Morgunblaðið - 18.04.1982, Side 24

Morgunblaðið - 18.04.1982, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. APRÍL 1982 fWnrgi Útgefandi ®ttMWfrͧ> hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson. Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö- alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift- argjald 110 kr. á mánuöi innanlands. I lausasölu 7 kr. eintakiö. ekki innheimt lengur, en það var lagt á vegna iðnþróunar. Ríkisstjórn Gunnars Thorodd- sens hefur lagt á „orkujöfnun- argjald", sem er í raun hækkun á söluskatti um 1,5% og er hann nú 23,5%. Sé skattareikningur þessara tveggja stjórna síðan 1978 gerð- ur upp, kemur í ljós, að viðbót- arhækkun skatta nemur rúm- lega 20 þúsund krónum (2 millj- ónum gkr.) á hverja fimm manna fjölskyldu. Er þá ótalin hækkun á útsvörum til sveitar- félaga, sem heimiluð var af rík- isstjórn Gunnars Thoroddsens fyrir tilstuðlan Svavars Gests- sonar, formanns Alþýðubanda- Skattaglaðir ráðherrar Verði frumvarp fjármála- ráðherra Ragnars Arnalds um 6% skyldusparnað að lögum er svo komið, að jaðarskattar geta farið í um 70% af aflafé. Frá því að vinstri stjórnin komst til valda haustið 1978 hefur skattagleði ráðherra verið hömlulaus, nýir skattar hafa verið fundnir upp og hinir eldri hækkaðir. Ríkisstjórn Ólafs Jó- hannessonar, sem mynduð var í lok águst 1978, hóf feril sinn með því að leggja á afturvirka skatta. Með bráðabirgðalögum ákvað ríkisstjórnin að leggja á 6% tekjuskatt til viðbótar við álagðan tekjuskatt og við álagð- an eignarskatt einstaklinga var bætt viðauka. Síðan hafa þessir viðaukaskattar verið innifaldir í tekju- og eignarsköttum. Frá 1978 hafa eignarskattar á ein- staklinga tvöfaldast, en tekju- skattsbyrðin aukist um rúm 50%, ef tekið er mið af tekjum þess árs, sem fólk er að greiða skattana. Vinstri stjórnin undir forsæti Ólafs Jóhannessonar með Tóm- as Árnason sem fjármálaráð- herra lagði á fjölda nýrra skatta: gjald á ferðalög til út- landa, skatt á verslunar- og skrifstofuhúsnæði og aðlögun- argjald auk þess sem hún hækk- aði söluskatt um 2% úr 20 í 22% haustið 1979 og vörugjald um 6% á sama tíma. í tíð þessarar vinstri stjórnar hófst einnig skattahækkun á bensíni um- fram verðlagshækkanir. Hefur ekki verið horfið af þeirri braut síðan, þvert á móti hefur áhersla verið á það lögð, að rík- issjóður hefði sem mestar tekj- ur af bensíni, 56% af bensín- verði rennur nú í ríkishítina. Sú ríkisstjórn, sem nú situr, hefur haldið fast í alla skatta vinstri stjórnar Ólafs Jóhann- essonar nema nýbyggingar- gjald, þá er aðlögunargjaldið lagsins og félagsmálaráðherra. Við þessa viðbótarhækkun bæt- ast þær álögur, sem fyrirsjáan- legar eru á þessu ári á grund- velli fjárlaga og er þá ekki 6% skyldusparnaðurinn með talinn. Staða ríkissjóðs hefur að sjálfsögðu styrkst við alla þessa tekjuöflun, sem segir þó síður en svo alla söguna. Samkvæmt bráðabirgðatölum jókst inn- heimta tekju- og eignarskatta um tæplega 53% frá árinu 1980 til ársins 1981, innheimta óbeinna skatta jókst hins vegar um 65% og tekjur ríkissjóðs aðrar en af sköttum jukust um svipað hlutfall. Óbeinir skattar nema meira en fjórum fimmtu af heildartekjum ríkissjóðs. Samkvæmt skýrslu Þjóðhags- stofnunar urðu tekjur ríkissjóðs á síðasta ársfjórðungi 1981 71 % meiri en árið áður og var það 16% umfram hækkun verðlags. Þá hefur afkoma ríkissjóðs ver- ið mjög góð