Morgunblaðið - 03.04.1982, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. APRÍL 1982
41
Athugasemd
Frá Sigurjóni
Péturssyni forseta
borgarstjórnar
í Reykjavíkurbréfi Morgun-
blaðsins sl. sunnudag er vikið að
atvinnu og byggðaþróun í Reykja-
vík með þeim hætti að ég sé mig
knúinn til að biðja yður, hr. rit-
stjóri, að birta þetta bréf í blaði
yðar.
Fyrirsögnin að því sem ég vil
gera að umtalsefni er: Láglauna-
svæði — háskattaborg.
Þar er bent á að Reykjavík haldi
ekki sínum hlut i fólksfjölgun
landsmanna og reynt er að leita
orsaka í þremur tölusettum liðum.
1) Að samdráttur hafi orðið í
frumatvinnugreinum og að
Reykjavík hafi ekki haldið hlut
sinum í togaraútgerð og fisk-
vinnslu.
Þetta er rétt.
Þess er hins vegar ekki getið að
þessi þróun hefur verið að eiga sér
stað á nokkrum áratugum né held-
ur að á síðustu árum hafa borgar-
yfirvöld reynt verulega að hamla
gegn henni. Þannig hefur togara-
floti BÚR verið aukinn um tvo
nýja skuttogara og framleiðslu-
geta fyrirtækisins í landi stórlega
styrkt. Um þessar aðgerðir hefur
því miður ekki verið einhugur í
borgarstjórn en hans er kannski
að vænta þegar Morgunblaðið tek-
ur með þessum hætti undir nauð-
syn þess að styrkja undirstöðuat-
vinnugreinarnar í borginni.
2) Að ríkjandi stefna í skatta-
og lóðamálum hafi fælt fólk frá
búsetu í borginni.
Með ríkjandi stefnu tel ég að
Mbl. eigi við stefnu núverandi
stjórnvalda í borginni.
Sé svo þá er fullyrðingin röng.
Á síðasta kjörtímabili Sjálf-
stæðisflokksins fækkaði Reykvík-
ingum um á annað þúsund og
fyrirtæki fluttu í stórum stíl út úr
borginni. Iðnaðarhverfið í austur-
hluta Kópavogs byggðist þá að
mestu af fyrirtækjum, sem komu
úr Reykjavík.
Á þessu kjörtímabili hefur
Reykvíkingum fjölgað á ný um lið-
lega eitt þúsund manns og mér er
ekki kunnugt um neitt fyrirtæki,
sem yfirgefið hefur borgina.
I þriðja tölulið er gerður sam-
anburður á tekjum einstaklinga
og skattabyrði.
Um tekjudæmið er það að segja
að í Reykjavík er hærra hlutfall af
öldruðu fólki en í öðrum byggðar-
lögum m.a. vegna þess að hér er
búið betur að öldruðum en víðast
annarstaðar. Þetta fólk er hins
vegar mjög tekjulágt og lækkar
því meðaltekjur á framteljanda.
Um útsvörin og fasteignagjöldin
er það að segja að Reykjavík er
þriðja lægst af kaupstöðum lands-
ins með útsvarsálagningu og u.þ.b.
í meðallagi hvað varðar fasteigna-
gjöld.
Samanburður á milli Reykjavík-
urborgar annarsvegar með sína
miklu samfélagslegu þjónustu og
Seltjarnarneskaupstaðar sjá
væntanlega allir að er mjög
ósanngjörn. Ibúar Seltjarnarness
njóta í mörgu nálægðar við
Reykjavík og þeir virðast sætta
sig við að vera án þjónustu sem
við Reykvíkingar teljum sjálfsagt
og nauðsynlegt að halda uppi eins
og t.d. íbúðum og þjónustustofn-
unum fyrir aldraða.
Með vinsemd og virðingu,
Sigurjón Pétursson.
Fyrsti sendiherra Breta
í Páfagarði í 450 ár
Páfagardi, I. apríl. AP.
JÓHANNES Páll páú II veitti í
dag viðtöku trúnaðarbréfi sendi-
herra Breta í Vatikaninu, Sir
Mark Heaths, en hann er fyrsti
sendiherra Bretlands þar í 450 ár.
Hinrik VIII rauf-öll tengsl við
kaþólsku kirkjuna árið 1534 i
deilu vegna skilnaðarmáls. Páfi
sagði við þessa athöfn í dag að
hann vonaði að þessi tengsl, svo
og væntanleg för hans til Bret-
lands myndu verða til góðs fyrir
samskipti Breta og Páfagarðs.
í KVÖLD >V4/A>%''
Opnum kl. 19.00
fyrir matargesti ^ j
MATSEÐILL: Dansflokkur frá
Forréttur: Heiöari Ástvaldssyni.
Rjómasúpa með blönduðu grænmeti. 18 dansarar meö
Aðálréttur: nútímadansinn
Gljáð London lamb með djúpsteiktu Lucifer
blómkáli, gulrótum, Parísarkartöflum undir stjórn
og rauðvínssósu. Kolbrúnar Aóalsteinsdóttur.
Hreint
út sagt
óvenjuleg tízkusýn-
ing Módel 79 og
Líkamsræktin,
Kjörgaröi sýna
sumartízkuna frá
Airport.
Jazzsportstúlkurnar
glæsilegu sýna á sinn
einstæða hátt.
Borðapantanir í síma 77500 frá kl. 13.00 í dag.
Danssýning í Glæsibæ
dansflokkurinn Silver Rose
(oft nefndur heimsins djarfasti dansflokkur)
sýnir í kvöld og annaö kvöld.
Opiö til kl. 3 í kvöld.
PjX Opiö til kl. 1 annaö kvöld. sp
Borðapantanir í síma 86220 eftir kl. 17