Morgunblaðið - 08.04.1982, Side 8

Morgunblaðið - 08.04.1982, Side 8
56 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 1982 . . örn Ó. Johnson, ctjórnarformaöur Flugleiöa á skrifatofu sinni. Ljósmjiid Mbl. Kristján. Flugmaðurinn vék fyrir skrifstofumannin- um árið 1947, en Örn tók upp þráðinn að nýju 30 árum síðar, 1977, þegar hann keypti sér einkaflugvél, sem hann flýgur í frístund- um sínum. „Gróska kom í flugið upp úr 1940“ Baachcraftinn, fyrsta tvaggja hrayfla vél fslandinga, sam var í oigu Flugfélags islands, é Melgerðismalum við Akurayri. Þessi Norsamann-vél kom hingaö 1946 og eyðilagðist reyndar þaö sama ér. örn í góðra vina hópi, f.v. örn, Brandur Tómasson, Gunnar Jónasson og Agnar Kofoed-Hansan, flugméla- stjóri. Ólafur K. Magnússon, Ijósmyndari MM. tók myndina é síðasta éri, þagar Agnar bauð til sín handhöf- um flugskírtaina fré 1 til 10 og fyrstu tveimur flugvirkjunum, sam voru einmitt Brandur og Gunnar. Gunnar var starfsmaöur Flugfélags islands, númar tvö, an ar nú hættur störfum, en Brandur er nú sé starfsmaður Flugleiöa, sam hafur lengstan starfsaldur, hélfu éri langri tíma an örn. ÖRN Ó. JOHNSON, núverandi stjórnarformað- ur Flugleiða og fyrrverandi forstjóri, er örugg- lega einn þeirra manna, sem hvað mestan þátt hefur átt í þeirri samgöngubyltingu, sem varð í lofti hér á árunum áður. Örn sagði í samtali við Mbl., að hann hefði alla tíð verið haldinn ólæknandi flugáhuga og hann hefði farið til náms í ársbyrjun 1937. „Ég var í þessu flug- námi til loka árs 1938, þegar ég fékk full rétt- indi til flugs. Ég fékk skírteini númer 4 hér á landi, en á undan mér höfðu lært flug þeir Sigurður Jónsson, Siggi flug, sem er handhafi skírteinis númer 1, þá Björn Eiríksson, sem nú er látinn, og handhafi skírteinis númer 3 er vinur minn Agnar Kofoed-Hansen, flugmála- stjóri,“ sagði Örn Ó. Johnson. Örn sagði, að farþegaflug hefði lengi vel átt erfitt uppdráttar hér á landi, enda einstakt hversu snemma var hafizt handa, en fyrsta Flugfélag íslands var stofn- að árið 1919. „Það voru Garðar Gíslason, stórkaupmaður, og Hall- dór Jónasson, frá Eiðum, sem voru aðalhvatamenn að stofnun þess. Félagið fékk hingað til lands flugvél af gerðinni Avro 504K frá Danmörku, sem tók einn farþega. Ennfremur var ráðinn hingað enskur flugmaður til að fljúga henni. Þetta félag gat auðvitað ekki gert stórt átak í því að koma á flugsamgöngum, enda aðstæður til slíks raunverulega engar, enn sem komið var. Starfsemin fólst aðallega í því að kynna lands- mönnum flugið með því, að gefa þeim kost á svokölluðu hringflugi. Reksturinn gekk hins vegar brösu- iega og félagið lagði upp laupana ári síðar," sagði Örn. „Það má síðan segja, að hér á landi hafi verið algert tómarúm í flugmálum árin 1921—1927. Á þessum árum, nánar tiltekið sumarið 1924 höfðu hér viðkomu fjórar bandarískar herflugvélar í hnattflugi. Koma þeirra vakti óneitanlega mikla athygli hér á landi og kitlaði flugáhugann í mörgum. Árið 1928 er það svo, að Alex- ander Jóhannesson, háskólarekt- or, tekur sig til og stendur fyrir því, að Flugfélag íslands númer 2 er stofnað. Alexander fékk sér- hæft fólk frá þýzka flugfélaginu Lufthansa til að aðstoða við rekst- urinn. Hingað til lands komu tvær flugvélar, Súlan og Veiðibjallan. Það var einmitt á þessum tíma, sem Siggi flug fer að fljúga hér á landi, en hann hafði þá áður num- ið flug í Þýzkalandi. Björn heitinn Eiríksson hafði hins vegar áður lært til flugs í Bandaríkjunum. Rekstur Flugfélags íslands númer 2 gekk mun betur en hins fyrsta og varð athyglisverður árangur af starfi þess á mörgum sviðum flugstarfsemi. Félaginu tókst þó ekki að