tvo fyrstu mánuði þessa árs, og má enn rekja það til mikillar eftirspurnar og mik- ils innflutnings enda eru tekjur ríkissjóðs fyrstu tvo mánuðina í ár 68% meiri en á sama tíma í fyrra. Þrátt fyrir þetta allt saman telur ríkisstjórnin nauðsynlegt að hækka skatta og ná meira fé af „breiðu bökunum" og ber fyrir sig fjárþörf Byggingar- sjóðs ríkisins. Vandi Bygg- ingarsjóðs stafar meðal annars af því, að hann hefur verið sviptur þeim tekjum, sem hann hafði af launaskatti, en þeir fjármunir renna nú beint í ríkishítina. Ljóst er, að skyldu- sparnaðurinn dugar ekki til að bjarga fjárhag Byggingarsjóðs enda segir framkvæmdastjóri Húsnæðisstofnunar ríkisins, sem fer með daglega stjórn sjóðsins, að tekjurnar af hinum nýja skatti eigi að nota til að borga yfirdráttarlán, sem sjóð- urinn hefur tekið í Seðlabank- anum. Byggingarsjóður er orð- inn svo aðþrengdur, að hann getur ekki staðið í skilum við lánardrottna sína nema þá með því að skera stórlega niður lánveitingar til húsbyggjenda. Miðað við þá miklu fjármuni, sem nú renna óvænt í ríkissjóð af innflutningi, sýnist ekki óeðlilegt, að ríkissjóður sjálfur taki að sér að létta byrðunum af Byggingarsjóði ríkisins, enda hafa skattaglaðir ráðherrar hrifsað öruggasta tekjustofn Byggingarsjóðs til sín. 10% samdráttur í smíði íbúðarhúsa ví fer fjarri, að það sé nokkur tilviljun, hvernig komið er fyrir Byggingarsjóði ríkisins. Sjóðurinn hefur það hlutverk að veita einstaklingum lán til að byggja og eignast íbúðarhúsnæði. Félagsmála- ráðherra fer með yfirstjórn sjóðsins, Svavar Gestsson, formaður Alþýðubandalagsins, skipar nú það embætti. Alþýðu- bandalagið starfar samkvæmt stefnuskrá, þar sem segir meðal annars: „Skipan húsnæðismála hér á landi er glöggt dæmi um það hvernig auðvaldsskipulagið knýr almenning til að fullnægja þörf, sem orðin er félagsleg í eðli sínu, með einkaframtaki í þágu einkagróða." Síðan er því lýst yfir með vandlætingu, að „í stað þess að tryggja almenningi öruggt húsnæði gegn sann- gjörnu leigugjaldi" verði hann að kaupa íbúðir „eins og hverja aðra markaðsvöru eða búa ella við öryggisleysið sem fylgir leiguhúsnæði í einstaklings- eign“. Félagsmálaráðherra Svavar Gestsson telur það bestu að- ferðina til að hrinda húsnæð- isstefnu flokks síns í fram- kvæmd að þrengja sem mest að Byggingarsjóði ríkisins. Þá mun ráðherrann telja það til sinna mestu afreka á flokksfundum í Alþýðubandalaginu, að á árinu 1981 varð 10% samdráttur í smíði íbúðarhúsa — þessi sam- dráttur sýnir best, að húsnæð- isstefna Álþýðubandalagsins er komin til framkvæmda. MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. APRÍL 1982 25 ívar Guðmundsson heiðraður I^var Guðmundsson, aðalræðis- maður íslands í New York, var nú fyrir skemmstu heið- ursgestur í kvöldfagnaði, sem fé- lagið The American Scandinavian Foundation í New York efndi til. ívar, sem kom til boðsins óafvit- andi um það sem til stóð, var heiðraður fyrir það mikla og óeig- ingjarna starf, sem hann hefur lagt af mörkum fyrir félagið og önnur hagsmuna- og hugsjóna- mál fólks af norrænum ættum. Til boðsins, sem haldið var í húsakynnum Ættfræði- og sagnfræðifélagsins á Manhatt- an, komu 200 félagsmenn í The American Scandinavian Found- ation, kaupsýslumenn og marg- ir aðrir, sem áhugasamir eru um íslensk málefni. Frú Neel Helpern, formaður félagsmála- nefndar ASF, stjórnaði sam- komunni og afhenti ívari