Morgunblaðið - 03.04.1982, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 03.04.1982, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. APRÍL 1982 45 * Þorbjörn Asgeirsson skrifar: Hvernig Nýalskenningin skýrir sambandsskynjanirámilli hnatta Heiðraði Velvakandi! Það kom fyrirspurn hér í Vel- vakanda nýlega um það hvernig Nýalskenningin skýrir sam- bandsskynjanir á milli hnatta. Slíkar kenningar þykja óraun- hæfar á vísindalegum grund- velli. Þykir mér það furðu sæta hversu vísindamennirnir eru lengi að vakna fyrir þessari grein stjörnulíffræðinnar. Mun ég hér leitast við, í stuttu máli, að segja frá hvernig kenningin skýrir sambandið á milli hnatta. Fyrst vil ég geta þess að dr. Helgi Pjeturss vr fyrstur manna til að færa líffræðina til stjarn- anna, með því að koma með þá kenningu að draumar eins væru alltaf vökulíf annars, draum- gjafans. (Ruglingslegir draumar eru vegna sambandstruflana af margs konar orsökum en þeim verða ekki gerð skil í þessari stuttu grein.) Oft er draumgjaf- inn frá öðrum hnöttum en einnig getur það komið fyrir að draumgjafinn sé á okkar jörð. Ein bezta sönnunin fyrir því að draumgjafinn sé á annarri stjörnu, er þegar þig dreymir að þú sjáir fleiri en eina sól, fleiri en eitt tungl eða önnur stjörnu- merki en þau sem þekkjast héð- an af jörðu séð. Eða jafnvel dýrategundir sem aldrei hafa verið til hér á jörðu. Allflestir telja slíka drauma hugarburð einan. Ef kenning dr. Helga Pjeturss er rétt þá ættir þú, ef þig dreym- ir að þú sért að horfa í spegil, ekki að sjá þitt eigið andlit held- ur annað andlit, andlit draum- gjafans. Mig hefur einmitt dreymt slíkan draum. Mig dreymdi að ég horfði í spegil en sá þá ekki mitt eigið andlit held- ur andlit annars manns — hann var ljóshærður og búlduleitur en ég er dökkhærður og grannleit- ur. Þessi draumur segir anzi margt. í einu fylki Bandaríkjanna voru nokkrir vísindamenn sem gerðu tilraunir varðandi hugs- anasamband, að manninn geti dreymt það sem annar hugsar. Útkoman þótti þeim með ólík- indum, því jákvæðar niðurstöður á hugsanasambandi milli til- raunamanna voru mikið meiri en búast mátti við. Hugsanaflutningur er viður- kennt fyrirbæri af flestum vís- „Dr. Helgi Pjeturss var fyrstur manna til að færa liffræðina til stjarnanna, með þvi að koma með þá kenningu, að draumar eins væru vökulíf annars." indamönnum enda hafa verið gerðar margar athuganir á þessu fyrirbæri um langt skeið. Ein slík tilraun var gerð í Eng- landi og Ástralíu. Hugsendirinn átti að senda einhverja setningu sem móttakarinn í Ástralíu vissi ekki hvernig átti að vera, en hann kom engu að síður með setninguna rétta. Hugsendingin á milli þessara manna var svo hröð að ekki var unnt að mæla hana — hún var meiri en ljós- hraðinn. Tékkneskir vísinda- menn í Prag hafa fundið ögn sem þeir nefna „mention“. Fer hún hraðar en ljósið og hefur þá eiginleika að geta farið í gegn um hvaða efni sem er líkt og engin fyrirstaða væri til. Pró- fessor Frantisek Kahuda telur að þessi ögn geti hugsanlega ver- ið undirstaða þessara fyrirbæra, sem hafa verið kölluð sálræn fyrirbæri. Tilfinningaflutningur og sjón- skynjunarflutningur er ekki til umræðu hjá mörgum vísinda- mönnum svo ég viti til. Þó er vitað um mörg slík tilfelli t.d. varðandi tvíbura. Þeir fá oft sömu verkina á sama tíma þó ekkert sé að öðrum þeirra. En þegar sjúki tvíburinn læknast þá hverfa verkirnir samtímis hjá hinum, þó þeir hafi ekki vitað um veikindi hvors annars. Þarna er um samverkandi þátt að ræða sem er miklu algengari en al- menningur gerir sér grein fyrir. Sjónflutningur skeður í draum- um og hjá skyggnum mönnum (skynnæmum). Þá er um sams- konar samverkun að ræða og þegar hugsunar- eða tilfinn- ingaflutningur á sér stað. Hraði þessara fyrirbæra allra er ómæl- anlegur — hér er um margfalt meiri hraða að ræða en hraða ljóssins. Hver hugsun, hver sýn, hver tilfinning, hjá hverjum einstakl- ingi, streymir frá honum um all- an hnöttinn og hefur þar af leið- andi meiri eða minni áhrif á um- hverfi okkar allra jarðarbúa. Þess vegna er nauðsynlegt að hver maður hafi góðar hugsanir til þess að hafa góð áhrif á umhverfí sitt. Og einu verða menn að gera sér grein fyrir. Þessar agnir sem hugsunar-, tilfinninga- og sjón- skynjanir berast með um allan hnöttinn, stöðvast ekki