Morgunblaðið - 18.04.1982, Page 43

Morgunblaðið - 18.04.1982, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. APRÍL 1982 43 Wojciech Marczewski, leikstjóri Úr- þvættis — myndarinnar, sem talin var gædd mestum frumleika. Enda safnast smám saman að honum áheyrendur. Þegar komnir eru þrír eða fjórir leggur hann saxann frá sér, dregur upp byssu og lætur viðstadda hafa það óþvegið. I málið fléttast feitur lögreglu- maður sem er lítið hrifinn af þessu tómstundagamni saxafón- leikarans og gerir allt til að hafa upp á spilafíflinu, sem gengur þótt hægt fari. Má segja, að hér sé saxinn gerð- ur að tákni einmanaleika. Nokkr- ar senur myndarinnar eru um margt keimlíkar atriðum úr Leigubílstjóra Marteins Scorsese, þó ekki séu blóðsúthellingar í fyrrnefndri mynd jafn krassandi, og Poe liggi allt annað og meira á hjarta. Annar maður bandarískur átti þarna einnig stórgóða mynd, Al- exandre Rockwell að nafni, en lítið kemur til myndar landa hans, John Badham, sem gert hefur mynd eftir samnefndu leikriti, Whose Life is it Anyway (Er þetta ekki mitt líf?). Erindi þessa af- kvæmis leikstjóra Laugardags- kvöldsfársins á hátíð þessa verður ekki fljótséð. Mikið var um tilraunamyndir teknar á vídeó og virðist sú tækni auka möguleika fátækari leik- stjóra til kvikmyndagerðar. Einnig gat að líta þarna sýningu á verkum Pier Paolo Pasolini og hefur hann bara verið skrambi flinkur teiknari. Samhliða sýningunni voru sýnd- ar tvær myndir eftir hann, og uppistendur önnur af viðtölum Pasolinis við ýmsa italska borgara þar sem hann innir eftir afstöðu þeirra til ýmislegra öfughneigðra kynlegs mannkyns og bregðast að- spurðir mestanpart kynlega við. Fallkandídatarnir Werner Schroeter og Róna von Praunheim frumsýndu á hátíðinni stórmerki- legar myndir sínar, Liebeskonzil og Rote Liebe. Eru báðar mynd- irnar tilvaldar til að hræra uppí mönnum sem eru smáborgaralega þenkjandi. Utan hátíðar En svo við vendum kvæði okkar í kross, víkjum frá kvikmyndahá- tíðinni og beinum augum okkar að því sem almennt er á seyði í kvikmyndaheiminum. Tveimur dögum eftir að hátíðin hófst, var frumsýnd mynd Geiss- endorfers eftir Töfrafjalli Tómas- ar Manns og þykir Geissendorfer hafa tekist með ólíkindum vel til. En furðulegt þótti að þeir sem að myndinni stóðu, skyldu þvertaka fyrir sýningar á henni á hátíðinni. Milos Forman hefur nýverið gert mynd eftir bók E.L. Doctor- ow, Ragtime. Er myndin í anda þátta eins og Gæfu og gjörvileika, þótt stigsmunur sé á. Gerard nokkur Depardieu virð- ist orðinn ómissandi í franskar myndir. Hann leikur í nýjustu mynd Truffauts, Síðasta metrón- um, einnig í mynd Corneus, Vopnavali, og mætti svo lengi telja. Frést hefur, að hann muni einnig fara með aðalhlutverk í mynd sem Andrzej Wajda er að hefja tökur á ásamt Voitech Pschoniak. Mun myndin heita Dantonmálið og skrifaði Jean Claude Carriére handritið með Wajda. Innan tíðar mun Ingmar Bergman byrja á skrautmynd sinni, Fanny og Alexander. Verða í myndinni 50 aðalleikarar og hef- ur Bergman safnað saman flestum þeim leikurum sem eitthvað hafa mátt sín í fyrri myndum hans í hlutverkin, auk þess sem í stór- mynd þessari verða um þúsund statistar. Carlos Saura hefur rétt lokið við gerð myndarinnar Ljúfar stundir. Átti að frumsýna hana á hátíð- inni, en ekki varð af. Verður því líkast til bið á henni þar til kvik- myndaleikarnir í Cannes hefjast. Nýverið hófust sýningar á mynd reistri á sögum Charles Bukowski, sem Marco Ferreri gerði. Ferreri er þekktur fyrir myndir sínar Ofátið og Apadrauminn. Þykir Ferreri hafa fullsterka siðferðis- kennd til að gera bókmenntum Bukowskis trúverðug og sann- gjörn skil í mynd sinni Ósköp normöl geðveiki ... EFÞAÐERFRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐENU \l (il.VSIM, \ SÍMINN ER: 22480 NBS bjálkasumarhús Hin vönduðu bjálkahús frá NBS eru nú fáanleg. NBS-hús Láengi 7, 800 Selfossi. Sími 99-2337 og 99-1763. Þolplast nýtt byggingaplast- varanleg vöm gegn raka nýtt byggingaplast sem slæröðru við Plastprent hefur nú hafið framleiðslu á nýju byggingarplasti, ÞOLPLASTI, í sam- ráði við Rannsóknarstofnun byggingar- iðnaðarins. Framleiðsla á ÞOLPLASTI er árangur af auknum kröfum sem stöðugt eru gerðar til byggingarefna. ÞOLPLAST hefur aukið endingarþol gegn langtímaáhrifum Ijóss, lofts og hita. ÞOLPLAST ersérstaklegaætlað sem raka- vörn í byggingar, bæði í loft og veggi. ÞOLPLAST ervarið gegn sólarljósi og því einnig hentugt í gróðurhús, vermireiti og í glugga fokheldra húsa. ÞOLPLAST er framleitt fyrst um sinn 280 sm breitt og 0,20 mm þykkt. Plastprent hf. HOFÐABAKKA 9 SÍMI 85600 VC-7700P/S/N »Pl0 ..)))g[JTg Sharp fyrir þig: Viltu geta fundiö ákveöiö atriöi ... „stað“ ... strax „aftur“ í þætti sem þú ert aö sýna, ert kominn „framhjá“, en vilt „sjá“ aftur...? Þá er Sharp VC-7700 fyrir þig. Verö 23.100.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.