Morgunblaðið - 03.04.1982, Síða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. APRÍL 1982
Knattspyrnan hefst
á Melavellinum í dag
-Víkingur og KR leika fyrsta leikinn í Reykjavíkurmótinu
í DAG, laugardag 3. april kl. 14.00,
hefst Reykjavíkurmótið i knatt-
spyrnu á Áfelavclli með leik Víkings
og KR. I>ar eð Mótaskrá KRR verð-
ur ekki tilbúin fyrr en eftir næstu
helgi fylgja hér með fyrstu leikir
mótsins.
Laugardagur 3. apríl
Melavöllur — Rm. mfl. —
Víkingur:KR kl. 14.00
Mánudagur 5. apríl
Melavöllur — Rm. mfl. —
Ármann:Fylkir kl. 18.30
Þriðjudagur 6. apríl
Melavöllur — Rm. mfl. —
Valur:Fram kl. 18.30
Miðvikudagur 14. apríl
Melavöllur — Rm. mfl. —
KR.'Ármann kl. 19.00
Fimmtudagur 15. april
Melavöllur — Rm. mfl. —
Fylkir.Valur kl. 19.00
Mótinu lýkur síöan miðvikudag-
inn 5. maí með leik Fylkis og Vík-
ings, en Fylkir er núverandi
Reykjavíkurmeistari.
Svokallaður „bráðabani" sem
var til reynslu í fyrra er ekki leng-
ur leikinn. Hins vegar er enn í
gildi sú regla er hefur nú verið um
nokkur ár, að það lið sem skorar 3
mörk í leik fær 1 aukastig.
1 sumar er í fyrsta sinn Reykja-
víkurmót (utanhúss) í kvenna-
flokki. Hefst það fimmtudaginn
22. apríl, þ.e. sumardaginn fyrsta,
með leik á Melavelli milli Vals og
Leiknis kl. 16.00.
Á siðastliðnu sumri gerði KRR
tilraun með 4 mót í svonefndri
mini-knattspyrnu fyrir yngstu
drengina, þ.e. 10 ára og yngri. Er
þá leikið þversum á völlinn með
minni mörkum og aðeins 7 leik-
menn í liði. Sú tilraun þótti takast
það vel, að slíkum mótum verður
áfram haldið fyrir þann aldurs-
hóp.
• Knattspyrnuvertíðin befst í dag. Og þeir verða margir leikirnir sem
leiknir verða áður en yfir lýkur í haust. Enn einu sinni byrjar boltinn að rúlla
á gamla góða Melavellinum er lið KR og Víkings leika þar í dag. En þessi
mynd var tekin þar af leik í fyrravor.
Fer Atli til
A-l
l'rá Hwe 1'ilK‘lkorn \ l»ýskalandi.
HUGSANLEGT er að knattspyrnu-
maðurinn Atli Eðvaldsson skipti um
félag í lok keppnistimabilsins. Arm-
enia Bielefeldt hefur sýnt honum
mikinn áhuga og nokkuð hefur verið
um blaðaskrif, þar sem greint hefur
verið frá því að Atli skipti jafnvel um
félag. Lið Bielefeldt var lengi fram-
an af i fallhættu en hefur gengið vel
að undanförnu og er í rétt neðan við
miðja deild.
Verður sigurganga
Brodda stöðvuð?
íslandsmeistaramótið i bad-
minton verður haldið um helgina í
Laugardalshöllinni. Mótið hefst kl.
10.00, laugardag, með setningu for-
manns BSI, Rafns Viggóssonar.
Verður leikið fram í undanúrslit á
laugardag, en undanúrslit hefjast kl.
10.00 f.h. á sunnudag og úrslit kl.
14.00 e.h. sama dag.
Keppt verður í öllum greinum í
eftirtöldum flokkum: Meistara-
• Þorvaldur Þórsson ÍR hefur sýnt miklar framfarir í grindahlaupi það sem af er árinu, fyrst jafnað íslandsmetið,
síðan bætt það, og síðan jafnaði hann eigið met. Meðfyigjandi mynd var tekin í methlaupinu í San Jose í Kaliforníu,
og er Þorvaldur þarna í baráttu við nokkra hlaupara, aðeins á undan þeim. Ljósm. Mbl. Jónas K^ilsson
Þorvaldur hljóp á 14,6
ÞAD IIEYRIR vart til tíðinda lengur
þótt Þorvaldur Þórsson frjálsíþrótta-
maður úr ÍR hlaupi á 14,6 sekúndum
i grindahlaupi, sama tíma og ís-
landsmetið hljóðaði upp á fyrir fjór-
um vikum, því það er aðeins hans
fjórði bezti árangur það sem af er
keppnistímabili hans í Banda-
rikjunum, en þar leggur Þorvaldur '
stund á háskólanám.
Þorvaldur hljóp á 14,6 sekúnd-
um í 110 metra grindahlaupi um
helgina á móti í Irvine í Kali-
Hetjurnar á bekkinn?
