Morgunblaðið - 08.04.1982, Side 27

Morgunblaðið - 08.04.1982, Side 27
Hér oru þau Ingibjörg Olaan og Kriatinn Olsen bsaöi í Loftleiöabúning- um. Ingibjörg var meðal fyrstu flugfreyjanna hjá Flugfélagi íslands í míllilandafluginu, en síöar starfaöi hún í mörg ér hjé Loftleiöum. sem félagið hætti starfsemi: — Já, okkur leist ekki vel á blikuna þegar Hekia fór fram af braut. á Italíu og eyðilagðist, en þá vorum við Alfreð í New York og fréttum af því þangað. Fór- um við heim í skyndi og félagar okkar margir vildu þá athuga með atvinnu erlendis og höfðum við fengið þau skilaboð að heiman. Fengum við strákana til að halda áfram og upp úr því var seinni Heklan keypt og síðar keyptum við sexurnar. Og Kristinn rekur síðan hvernig flugið til Ameríku hefur þróast, en á þessum fyrstu árum tóku ferðirnar allt að 20 tímum. Kristinn blaðar í loggbókinni, en þar má sjá hvernig málin þróast: — Við vorum mikið fljúgandi í ís og snjó, en ísingin var versti óvinur okkar. Þegar við flugum í ísingu var eins gott að vera vel á verði og lýsa út á vængina til að fylgjast með, en yfirleitt reynd- um við að fljúga uppúr sortan- um þegar þannig stóð á. Lengsta flugið á þessum árum var 20 klukkutímar milli íslands og Ameríku. Algengt var að flugið frá Reykjavík til New York tæki 16 til 17 tíma. Þá var alltaf millilent í Goose eða Gander og stundum kom fyrir að við yrðum að lenda á Græn- landi. Var það kannski eftir óvenjumikinn mótvind að bens- ínnotkunin var meiri en við bjuggumst við. Þá kom fyrir að við fengum lánaða peninga hjá farþegum, sem við greiddum síðan við komuna til New York, en á þessum árum var ekki um nein lánsviðskipti að ræða í Grænlandi, enda versluðum við þar við herinn og komum mjög sjaldan þarna við og hann vildi auðvitað fá greitt í beinhörðum dollurum. En eftir því sem vélarnar urðu fullkomnari styttist flugtíminn. Næsta vél á eftir sexunum var Rolls Royce 400 eða CL-44 og tókum við þær í notkun kringum 1964. Létum við lengja þær vél- ar, rákum þrjár af lengri gerð- inni og tvær af þeirri styttri. Tóku þær lengri 189 farþega og voru stærstu vélar sem flugu yf- ir Norður-Atlantshaf á þessum árum. Þessar vélar voru vinnu- hestar og með þeim var flugtím- inn kominn niður í 7 til 8 tíma milli Islands og Ameríku. í þotuöldina 1970 Næsta skref Loftleiðamanna var svo inn í þotuöldina, árið 1970 þegar farið var að nota DC-8 þoturnar, sem enn eru í notkun hjá Flugleiðum og voru flestar 5. En Kristinn Olsen seg- ist hafa hætt að fljúga um það leyti sem þoturnar komu: — Það var eiginlega alveg óvart. Ég hafði ætlað mér á fyrsta námskeiðið sem flug- menn okkar fóru þegar við tók- um þotuna, en missti af því þar sem ég var að stússa í einhverj- um undirbúningi hérna heima. Á sömu leið fór með annað nám- skeiðið, alltaf var ég bundinn yf- ir einhverri skipulagsvinnu hér og hef verið það síðan. Komst ekki sjálfur í þotuöldina undir stýri, en læt mér vel líka að fylgjast með þróuninni. Edward Kristinn Olsen á að baki um 20 þúsund flugtíma og segist hann endanlega hættur flugi. — Annað hvort er að vera í þessu alveg eða ekkert, segir hann. Ekki vill hann heldur fljúga smáflugvélum, hann er hættur að fljúga og við það sit- ur. Síðustu árin hefur hann haft með höndum ýmis störf fyrir fé- lagið. jt þvottavélin: Stálvélin sem stenst túnanstöim Nýju Candy þvottavélarnar eru með pott úr ryðfríu stáli og utan um hann er sterk grind, sem tekur átakið af pottinum. CANDY þvottavélar fyrir kalt vatn CANDY þvottavélar fyrir heitt og kalt vatn CANDY þvottavélar með 400,500 eða 800 snúninga vinduhraða. Einnig bjóðum við Candy þurrkara, svo nú getið þér þurrkað allan þvottinn í einu á meðan þvotta- vélin er að þvo. Þannig sparast mikill tími. CANDY GÆÐI CANDY ÞJÓNUSTA 601*9311110120 Sími 26788 VANTAR ÞIG VINNU VANTAR ÞIG FÓLK O

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.