Morgunblaðið - 08.04.1982, Síða 9

Morgunblaðið - 08.04.1982, Síða 9
'MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 1982 57 Flugmenn Flugfélags fslanda áriö 1948, aftari röö frá vinatri: Skúli Magnúaaon, Sverrir Jónaaon, Aöalbjörn Kriatbjarnaraon, Karl Eiríkaaon, Ólafur Jóhannaaon, Garöar Gíalaaon, og Jón Jónaaon. Fremri röð frá vinatri: Skúli Peteraen, Siguröur Ólafaaon, Gunnar Fredrikaen, Jóhannea R. Snorraaon, Þorateinn Jónaaon, Höröur Sigurjónaaon, og Anton Axelaaon. Flugmenn Loftleiöa áriö 1948, aftari röö frá vinatri: Stefán Magnúaaon, Ólaf Oleaen, Einar Árnason, Hjalti Tómasson, Halldór Beck, Ágúat Jónsaon og Jóhannea Markúason. Fremri röð frá vinstri: Dagfinnur Stef- ánason, Smári Karlsson, Alfreö Elíasson, Magnúa Guömundsson og Kristinn Olsen. fáu flugvöllum, sem þá voru komnir til og gátum lent þessum stóra flugbáti víðast þar sem sæmileg hafnar'skilyrði voru fyrir hendi. Fram að þessu hafði aðeins ver- ið um innanlandsflug að ræða, en þessi Katalína-flugbátur gerði okkur kleift að gera fyrstu til- raunina til millilandaflugs sumar- ið 1945. Farnar voru þrjár ferðir til Skotlands og Danmerkur. Hér var auðvitað aðeins um tilraun að ræða, það þurfti að „brjóta ísinn", en okkur var ljóst, að hæggengir flugbátar voru ekki heppilegustu tækin til að takast á við þetta verkefni til frambúðar, en eins og á stóð var ekki annarra kosta völ. Eg er reyndar þeirrar skoðunar, að það hafi háð flugmálum hér á landi mjög mikið í gegnum tíðina, hið gífurlega skilningsleysi stjórn- valda á þörfum flugsins. Það hafa allar fjárveitingar í gegnum tíðina verið skornar niður við trog, þann- ig að allir hlutir hafa verið fram- kvæmdir af vanefnum." Þú sagöir, aö mikill uppgangur heföi veriö í Duginu á árunum eftir 1941 og hann hafi reyndar verið helzt til mikill á skömmum tíma. Hvaða áhrif haföi þetta? „Það komu hingað til iands margir góðir flugmenn, sem fengu strax vinnu. Vorið 1944 stofnuðu þrír ungir flugmenn Loftleiðir, þeir Alfreð Elíasson, Kristinn Olsen og Sigurður Ólafsson. Þeir áttu fyrst aðeins eina flugvél á flotholtum, sem gat flutt 3—4 far- þega. Þeir hófust handa við inn- anlandsflug og fljótlega hófst samkeppni milli þessara tveggja fiugfélaga, Flugfélags íslands og Loftleiða, sem átti eftir að harðna með árunum, fyrst hér innanlands en síðan á millilandaleiðum. Þeirri samkeppni lauk ekki fyrren með stofnun Flugleiða árið 1973. Árið 1946 verður enn eitt stökk- ið. Þá fengum við fyrstu vélin af gerðinni DC-3, en hana keyptum við af hernum hér. Hún var fjög- urra ára gömul. Þá vill það svo skemmtilega til með hana, að hún er enn þann dag í dag fljúgandi hér á landi og nefnist Páll Sveinsson. Gengur reyndar dag- lega undir nafninu Landgræðslu- vélin. Þetta eru einhverjar þær al- beztu flugvélar, sem framleiddar hafa verið í gegnum tíðina og ég er alveg sannfærður um, að um alda- mótin verði ennþá fjölmargir Þristar á lofti, en DC-3 vélarnar eru oft nefndar Þristar. í sambandi við Þristana man ég alltaf eina skemmtilega sögu af þeim. Forstjóri bandaríska flugfé- lagsins Delta, sem er starfandi enn í dag, flutti eitt sinn ræðu á IATA-fundi. Þar sagði hann frá því, þegar Delta fékk fyrstu DC-3 vélarnar árið 1937. „Eg sagði við nánustu samstarfsmenn