veg- lega kristalsstyttu þar sem á var letrað: „Til ívars Guð- mundssonar með virðingu og þökk fyrir samstarfið við The American Scandinavian Found- ation." Frú Helpern lét þau orð falla áður en hún afhenti ívari styttuna, að þar sem hann væri kunnur fyrir áhuga sinn á veiðiskap væri á því enginn vafi, að hann myndi velja henni viðeigandi stað. Barbara, eig- inkona ívars, tók undir það og kvað ekki ástæðu til að ætla annað. ívar Guðmundsson sagði í þakkarræðu sinni, að hann hefði komið til fagnaðarins með það í huga að verja kvöld- inu í hópi nokkurra kunningja sinna, hlýða á úrvalsverk ís- lenskra, norskra og sænskra tónskálda í flutningi hinnar kunnu söngkonu Ólafar Harð- ardóttur og undirleikara henn- ar, Guðrúnar Kristinsdóttur, og að síðustu að njóta íslensks matar, sem fluttur hefði verið til New York fyrir velvild og rausnarskap Flugleiða. Nú, sagði hann, hafa vinir mínir og félagar séð til þess, að þetta kvöld verður mér ógleymanlegt alla tíð. ívar Guðmundsson hafði sjálfur séð um dagskrá kvölds- ins og matarútvegun og ekki annað vitað en kvöldið yrði ein- göngu helgað íslenskri menn- ingu og sögu. Um matargerðina sjálfa sáu þau hjónin Edith Warner og Robert maður henn- ar, og Edda Magnusson og Jón, eiginmaður hennar. ívar þakk- aði þessum íslensku konum sér- staklega fyrir þátt þeirra í að gera kvöldið jafn eftirminnilegt og raun bar vitni. Þær Edith og Edda eru báðar í félagsmála- nefnd ASF. Af öðrum atriðum á dagskrá kvöldsins má nefna, að þar var sýndur íslenskur ullarfatnaður og önnuðust það þær Grete Holby og Kirsten Holby, tísku- sýningarstúlkur í New York, Kirsten er í fremstu röð tísku- sýningarfólks í borginni. Einn- ig var sýnd myndin „ísland: Furðusmíð náttúrunnar", sem Ferðamálaráð og Flugleiðir hafa látið gera, og vakti hún mikla athygli. Meðal þeirra, sem fagnaðinn sóttu, voru Samuel Lefrak, kunnur fasteignasali í New York, aðalræðismaður Svía, Bengt Friedman, og kona hans, Nils Albertson, upplýsinga- og menningarmálafulltrúi á ræð- ismannsskrifstofu Dana, og kona hans, Peter Dybing, for- maður New York-deildar ASF, og Sigfús Erlingsson, umdæm- isstjóri Flugleiða í Vestur- heimi, og hans kona. Myndin er tekin eftir að ívari Guðmundssyni hafði verið afhent kristalsstyttan, stökkvandi höfr- ungur, sem honum var veitt í heiðursskyni fyrir fórnfust starf í þágu The American Scandinavian Foundation og norræns fólks í Vesturheimi. Frú Neel Helpern, formaður félagsmálanefndar ASF, er önnur frá vinstri. Henni til hægri handar er Peter Dybing, formaður ASF í New York, og ívari á vinstri hönd eru þær Edith Warner og Edda Magnusson. j Reykjavíkurbréf ♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦ Laugardagur 17. apríl Eitt hundrað áhugamenn úr Húnaþingi um Blönduvirkjun sækja Alþingi heim 11. marz 1981 Hvenær verda þinglausnir? Stjórnarliðar leggja höfuðkapp á að Ijúka þingstörfum um nk. mánaðamót, enda telja ýmsir þingmenn úr þeirra hópi æskilegt að hafa svigrúm til að sinna und- irbúningi sveitarstjórnarkosninga í maímánuði. Svo mikið kapp er lagt á þessa tímasetningu þing- lausna, að svo virðist sem hún skipti miklu meira máli en hitt, hvaða málum tekst að að koma í gegn um þingið. Hvort þetta eftir- sótta markmið stjórnarliða næst skal ósagt látið. Það sem einkum mælir gegn því er tvennt: 1) Ríkisstjórnin sýnist þurfa að að fá ýmis mál afgreidd f.vrir þinglausnir, sem