Morgunblaðið - 05.05.1982, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. MAÍ 1982
Borgarráð samþykkir:
Leið tvö gangi hring-
leið um Orfirisey
Arangur vinnustaðafundar
A VINNIISTAÐAFUNDI sem full
(rúar Sjálfstærtisflokksins, þau l)av-
íð Oddsson, Guðmundur Hall-
varðsson og Krna Ragnarsdóttir,
héldu í ísbirninum sl. mánudag
komu fram ákafar kvartanir yfir því,
að strætisvagnar gengju ekki út til
hinna fjölmcnnu vinnustaða í Örfir-
isey og væri því langt fyrir fólk að
fara í vagn og af þessu mikið óhag-
ræði.
Buðust þremenningarnir til að
koma þessu á framfæri og var því
vel tekið. Á fundi borgarráðs í gær
fluttu þeir Davíð Oddsson og
Markús Örn Antonsson tillögu um
að breyting yrði á leið 2 — Grandi
Vogar, þannig að vagnarnir færu
hringferð um Grandann og var
hún samþykkt, þannig að þessu
máli hefur þegar verið kippt í lið-
Nýr fundur ASÍ og VSÍ á þriðjudag:
Ekki heimilt samkvæmt
lögum að fresta samn-
ingum fram yfir 22. maí
Kíkissáttasemjari hélt stuttan
fund með samninganefndum ASÍ og
VSÍ í gærdag og var þar ákveðið að
halda annan fund nk. þriðjudag
klukkan 14.00. llm beiðni VSÍ um
frestun samningaviðræðna fram yfir
Spurt og
svarað um
garðyrkju
Athygli er vakin á því, að
lesendur geta haft samband
við ritstjórn Morgunblaðsins í
síma 10100 á milli kl. 11 og 12 á
morgnana og komið á framfæri
fyrirspurnum um garðyrkju-
mál.
Morgunblaðið hefur fengið
Hafliða Jónsson, garðyrkju-
stjóra, til að svara spurningum
lesenda.
kosningar, sagði Guðlaugur l>or-
valdsson, ríkissáttasemjari, að sér
væri það einfaldlega ekki heimilt
samkvæmt lögum.
„Samkvæmt lögunum ber að
halda fund á a.m.k. 14 daga fresti,
auk þess sem lögin kveða svo á, að
óski annar aðilinn eftir fundi,
skuli halda hann. Það varð því
samstaða aðila um að verða við
þeirri beiðni ASÍ að mæta til leiks
nk. þriðjudag," sagði Guðlaugur
ennfremur.
Sáttanefnd beindi þeim tilmæl-
um til aðila, að þeir mættu til
leiks nk. þriðjudag vel undirbúnir
til að takast á við vandamálin.
Flugfreyjurnar Sigurlaug Halldórsdóttir og Erna Matthíasdóttir klæðast
hér hinum nýju flugfreyjubúningum Flugleiða, sem verða teknir í notkun
15. maí nk.
Nýr sumarbúningur
„ÞAD MÁ segja, að með þessu
rætist gamall draumur okkar,"
sagði Krna Hrólfsdóttir, yfirflug-
freyja Fluglciða, á blaðamanna-
fundi í gærdag, þegar hún kynnti
nýja sumarbúninga flugfreyja og
flugþjóna félagsins, sem verða
teknir í notkun 15. mai nk.
Um er að ræða ljósbláa kjóla
fyrir flugfreyjurnar, en flug-
þjónarnir verða í ljósbláum
jökkum og dökkbláum buxum.
Erna sagði ennfremur, að það
væri mikill munur fyrir fólkið að
geta verið í léttum sumarklæðn-
aði í stað hinna hefðbundnu
dökku búninga. Flugfreyjubún-
ingarnir eru framleiddir í
Vestur-Þýzkalandi, en flug-
þjónafötin hjá Kóróna hér
heima.
