Morgunblaðið - 03.04.1982, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. APRÍL 1982
15
um að setja upp eldflaugakerfi í
Evrópu á árunum 1983—1987 ef
Sovétmenn fengjust ekki til að
fjarlægja sínar SS-20-flaugar,
þá var hugmyndinni um að koma
þessum eldflaugum fyrir neð-
ansjávar beinlínis hafnað. Ein
ástæðan var sú, að það væri sýnu
hættulegra m.a. vegna þess að
raunhæft gagnkvæmt eftirlit
væri mun erfiðara þegar um
kafbáta er að ræða.
Sumir forsvarsmanna „frið-
arhreyfinganna" ganga svo
langt, að leggja hinn rauða fas-
isma í A-Evrópu að jöfnu við
stjórnarfar á Vesturlöndum.
Thompson gengur lengra. I bók
sinni, Athugasemdir um útrým-
ingarstefnu, segir hann: „Banda-
ríkin virðast mér vera sá aðilinn
sem er háskalegri og meira ögr-
andi og ríkjandi utanríkis- og
hernaðarstefna þeirra þrengir
að Sovétríkjunum með ógnandi
herstöðvum. Það er miklu frem-
ur í Washington en Moskvu sem
menn velta fyrir sér ólíkum
sviðsmyndum í „leikvangs-
styrjöldum", og það er í Ameríku
sem gullgerðarmenn ofurdráps-
ins, hinir slyngu tæknifræðingar
„yfirburða" og úrslitavopna
knýja fram stjórnarstefnu
morgundagsins." (Tilvitnun úr
tímariti MM bls. 92)
Það er ekki að undra að póli-
tískum einfeldningi úr vernduðu
umhverfi Cambridge sem þannig
talar, hafi verið fálega tekið,
þegar hann hugðist sækja heim
andófsmenn í Tékkóslóvakíu
fyrir skömmu. Þar kom Thomp-
son víða að lokuðum dyrum.
Hann mætti þögn í Prag.
Einn andófsmanna virti hann
þó svars. Það svar birtist í
brezka tímaritinu New States-
man 24. apríl 1981 undir dul-
nefninu Waclav Racek. I sein-
asta hefti tímarits MM er þetta
opna bréf andófsmannsins
tékkneska til Thompsons birt og
langt svar frá Thompson á eftir.
Hinn tékkneski andófsmaður
bendir yfirstéttarbretanum á
það i allri vinsemd, að þjóðfé-
lagskerfi A-Evrópu sé hervædd-
ur fasismi sem stefni að heim-
syfirráðum, byggðum á afnámi
allra mannréttinda. Hann segir
þjóðfélagsástandið vera þegar
orðið eins og 1984 eftir Orwell í
framkvæmd, nema kerfið ríkir
ekki um allan heim.
Og þetta nema sé mjög mikil-
væg staðreynd. Tékkinn segir að
afvopnunarhreyfingin í V-Evr-
ópu, sem byggi á svo fræðilegri
einfeldni að leggja þessi tvö
þjóðfélagskerfi að jöfnu, virðist
vera „ómeðvituð hliðstæða við
tilslakanir við fasismann á
fjórða áratugnum.
I niðurlagi greinar sinnar seg-
ir Racek: „Ég held að kjarni
skilnings yðar sé fólginn í þeirri
pólitísku forsendu sem skiptir
pólitískum öflum í hægri og
vinstri. Innan þess ramma fall-
izt þeir aðeins á skiptingu í
íhalds- og afturhaldsmenn ann-
ars vegar og andstæðinga þeirra
hins vegar þ.e.a.s. annar skil-
greinir hinn. Þessi skipting er
orðin úrelt vegna þess hve afger-
andi áhrif alræðistilhneigingar
— hreyfingar — og stjórnkerfi
hafa. Þessi hættulega tíma-
skekkja stafar af þeirri stað-
reynd að þau skil sem máli
skipta virðast vera á milli alræð-
is- og lýðræðisstrauma bæði
vinstra og hægra megin í hinu
pólitíska litrófi."
Þess má að lokum geta að ein-
hverjir einfeldningar úr Skand-
inavíu söfnuðu fyrir skömmu liði
í einn langferðabíl og hugðust
fara í ökuferð fyrir friði frá
A-Berlín til Moskvu. Það átti að
vera byrjunin á nýrri „friðar-
hreyfingu" í sjálfu sovézka ný-
lenduveldinu. Það þarf ekki að
orðlengja það, að austur-þýzka
lögreglan stöðvaði friðarsinnana
við „Checkpoint Charlie" og vís-
aði þeim aftur vestur, með þeim
ummælum að fyrir austan ríkti
þegar „allsherjarfriður".
NÝTT TÆKNIUNDUR FRÁ CatlOH
NP—200 LJOSRITUNARVEL
Það veröur aö sjá þessa vél til aö sannfærast um kosti hennar.
Canon er með söluhæstu Ijósritunarvélum
heims í dag. Pað segir sína sögu.
Til athugunar:
1. 20 afrit á mínútu!
2. Afritastærðir frá B6 uppí A3 (tekur opnu)
3. Við fjölritun, stillanleg í 99 stk. í senn.
4. Duftvél, afrit meö 100% skerpu.
5. Jafnskörp afrit á sléttan og hamraðan pappír.
6. Fyrirferöarlítil, 515x289x538 mm!
7. Sérlega ódýr í rekstri.
8. Ekkert skrefagjald
9. Stærri og smærri gerðir fyrirliggjandi.
Sýningarvél á staðnum VERIÐ VELKOMIN
Sala, ábyrgð og þjónusta ShrííuÉlin hf Sími 85277 — 85275
að Þórunn, eða Tóta eins og hún
nefnir sig, vinnur af mikilli sköp-
unargleði og innlifun í hluti sína
og hún virðist héi* hafa hitt á sitt
kjörna sérsvið.
Sum teppanna eru bæði vel gerð
og frumleg, — næsta of frumleg á
stundum, því að Tóta missir þá
tökin á listrænu skipulagi þannig
að allt fer úr böndum og mynd-
verkin verða léttvæg fyrir vikið.
Hér skortir meiri aga og ósér-
hlífni.
Þessi sýning hefði orðið stórum
áhugaverðari ef frágangur og upp-
henging hefði verið betri. Þá vant-
ar sýningarskrá og verkin eru
nafnlaus og ónúmeruð. Þau munu
þó heita eitthvað öllsömul því að
víða er sitthvað krotað í þau eða á
veggina við hlið þeirra.
Álverkpallar
Til sölu — leigu
Sparlö fé og tíma, mjög fljót
uppsetning. V-þýsk gæöavara,
mjög góð reynsla hér á landi.
Leitið upplýsinga!
Pallar hf.
Vesturvör 7, Kópavogi,
sími 42322.
Brita
barna-
bílstóll,
hugulsöm jólagjöf,
og barniö er öruggt
Britax bílstólar fyrir börn eru öruggir
og þægilegir í notkun. Með einu
handtaki er barnið fest, - og losað
Biðjið um Britax bílstóla á bensín-
stöðvum Shell.
Skeljungsbúðin
SuóurlandsbraLit 4
simi 38125
Heildsölubirgóir: Skeljungur hf.
Smávörudeild - Laugavegi 180
sími 81722