vafist hafa fyrir þinginu vikum og mánuðum saman. Fyrirsjánlegt er, að hún verður að draga saman seglin á þeim vettvangi, ef þingi á að Ijúka í endaðan þennan mánuð, 2) Ymis stjórnarfrumvörp, sem stjórnin leggur áherzlu á, a.m.k. í orði, að fá afgreidd á yfirstandandi þingi, vóru það síðla lögð fram af hennar hálfu, að borin von er að þau verði afgreidd nú, nema þing standi lengur en ætlað er. Raunar bendir ýmisiegt til þess að sum þessara mála séu lögð fram, svo síðla þings sem raun ber vitni, fremur til að sýnast og friða áhugafólk um viðkomandi efni en að mein- ingin sé að knýja þau í gegn um þingið nú. Þetta gildir m.a. um stjórnarfrumvarp um málefni aldraðra, sem lagt var fram á dög- unum, frumvarp um kísilmálm- verksmiðju í Reyðarfirði, sem ekki var mælt fyrir fyrr en sl. miðviku- dag, frumvarp um sykurverk- smiðju í Hveragerði, frumvarp um framhaldsskóla, sem raunar er „gamall kunningi" þingmanna og fleiri mál. Þá er ekki á hreinu hvern stuðning ríkistjórnin hefur í eigin þingliði fyrir frumvarpi um 6% skyldusparnað á tekjuskatts- stofn 1982, umfram 135 þúsund krónur, sem ekki var lagt fram á Alþingi fyr en sl. fimmtudag, en því er ætlað að bæta Byggingar- sjóði rikisins að hluta til þann skaða, sem ríkisstjórnin olli hon- um, er hún tók .af honum helzta tekjustofn hans, launaskattinn, sem nú rennur beint í ríkissjóðinn. Meðal mála, sem ætla má að ríkisstjórninni sé alvara um að fá afgreidd á yfirstandandi þingi eru: 1) tillaga til þingsályktunar um orkumál, þ.á m. framkvæmdaröð virkjunarkosta, en þar stendur Blönduvirkjun þversum í stjórn- arliðinu, ekki sízt þingflokki fram- sóknarmanna, 2) frumvarp um sérstakan eignaskatt á verzlunar- og skrifstofuhúsnæði, 3) frum- varp um skattlagningu innláns- stofnana, 4) frumvörp til að mæta umfangsmiklum hallarekstri á járnblendiverksmiðju og kísil- verksmiðju (með stórauknu hluta- fjárframlagi ríkisins og lána- fyrirgreiðslu), 5) frumvarp um sinfóníuhljómsveit, sem ekki er ágreiningur um að nái fram að ganga, 6) frumvarp um námslán, sem samstaða er líkleg um, 7) frumvarp um fjölgun hæsta- réttardómara, sem einnig er lík- legt að verði afgreitt, 8) ýmis frumvörp tengd landbúnaði (um dýralækna, graskögglaverk- smiðjur, breyting á áburðarlögum og breyting á jarðalögum), 9) frumvarp um blindrabókasafn o.fl. Ýmsum störf- um ólokið Eins og sést af framansögðu, sem þó er hvergi nærri tæmandi, er ýmsum störfum ólokið á Al- þingi, enda verkstjórn ráðherr- anna í eigin herbúðum heldur slakleg. Þá má benda á, að ekki er lokið umræðu um utanríkismál, þ.e. skýrslu utanríkisráðherra, og hann sjálfur á förum utan, eftir fréttum að dæma. í tengslum við þau mál verður og að minna á frumvarp til laga um flugstöð á Keflavíkurflugvelli, sem Geir Hallgrímsson (S) og Benedikt Gröndal (A) hafa flutt, og nú er til umfjöllunar í þingnefnd í fyrri deild. Ljóst er að stjórnarandstað- an mun leggja höfuðkapp á að fá þetta mál úr nefnd og láta á reyna, hvort þingmeirihluti er til staðar fyrir því, eins og allar líkur benda til, en fjárframlagi mótað- ila (þ.e. fjármögnun flughlaðs og 20 milljónir Bandaríkjadala til sjálfrar byggingarinnar) eru tímatakmörk sett. Gera má ráð fyrir að þetta mál kalli á mjög harðar umræður, enda hefur það nokkra sérstöðu vegna ákvæða í stjórnarsáttmála, er setur það í nokkurskonar sjálfsvald kommún- ista innan • stjórnarsamstarfsins. Alþingi