-
inn á flutningskostnaði frá
Þorlákshöfn og Sauðárkróki, en
það er það eina sem getur gert
Sauðárkrók að hagkvæmari stað,
því það vegur svo þungt. Þar fyrir
utan verður að horfast í augu við
það að svo mörg atriði í málinu
mæla fremur með Þörlákshöfn en
Sauðárkróki. Eg gat áður um
skeljasandinn og minna má á að
Norðanmenn hyggjast sækja bas-
altsandinn á bakka Héraðsvatna,
en það geta þeir ekki gert nema
vissan hluta á árinu, nema að
þeir ætli að flytja vatn til Sauð-
árkróks. Það vantar svo margt í
niðurstöður „nýju nefndarinnar"
hjá iðnaðarráðherra, þ.e. hjá
hagkvæmnisnefndinni „sem nýír
og betri menn“ voru settir í. Það
er til dæmis ekki gert ráð fyrir
því að verksmiðja á Sauðárkróki
þurfi birgðaskemmu í Reykjavík,
það er ekki gert ráð fyrir því að
hafís geti stöðvað rekstur verk-
smiðju á Sauðárkróki og það er
ekki gert ráð fyrir mun meiri
rekstri stjórnunarlega séð fyrir
verksmiðju nyrðra. Það er ljóst
að framleiðsla frá verksmiðju á
Sauðárkróki yrði tugum prósenta
dýrari fyrir neytendur, en fram-
leiðsla frá Þorlákshöfn, en
kannski það eigi að greiða fram-
leiðsluna niður á kostnað ríkis-
sjóðs. Þannig eru margir endar
lausir í sambandi við fyrirhugaða
steinullarverksmiðju á Sauðár-
króki, en á vegum Jarðefnaiðnað-
ar býður framtíðan upp á örugg-
an rekstur og arðbæran í
Þorlákshöfn, yngsta plássi lands-
ins, sem hefur verið einn mesti
útkjálki landsins til skamms
tíma, þótt segja megi að staður-
inn sé við bæjardyr Stór-
Reykjavíkur. Það er nefnilega
þannig þegar allt kemur til alls
að nágrannar Stór-Reykjavíkur
líða mun meira fyrir nábýlið en
hitt, sitja eftir á mörgum sviðum,
þótt bæði Norðlendingar og ýms-
ir aðrir haldi annað. Steinullar-
verksmiðjumálið hefur frá upp-
hafi verið faglega unnið af Jarð-
efnaiðnaði hf. og þau vinnubrögð
eru til fyrirmyndar. Niðurstaða
Alþingis má því ekki verða
kjaftshögg á það frumkvæði og
áræði sem menn hafa stefnt
markvisst að með verksmiðjunni
í Þorlákshöfn. Sauðárkrókur er
mun dýrari kostur en Þorláks-
höfn og það á að ráða úrslitum.
Aðrir möguleikar eru ekkert inni
í myndinni í neinni alvöru þótt
iðnaðarráðherra geri sig til fyrir
framan spegilinn.
Það á ekki að vera neitt gust-
ukaverk hvar steinullarverk-
smiðjan rís, hvorki fyrir Sauð-
árkrók né Ríkisskip. Það á að
hugsa stórt og markvisst í þess-
um rekstri sem öðrum, nýta beztu
fáanlegu möguleika sem um er að
ræða þannig að allt sé gert sem
unnt er til að reksturinn skili
arði, vaxi af sjálfum sér en ekki
tilfærslu úr vasa skattborgar-
anna. Með það í huga hljóta al-
þingismenn að taka af skarið.
Flokksstjórn
Alþýðuflokksins:
Brýnt að breyta
stjórnarskrá
fyrir næstu
kosningar
FLOKKSSTJÓRN Alþýðu-
flokksins telur brýnt að fyrir
næstu kosningar verði lokið
afgreiðslu nýrrar stjórn-
arskrá fyrir lýðveldið ísland,
að því er segir í samþykkt
flokksstjórnarfundar Alþýðu-
flokksins.
