Morgunblaðið - 18.04.1982, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 18.04.1982, Blaðsíða 41
r MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. APRÍL 1982 41 vafa undirorpið hver fengi hinn eftirsótta gullbjörn, ef undan- skildir eru þeir sem vildu af sam- úðarástæðum láta hann ganga til Pólverja. Úrþvætti I kjölfar höfuðbangsans, þess gullna, sigla fimmsilfraðir sem eru af mismunandi stigum. Þeirra háttsettastur er sá sem veittur er þeirri mynd sem dómnefnd telur gædda mestum frumleika. Og þar sem nú er vargöld í Póllandi og dómendur meðvitaðir menn með samvisku og djúpstæða siðferðis- kennd, þótti þeim ótækt að ganga framhjá Pólverjum. Því kom silfurbjörn þessi í hlut myndarinnar Úrþvætti (Dreszcze) eftir Pólverjann Wojciech Marcz- ewski sem líkast til er kunnastur fyrir mynd sína Zmory. Hún yrði víst einna helst skilgreind heill- andi fantasía, en um leið ógnvekj- andi eins og nafnið raunar bendir til. Úrþvætti er um pólskan pilt sem ekki feliur inní samfélagið, er hálfgildings utangarðsmaður í heimaborg sinni. Hann er af ást- ríkri fjölskyldu og á yfirborðinu virðist allt með kyrrum kjörum, þótt ekki fari framhjá manni ein- hver undiralda óhugnaðar. Það verður til dæmis aldrei bjart þennan pólska vetur, þótt oft verði ratljóst. Einn góðan veðurdag er faðir piltsins fangelsaður og nýr leið- indakennari, kaldur og tilfinn- ingalaus, byrjar við skólann. Drengurinn situr og öskrar eftir föður sínum, án árangurs, og segir draumfarir sínar ekki sléttar. Stráksi er sendur í áróðurssum- arbúðir sem hann í fyrstu hatar, en smám saman fer að rofa til í óhamingju hans og hann ánetjast því kerfi er hann áður fyrirleit og verður ástfanginn af kennslukonu. Þá er pabbi hans látinn laus úr prísundinni og á hann bágt með að þekkja son sinn. Siík er orðin um- breytingin að hann er sífellt með slagorð á vörum og meira að segia farinn að biðja til Guðs um aö vera jafn hugdjarfur og fórnfús kommúnisti og sín heitteískaða. Það eru hamskipti stráksa sem eru veikasti hlekkur myndarinnar, þótt ekki séu aðrir traustir. Leik- stjóranum, Marczewski, og kvik- myndatökumanninum, Jerzy Ziel- inski, tekst að gjöra frásögnina einstaklega flata og þurra og eru stakkaskipti piltsins gerð sjálf- sögð og nánast eðlileg, þótt slíkt vaki greinilega ekki fyrir leik- stjóranum. Maðurinn verður að gera sér grein fyrir því að ekki er nægjanlegt að þjösna efninu af harðfylgi á filmu, hann verður að geta aukið það líka og hafa frá- sagnarstíl. Markgreifinn Mario Monicelli hlaut silfur- björn fyrir leikstjórn myndarinn- ar II Marchese del Grillo. Monic- elli, sem er borinn og barnfæddur í Rómu, hefur á ferli sínum eink- um fengist við að gera gaman- myndir. Markgreifinn af Grillo er ein slík og heldur af lakara taginu. Vitleysan gerist í páfatíð Píusar VII og fjallar um tvo menn svo nauðalíka að vart eru sundur- greinanlegir. Eins og vera bera er annar þeirra ^f fátækum stigum, en hinn vellauðugur. Þeir fá þá öldungis spaugilega hugdettu að hafa hlutverkaskipti og lenda þessir skemmtikraftar þá í ýms- um grínagtugum ævintýrum. Það væri synd að segja sögu- þráðinn frumlegan. Hugmyndin er á að giska tugþúsund ára gömul og löngu orðin margtuggin, útjöskuð og þvæld þá er Monicelli kemur til sögunnar og slíkur mígrútur til af tilbrigðum við þetta stef að þau er fá atriðin í Markgreifanum af Grillo sem ekki hafa sést áður á hvíta tjaldinu. Aðrir silfurbirnir Katrín nokkur Sass fékk silf- urbjörn fyrir leik sinn í austur- SJÁ NÆSTU SÍÐU Hótel Hveragerði í Hveragerði er til sölu nú þegar. Hóteliö er í fullum rekstri. Öll venjuleg tæki fyrir hendi. Lóö 1343,2 ferm og því stækkunarmöguleikar. Uþþlýsingar gefa Skrifstofa Hverageröishreþþs, sími 99-4150 og hæstaréttarlögmenn Ólafur Þorgrímsson og Kjartan Reynir Ólafsson, Háaleitisbraut 68, Rvík, sími 83111. þúert á beinni linu til ReykjaviKur einu sinni i viku Með aukinni strandferðaþjónustu býður Eimskip þér beint samband við Reykjavík, Akureyri og (safjörð einu sinni í viku. Hálfsmánaðarlega er einnig siglt á Siglufjörð og Húsavík og þannig haldið uppi tíðum og öruggum strandferðum. Við flytjúm fyrir þig jafnt stóra vöru sem smáa í gámum eða frystigámum sé þess óskaö. Eimskip annast að sjálfsögðu flutning alla leið á áfangastað ef það þykir henta, bæði hérlendis og erlendis. Reykjavík Siglingaáætlunin apríl ’82 Aðalskrifstofa Pósthússtræti 2 Sími 27100 - telex 2022 Innanhússimar 230 og 289 ísafjöröur Try99vi Tryggvason Aðalstræti 24 Sími 94-3126 Akureyri Eimskip Oddeyrarskála Simi 96-24131 - telex 2279 Frá Roykjavfk Frá (safiról Frá Akurayrl Frá Siglufirói Frá Húsavfk Tll Reykjavfkur 3Æ 4Æ 6/5 7/5 9/5 10/5 11/5 13/5 14/5 16/5 17/5 18/5 20/5 21/5 23/5 24/5 25/5 27/5 28/5 30/5 1/6 2/6 3/6 4/6 6/6 7/6 8/6 10/6 11/6 13/6 14/6 15/6 18/6 16/6 20/6 21/6 22/6 24/6 25/6 27/6 28/6 29/6 1/7 2/7 4/7 5/7 6/7 8/7 9/7 11/7 12/7 13/7 15/7 16/7 16/7 19/7 20/7 22/7 23/7 25/7 26/7 27/7 29/7 30/7 1/8 Vörumóttaka t Reykjavik: A-skáli. dyr 2 til kl. 15.00 á tðatudðgum. Alla mánudaga frá Reykjavík Á Akureyri alla miðvikudaga Alla leió meö EIMSKIP SIMI 27100 Siglufjörður Þormóður Eyjólfsson hf. Sími 96-71129 Húsavík Kaupfélag Þingeyinga Sími 96-41444 Setlaugar med loft og/eda vatnsnuddi, margar stærdir og gerdir. Gunnar Asgeirsson hf. Suöurlandsbraut 16 Sími 9135200 tfitfMt Scandi-Spa ... þvílík vellíðan! •, ‘f&’ ’ i • • * • o •« 1 •;**5*? * •# •. -.-•ofldp SÝNING laugardag og sunnudag KL. 14.00-18.00

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.