er hinsvegar yfir ríkis- stjórnina sett — og flestir eru þeirrar skoðunar, að í þessu máli sem öðrum eigi þingræðislegur meirihluti að ráða ferð, en ekki lítill minnihluti. Stjórnarandstaða hefur og flutt fjölda mála, sem hún sættir sig illa við að stjórnarliðið leggist á, án þinglegrar umfjöllunar. Má þar nefna nokkur þingmál, er sjálf- stæðismenn standa að um orkuöfl- un og orkunýtingu, skipulag orku- mála og orkuiðnað. Sjálfstæðis- menn hafa og lagt fram tillögur til þingsályktunar um stefnumörkun í iðnaðarmálum og landbúnað- armálum. Síðast en ekki sízt hafa þeir lagt fram frumvarp um skattalækkanir, þ.e. að fella niður flesta nýja skatta og skattauka, er komið hafa til síðan 1978, og færa skattbyrði fólks og fyrirtækja í það hlutfall af þjóðartekjum, sem hún var í tíð ríkisstjórnar Geirs Hallgrímssonar 1974—1978. Ríkisstjórnin þarf að semja við stjórnarandstöðu um afgreiðslu mála, ef þinglausnir eiga að nást um nk. mánaðamót. Eðlilegt er að í þeim samningum verði tekið gagnkvæmt tillit til mála stjórn- arandstöðu og stjórnarliða. Raun- ar virðist sem ríkisstjórnin hafi ekki enn gert hug sinn upp um það, hvaða þingmál skuli setja á oddinn í slíkum samningum, enda kemur það heim og saman við verklag hennar allt, að láta reka undan veðri og vindum inn í óráðna framtíð. Máske er ekkert samkomulag í brú þjóðarskútunn- ar, þ.e. í ríkisstjórninni, hvert sigla skuli, þ.e. hvaða markmiðum skuli að stefnt. Siglufjörður - Raufarhöfn Á fyrri helmingi þessarar aldar vóru síldveiðar og síldariðnaður ein af meginstoðum íslenzks þjóð- arbúskapar. Þá var Siglufjörður höfuðborg síldariðnaðarins, sem á þeim tíma var eina stóriðjan á ís- landi, og malaði ómælt gull í þjóð- arbúið, eins og raunar Raufarhöfn og fleiri „síldarpláss". Síðan kom afturkippurinn, hrun síldarstofns- ins (silfurs hafsins), hrun þess af- komugrundvallar, sem bæði fólk og sveitarfélag byggði á. Það tók þessa staði langan tíma að rétta úr kútnum. Viðreisnin byggðist m.a. á nýtingu nýs nytja- fisks, loðnunnar, sem ásamt bol- fiskinum varð undirstaða atvinnu- lífsins. En „sagan endurtekur sig“, loðnustofninn hrundi — og þar með afkomugrundvöllur fjölda fólks. Slíkt holskeflutjón, sem ríð- ur yfir tvisvar og líkja má við skaða af náttúruhamförum, er áfall, sem vart er hægt að mála nógu sterkum litum. Þrír þingmenn Sjálfstæðis- flokks, Halldór Blöndal, Eyjólfur Konráð Jónsson og Lárus Jónsson, hafa flutt tillögu á Alþingi, sem felur í sér úttekt á atvinnumálum í Siglufirði og á Raufarhöfn — með hliðsjón af breyttum viðhorf- um vegna hruns loðnustofnsins — og könnun á því, hvern veg skuli við bregðazt til nýrrar uppbygg- ingar. Halldór Blöndal mælti fyrir þessari tillögu sl. fimmtudag. Halldór gerði fyrst grein fyrir því, hver áhrif hrun loðnustofnins hefði á „atvinnuöryggi" fólks, sem sótt hefði lifibrauð sitt í vinnslu þessarar sjávarafurðar. 