Þar segir ennfremur:
„Hin nýja stjórnarskrá ætti að
fela í sér ný ákvæði um mannrétt-
indi, umhverfismál, dómsmál,
þjóðareign á landi, þjóðaratkvæði,
18 ára kosningaaldur, aukið eftir-
lit Alþingis með framkvæmda-
valdinu og að Alþingi starfi í einni
deild, auk umbóta á kosninga-
löggjöf sem tryggi réttlæti milli
einstakra byggðarlaga og jöfnun
atkvæðisréttar.
Flokksstjórnin bendir á að
margar tilraunir hafa verið gerðar
til að ljúka heildarendurskoðun
stjórnarskrárinnar, en allar runn-
ið út í sandinn. Virðist því fyllsta
þörf á að setja endurskoðuninni
ákveðin tímamörk og ætla Alþingi
sérstakan tíma til þess að fjalla
eingöngu um stjórnarskrármálið.
Því hvetur flokksstjórn Alþýðu-
flokksins eindregið til þess að
kallað verði saman aukaþing í
sumar til að afgreiða nýja stjórn-
arskrá og hvetur Alþingi til þess
að samþykkja framkomna þings-
ályktunartillögu um þetta efni.“
Ferming á
Siglufirði
Ferming í Siglufjarðarkirkju,
sunnudaginn 4. apríl kl. 10. Fermd
verða:
Asgrímur Pálsson,
Hvanneyrarbraut 61
Baldur Hermannsson,
Hafnartúni 22
Bylgja Ingimarsdóttir,
Hvanneyrarbraut 51
Einar Aki Valsson,
Eyrargötu 12
Elísabet Júlíusdóttir,
Hvanneyrarbraut 56
Guðrún Björg Alfreðsdóttir,
Hvanneyrarbraut 35
Guðrún Heiða Kristjánsdóttir,
Hvanneyrarbraut 23
Gunnar Sverrir Ásgeirsson,
Hvanneyrarbraut 48
Hanna Björg Hólm Hafsteinsd.,
Eyrargötu 29
Hólmfríður Ólafsdóttir,
Hafnargötu 28
Ingólfur Arnar Jóakimsson,
Suðurgötu 58
Jón Engilbert Sigurðsson,
Hvanneyrarbraut 58
Óðinn Freyr Rögnvaldsson,
Fossvegj 13
Ólafur Hinrik Guðlaugsson,
Laugarvegi 22
Páll Ágúst Jónsson,
Hvanneyrarbraut 33
Sigríður Frímannsdóttir,
Túngötu 28
Sigurrós Sveinsdóttir,
Lindargötu 20b
Steinar Þorbjörnsson,
Hafnargötu 24
Valgerður Ólöf Steingrímsdóttir,
Hólavegi 65
Þorleifur Gunnar Elíasson,
Fossvegi 17
Þorsteinn Þormóðsson,
Hverfisgötu 32
Gjöfina
færd þú hjá okkur
SHARP
Stereo ferðatæki
frá 1.590
Hljómtækjasamstæður
frá kr. 5.950
Vasa-tölvur
Verð frá 150
Basic-forritunartölva
verð frá 2.115
Segulband
verð frá 890
Luxor
Stereo ferðatæki
Verð frá 1.900
Útvarpskassettuklukka
Verð frá 1.395
Frá
Audio
Sonic
Stereo ferðatæki
Verð frá 1.540
Útvarpsklukkur
Verð frá 730
Verkjaraklukkur
Verð frá 310
Armbandsúr
Verð frá 220
Klukkuhálsmen
Verð frá 320
Skáktölvur
Verð frá 1.280
Vasa-Disco
Verð frá 1.790
0PIÐ TIL KL. 16 I DAG
áfíL. HLJOMTÆKJADEILD
Vm KARNABÆR
W HVERFISGÖTU 103 SÍMI 25999