Morgunblaðið - 03.04.1982, Side 37

Morgunblaðið - 03.04.1982, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. APRÍL 1982 37 Minning: Agústa Júlíusdótt- ir - frá Kvíslhöfða Fædd 20. ágúst 1895 Dáin 25. mars 1982 Ágústa fæddist að Halldórs- gerði í Svarfaðardal, dóttir hjón- anna Júlíusar Guðmundssonar og Helgu Magnúsdóttur Guðmunds- sonar. Magnús var bróðir önnu á Þverá í Skíðadal ömmu Jóhanns föður míns. Júlíus í Halldórsgerði var formaður á báti er reri frá Böggvistaðasandi og drukknaði þar með þrem hásetum sínum, er bátnum hlekktist á í lendingu í nóvember 1898. Var því Ágústa aðeins þriggja ára en fylgdi ein móður sinni er heimilið leystist upp. í æsku bauð því lífið henni ekki upp á marga kosti. Sumarið 1918 er hún í vinnu- mennsku að Ögmundarstöðum í Skagafirði er þangað koma í kaupavinnu sunnan af landi tvær ungar stúlkur, Sigríður Guðný Jónsdóttir frá Álftanesi og frænka hennar, Soffía Haraldsdóttir, þá 16 ára gömul, en hún varð seinna tengdamóðir mín. Eftir þessi kynni verður það úr, að ári síðar ræðst Ágústa að Álftanesi, með litla dóttur sína, Kristínu. Skammt þaðan í sömu sveit, á Lambastöðum, var þá vinnumaður, Guðjón Jónsson f. á Hraunholtum í Kolbeinsstaða- hreppi. Árið 1922 giftust þau. Ágústa og Guðjón, bjuggu á Ytri- Skógum í Kolbeinsstaðahreppi til 1927, en fluttu þá að Kvíslhöfða, næsta bæ við Álftanes. Ágústa og Guðjón eignuðust 5 börn, Margréti húsfreyju að Dalsmynni í Eyjahreppi, Helgu húsfreyju í Reykjavík, Harald bifvélavirkja í Reykjavík, Svövu er þau misstu unga stúlku og Sig- urð bifvélavirkja í Reykjavík. Kristín dóttir Ágústu ólst einnig upp hjá þeim og síðan Bára Steingrímsdóttir, dóttir Kristínar, er varð stoð og stytta þeirra á efri árum. Guðjón dó fyrir réttum 10 árum, og minnist ég hans ætíð sem góðs vinar. Ágústa verður jarðsett í dag. Ég get ekki látið hjá líða að minnast hennar með nokkrum orðum. Ég trúi að hún hafi verið einn af landsins sterkustu persónuleikum. Kynni okkar hófust sumarið 1953, þegar eiginmaður minn fór með mig vestur á Mýrar til að sýna mér sveitina, þar sem hann hafði oft verið strákur, þ.e. á Álftanesi, sem er næsti bær við Kvíslhöfða. Við urðum að bíða eftir því að sjór félli út af Vognum, svo hægt væri að komast yfir að Álftanesi. Sjáum við þá hvar kona kemur ríðandi með lítið barn fyrir fram- an sig og þegar hún kemur nær, kemur í ljós að fyrir framan barn- ið hefur hún einnig kartöflupoka. Þarna verða fagnaðarfundir, því þarna var komin Gústa í Höfða eins og hún var oftast kölluð. Við fengum nú ekki að fara lengra í bili. Hún var að ná í kartöflur í soðið og ætlaði að hafa þær með bollunum sem hún ætlaði að fara að steikja. Það munaði ekki mikið um okkur því að margt fólk var í Höfðanum í þetta skipti, eins og oftastnær. Það er erfitt að skrifa um Gústu með nokkrum orðum af því að saga hennar er efni í stóra bók. Hún naut lífsins og landsins, dýr- anna og mannfólksins og ég held ég megi fullyrða að hún fékk það besta og ánægjulegasta út úr öllu. Okkar góðu kynni hafa haldist, því að við hjónin eignuðumst Álfta- nesið