Morgunblaðið - 08.04.1982, Síða 2

Morgunblaðið - 08.04.1982, Síða 2
50 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 1982 Bjarni í Túni Guðmundsson: „Það var oft gott aö koma í Kolviðarhól oftir arfiðan túr I kafaldsbyl og noglanda og fá hoita kjetsúpu.“ Ljóamynd Mbl. Emilía. Búinn ad keyra í 48 ár Það er hann Bjarni í Túni, sem hefur orðið, en hann hefur um langan aldur, eða í 48 ár, ekið fólki og frakt um allt land má segja. Hann varð einn af frumkvöðlun- um í landflutningum þegar hann keypti sér Ford-bifreið árið 1933 og hóf akstur á milli Reykjavíkur og Flóans. Þetta var Ford-bíll með hálfkassa, sæti fyrir 10 og pallur aftur úr fyrir vörur. Bjarni í Túni Guðmundsson er fæddur þann 26. janúar 1908 á bænum Túni í Hraungerðishreppi, rétt austan við Selfoss. Foreldrar hans voru þau Guðmundur Bjarnason bóndi og Ragnheiður Jónsdóttir. í Túni hafa verið með búskap fjórir ættliðir Bjarna, en „ég hafði aldrei hugsað mér að vera bóndi“, sagði hann. „Ég var lítið gefinn fyrir þennan sveita- búskap." En aldrei tekið bílpróf Bjarni býr nú í Reykjavík, í Norðurmýrinni, og fyrir utan heimili hans er í stæði stór og mikill Land-Rover-jeppi, eini einkabíllinn, sem hann hefur nokkru sinni átt. „Ég hef ekki átt marga bíla um æfina. Ætli þeir séu fleiri en tíu stykki," segir hann og kveikir sér í pípu. Hann á nokkrar slíkar, bognar og beinar, og tottar þær mikið. Bjarni er ekki hár í loftinu en þykkur í vexti með stórskorið andlit, en vinalegt. Þeg- ar hann er spurður að því hvenær hann hafi fengið bílprófið, segir hann með kankvísu glotti, að því sé erfitt að svara. „Það er nefnilega þannig,“ segir Bjarni, „að þó ég sé búinn að keyra bíl af öllum stærðum og gerðum út á flest horn landsins, þá hef ég aldrei tekið neitt bílpróf. Já, það er von þú hváir. En svoleiðis var að ég átti frænda úti í Englandi, Helgi Jónsson hét hann og var togaraskipstjóri og þegar ég var strákur þá heimsótti ég hann oft til Englands. í þá daga var það þannig að ekki þurfti annað í Engiandinu en að fara niður á lögreglustöð og kaupa sér öku- skírteini og borga fyrir það 10 shillinga. Ætli það hafi ekki kost- að sex krónur íslenskar þá, og niður á lögreglustöð fór ég. Ekki man ég það nákvæmlega út af hverju í ósköpunum ég rauk til og keypti mér bílpróf, því ekki keyrði ég neitt úti í Englandi.“ Gamli-Ford með hæ og ló „Síðan lá það beint fyrir þegar ég kom hingað til íslands aftur að fara til hans Magnúsar Torfason- ar, þá sýslumanns Árnessýslu, sýna honum skírteinið og fara fram á að fá íslenskt ökuleyfi út á það. Magnús sagði, að fyrst ég gæti ekið bíl úti í Englandi, þá „Maður hefur einhvem thna blótað Kömbunum“ Rabbað við Bjarna í Túni sem ekið hefur bílum í tæpa hálfa öld, en aldrei tekið bílpróf „Það var einhverntíma á þessum árum, vet- urinn þrjátíu og fjögur held ég það hafí verið, að ég var að keyra einu sinni sem oftar aust- an frá Selfossi til Reykjavíkur. Það var blindbylur, öskrandi rok og skafrenningur og á undan mér keyrði Baldur Guðmundsson en hann var á rútu frá Steindóri. Hún var full af farþegum að fara til borgarinnar og við Bald- ur ætluðum að fylgjast að á leiðinni. Svo mikið var kófíð að ég sá aðeins stundum glitta í rútuna hans Baldurs og var ég þó rétt fyrir aftan hann. Allt gekk að óskum upp Kambana og þar til við komum að Sand- skeiðinu. Þá var þar enginn vegur að kalla heldur bara ruðningur, sem bílarnir höfðu að mestu gert sjálfír. Ég keyrði þetta áfram þarna afskaplega hægt og rólega enda kannski ekki hægt að gefa neitt í við þessar aðstæður. Lítið sem ekkert sást út um fram- rúðuna og vinnukonurnar höfðu ekki undan að skafa burt snjó. Þá veit ég ekki fyrr en allt í einu að ég sé bfl koma á móti mér, svo litlu munaði að við rækjumst saman. Var þar korninn Baldur á Steindórsrútunni, sem ég átti að fylgja til Reykjavíkur. En þarna sner um við allt f einu hvor á móti öðrum og skildum við ekkert í því þar sem við vorum báðir á leið til Reykjavíkur. Höfðum við ekki hugmynd um hvor okkar var á réttri leið, hann eða ég, en eitt var greinilegt að annar okkar hafði ekið í hring á Sandskeiðinu. Við ákváðum þó um síðir að halda í þá átt sem minn bfll sneri, og lentum við á endanum í Reykjavík fyrir bragðið. Baldur hafði þá ekið hring í hríðarkófínu án þess að nokkur tæki eftir. Var mikið hlegið að þessari för okkar.