Morgunblaðið - 18.04.1982, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. APRÍL 1982
39
Óskar Björns-
son Kveðjuorð
Fæddur 18. október 1955
Dáinn 2. apríl 1982
„Þeir sem guðirnir elska deyja
ungir.“
Vorið 1967 vann ég um tíma í
fiski í frystihúsi í Reykjavík.
Barst það þá í tal á milli mín og
konu, sem vann við sama borð og
ég, að það vantaði strák í sveit á
æskuheimili mitt, norður í Keldu-
hverfi.
Þessi kona, sem hét Valgerður
Guðjónsdóttir, sagði þá að dreng-
inn sinn langaði mikið til að kom-
ast í sveit. „Hann þarf ekkert að
fá kaup, það er aðalatriðið fyrir
hann að fá að vera í sveit."
Og þannig varð það að þessi
drengur, Óskar Björnsson, 11 ára
gamall, fór flugleiðis norður og
með sömu flugvél sendi ég dóttur
mína 7 ára gamla.
Ég hitti Valgerði á flugvellinum
og ég man eins og það hefði verið í
gær, þegar við stóðum Hlið við hlið
og horfðum á eftir vélinni sem
smáfjarlægðist og varð að smá
depli í víðáttu himinsins.
„Þarna fara þau, blessuð börnin
okkar," varð Valgerði að orði. Ef-
laust hefur kvíði bærst í brjóstum
okkar beggja, dóttir mín var svo
ung, og Öskar litli var að fara á
alókunnugt heimili, langt að
heiman.
En allt gekk þetta vel, og þau
heima sem sögðu að það væri
happdrætti að ráða svona kaup-
staðarstráka án þess að vita nokk-
ur deili á þeim, hefðu ekki getað
fengið betri dreng og voru alltaf
að tala um hvað hann Óskar væri
góður strákur, bæði kurteis og
prúður.
Seinna um sumarið kom ég í
sveitina og kynntist honum og
varð hreykin af að hafa átt þátt í
að ráða hann.
Hann langaði til að fá að keyra
traktorinn þetta sumar, en Krist-
ján bóndi í Nýjabæ þorði ekki að
leyfa honum það, en sagði að
næsta sumar þegar hann yrði orð-
inn 12 ára gamall, og ef hann
kæmi aftur, þá mætti hann það.
Og næsta sumar kom Óskar svo
aftur í sveitina, ók þá traktornum
■ - ^ f Hé í
Frá vinstri: Guðmundur Jónsson, Hallgrímur Jónsson, Jón Júlíusson, Jón
Pétursson, Emanúel Morthens, Jón Hjaltested.
Sparisjóður vélstjóra:
Innlánsaukning 98%
AÐALFUNDUR Sparisjóðs vélstjóra
var haldinn í Borgartúni 18, laugar-
daginn 28. mars sl. A fundinum
flutti formaður stjórnar sparisjóðs-
ins, Jón Júlíusson, skýrslu stjórnar-
innar fyrir árið 1981 og Hallgrímur
G. Jónsson, sparisjóðsstjóri, lagði
fram og skýrði ársreikning spari-
sjóðsins.
Á síðasta ári voru liðin 20 ár frá
því að Sparisjóður vélstjóra tók til
starfa. Á þeim tíma hefur verið
stöðugur uppgangur í starfsemi
sparisjóðsins, en ekkert starfsár
hefur verið honum hagstæðara en
þetta afmælisár. Innistæðuaukn-
ing varð meiri en dæmi eru til um
áður, eða um 98%, en til saman-
burðar var meðalinnlánsaukning
innlánsstofnana árið 1981 um
71%. Námu heildarinnlán spari-
sjóðsins í árslok 76,5 milljónum
króna og jókst hlutdeild spari-
sjóðsins í innlánsfé sparisjóðanna
í landinu úr 6,4% 1980 í 7,3% 1981.
Hlutfallsleg aukning varð mest á
verðtryggðum reikningum, en
innistæður á þeim reikningum
rúmlega nítjánfölduðust á árinu.
Útlán Sparisjóðs vélstjóra juk-
ust enn meira en innlánin, eða um
102,3%, og námu þau í árslok 50,8
milljónum króna. Skuldabréfalán
eru nú stærsti útlánaflokkur
sparisjóðsins og námu þau í árslok
rúmlega 49% af heildarútlánum.
Hlutur víxla fer hins vegar stöð-
ugt minnkandi.
Innistæður Sparisjóðs vélstjóra
hjá Seðlabanka íslands námu í
árslok tæplega 26 milljónum
króna og höfðu vaxið um 112,7%
frá fyrra ári. Lausafjárstaða var
lengst af góð á árinu, einkum þó á
fyrri hluta þess.
Rekstrarafkoma sparisjóðsins
var góð á árinu og nam hagnaður
til ráðstöfunar samkvæmt rekstr-
arreikningi tæplega þrem milljón-
um króna. Alls nam eigið fé spari-
sjóðsins liðlega 10 milljónum
króna og hafði aukist á árinu um
94,6%.
