Morgunblaðið - 08.04.1982, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 08.04.1982, Blaðsíða 12
60 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 1982 Vestlj arðaleið yfír vegleysur Brautin rudd fyrir reglulegar áætlunarferðir með ferðalagi áttmenninganna á fararkosti Dala-Brands árið 1952 „Takið eftir! Flugleiðir tilkynna brottför FÍ 40 til ísafjarðar. Farþegar gjörið svo vel að fara um borð og góða ferð! Flestir ferðalangar sem ferðast frá Reykjavík til ísafjarðar í dag kannast við þetta ávarp, enda fara langflestir farþegar flugleiðina. Til Isaijarðar er flogið 12 sinnum í viku og þrjár ferðir eru til Patreks- fjarðar. Miðað við þessa ferðatíðni er erfitt að átta sig á því hvað það er ótrúlega stutt síðan Vestfirðir komust í flugsamband við aðra landshluta, en þó er ekki mikið lengra síðan komið var á vegasambandi þarna á milli. Fyrstu ferðirnar voru farnar yfir Þorskafjarðarheiði, og að sögn As- mundar Sigurðssonar bílstjóra hóf Guðbrandur Jörundsson sem oft var nefndur Dala-Brandur áætlunarferðir þangað í kringum 1950. Farnar voru tvær ferðir í viku yfir heiðina og síðan farið með djúpbátnum til ísafjarðar frá Melgraseyri. Keyrt í fjörunni inn með Kollafiröinum. Eyjólfur Halldórsson, fyrrum verkstjóri og feróakempa. „Takið eftir! Flugleiðir tilkynna brottför FÍ 40 til Isafjarðar. Far- þegar gjörið svo vel að fara um borð og góða ferð! Flestir ferða- langar sem ferðast frá Reykjavík til Isafjarðar í dag kannast við þetta ávarp, enda fara langflestir farþegar flugleiðina. Til ísafjarð- ar er flogið 12 sinnum í viku og þrjár ferðir eru til Patreksfjarðar. Miðaö við þessa ferðatíðni er erf- itt að átta sig á því hvað það er ótrúlega stutt síðan Vestfirðir komust í flugsamband við aðra landshluta, en J)ó er ekki mikið lengra síðan komið var á vega- sambandi þarna á milli. Fyrstu ferðirnar voru farnar yf- ir Þorskafjarðarheiði, og að sögn Ásmundar Sigurðssonar bílstjóra hóf Guðbrandur Jörundsson sem oft var nefndur Dala-Brandur áætlunarferðir þangað í kringum 1950. Farnar voru tvær ferðir í viku yfir heiðina og síðan farið með djúpbátnum til Isafjarðar frá Melgraseyri. Árið 1952 réðst Guðbrandur ásamt félögum sínum í að freista þess að fara vestur Barðastrand- arsýslu og til Isafjarðar. Líklegt má telja að þessi ferð hafi flýtt lagningu vegar þarna um, því þeg- ar þessi ferð var farin var enginn vegarvottur á leiðinni, nema fjár- og hestagötur frá Brekku í Gufu- firði og vestur undir Þingmanna- heiði. Þá voru uppi hugmyndir um að setja ferju milli Vatnsfjarðar og Kollafjarðar og er aldrei að vita nema sú hugmynd hefði orðið að veruleika ef þessi ferð hefði ekki verið farin. Tveim árum eftir þessa ferð var vegur hinsvegar ruddur yfir Klettahálsinn og fór Ferðafélag íslands þar um en þrem til fjórum árum síðar hófust reglulegar áætlunarferðir frá Reykjavík til Patreksfjarðar og var Guðbrandur Jörundsson eða Dala-Brandur þá orðinn sérleyf- ishafi. Árið 1961 var síðan farin f.vrsta áætlunarferðin til Isafjarð- ar og var Ásmundur Sigurðsson bílstjóri í þeirri ferð ásamt þeim Kinari Steindórssyni og Eggert Karlssyni. Guðbrandur Jörunds- son er látinn fyrir nokkrum árum en blm. sótti heim Eyjólf Hall- dórsson sem nú er vistmaður á Hrafnistu, og er auk þess stuðst við og vitnað í frásögn Hallgríms Jónassonar sem hann las upp í út- varpinu veturinn 1953 og ber heit- ið „Yfir Klettahálsinn" og er í bók Hallgrims „Á öræfum“. „Keyri nú mest upp aó Alafossi, og í Mosfellssveitina." Ásmundur Sigurðsson fyrrum sérleyfishafi á Vestfjaróaleió, en hann fór fyrstu áætlunarferóina til ísafjaróar 1961. | Farið niður að vestan, bönd fest í bílinn til aó koma í veg fyrir aó hann velti. „Ein erfíðasta og skemmtilegasta ferð sem ég hef farið í“ „Upphaf ferðarinnar má rekja til þess að við fórum venjulega á hverju hausti nokkrir saman eitthvað sem ekki hafði verið farið áður. Ætlunin hafði verið að fara inn á miðhálendið þetta haust, en við hættum við þá ferð vegna snjóa sem sett hafði niður. Þá kom Dala-Brandur með þá hugmynd að reyna að aka 14 manna bíl vestur Barðastrandarsýslu og til ísa- fjarðar. Þessi leið hafði ekki verið farin áður, Vestfirðir höfðu þá ekki akvegasamband við aðra landshluta að undanskilinni Langadalsströndinni. Við þurftum að fara miklar vegleysur, en erfið- asti hlutinn var þó að komast yfir Klettahálsinn sem fiestir töldu ófæran bílum. Ferðin tók átta daga og er ein erfiðasta en jafn- framt skemmtilegasta ferð sem ég hef farið í.“ Það er ferðakempan Eyjólfur Halldórsson, nú vistmaður á Hrafnistu, sem segir hér frá, Eyj- ólfur er reyndar einnig þekktur undir nafninu Eyvi og við hann kennd Eyvakvöld, en hann á eitt stærsta myndasafn í eigu ein- staklings hér á landi, og hefur ver- ið duglegur að sýna myndir sínar á sérstökum myndakvöldum hjá Ferðafélagi íslands og Útivist. Herbergi hans á Hrafnistu ber ferðalögum vott, steinum hefur hann safnað hingað og þangað um landið, á veggjunum hanga inn- rammaðar myndir teknar af ferðafélögunum upp á fjallstind- um og himinháum stöflum af myndum í kössum er raðað með- fram einum veggnum. I þessa ferð var lagt af stað á laugardagsmorgni þann 30. ágúst 1952 og voru í ferðinni auk þeirra Hallgríms, Eyjólfs og Guðbrand- ar, Lárus Ottesen, Jóhannes Kol- beinsson og Skúli Þorbergsson. í Bjarkarlundi bættust við Lýður Jónsson og Magnús Rögnvaldsson. En hvað er Eyjólfi minnisstæð- ast úr ferðalaginu? „Ætli það hafi ekki verið vonda veðrið sem við lentum í er við höfðum slegið upp tjöldum skammt ofan við Klett. Við vorum í tveim tjöldum, þessa nótt vorum við þrír í mínu tjaldi, ég, Hall- grímur og Brandur. Þes9Í ósköp enduðu með því að þeir Hallgrím- ur og Brandur flýðu tjaldið, en ég fór hvergi þar sem ég vildi fylgj- ast með örlögum tjaldsins. Eg sofnaði skömmu eftir að þeir fóru, og vaknaði í sólskini daginn eftir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.