árið 1957 og höfum því verið þar af og til síðan. Alltaf var gam- an að hitta Gústu og hennar fólk, dugnaðurinn var henni í blóð bor- inn. Hún þurfti nú ekki að vera mikið upp á aðra komin. Hún gæti verið fyrirmynd kvenna sem berj- ast fyrir jafnrétti í dag. Gústa gekk að öllum störfum, járnaði hesta, reri til fiskjar, þeg- ar tíðkaðist að bændur færu á sjó til að fá sér nýjan fisk. Henni þótti líka gaman að dansa og skemmta sér. Það kom oft fyrir að hún færi á gömlu dansana til Reykjavíkur fyrr á árum, og fékk jafnvel litla flugvél til að sækja sig upp á Mýrar ef því var að skipta. Gústa safnaði ekki auði, heldur gaf hún af því litla sem hún átti. Jafnvel ellistyrkinn sinn gaf hún til félagsheimilisins, Lyngbrekku, enda var það hennar brennandi áhugamál að það risi sem fyrst. I félagsheimilinu sá ég hana síð- ast, áður en hún veiktist alvar- lega. Börn hennar og Bára, upp- eldisdóttir hennar, héldu þar upp á 80 ára afmæli hennar og mætti þar stór hópur vina og vanda- manna. Það eru margir sem notið hafa sumarvistar í Höfðanum og minnast Gústu í dag. Öll þau börn sem hún hafði hjá sér í lengri eða skemmri tíma, þörn sem fengu að kynnast konu, sem ekki var að fjasa yfir hlutunum heldur lifði lífinu lifandi meðan kraftar og heilsa entust. Ég veit að þegar vorið kemur á Mýrunum og allt lifnar á ný, fugl- ar kvaka, lömbin fæðast, hestar hneggja og hófadynur heyrist þeg- ar riðið er eftir söndunum í kvöld- kyrrðinni, þá verður «ál Gústu, sem Guð hefur leyst úr fjötrum síðustu ára, ekki langt undan. Við hjónin og börnin okkar þökkum henni kynnin, og biðjum góðan Guð að blessa sál hennar. Agnes Jóhannsdóttir Júlíus Vigfússon — Minningarorð Fæddur 13. júlí 1900. Dáinn 29. mars 1982. Júlíus Vigfússon lést á Borg- arsjúkrahúsinu að morgni mánu- dagsins 29. mars sl. Mig langar til þess að minnast þessa sómamanns og vinar okkar hjóna í örfáum orð- um. Júlíus heitinn fæddist á Teigi í Fljótum í Skagafirði hinn 13. júlí árið 1900. Það má því með sarini segja að hann hafi verið einn af aldamótamönnunum sem af eðli- legum ástæðum eru nú að hverfa héðan á braut. Foreldrar hans voru þau hjónin Sigurbjörg Elín Jóhannsdóttir og Vigfús Árnason, bóndi á Teigi. Foreldrar Júlíusar áttu sjö börn sem náðu fullorðins- aldri, en einhver barna þeirra munu hafa látist í bernsku. Þegar Júlíus var um fermingu lést faðir hans. Mun það hafa verið þungt áfall fyrir móðurina og börnin á þeim erfiðu tímum. Móðirin lét þó ekki bugast. Nokkrum barna sinna kom hún fyrir hjá ættingjum og vinum þar á meðal Júlíusi heitn- um en flutti síðan til Siglufjarðar með hin börnin. Mun hún hafa tal- ið að þar væru meiri möguleikar á að sjá sér og börnum sínum far- borða. Um 16 ára aldur byrjaði Júlíus heitinn að stunda sjómennsku. Fyrstu árin reri hann á bátum frá Siglufirði, en 19 ára gamall kom hann fyrst á vertíð í Ytri-Njarð- vík. Ætla ég að fyrst í stað hafi hann aðeins verið á vetrarvertíð í Njarðvikunum en eigi síðar en ár- ið 1924 var hann alfluttur til Njarðvíkur, og stundaði þar sjó- mennsku og að ég hygg alltaf á sama bátnum, m/b