mína: Gentlemen, this is the biggest aeroplane you are ever going to see,“ sagði forstjórinn. Þessi saga segir kannski meira er mörg orð um viðhorf manna á þessum tíma til flugvéla, sem stækkuðu nær látlaust, alveg fram til áranna í kringum 1970. Síðan þá hefur ver- ið meira jafnvægi yfir þeim mál- um. Vélarnar verða einfaldlega fullkomnari og fullkomnari, en stækka ekki að sama skapi. Það er ekki rekstrarlega hagkvæmt, að stækka þær endalaust. Það krefst svo mikillar nýtni." Þú varst í upphafi eini flugmaöur félagsins og jafnframt framkvæmda- stjóri. Síðan ferö þú aö halla þér æ meira að skrifborðinu. Hvernig lykt- aöi þeirri baráttu? „Nú, eins og þú segir hallaði ég mér sífellt meira að skrifborðinu, enda stækkaði fyrirtækið mikið á þessum árum. Það var ógerningur, að ætla að sinna báðum störfun- um og þessi togstreita endaði árið 1947 með því, að flugmaðurinn varð að láta í minni pokann fyrir skrifstofumanninum. En það ár voru flugmenn félagsins orðnir 14 fyrir utan mig.“ Eftir á aö hyggja, séröu eftir því, aö hafa valiö skrifboröiö? „Það get ég ekki sagt, en á þess- Skoðunarferðir: Aþena: l/2dagssko3unarterð þar sem skoðuð eru öll þekktustu mannvirki höíuðþorgarinnar Eyjasigling: 1/1 dags œvintýrasigling með viðkomu d grisku eyjunum Hydra. Poros og Aegina Argolis: 1/1 dagslerðylirdPelops- skagann með viðkomu m a í Kórinþu. Mykenu. Argos. Naupliu og Epidavros Delfi: Dagsferð til Delfi. hins helga vé- tréttastaðar með viðkomu í mörgum sögufrœgum þorpum og bœjum Kvöldferð til Aþenu: piaka-hvemð heimsótt og farið til hafnarboejarins Nú er sólin komin hcrtt á loft í Grikklandi og fyrsta brottförin í skipulögðum hópferðum íslendinga loksins íramundan eftir nokkurra ára hlé. Grikkland er nýr áíangastaður í sjálfstœðu leiguflugi Samvinnuíerða-Landsýnar - ósvikinn draumastaður sól- og sjódýrkenda sem njóta gullíallegs landslags og fullkominnar aðstöðu á Vouliagmeni-ströndinni. En Grikkland á margt til viðbótar lands- laginu sjálíu. Óvíða í heiminum er að finna fleiri vitnisburði íornrar frœgðar og lit- ríkrar sögu. Meyjahoíið á Akrópólis- hœðinni, Herodeon-leikhúsið og véíréttar- staðurinn helgi, Delíi, eru á meðal sögu- frœgra staða sem fylla ferðamanninn lotningu og minna á hetjulega baráttu og glœsta sigra grísku þjóðarinnar. White House Nýtískulegar og þœgilegar íbúðir fast við ströndina. Eitt eða tvö svefnherbergi. eldhús með öllum nauðsynlegum eldun- artœkjum og borðbúnaði, setustoía, bað- herbergi og rúmgóðar svalir. Allar íbúðir eru loftkœldar. Hótel Margi House Nýtískuleg herbergi sem öll eru loít- kœld, búin baðherbergi, síma, útvarpi og svölum. Rúmgóð setustofa, barir, spila- herbergi, sjónvarpsherbergi, veitinga- salur, diskótek, verslanir, snyrtistoíur o.fl. eykur enn írekar á vellíðan og á íallegum garði á þaki hótelsins er einstakt útsýni ylir ströndina. í hótelgarðinum er sund- laug og stutt er til strandarinnar. Plraeus. Kvöldverður sncEddur a osvikn- um griskum veitingastað og dansinn stiginn framd nótt Munið aðildarfélagsafsléttinn, barnaafsléttinn, SL-ferðaveltuna og jafna ferðakostnaðinn! Sumar- bæklingurinn og kvikmyndasýning í afgreiðslusalnum alla daga. Samvinnuferdir - Landsýn AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.