BAYERN Miinchen mætir 1. F(J
Köln i þýzku deildarkeppninni í dag.
Þetta er einn af úrslitaleikjum mót-
sins og er uppselt á leikinn fyrir
nokkru, en Olympíuleikvangurinn i
Miinchen rúmar yfir 80 þúsund
manns.
Eins og fram hefur komið í frétt-
um sigraði Bayern Nurnberg með
glæsibrag sl. þriðjudag, 3:0. Hetjur
leiksins voru Ásgeir Sigurvinsson,
sem tók stöðu Breitners og skoraði
eitt mark, og Guttler, sem tók stöðu
Rummenigge og skoraði tvö mörk.
Hins vegar eru mestar líkur á því að
sögn Ásgeirs að hann og Guttler fari
aftur á varamannabekkinn í dag því
Breitner og Rummenigge eru sem
óðast að ná sér eftir meiðsli og spila
væntanlega í dag.
Næsti leikur Bayern er á miðviku-
daginn gegn CSK Sofia í Evrópu-
keppninni. Síðan mætir Bayern
Bochum í þýzku bikarkeppninni og
þar næst Hamburger SV í deildark-
eppninni. Sá leikur er í Múnchen og
er löngu uppselt á hann. Ef Bayern
tekst að vinna bæði Köln og Ham-
burger getur fátt komið í veg fyrir
að Ásgeir og félagar hans verði
Þýskalandsmeistarar.
— SS
forníu, í keppni við Irvine-háskól-
ann og Löngustrandar-háskólann.
Þorvaldur hefur staðið sig vei í
mótum vestra, byrjaði á því að
jafna metið í grindahlaupinu,
hljóp svo á 14,4 sekúndum tvær
helgar í röð, og nú aftur á 14,6
sekúndum. Hann vonast til að
bæta sig á Martin Luther minn-
ingarleikunum í Stanford um
næstu helgi.
Bróðir Þorvaldar, Þorsteinn
Þórsson ÍR, setti persónulegt met
í spjótkasti á mótinu í Irvine,
kastaði 60,30 metra, og er það í
fyrsta skipti sem hann kastar
spjóti yfir 60 metra.
Þá keppti Oddný Árnadóttir ÍR
á móti í Kaliforníu um helgina, og
hljóp 400 metra hlaup á 57,2 sek-
úndum. Oddný hélt til Kaliforníu
til tveggja mánaða æfingadvalar
fyrir skömmu.
Frjðlsar Iþrótllr
flokki, A-flokki, öðlingaflokki og
æðstaflokki. Þátttakendur verða um
114, frá 13 félögum, BA, Gerplu,
Gróttu, ÍA, KR, TBA, TBR, TBS,
TBU, UMFS, UMFV, Val, Víking.
Allir bestu badmintonleikarar
landsins eru meðal þátttakenda.
Ef Broddi Kristjánsson núverandi
Islandsmeistari í einliðaleik sigr-
ar í einliðaleik, vinnur hann bik-
arinn til eignar, en búast má við
að frændi hans, Guðmundur
Adolfsson, nýbakaður Reykjavík-
urmeistari, veiti honum harða
keppni. Tvíliðaleikur karla verður
spennandi og tvísýnn, Broddi (sem
er íslandsmeistari í tvíliðaieik
ásamt Jóhanni Kjartanssyni) og
Guðmundur þurfa að berjast vel,
en Sigfús Ægir Árnason og Víðir
Bragason eru þeirra helstu keppi-
nautar. í kvennaflokki geta orðið
hörkuspennandi leikir í tvíliða-
leik, en núverandi íslandsmeistar-
Badmlnton
ar eru Kristín Magnúsdóttir og
Kristín Kristjánsdóttir. íslands-
meistari í einliðaleik, Kristín
Magnúsdóttir, hefur ekki tapað á
neinu móti í vetur. í tvenndarleik
hafa Broddi og Kristín M. verði
ósigrandi í vetur, og ætla þau sér
örugglega að berjast fyrir sigri, en
liðin í tvenndarleik eru mjög jöfn.
A-flokkur er fjölmennasti
flokkurinn, með ungum og efni-
legum leikmönnum og eldri og
reyndari og má búast við hörku-
keppni þar.
I öðlinga- og æðstaflokki verður
ekkert gefið eftir fremur venju, og
verður eins og venjulega geysi-
spennandi að fylgjast með þessari
keppni. Mótsstjóri er Ragnar Har-
aldsson.
Heimsmeistararnir sýna i dag
• í dag klukkan 13.30 munu heimsmeistararnir í skíðafimi sýna listir sínar
í Bláfjöllum. í gærdag æfðu meistararnir sig þar og reyndu stökkpall einn
mikinn sem þeir reistu fyrir sýninguna. Höfðu þeir orð á því að sýnd yrðu
stökk sem ekki hafa sést áður. Á myndinni má sjá tvo kappa svífa um loftin
blá.