Morgunblaðið - 08.04.1982, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 1982
69
Leiðangur Balbos
kemur til íslands
2. júlí 1933.
í gær lagði af stað frá Róma-
borg stór, ítalskur flugleiðangur
og er förinni heitið til Chicago í
Bandaríkjunum. í leiðangri þess-
um taka þátt 24 flugvélar. Leið-
angursstjóri er Balbo hershöfð-
ingi, flugmálaráðherra ítala. Leið-
angur þessi mun koma við í
Reykjavík á leið sinni vestur um
haf og hafa allmargir ítalir dvalið
hér á landi að undanförnu til að
undirbúa lendingu flugvélanna og
dvöl leiðangursmanna í Reykja-
vík.
6. júlí 1933.
Flugleiðangurinn ítalski kom til
Reykjavíkur í gær, eftir sex
stunda flug frá Londonderry.
Lentu flugvélarnar í Vatnagörð-
um klukkan nálega 5 síðdegis.
Veður var ekki gott, sunnan
dimmviðri og stormur. Öll skip á
Reykjavíkurhöfn voru skreytt
viðhafnarfánum og fánar höfðu
verið dregnir að húni víðs vegar í
bænum. Inn í Vatnagarða var
stöðugur straumur fólks og söfn-
uðust þar saman þúsundir manna.
Kl. að ganga 7 kom Balbo loks
að bryggjunni. Bátur sá, er sótti
hann út í fiugskipið, var fánum
skreyttur. Balbo gekk hvatlega á
land og skundaði til móts við þá,
er komnir voru til að heilsa hon-
um. Heilsaði honum fyrstur Ás-
geir Ásgeirsson forsætisráðherra,
ásamt frú sinni, en lítil stúlka
rétti Balbo blómvönd og kyssti
Balbo á kinn hennar í þakklæt-
isskyni. Þá heilsaði hann Jóni
Þorlákssyni borgarstjóra og frú
hans, og síðan öðrum þeim, er
komnir voru til að fagna honum.
Þarna var fjöldi blaðamanna og
myndatökumanna, en þúsundir
áhorfenda biðu á hæðunum um-
hverfis Vatnagarða. Síðan ók
Balbo til bæjarins í för með for-
sætisráðherrahjónunum. Mann-
fjöldinn fagnaði honum og félög-
um hans, er þeir óku til bæjarins.
’immm
Flugþerna
ársins 1950
16.JÚIÍ 1950.
I gær fór fram í London
hæfileikakeppni meðal flug-
þerna frá mörgum Evrópu-
löndum. Tóku þátt í henni
fimmtán stærstu flugfélög
Norðurálfu, en keppninni lauk
með sigri íslenzkrar stúlku,
Margrétar Guðmundsdóttur,
flugþernu hjá Loftleiðum.
Hlaut hún þar með titilinn
„flugþerna ársins 1950“.
Stofnað Flug-
félag Islands
Apríl 1940
Aðalfundi Flugfélags Akureyr-
ar lauk föstudaginn 5. apríl. Sam-
þykkt var að breyta nafni félags-
ins, og heitir það nú Flugfélag Is-
lands. Heimili' þess og varnarþing
verður flutt frá Akureyri til
Reykjavíkur. Hlutafé félagsins
verður aukið úr kr. 28.000 upp i kr.
150.000. Söfnun þess hefur gengið
greiðlega og þykir sennilegt að
henni verði lokið fyrir næstu mán-
aðamót.
Stjórn félagsins skipa: Bergur
G. Gíslason fulltrúi, Ágnar Ko-
foed-Hansen flugmálaráðunautur,
Örn Ó. Johnson flugmaður, Jakob
Frímannsson framkvæmdastjóri
og Kristján Kristjánsson bifreiða-
eigandi. Framkvæmdastjóri fé-
Iagsins verður Örn Ó. Johnson.
Félagið hefur fest kaup á nýrri
flugvél í Bandaríkjunum og mun
hún koma hingað um miðjan maí.
Fyrsta barnið
sem fæðist í
bíl
11. júlí 1939
Það sjaldgæfa atvik vildi til í
fyrradag, að stúlka fæddi barn í
bíl, sem var á leið frá Þingvöllum
til Reykjavíkur. Var ætlunin að
koma stúlkunni á fæðingarstofn-
un, en á leiðinni tók hún jóðsótt-
ina, og þá er bíllinn var á móts við
Grafarholt fæddist barnið. Fæð-
ingin gekk vel og var farið með
stúlkuna á fæðingarstofnun Helgu
Níelsdóttur, þar sem ljósmóðir tók
við móður og barni. Barnið var
stúlkubarn og vóg 15 merkur.
Mæðgunum líður báðum vel.
Það mun vera einsdæmi hér á
landi, að kona fæði barn í farþega-
bíl á þjóðvegum úti. — Hin unga
móðir hafði dvalið á Svartagili í
Þingvallasveit.
Flugvél
veldur slysi
23. júni 1920.
Vestur-íslenzki flugmaðurinn
Frank Fredrickson er kominn
hingað til að stjórna flugvél flug-
félagsins hér.
27. júní.
Þegar flugvélin ætlaði í dag að
hefja sig til flugs í Vatnsmýrinni,
vildi svo hörmulega til, að vélin
náði ekki fullum hraða, er hún hóf
sig upp frá jörðu. Tvö börn urðu
fyrir flugvélinni. Annað þeirra, 10
ára gömul telpa, beið bana, en hitt
barnið, bróðir telpunnar, meiddist
mikið.
Vid bjóðum bér
þorskanet
á einstöku veröi
En til þess ad leióa þig í allan sannleikann,
eru hér að neðan öll verð, eins og þau voru, 1.4.'82
Kraftaverkanet
Möskvastærö
Garn nr. 9 r m
- -12 | 7", 7V*" og 7V2" | -
- -15
32. möskva 36. möskva
kr. 298.00 kr. 331.00
338.00 - 384.00
— 430.00 - 464.00
Eingirni
Garn nr. 9
— -10
— -12
7" og 7Va"
kr. 225.00
- 250.00
— 280.00
Þríþætt girni
Garn nr. 12 f 1 kr. 364.00
15 | 7" og 7Va" j - 413.00
Einnig viljum við vekja athygli á 10%
magnafslætti gegn staðgreiðslu.
Hafðu samband við sölumenn okkar
á meðan birgðir endast.
KRISTJAN O
SKAGFJÖRD HF
Hólmsgata 4 — sími 24120 — 121 Reykjavik
1.KkJfk.
- ** 4