Könnun Landssambands iðnaðarmanna:
Há laun hjá BÚR:
Stjórnarmaður
í Dagsbrún
með allt að
30 þús. á mánuði
í UMRÆÐUM um málefni Bæjarút-
gerðarinnar eftir að borgarráðsfund-
ur hafði verið opnaður í gær kom
fram, að borgarráðsmenn undruðust
þær launagreiðslur sem þar hafa átt
sér stað.
Kom fram að aðeins lítill hluti
af þessum launum stafaði af því
að menn fengju hærri laun en
samningar segðu fyrir um. Hins
vegar er yfirvinna og næturvinna
mikil og kemur hún á hærri grunn
en ella vegna yfirborgunarinnar.
Sem dæmi má nefna að meðal-
laun aðstoðarverkstjóra eru 27.000
kr. á mánuði fyrstu fjóra mánuði
ársins og fara upp í 33.000 þúsund
kr. í apríl. Meðallaun yfirverk-
stjóra eru 27.000 kr. og meðallaun
framleiðslustjóra eru rúmar
30.000 kr. og fara í rúmar 38.000
kr. í apríl eða 3,8 milljónir gam-
alla króna.
Verkstjóri hjá BÚR, sem sæti á
í stjórn fyrirtækisins fyrir Al-
þýðubandalagið og er einnig
stjórnarmaður í Dagsbrún, hafði
rúmlega 30.000 krónur, eða 3
milljónir gkróna í laun í apríl.
0'
INNLENT
Verkefnaskortur í íbúðarbygg-
ingum og verktakastarfsemi
KÖNNUN Landsambands iðnaðarmanna á byggingarstarfsemi á 4. árs-
fjórðungi síðasta árs bendir til þess, að í heild hafi starfsmönnum i
byggingariðnaði fækkað um nálægt 8%. í niðurstöðum könnunarinnar
segir, að um árvissan samdrátt sé að ræða, sem orsakast einkum af
veðurfari og minna framboði á vinnuafli.
Skrefatalningin:
Tekjur Pósts
og síma hafa
minnkað
„ÞAÐ er Ijóst að tekjur Pósts og
síma hafa minnkað með tilkomu
skrefatalningarnnar, en hve mikið
get ég ekki sagt um á þessari
stundu,“ sagði Guðmundur
Björnsson, fjármálastjóri Pósts og
síma, þegar Morgunblaðið ræddi
við hann í gær. Að sögn Guðmund-
ar verður ekki ljóst fyrr en í lok
maí hve mikið tekjutap Pósts og
síma er vegna skrefatalningarinn-
ar.
„Sé litið á heildarmannafla í
byggingariðnaði á landinu öllu, er
fækkunin nú sízt meiri en verið
hefur undanfarin ár. Hins vegar
sýnir könnunin meiri samdrátt í
byggingarstarfsemi á Norðurlandi
en annars staðar á landinu."
Ef litið er á allar greinar bygg-
ingariðnaðarins, töldu fyrirtæki
með 61% mannaflans að starf-
semin hefði dregizt saman frá 3.
ársfjórðungi, vægi þeirra sem
töldu að starfsemin hefði aukizt
var 7,6%, en aðrir, eða 31,4%
töldu starfsemina lítið hafa
breytzt. Samkvæmt þessu er
mannafli þeirra, sem gáfu til
kynna minnkun umfram þá, sem
sýndu samdrátt, 53,4% af heild-
armannafla þátttakenda. Miðað
við þennan mælikvarða hefur orð-
ið almennur samdráttur í verk-
takastarfsemi og einnig talsvert
dregizt saman í húsamálun.
Sé litið á allar greinar bygg-
ingariðnaðarins, töldu fyrirtæki
með 57,9% mannaflans að starf-
semi á 1. ársfjórðungi þessa árs
yrði minni, en á næsta ársfjórð-
ungi á undan, en fyrirtæki með
15,4% mannaflans áttu von á
aukningu. Mestur virðist yfirvof-
Verkalýðsleiðtogi um niðurgreiðslur ríkisstjórnarinnar:
„Siðleysi og fals-
anir stjórnvalda“
„ÞKSSAK niðurgreiðslur á land-
búnaðarafurðum eru ekkert annað
en falsanir, það eru hreinar línur,
og ekki við öðru að búast af stjórn-
völdum," sagði Jón Kjartansson,
formaður Verkalýðsfélags Vest-
mannacyja, í samtali við Mbl. í
gær.