láta enda mætast, m.a. vegna óhappa, sem það varð fyrir er tveimur flugvélum þess hvolfdi við legufæri, og það gafst upp haustið 1931. Þriðja tilraunin bar svo vænleg- an árangur. Agnari Kofoed- Hansen, flugmálastjóra, tókst þá að fá Akureyringa til að reisa merkið að nýju með stofnun Flug- félags Akureyrar vorið 1937. Nokkurn tíma tók að safna hlutafé og festa kaup á fyrstu flugvélinni, en félagið hóf flugrekstur vorið 1938 með einni 3—4 sæta amer- ískri flugvél af WACO-gerð, á flotholtum. Agnar starfaði sem flugmaður og framkvæmdastjóri félagsins til vors 1939, en ég tók þá við starfi hans og hann gerðist lögreglustjóri í Reykjavík. Menn sáu, að það virtist ætla að blessast að halda flugfélagi gang- andi og þörfin varð alltaf meiri og meiri. Það var því ákveðið á árinu 1940, að flytja félagið til Reykja- víkur og hlaut það þá nafnið Flug- félag íslands. Það þótti í alla staði mun heppilegra að reka landsflug- félag frá Reykjavík, þar sem stærstur hluti þjóðarinnar bjó. Það má reyndar segja, að upp úr 1940 hafi fyrst farið að koma gróska í flugið hér á landi, og hófu þá allmargir íslendingar flugnám. Næsti flugmaður á eftir mér var Jóhannes Snorrason, en hann kom til landsins árið 1943 og nokkru síðar komu fleiri, m.a. þeir Alfreð Elíasson, Kristinn Olsen, Sigurður Ólafsson, Smári Karlsson og Magnús Guðmundsson. Þeir stunduðu allir flugnám í Winnipeg í Kanada hjá Vestur-íslendingn- um Konráð Jóhannssyni. Um og upp úr 1940 kom veru- legur fjörkippur í flugið. Þá var stríðið skollið á og landið hernum- ið og umsvif fóru vaxandi á mörg- um sviðum. Hins vegar brá þá svo við, að erfitt varð, eða nánast ógerningur, að festa kaup á flug- vélum. Við vorum þó svo heppnir, að geta náð kaupum á mjög heppi- legri flugvél frá Bandaríkjunum rétt áður en þar var sett á útflutn- ingsbann á flugvélar snemma árs 1942. Þetta var tveggja hreyfla landvél af gerðinni Beechcraft 18, fyrsta tveggja hreyfla vél okkar íslendinga með sætum fyrir 8 far- þega, auk flugmanns. Þessi flugvél gat í fyrstunni að- eins lent í Reykjavík, á Melgerð- ismelum í Eyjafirði og á Mela- tanga við Höfn í Hornafirði. Fljót- lega var þó líka sköpuð sæmileg aðstaða fyrir hana á Egilsstöðum. Það er ekki ofmælt að segja, að með komu þessarar flugvélar hafi orðið bylting í fluginu til Akureyr- ar, Egilsstaða og Hafnar. Auk þess að búa farþegum meiri þæg- indi, en áður höfðu þekkzt, þá var hún líka mun fljótari í förum. í björtu veðri tók flugið milli Reykjavíkur og Akureyrar aðeins 55—60 mínútur í staða 2—2l/i klukkustundar með WACO-flug- vélunum. Ennþá vantaði þó að- stöðu til þess að nýta svo góðan farkost til fulls, fleiri og betri flugvelli og þá sérstaklega radíó- vita á flugleiðunum og ljósabúnað á flugvöllunum. Flutningaþörfin jókst stöðugt á stríðsárunum, en skortur á flug- vélum setti afköstunum takmörk. Vorið 1944 fengum við tvær nýjar 8 sæta landflugvélar frá DeHavill- and-verksmiðjunum í Bretlandi og batnaði þá aðstaðan um tíma, en enn skorti þó á að við gætum full- nægt flutningaþörfinni. Síðsumars 1944 festum við kaup á fyrsta Katalína-flugbátnum af þremur, sem félagið eignaðist og starfrækti. Hann hafði verið notaður til fraktflutninga í Bras- ilíu og var því ekki með innrétt- ingu til farþegaflugs. Slík innrétt- ing var smíðuð í flugbátinn hér á landi veturinn 1944—1945 af fyrir- tækinu Stálhúsgögn og vorið 1945 var hann tekinn í notkun. Þetta var stórt framfaraspor, sæti voru fyrir 22 farþega og 4ra manna áhöfn, þ.e.a.s. tvo flugmenn, vél- stjóra og loftskeytamann. Nú vor- um við ekki lengur háðir þessum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.