Á síðasta ári var tekin upp ný
þjónusta við viðskiptavini spari-
sjóðsins, annarsvegar svokallað
„Heimilislán", sem felur í sér að
eftir ákveðinn fyrirframsaminn
sparnaðartíma á viðskiptamaður-
inn kost á láni og hinsvegar
„Launalán“, sem felur í sér ein-
földun þegar fastur viðskiptamað-
ur sparisjóðsins þar á láni að
halda.
Stjórn Sparisjóðs vélstjóra var
endurkjörin, en hana skipa Jón
Júlíusson, formaður, Jón Hjalte-
sted og Emanúel Morthens, en sá
síðastnefndi er kjörinn af borgar-
stjórn Reykjavíkur.
LEGSTEINAR
MOSAIK H.F.
Hamarshöföa 4 — Sími 81960
Aðalsteinn Magnús-
son — Minningarorð
og hjálpaði til við heyskapinn af
krafti, svo og önnur störf sem til
féllu því það sem hann var beðinn
að gera, það gerði hann orðalaust.
Setningar eins og „ég nenni því
ekki“ voru ekki til í hans orða-
forða.
Á fögrum sumarkvöldum hjól-
aði hann svo um langan veg, fram
á svokallaða Keldunesbæi til að
taka þátt í íþróttum þar með öðr-
um unglingum, og oft var það að
löngum vinnudegi loknum.
Fjögur sumur kom Óskar í
Nýjabæ og fyllti þar skarð bróður
míns sem dvaldi á sjúkrahúsi
þessi ár. Helgu og Kristjáni, sem í
Nýjabæ bjuggu, var orðið einkar
kært til hans og söknuðu hans
þegar hann hélt suður á haustin.
Nú er Nýibær búinn að vera í
eyði í mörg ár, en á liðnu sumri
rifjaði Óskar upp kunningsskap-
inn við Helgu og heimsótti hana
þar sem hún var ráðskona uppi á
Hólsfjöllum. Með honum var kon-
an hans og lítil dóttir. Þau voru
farin að búa á Húsavík en þaðan
mun konan hans hafa verið ættuð.
En nú hefur Óskar verið hrifinn
á brott frá ástvinum sínum og
þessar fátæklegu línur eiga að
vera smá þakkarkveðja til góðs
drengs sem svo alltof flótt var
burtkallaður.
En sá sem öllu ræður hlýtur að
ætla eitthvað mikilsvert hlutverk,
illu því unga og efnilega fólki sem
alltaf er að hverfa héðan svo
ótímabært og alltof fljótt að okkur
finnst sem eftir lifum.
Ég, fyrir hönd móður minnar,
Helgu Pálsdóttur, þakka Óskari
góðu árin í Nýjabæ og bið honum
guðs blessunar á nýjum vegum.
Og við sendum konunni hans,
litlu dótturinni, foreldrum og
systkinum okkar innilegustu sam-
úðarkveðjur.
Gunnlaug Olafsdóttir
Fæddur 14. nóvember 1932
Dáinn 1. apríl 1982
Við vorum harmi slegin við hið
sviplega fráfall Aðalsteins Magn-
ússonar. Hann var kosinn varafor-
maður deildar 4 hjá Félagi far-
stöðvaeigenda á íslandi 5. maí
1979. Þá um haustið lét þáverandi
formaður af störfum og Aðal-
steinn tók við formennsku. Strax
og hann kom í stjórn deildar 4, var
hann dugmikill stjórnarformaður,
og ekki minnkaði áhugi eða dugn-
aður hans þegar hann var kjörinn
formaður FR-deildar 4, 14. júní
1980, sem er fjölmennasta
FR-deild á landinu, og er það mik-
ið starf að sinna því með aðal-
starfi og enn nú meira með miklu
félagsstarfi með samstarfsfólki
sínu í Landsbanka íslands þar
sem hann starfaði. Hann var einn
af aðalhvatamönnum stofnunar
fjarskiptasveitar FR-deildar 4, og
var frá byrjun dugmikill í upp-
byggingu hennar. Það var sama
hvaða mál komu upp, oftast fann
Aðalsteinn lausn á þeim. Kátur
var hann og drengur góður og ætíð
til í glens og kátínu. Við sendum
okkar innilegustu samúðarkveðjur
til ekkju Aðalsteins og barna. Með
þakklæti fyrir það mikla starf
hans fyrir Félag farstöðvaeigenda
á íslandi og sérstaklega fyrir
FR-deild 4. Hafi Aðalsteinn sér-
staka þökk fyrir starfið og húmor-
inn.
Félag farstöðvaeigenda á íslandi
Stjórn deildar 4.
vantar
þi3 3Ódan bíl?
notaóur - en i algjörum serflokki
Eigendur Sharp örbylgjuofna gefst nú tækifæri til aö sækja nám-
skeiö þar sem kennd veröur matreiösla í örbylgjuofnum og meö-
ferö þeirra. Námskeiöiö veröur haldiö í verzlunum okkar aö
Hverfisgötu 103, þriöjudaginn 20. apríl kl. 20—22.
Stjórnandi námskeiöanna veröur Ólöf Guönadóttir, hússtjórn-
arkennari.
Þátttaka tilkynnist í síma 17244, frá kl. 10—12 á morgun,
mánudag.
HLJÓMTÆKJADEILD
<£jj» KARNABÆR
HVERFISGÖTU 103 SÍMI 25999