80—90 manns hefðu starfað við loðnu- bræðslurnar í Siglufirði og nálægt 40 á Raufarhöfn. Hann benti og á þá staðreynd, að 65% af tekjum Siglufjarðarhafnar hafi komið frá loðnuflotanum svo og drjúgur hluti tekna vatnsveitunnar. Raf- veita Siglufjarðar hefði og haft verðmætan orkumarkað þar sem loðnubræðslurnar vóru. Tekjur bæjarsjóðs í útsvörum og aðstöðu- gjöldum rýrna og verulega. Hall- dór las og upp bréf frá sveitar- stjóranum á Raufarhöfn, hvar niðurstaðan er hliðstæð, bæði fyrir Raufarhafn;:-hrepp og það fólk, sem atvinnuna missir. Sveitarfélögin hafa lagt í margskonar fjárfestingu, bæði í hafnarmannvirkjum og margs- konar þjónustu, m.a. í þágu loðnu- vinnslunnar, og sitja nú uppi með fjárfestingarkostnaðinn, þótt tekjur af starfseminni séu fyrir bí. Greiðslugeta fólksins og sveitarfé- laganna, til að rísa undir þessum kostnaði, er hinsvegar önnur og lakari, í kjölfar gjörbreytts at- vinnuástands. Hér þyrfti skjótt við að bregðast, m.a. að kanna, hvern veg nýta mætti fjárfestingu í loðnubræðslum og tilheyrandi mannvirkjum til nýrrar atvinnu- starfsemi og verðmætasköpunar. Grundvallar- réttur kjósandans Það ætti að vera grundvallar- krafa, byggð á skýlausum þegn- rétti einstaklingsins, að hver kjós- andi viti fyrirfram, hvað hann vel- ur með atkvæði sínu. Með öðrum orðum: það þarf að gera þá val- kosti, sem kosningar snúast um, eða ættu að snúast um, það ljósa og auðskilda, að kosningaréttur- inn verði í raun stefnumarkandi í því umhverfi, sem kjósendurnir lifa og hrærast í. Að öðrum kosti þjónar kosningarétturinn ekki skýlausum þegnrétti í lýðræðis- og þingræðisríki. Reykvíkingar ganga til ein- hverra sögulegustu borgarstjórn- arkosninga sem um getur 22. maí nk. Það skiptir þá miklu að þeir valkostir, sem um er kosið, liggi ljósir fyrir. Sjálfstæðisflokkurinn hefur geft hreint fyrir sínum dyrum, hvað þetta varðar. Kjósendur, sem kynnt hafa sér stefnumið hans í borgarmálum, ganga ekki að því gruflandi, hvað flokkurinn hyggst fyrir, fái hann umboð til að fara með meirihlutastjórn í borginni. Hann hefur og kynnt borgarbúum borgarstjóraefni sitt. Sjálfstæðisflokkurinn hyggst fyrst og fremst treysta atvinnulíf- ið í borginni, sem er undirstaða allra annara þátta borgarsamfé- lagsins, draga úr skattheimtu, til að örva vinnuframlag og framtak, lækka fasteignaskatta, sem hafa hækkað óeðlilega, og koma skipu- lagsmálum borgarinnar, sem stefna í hið mesta óefni, í heilbrigt og jákvætt horf. Reykjavík þarf á ný að fá einkenni grósku, bjart- sýni, framtaks og alhliða öryggis íbúanna. Kjósandinn rennir hinsvegar al- gjörlega blint í sjóinn með það, hvað ofan á verður ef Sjálfstæðis- flokkurinn vinnur ekki borgina. Stefnumið núverandi meirihluta- flokka ganga í ymsum atriðum á ská og skjön. Haldi þeir meiri- hluta þurfa þeir EFTIR Á að semja um samstarfsgrundvöll, sem enginn veit fyrirfram hvern veg verður, og kjósandinn, hinn al- menni borgari, hefur enginn áhrif á. Niðurstaðan verður væntanlega sams konar hringlandaháttur og stefnuleysi og einkennt hefur líð- andi kjörtímabil. Þá veit enginn, hvort borgarstjórar verða sjö, eins og stundum er talað um, eða einn, né hver eða hverjir gegni þeim embættum. Valkostur vinstri flokkanna er valkostur óvissunn- ar. Borgarstjórnarkosningarnar verða einvígi milli Sjálfstæðis- flokksins — og allra hinná fram- boðanna. Frambjóðendur Alþýðu- og Framsóknarflokks hafa lýst því yfir, að fái þeir aðstöðu til muni jæir áfram ganga í eina sæng með Alþýðubandalaginu. Framboð þríflokkanna eru því þrjár leiðir að einu og sama markinu: áfram- haldandi borgarstjórnarforystu kommúnista! Og það er og lær- dómsríkt að forystumaður Komm- únistasamtakanna, Ari T. Guð- mundsson, skuli hvetja fólk til að kjósa „kvennalistann", sem, vilj- andi eða óviljandi, þjónar undir óvissuna um framþróun mála í Re.vkjavík.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.