“ Fyrati bíllinn sem Bjarni í Túni eignaöiat. Hann keypti Fordinn á 2.200 krónur árið 1933. Myndin er tekin í skemmtitúr sem Bjarni (stendur við bílinn) fór í f Landmannaafráttir. ÁR-16 er númerið á Fordinum. Þá voru bílarnir merktir eins og skip eru merkt nú til dags. hlyti ég eins að geta það hér. Á þeim tíma þurftu allir, og þeir voru ekki margir, að ganga til prófs í Reykjavík. Það var hvergi prófað nema þar, en það gerði ég sem sagt aidrei. Reyndar fór éfí miklu miklu seinna á meiraprófs- námskeið, en það voru ekki nema tvær kvöldstundir." Manstu hvenær þú komst upp í bíl fyrst? „Ætli það hafi ekki verið þegar tveir bílar frá Vegagerðinni úr Reykjavík voru að bera ofan í Flóaveginn, einhverntíma fyrir 1930. Það voru Gömlu-Fordar með hæ og ló, og manni þótti æfintýri að koma upp í slík tæki. í fyrstu fékk maður ekki nema að sitja með en síðan fór maður að fá að taka í. Svo var maður að grípa í stýrið hjá hinum og öðrum. Ann- ars voru afskaplega fáir bílar þá, sem maöur sá. Bændur áttu yfir- leitt ekki bíla.“ 2,75 í Flóann En svo keyptir þú þér einn. „Já, 1933 keypti ég mér Ford- hálfkassabíl, sem tók 10 farþega og einhverjar vörur með. Þannig voru flestir bílar sem ekið var um landið í þá daga. Hann var árgerð þrjátíu en ég keypti hann notaðan og fór þegar að keyra á áætlun’ milli Flóans og Reykjavíkur. Mað- ur var bara að skaffa sér vinnu með því að kaupa bílinn. Þá var mikið kreppuástand, atvinnuleysi mikið og erfitt að fá vinnu. Bíllinn kostaði mig 2.200 krónur. Ég átti 1.000 krónur sem ég hafði önglað saman í gegnum tíðina, og þær borgaði ég strax en átti að borga restina um haustið. Það var um vor sem ég keypti þennan fyrsta bíl minn og aksturinn gekk svo vel um sumarið að ég gat borgað þess- ar 1.200 krónur sem eftir voru á settum tíma um haustið. Þá kostaði farið fyrir einn mann úr Reykjavík í Flóann 2,75 krónur og þar sem maður stoppaði í sjoppum eins og „Heitt og kalt“, gat maður keypt sér fiskmáltíð fyrir 75 aura og kjetmáltíð fyrir eina krónu. Við stoppuðum mikið í „Heitt og kalt“. Það hefur senni- lega verið eins og Múlakaffi er núna. En það var yfirleitt mikið að gera í keyrslunni á sumrin enda áttu fáir bíl. Eitthvað annað en núna.“ Miklir kallar með kaskeitin Og var ekki litið upp til ykkar bílstjóranna? „Jú, blessaður vertu. Það var lit- ið hátt upp til okkar. Ætli það hafi ekki verið litið meira upp til okkar en sýslumannanna, sem þó voru hátt skrifaðir í þá daga. Jú, jú, við þóttum miklir kallar með kaskeit- in okkar. Einhverju sinni var hann Björgvin, þá sýslumaður Rangæinga, á labbi niður á Lækj- artorgi í júníforminu sínu. Þetta var í kringum 1930 þegar fyrstu strætisvagnarnir voru að keyra um Reykjavík, og sem hann er þarna á labbi vindur sér að honum stúlkukind einhver og spyr hann hvenær næsti strætó fari í Skerja- fjörðinn. Hún hélt í sakleysi sínu að hann væri einn af þessum strætisvagnastjórum og Björgvin sagði að það væri grátlegt að strætisvagnastjórar væru í eins flottu júníformi og konunglegir embættismenn. Á þessum árum höfðum við af- greiðslu margir á Hverfisgötu 50 hjá honum Guðjóni Jónssyni kaupmanni. Ætli það hafi bara ekki verið stærsti rútuafgreiðslu- staðurinn í Reykjavík þá. Fyrir utan Steindór náttúrulega." Gemsarnir þóttu góðir „En hjá Guðjóni söfnuðust sam- an hálfkassabílarnir margir svo það hefur verið eins og er á BSÍ núna. Á sumrin fórum við oftast fjórar ferðir í viku frá Guðjóni, en það minnkaði mikið á veturna. Það er ekki hægt að segja að mað- ur hafi farið margar ferðir þá. Það hafa varla verið nema tvær tegundir bifreiða í gangi á þessum árum. Það var vitanlega Fordinn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.