Morgunblaðið - 03.04.1982, Síða 19

Morgunblaðið - 03.04.1982, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. APRÍL 1982 19 flokksins hafa áður lýst harðri andstöðu sinni við áform vinstri meirihlutans um að taka fyrir- huguð útivistarsvæði í borginni undir byggingar. Stefna vinstri flokkanna er mörkuð skammsýni og fyrirhyggjuleysi, þótt viður- kenna megi að þeir hrekist til þessara ákvarðana vegna þess að öngþveitið í skipulagsmálum á þessu kjörtímabili hefur skapað algeran lóðaskort í borginni. Margoft hefur verið að því fundið, að vinstri meirihlutinn hefur látið undir höfuð leggjast að kynna borgarbúum og þá ekki síst þeim, sem mestra hagsmuna hafa að gæta hverju sinni, fyrir- ætlanir sínar, áður en miklu er til kostað í skipulagi eða fram- kvæmd, og meðan enn verður aftur snúið með áform, sem mæta harðri andstöðu borgar- búa. Tillaga um slíka kynningu hefur nú verið felld hvað snertir hugsanlega byggð í „Sogamýri" sunnan Gnoðarvogs. Þetta er gert þrátt fyrir að yfir 9000 Reykvíkingar hafi áður mót- mælt fyrirhugaðri mannvirkja- gerð í Laugardal og á því svæði, sem nú er deilt um. Við sjálfstæðismenn hörmum þessa niðurstöðu og greiðum at- kvæði gegn frekari vinnslu deili- skipulagstillögunnar." Umhverfismálaráð Umhverfismálaráð borgarinn- ar samþykkti samhljóða þann 10. september harðorða tillögu, þar sem það er átalið að um- hverfismálaráð hefði ekki fengið tillöguna til umsagnar og jafn- framt var lögð áherzla á „að skipulagstillagan og ákvörðun borgarstjórnar verði kynnt íbúum í Langholtshverfi næst svæðinu, þannig að mögulegt verði að taka tillit til athuga- semda þeirra". Þessari samþykkt umhverf- ismálaráðs var í engu sinnt. Andmæli íbúanna I janúar sl. var samþykkt að óska eftir heimild skipulags- stjórnar ríkisins að leggja fram og auglýsa tillögu um breytta landnotkun á þessu svæði, þ.e. að í staðinn fyrir útivistarsvæði kæmi íbúðarbyggð og einstakar þjónustubyggingar. Við þá aug- lýsingu komu fram hörð mót- mæli frá íbúum á nærliggjandi slóðum. Töldu íbúarnir m.a. að eignir þeirra rýrnuðu í verði og áskildu sér fullan rétt til skaða- bóta. Borgarfulltrúar Sjálfstæðis- flokksins vildu enn freista þess að taka málið upp og fluttu til- lögu um að fresta afgreiðslu skipulagstillögunnar í rúma tvo mánuði, svo að ný borgarstjórn gæti fengið tækifæri til að fjalla um þetta mikilvæga deilumál. Allt kom fyrir ekki. Vinstri meirihlutinn felldi tillöguna og sumir borgarfulltrúar þeirra flokka sáu ástæðu til að senda íbúunum tóninn í umræðum um málið. Samstarf og samráð Þannig varð niðurstaðan í þessu máli. Málið keyrt fram í miklum ágreiningi í borgar- stjórn og ekkert tillit tekið til óska íbúanna. I kosningastefnu- skrá Alþýðubandalagsins fyrir þessar kosningar er fallegur kafli um nauðsyn samstarfs og samráðs við borgarbúa. Skyldu margir trúa því kosningaloforði? Vara við ferðum um Fimm- vörðuháls HELGINA 5.—6. mars sl. var Björgunarsveitin Stakkur við æf- ingar á Fimmvörðuhálsi en svo nefnist hálsinn milli Eyjafjalla- og Mýrdalsjökuls. Hreppti sveitin hið versta veður og þurfti að leita að- stoðar hjá Flugbjörgunarsveit A-Eyjafjalla. Tókst að koma öllum heilum til byggða og má það heita kraftaverk við þær aðstæður sem þarna voru. Fimmvörðuháls liggur um 1100 m yfir sjó og þar eru veður oft válynd. A undanförnum ár- um hefur hvað eftir annað legið við slysi þarna og öllum er í minni þegar þrjú urðu þar úti fyrir nokkrum árum. Að feng- inni reynslu telja Eyfellingar nauðsynlegt að minna á að fara með gát um þessar slóðir og leggja ekki leið sína þangað að nauðsynjalausu á þessum árs- tíma. Ný ólga í Kosovo Ik lgrad, I. apríl. AP. LÖGREGLA dreifði nokkur hundr- uð stúdentum, sem reyndu að efna til mótmælaaðgerða í Pristina, höf- uðborg héraðsins Kosovo, á mið- vikudagskvöld og „margir" voru handteknir samkvæmt blaðafrétt- um. Miðborginni var lokað til að af- stýra frekari ólátum. Stúdentunum var dreift þegar þeir höfðu safnazt saman fyrir framan kaffihús háskólans og hrópað „fjandsamleg slagorð", segja blöðin. Aðrir hófu hróp og köll í heimavist. Félagsmiðstöð stúdenta sagði hins vegar að áflog tveggja stúd- enta hefðu leitt til átakanna og aðeins 15 stúdentar hefðu hrópað slagorð. Blaðið Politika Ekspres sagði að nokkrir blaðamenn, myndatöku- menn sjónvarps og ljósmyndarar frá ýmsum hlutum Júgóslavíu hefðu verið handteknir í Kosovo í síðasta mánuði þegar þeir ætluðu að fylgjast með mótmælaaðgerð- um, sem héraðslögreglan bældi niður. Blaðið sagði að þeim hefði verið misþyrmt og hald hefði verið lagt á tæki þeirra og filmur. A.m.k. níu biðu bana og 250 slösuðust þegar sérþjálfuð lög- regla frá öllum hlutum Júgóslavíu bældi niður miklar óeirðir í fyrra í héraðinu, þar sem 77% íbúanna eru Albanir. Seinna hermdu frétt- ir að lögreglan hefði verið lin og treg til að bæla óeirðirnar niður. Yfirmaður öryggismála í Kosovo var rekinn. Dauðadóm- ar 1 Yemen Aden, Suður-Yemen, 31. mars. Al\ ÞRETTÁN Yemen-búar voru í dag dæmdir til dauða fyrir að hafa ætlað að vinna skemmdarverk á olíu- mannvirkjum í landinu með „utan- aðkomandi” hjálp, að sögn embætt- ismanna. Ríkissaksóknarinn í Yem- en sagði að „samsærið" væri runnið undan rifjum heimsvaldasinna og að einn sakborninga hefði játað við réttarhöldin að hafa fengið þjálfun hjá Bandaríkjamönnum í Saudi- Arabíu. Saudi-Arabar hafa neitað að eiga nokkurn þátt í þessu máli. I_____________________ iiiintiiJiiHHi immMinuiiiniiiiitiiiiitHmHiminitiminnmtiinti ÁBYRGÐARTÉKKAR Á ÚTVEGSBANKANN ERU ÖRUGGUR GJALDMHHLL Útgeíandinn sýnir þér skilríki sem sannar heimild hans til útgdíu dbyrgðartékka. Á skírteininu stendur hve hdr tékkinn megi vera. Bankinn ábyrgist innlausnina. ÚTVEGSBANKINN Greinilega bankinn fyrir þig líka.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.