þar með heldur halda þær áfram með ógurlegum hraða út í geiminn til annarra stjarna og nema íbúar þeirra þessar skynjanir. Á sama hátt senda verur frá öðrum stjörnum sínar hugsanir, tilfinn- ingar og sjónskynjanir og við nemum þær, sem á jörðinni búum. Þorbjörn Ásgeirsson, Akureyri. Þessir hringdu . . . Nazistabúningar óhugnanleg sjón P.G., ensk kona, sem kennir í einum skóla borgarinnar, hringdi og bað Velvakanda að koma eftir- farandi á framfæri: „Ég var á gangi í miðbænum síðdegis í gær er ég mætti hópi ungra manna sem klæðst höfðu búningum sem líktust einkennisbúningum þýzkra nazista. Þetta munu þeir hafa gert sér til skemmtunar í sambandi við „dimission" menntaskólanna — en ég sé bara ekkert skemmtilegt við þetta. Nazistar voru morðingjar — þeir myrtu milljónir fólks með köldu blóði og það er óviðeigandi að skólakrakkar séu að herma eft- ir slíku fólki. Þessi óhugnanlega sjón fékk mikið á mig — ég varð hreinlega veik þegar ég sá þetta. Ég vona að slíka sjón eigi ég aldrei eftir að sjá hér á Islandi aftur.“ Drottinn blessi gömlu Grund Guðrún Guðmundsdóttir frá Melgerði sendi Morgunblaðinu þessa vísu. Hún bað okkur jafn- framt að skila kveðju til þeirra sem stjórna og starfa á elliheimii- inu Grund við að líkna hinum öldruðu. Drottinn blessi gömlu (irund gott er þar að vera. Lifði ég þar langa stund léttist þraut að bera. Jesús sjálfur allt mér er áfram náðin hans mig ber. Hann vill mig góða gera. Tilkynning til viöskiptavina Skrifstofurnar éru fluttar aö Smiðjuvegi 4, Kópavogi, sími 77200. Egill Vilhjálmsson hf. Tilkynning frá Sjúkra- samlagi Reykjavíkur Jón K. Jóhannsson læknir hættir störfum sem heim- ilislæknir fyrir Sjúkrasamlag Reykjavíkur frá 1. júlí nk. Þeir samlagsmenn, sem hafa hann fyrir lækni, eru beönir aö koma í afgreiöslu SR fyrir 1. júlí nk. og velja sér annan lækni. Eru menn vinsamlegast beönir aö hafa sjúkrasamlagsskírteini meöferöis. Sjúkrasamlag Reykjavíkur að munar um minna t Egg, lága verðið / Okkar verö kr. 46,50 Leyft verö kr. 57,50 Okkar Skráð s* I, tilboð verð '1 i Kindahakk .................... 29,90 56,60 . I Saltkjötshakk ................ 45,00 81,50 J . Lambahakk ..................... 45,00 81,40 fj Nautahakk .................... 75,00 105,10 Svínahakk ...................... 83,00 103,70 // Nautahamborgarar pr. stk......... 6,00 9,20 Jl Kindalifur ..................... 29.90 44,60 Hangilæri ...................... 69,70 78,00 r/ Folaldasnitchel ............. 109,00 133,00 Folaldagullasch ............... 104,00 123,00 // Folaldafillet ................. 115,00 136,00 J1 Reykt folaldakjöt ............ 29,90 45,00 Saltaö folaldakjöt ............. 25,50 37,00 '1 Lambalæri ...................... 52,50 57^30 ’ ,\ Lambahryggir .................. 52,20 57,30 Lambakótilettur ................ 56,35 61,80 Lambaskrokkar .................. 40,80 44,95 k Saltkjöt ...................... 45,00 55,50 1] Úrb. hangilæri .............. 118,00 135,50 Ij Úrb. hangiframpartur ........... 88,70 95,35 -<l J/ Svínahamborgarlæri ........... 110,00 120,40 T/ Svínahamborgarhryggur ........ 165,00 187,40 Svínahamborgarlæri útb......... 118,00 140,70 Saltaöar nautatungur ........... 75,00 113,00 ILambageiri ....................... 89,00 125A0 Jí | Lambagullasch ................. 98,70 145,00 il l( Lambasnitchel ................ 109,00 145,00 '■ I Unghænur 1. flokks ............ 54,00 58,00 rj Kjúklingar holda .............. 88,30 Lambaframpartar úrb. \1 rr og fylltir m/ávöxtum .......... 71,00 88,55 '■ I Lambalæri úrb. og fyllt ...... 89,70 106Í55 ■ Lambahryggir úrb. og fylltir .. 94,50 125 00 /j \ Okkar Alm. n verö verö jf l', Páskaegg nr. 2 ............... 17,40 19,95 l[ Páskaegg nr. 3 ................ 34,95 40,00 Páskaegg nr. 4 ................ 59,75 69,95 Jl Páskaegg nr. 5 ................ 78,00 90,00 " Páskaegg nr. 6 ............... 139,90 165,00 ^ (T Kaupiö eggin hjá okkur — Nóa eggin eru bestJ i j Loksins aftur amerísku „Pizzu“-brauöin. Algjört æöi. I Dýrt, en toppurinn i dag. Verð frá 56 kr. pakkinn. Máltíö fyrir tvo. M . Opið í dag laugardag frá kl. 7—4 ________ 1 l ,7$w Alltágamla m verðinu ‘ ,,------------------------------------------------' M Páskaeggin frá Nóa KJOTMIÐSTOÐIN Laugalaek 1. s. 86ÍII

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.