„Þetta er óttalegt siðleysi að
vera að lækka landbúnaðarvörur
að segja má sama dag og reikna
á út kaupgjaldsvísitölu og
hækka svo þessar vörur aftur
um næstu mánaðamót. Þetta er
aðeins gert til þess að svindla á
vísitölunni niður um 2 stig og er
eitt af því sem verkalýðshreyf-
ingin hefur alltaf haft niður um
sig,“ sagði Jón.
andi samdráttur vera í verktaka-
starfsemi og húsamálun, en búizt
við aukningu í múrun og húsa-
smíði.
Fyrirtæki með 46,3% mannafl-
ans töldu fyrirliggjandi verkefni
Alþingi:
vera of lítil, önnur 52,7% töldu
þau hæfileg, en aðeins 1% sagði
verkefni vera of mikil. Samkvæmt
þessu er um talsvert almennan
verkefnaskort að ræða, einkum í
verktakastarfsemi og húsasmíði.
Stórmál stjórnarinnar
taka stökkbreytingum
MÖRG stórmál hafa verið til loka-
meðferðar á Alþingi síðustu daga og
hljóta nokkur þeirra afgreiðslu í
dag. Það hefur vakið athygli hvað
varðar meðferð málanna, að flest
þeirra eru lögð fram sem ríkisstjórn-
arfrumvörp en hafa samt sem áður
tekið mjög miklum breytingum í
meðforum þingsins og hafa jafnt
stjórnarandstæðingar sem stjórnar-
liðar tekið þátt í að miðla málum og
ná fram sameiginlegum niðurstöð-
um.
Fyrst þessara mála má nefna
Blönduvirkjunarmálið og röðun
næstu stóru vatnsaflsvirkjana
landsmanna. Mikið hefur verið
deilt um mál þetta, en samstaða
náðist með öllum nefndarmönnum
í atvinnumálanefnd, nema full-
trúa Alþýðuflokks, um sameigin-
lega bókun um hvernig túlka bæri
afgreiðslu nefndarinnar á málinu.
Þá hefur samkomulag náðst
milli þingflokkanna, að undan-
skildum þingflokki Alþýðuflokks,
um afgreiðslu stjórnarfrumvarps
um kísilmálmverksmiðju á Reyð-
arfirði. Meiri hluti iðnaðarnefnd-
ar neðri deildar bar fram breyt-
ingartillögur sem fela m.a. í sér að
frestað verði endanlegri ákvörðun
Alþingis, en stofnað verði félag til
að undirbúa frekari hönnun og
áætlanir. Málið verði tekið úr
höndum iðnaðarráðuneytis, en
þingkjörin sjö manna stjórn falin
stjórnun mála. Þingmenn Sjálf-
stæðisflokks leggja fram breyt-
ingartillögu sem m.a. felur í sér,
að ákvæðið um 51% eignaraðild
ríkissjóðs falli brott.
Þá var steinullarverksmiðju-
málið tekið til umræðu í samein-
uðu þingi í gærkvöldi. Meiri hluti
atvinnumálanefndar leggur til að
ríkisstjórnin beiti ekki heimildar-
ákvæði um fjármögnun 40% verk-
smiðjunnar, en einn nefndar-
manna leggur til að því verði vísað
til ríkisstjórnarinnar.
Sykurverksmiðja í Hveragerði
er enn eitt dæmið um mál sem
knúið hefur verið á um afgreiðslu
þessa síðustu daga. Samstaða
hafði náðst meðal þingmanna Al-
þýðuflokks, Framsóknarflokks og
Alþýðubandalags í iðnaðarnefnd
neðri deildar í gær um afgreiðslu
málsins, en fulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins leggja til að því verði
vísað til ríkisstjórnarinnar.