Ársæli, á sjó á sumrin en landmaður á veturna, fram til ársins 1942 en það ár fórst m/b Ársæll. Eftir það vann hann við ýmis störf í landi en árið 1959 réðist hann sem starfsmaður hjá Varnarliðinu á Keflavíkur- flugvelli og vann þar fram til árs- ins 1976. Nú hin síðustu ár ævi sinnar var hann vistmaður á Hrafnistu. Árið 1924 var örlagaríkt gæfuár í ævi Júlíusar heitins en 24. okt. það ár kvæntist hann Guðfinnu Magnúsdóttur sem þá bjó hér í Ytri-Njarðvík hjá foreldrum sín- um, Magnúsi Magnússyni og Snjá- fríði Olafsdóttur. Þau hjónin bjuggu allan sinn búskap í Ytri- Njarðvík og eftir að ég fluttist hingað í Njarðvíkurnar var heim- ili þeirra Hlíð, sem nú heitir Þóru- stígur 4 í Ytri-Njarðvík. Þau eign- uðust 2 börn, Árna Jóhann, sem lést í brunanum mikla í Ung- mennafélagshúsinu í Keflavík 30. des. 1935, og Karólínu, sem er gift Rafni A. Péturssyni, frystihúseig- anda, og búa þau í Ytri-Njarðvík. Þá ólu þau upp eitt barnabarn sitt, Árna, sem þýr að Hraunsvegi 7, Ytri-Njarðvík. Hjónaband þeirra Júlíusar og Guðfinnu var farsælt og ham- ingjusamt og bar aldrei skugga á svo ég viti. Mér er enn minnis- stætt hversu djúp áhrif það hafði á mig, er ég fyrst kom á heimili þeirra hið gagnkvæma traust, virðing og ást þeirra hjóna sem lýsti sér í orðum þeirra og athöfn- um, þeirra hlýlega, fallega heimili, þær hlýju viðtökur og þeirrar rausnarlegu gestrisni sem maður naut. Það leyndi sér ekki að þeim þótti vænt um heimili sitt og gerðu allt til að gera það vistlegt og aðlaðandi. Það var bæði gaman og þroskandi að koma inn á það heimili. Guðfinna heitin Magnús- dóttir lést hinn 31. maí 1971. Júlíus var maður yfirlætislaus og lítt um það gefið að hæla sér eða trana sér fram. Ég hef það þó fyrir satt að hann var mikill dugn- aðarmaður og vann öll sín störf af alúð og samviskusemi, enda hefðu vinnuveitendur hans vart haft þann svo lengi í vinnu hjá sér sem raun ber vitni, ef svo hefði ekki verið. Þá er mér einnig minnisstætt hversu þau hjón, Júlíus og Guð- finna, voru greiðvikin og hjálpsöm og einhvern veginn fannst mér að þau teldu slíkt ekki endilega til dyggða heldur væri slíkt bæði eðlilegt og sjálfsagt. Þó fannst mér kannski athyglis- verðast við Júlíus heitinn, á efri árum hans og eftir að hann varð ekkjumaður, hversu ríkt það var í fari hans umburðarlyndi ásamt hlýju og trausti til guðs og manna. Þeim mönnum sem þannig tekst að móta lífsviðhorf sitt hlýtur ell- in að verða mildari en ella og sam- neyti við hann varð um leið öðrum ljúft. Þótt það fylgi því nokkur sárs- auki nákomnum ættingjum að missa ástvin sinn, hygg ég að Júlí- us hafi fengið kærkomna hvíld eftir langan vinnudag. Öllum ættingjm hins látna sendi ég alúðar samúðarkveðjur. Megi guðs blessun fylgja þeim hjónum Júlíusi og Guðfinnu, og minningunum um þau. Orðstír deyr aldregi hveims sér góðan getur. B.F.H. FERDASKR/FSTOFAN ISLEIDIR Eyþór Heiðberg PósthóH 1293 -121 Reykjavik Aða/stræti9-Miðbæjarmarkaðurinn-2.hæð,Sími: 22100 Seljum flugfarseðla um allan heim - útvegum hótelgistingu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.